Morgunblaðið - 26.02.2018, Síða 2
„Þetta slapp ótrúlega vel miðað við
aðstæður,“ segir Ólafur Guðmunds-
son, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi,
um rútuslys sem varð á Borgar-
fjarðarbraut í gær. 32 farþegar, þar
af 26 franskir unglingar, voru í rútu
sem fauk af veginum og á hliðina í
snarpri vindhviðu. Tveir farþeganna
urðu fyrir minniháttar meiðslum að
sögn Ólafs, sem sagði líklegt að far-
þegarnir hefðu verið í beltum.
„Mér leist ekkert á tilkynninguna;
30 börn, rútuslys, einhverjir slasaðir.
Mér leist ekkert á þetta,“ segir Ólaf-
ur, en sem áður segir fór betur en á
horfðist. Farþegarnir voru fyrst
fluttir í fjöldahjálparstöð Rauða
krossins, sem opnuð var í Mennta-
skóla Borgarfjarðar í Borgarnesi.
Um níuleytið í gærkvöldi var hóp-
urinn ferjaður suður í Ölfus, þar sem
hann gisti. Að sögn Ólafs vildu
frönsku ungmennin ekki fara í rútu á
Suðurlandið enda skelkuð eftir slysið.
Því voru þau ferjuð með tveimur
stórum björgunarsveitarbílum og
tveimur einkabílum. Teymi frá
Rauða krossinum á Suðurlandi mun í
dag heimsækja hópinn og athuga líð-
an hans. athi@mbl.is
Mildi að ekki fór verr er rúta valt
32 um borð er rútan fauk út af veginum Hópurinn vildi ekki ferðast með rútu síðar um daginn
Morgunblaðið/Eggert
Slys Fjöldahjálparmiðstöð var opnuð í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi í gær og þar var hópurinn skoðaður af heilbrigðisstarfsfólki.
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Hátæknigagnaver mun rísa við
norðurenda Korputorgs síðar á
árinu og reiknað er með að fyrsti
áfangi þess, um 1.000 fermetrar,
verði tekinn í notkun snemma á
næsta ári. Svo mun gagnaverið, sem
er hið fyrsta sem rís í höfuðborginni,
verða stækkað í áföngum upp í 5000
fermetra, með möguleika á frekari
stækkun. Orkunotkun þess þegar
það verður fullbúið mun slaga upp í
orkunotkun allra heimila landsins til
samans, að sögn Þorsteins G. Gunn-
arssonar, forstjóra Opinna kerfa
(OK).
Framkvæmdin er samstarfsverk-
efni OK, Vodafone, Reiknistofu
bankanna (RB) og Korputorgs og
var kynnt á blaðamannafundi í auðu
verslunarrými á Korputorgi í gær.
Þorsteinn segir kostnaðinn við
fyrsta áfanga gagnaversins vera um
það bil milljarð króna.
Staðsetningin á Korputorgi er
sögð afar góð fyrir rekstur gagna-
vers. Afhendingaröryggi raforku er
mjög mikið og um svæðið liggja svo-
kallaðar gagnastofnbrautir, eða af-
kastamiklir ljósleiðarar.
Gagnaver í hæsta gæðaflokki
OK áttu frumkvæðið að verkefn-
inu, sem hófst eftir að Íslensk-Am-
eríska (Ísam) keypti Korputorg. OK
og RB hafa verið í nánu samstarfi og
Þorsteinn segist hafa vitað af því að
RB þyrfti nýjan stað undir sitt aðal-
tölvuver og því samsinnir Friðrik
Þór Snorrason, forstjóri RB.
„Við erum búin að vera með mjög
brýna þörf fyrir að flytja annað af
okkur gagnaverum og koma því í há-
tæknigagnaver eins og við erum að
fara að byggja hérna. Þetta var frá-
bær valkostur sem kom inn á borðið
hjá okkur, eftir langa leit,“ segir
Friðrik í samtali við Morgunblaðið.
Stefán Sigurðsson, forstjóri Voda-
fone, segir að mikil tækifæri felist í
uppbyggingu gagnaversins. Stefán
líkir því við „fjögurra stjörnu hótel“
í íslenska gagnaverabransanum,
sem hingað til hafi verið fullur af
„núll til einnar stjörnu hótelum“,
sem mörg hafi aðallega skaffað
reiknigetu til aðila sem standa í raf-
myntagreftri.
„Þessu er beint að aðilum sem
gera gríðarlega miklar kröfur til
gæða, öryggis og umhverfismála.
Okkur finnst þetta gríðarlega
spennandi,“ segir Stefán.
Korputorg var byggt upp sem
verslunarkjarni og opnað árið 2008.
Verslun í húsnæðinu hefur staðið
verulega höllum fæti undanfarin ár
og til stendur að breyta ásýnd svæð-
isins verulega á næstu misserum.
Sævar Þór Ólafsson fram-
kvæmdastjóri Korputorgs ehf. segir
að félagið sjái fyrir sér að geta
byggt í það minnsta 26.000 fermetra
af atvinnuhúsnæði á svæðinu og að
gagnaverið passi vel inn í það.
„Hér er nægt pláss,“ segir Sævar
og bendir á að 81.000 fermetrar af
atvinnuhúsnæði í borginni séu víkj-
andi á skipulagi. Því sé nóg af fyr-
irtækjum sem þurfi að flytjast ann-
að og að Korputorg ætli sér að halda
áfram á sömu braut.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir,
ferðamála-, iðnaðar-, og nýsköpun-
arráðherra, segist sjá mikil tækifæri
í verkefninu og að jákvætt sé að fá
inn fleiri stóra kaupendur að end-
urnýjanlegri íslenskri orku.
„Það leggst vel í mig. Þetta er
auðvitað ört vaxandi iðnaður í heim-
inum og við höfum lýst áhuga á því
að hann skili sér hingað, sá vöxtur.
Þetta er umhverfisvænt hátækni-
gagnaver og ég vona að þessi áform
gangi eftir,“ segir Þórdís Kolbrún.
Fyrsta gagnaverið rís í Reykjavík
Fyrsti áfangi tekinn í notkun snemma árs 2019 Orkunotkunin verður á við öll heimili í landinu er
gagnaverið verður fullklárað Frekari uppbygging atvinnuhúsnæðis fyrirhuguð á landi Korputorgs
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Undirritun Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra iðnaðar og nýsköpunar
ávarpar blaðamannafundinn á Korputorgi í gær og borgarstjóri fylgist með.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
„Þetta er bara ótrúlega góð tilfinn-
ing. Þessi verðlaun eru með virtari
verðlaunum sem eru veitt í þessum
bransa svo það er ekki annað hægt,“
segir Tómas Lemarquis leikari, sem
fer með aðalhlutverk í rúmensku
kvikmyndinni Touch Me Not, en hún
hlaut Gullbjörninn sem besta kvik-
myndin á kvikmyndahátíðinni í Berl-
ín sem lauk í gær.
Adina Pintilie leikstýrir Touch Me
Not, en kvikmyndin fjallar um konu
sem á erfitt með að mynda náin
tengsl við annað fólk og lærir að
elska eigin líkama. Úrslitin komu
leikstjóranum á óvart. „Við áttum
ekki von á þessu,“ sagði hún við af-
hendinguna.
Enn er ekki víst hvenær myndin
verður frumsýnd á Íslandi en Tómas
segir nokkrar kvikmyndahátíðir
spenntar fyrir henni.
„Með virtari verðlaunum“
Kvikmynd Tómasar Lemarquis hlaut Gullbjörninn
AFP
Gullbjörninn Tómas, fyrir miðju, ásamt leikstjóranum Adinu Pintilie (t.v.)
og meðleikara sínum Christian Bayerlein (t.h.) á kvikmyndahátíðinni.