Morgunblaðið - 20.02.2018, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018
Nýjasta ofurhetjumyndin úr smiðju
Marvel og Disney, Black Panther
eða Svarti pardusinn, eftir leik-
stjórann Ryan Coogler, var frum-
sýnd fyrir helgi og sló aðsóknarmet
hvað varðar miðasölutekjur yfir
frumsýningarhelgi af kvikmynd
eftir þeldökkan leikstjóra. Tekjur á
heimsvísu námu 387 milljónum doll-
ara en fyrra met átti kvikmyndin
Straight Outta Compton sem skil-
aði 214 milljónum dollara í heildina,
þ.e. ekki aðeins yfir frumsýning-
arhelgi heldur allan þann tíma sem
hún var í sýningum. Black Panther
hefur m.a. vakið athygli fyrir að
nær allir leikarar hennar eru þel-
dökkir, sem hefur ekki áður sést í
bandarískri ofurhetjumynd enda
nær allar ofurhetjur teiknimynda-
sögunnar hvítar á hörund.
Samkvæmt frétt á vef The New
York Times var búist við því að
Black Panther myndi skila 165
milljónum dollara í miðasölu í
Bandaríkjunum fyrstu fjóra daga í
sýningum en aðsóknin varð langt-
um meiri og þeldökkir voru um 37%
bíógesta, að því er fram kemur í
fréttinni.
Svarti hlébarðinn sló aðsóknarmet
Vinsæl Úr Black Panther sem hlotið hefur
einkar góða aðsókn og lof gagnrýnenda.
Kvikmyndin Three Billboards Out-
side Ebbing, Missouri sópaði að sér
BAFTA-verðlaunum bresku kvik-
myndaakademíunnar þegar þau voru
afhent í Royal Albert Hall í London á
sunnudag. Myndin hlaut alls fimm
verðlaun, en hún var valin besta
myndin, besta breska myndin, Fran-
ces McDormand þótti besta leik-
konan í aðalhlutverki og Sam Rock-
well besti leikarinn í aukahlutverki
auk þess sem handrit Martins McDo-
nagh þótti vera besta frumsamda
handritið.
Samkvæmt frétt BBC er talið að
BAFTA-verðlaunin auki líkurnar á
því að myndinni vegni vel á Óskars-
verðlaunaafhendinguni sem fram fer
4. mars. Á það er reyndar bent að síð-
ustu þrjú árin hafi sú mynd sem þótti
best að mati BAFTA ekki hlotið Ósk-
arinn í sama flokki.
„Það sem við erum stoltust af, sér-
staklega á þessu Time’s Up-ári, er að
þetta er mynd um konu sem neitar að
láta vaða yfir sig,“ sagði Martin
McDonagh, leikstjóri og handritshöf-
undur, í þakkarræðu sinni. Frances
McDormand gerði mótmæli og borg-
aralega óhlýðni að umtalsefni í þakk-
arræðu sinni og lýsti stuðningi við
baráttu kvenna gegn kynferðislegri
áreitni og ofbeldi, en ræðu sinni lauk
hún með orðunum: „Valdið til fólks-
ins“. Nær allar konur sem viðstaddar
voru verðlaunaafhendinguna klædd-
ust svörtu í mótmælaskyni við kyn-
bundna ofbeldið sem viðgengst í kvik-
myndabransanum.
Næstflest verðlaun, eða þrenn,
hlaut The Shape of Water, en myndin
hlaut flestar tilnefningar eða samtals
12. Myndin var verðlaunuð fyrir
bestu útlitshönnun, Guillermo Del
Toro hlaut verðlaun fyrir leikstjórn
sína og Alexander Desplat fyrir
frumsamda tónlist.
Gary Oldman var valinn besti leik-
arinn í aðalhlutverki fyrir túlkun sína
á Winston Churchill í Darkest Hour,
en myndin var einnig verðlaunuð fyr-
ir bestu förðun og hárgreiðslu. Old-
man hafði tvisvar áður verið til-
nefndur fyrir leik sinn, en ekki hlotið
verðlaunin á því sviði heldur fyrir
leikstjórn og handrit sitt að Nil By
Mouth fyrir 20 árum. Sagði hann
verðlaunin nú vera sér mikinn heiður.
Allison Janney þótti besta leik-
konan í aukahlutverki í I, Tonya.
Besta teiknimyndin var valin Coco.
Besta handritið sem byggðist á áður
útgefnu efni var valið Call Me By
Your Name eftir James Ivory sem
byggist á samnefndri skáldsögu
André Aciman. Daniel Kaluuya, sem
fór með lykilhlutverk í hrollvekjunni
Get Out, var kjörinn rísandi stjarna í
netkosningu almennings.
Ridley Scott hlaut sérstök heiðurs-
verðlaun, þau þriðju frá BAFTA á 26
ára tímabili, en hann hefur aldrei
unnið til verðlauna í keppnisflokki.
AFP
Sigursæl Verðlaunahafar myndarinnar Three Billboards Outside Ebbing, Missouri. Höfundurinn og leikstjórinn
Martin McDonagh, framleiðandinn Peter Czernin, leikararnir Sam Rockwell og Frances McDormand sem bæði
voru verðlaunuð fyrir leik sinn og breski framleiðandinn Graham Broadbent fögnuðu góðu gengi myndar sinnar.
Three Billboards hlaut
flest BAFTA-verðlaun
„Mynd um konu sem neitar að láta vaða yfir sig“
Ánægð Bandaríska leikkonan All-
ison Janney var verðlaunuð fyrir
leik sinn í aukahlutverki í I, Tonya.
Vonarstjarna Breski leikarinn
Daniel Kaluuya var útnefndur rís-
andi stjarna að mati áhorfenda.
Glaður Gary Oldman var verðlaun-
aður fyrir túlkun sína á Winston
Churchill í Darkest Hour.
Stoltur Franska tónskáldið Alex-
andre Desplat verðlaunaður fyrir
tónlistina í The Shape Of Water.
• Gamli lykillinn
virkar áfram
• Vatns- og
vindvarinn
Verð: 45.880 kr.
LYKILLINN ER Í SÍMANUM
Lockitron Bolt gerir snjallsímann þinn að öruggum lykli
til að opna fyrir fjölskyldu, vinum eða öðrum gestum
þegar þér hentar og hvaðan sem er.
Þægilegt og öruggt. Þú stjórnar lásnum og fylgist með
umgengni í símanum. Hægt er til dæmis að opna fyrir
börnunum eða iðnaðarmönnum tímabundið án þess að
fara heim eða lána lykil.
Lockitron Bolt snjalllásinn fæst í Vélum og verkfærum.
Sölumenn okkar taka vel á móti þér.
ICQC 2018-20
BÍÓ
áþriðjudögum í Laugarásbíó
750
á allarmyndir nema íslenskar
kr.
FRÍ
ÁFYLL
ING
Á GOS
I
Í HLÉI
SÝND KL. 8, 10.15SÝND KL. 5.15, 7.50, 10.35
SÝND KL. 5.30SÝND KL. 5.30SÝND KL. 10.30SÝND KL. 7.50