Morgunblaðið - 26.02.2018, Page 4

Morgunblaðið - 26.02.2018, Page 4
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er ein besta viðurkenning á heimsvísu sem gististaður getur fengið. Þeir sem þekkja til innan ferðaþjónustunnar vita hvað hún er áhrifamikil enda er borin mikil virðing fyrir National Geo- graphic,“ segir Unnar Bergþórs- son, hótelstjóri á Hótel Húsafelli í Borgarfirði. Hót- elið hefur verið valið sem einn af einstökum gisti- stöðum National Geographic, það fyrsta á Norðurlöndunum. Sjálfbær í orkuframleiðslu Það var National Geographic Unique Lodges of the World sem handvaldi Hótel Húsafell í hóp þeirra gististaða sem fyrirtækið vill hafa innan sinna vébanda. Öll þurfa hótelin að undirgangast stranga hótelið er algerlega sjálfbært í orku- framleiðslu og að sett hefur verið á fót endurvinnsla sorps í samvinnu við samstarfsaðila á svæðinu. Níu holu umhverfisvottaður golfvöllur og endurbætt sundlaug hafa sitt að segja. Einnig einstök listaverk eftir Pál Guðmundsson, listamann í Húsafelli, sem prýða húsakynni hót- elsins. Mikilvæg kynning Unnar bindur vonir við að val í hóp einstæðra gististaða hjá Nat- ional Geographic hafi jákvæð mark- aðsáhrif fyrir Hótel Húsafell. Nat- ional Geographic hafi verið lengi til og sé þekkt vörumerki í þessari at- vinnugrein. Því fylgi góð kynning að vera í hópi hótela sem fyrirtækið velur. National Geographic stendur fyr- ir leiðöngrum af ýmsu tagi víða um heim. Hótel Húsafell er nú kynnt sem gististaður í þeim. Boðið er upp á skoðunarferðir um nágrennið og afþreyingu. Bein viðskipti fylgja því útnefningunni en Unnar telur þó kynninguna verðmætari. Hótel Húsafell í hópi einstæðra gististaða Húsafell Hótel Húsafell er í einstæðu umhverfi, efst í Borgarfirði, í skjóli fjalla og jökla. Umhverfið er ekki nóg, þjónustan sem gestir fá þarf að vera til fyrirmyndar til að heilla National Geographic eins og líka gerðist. gæðaúttekt. Mörg hótel eru skoðuð en einungis fáum er boðin aðild. Þau útvöldu eru aðeins 57 í heiminum öllum og þau eiga það sameiginlegt að leggja áherslu á sjálfbærni, fram- úrskarandi þjónustu við gesti og vera umvafin stórbrotinni náttúru. Hótel Húsafell opnaði dyr sínar fyrir gestum í júlí 2015. Starfsfólk National Geographic hafði fyrst samband þá um haustið. „Þeir höfðu áfram samband og mér fannst þeir ágengir. Hélt að þetta væri plat og sinnti þeim ekkert. Það var ekki fyrr en ég fékk hringingu frá þeim og var skammaður fyrir að sjá ekki á mikilvægi þess að svara National Geographic að ég áttaði mig,“ segir Unnar. Hófst þá það ferli skýrslu- gerðar og úttekta sem nú er lokið með aðild hótelsins að þessum ein- stöku samtökum. National Geographic hafði meðal annars til hliðsjónar við val sitt að  National Geographic bauð Hótel Húsafelli í útvalinn hóp gististaða  Fyrsti gististaðurinn á Norðurlöndum og einn af 57 í heiminum öllum  Verðmæt kynning sem felur í sér bein viðskipti Unnar Bergþórsson 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2018 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. FUERTEVENTURA 5.mars í 10 nætur ÁÐUR KR. 79.900 NÚ KR. 39.950FL UG SÆ TI Frá kr. 79.995 2FYRIR1 áflugsæti m/gistingu FY RI R2 1 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mjög er nú tekið að létta á klakastífl- unni í Hvítá í Árnesýslu, enda þótt enn séu miklar hrannir í ánni og stórir jakar hafi borist á land. Tals- vert hefur líka sjatnað í ánni og í miðjum farvegi hennar er nú mikill strengur sem rennur hindrunarlaust fram. Fyrr í mánuðinum flæddi áin yfir bakka sína og meðal annars inn í sumarhús í landi Vaðness í Gríms- nesi. Var vegna þess varað við flóða- hættu sem nú virðist afstaðin. Jakaburður á köldum vetri „Það eru mörg ár síðan svona mik- ill jakaburður hefur verið í ánni, en þá ber líka að hafa í huga að þessi vetur hefur verið kaldur og langvar- andi frostakaflar. Núna er hins veg- ar þíða, snjó á láglendi hefur að mestu tekið upp í miklum rigningum og þar af leiðandi er mikið vatn í ám. En jakarnir sem við sjáum núna eru heljarstórir, hundruð kílóa á þyngd og mjög þykkir,“ sagði Magnús Guð- mundsson, bóndi á Oddgeirshólum í Flóa, þegar hann sýndi blaðamanni aðstæður um helgina. Hann þekkir vel staðhætti við ána og segir hana aldrei hafa flætt yfir bakka sína í Oddgeirshólalandi. Frá fyrri tíð sé hins vegar vel þekkt þegar hún flæmdist fram sveitina frá jörðum sem eru ofar við ána, svo sem Aust- urkoti og Brúnastöðum. Margir lentu í vanda í vatnsveðr- inu um helgina og hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var dæmafátt annríki, svo víða þurfti að dæla vatni út úr húsum þar sem flætt hafði inn. Samgöngur röskuðust ekki, nema hvað farþegar í vélum sem var lent á Keflvíkurflugvelli síðdegis þurftu að bíða lengi eftir að geta farið inn í flugstöðina, því ekki var hægt að setja landgöngurana að í rokinu. Sólin vermir næstu daga Eftir umhleypinga í veðráttu að undanförnu eru breytingar í vænd- um. „Nú sér fyrir endann á lægðum sem verið hafa allan febrúarmánuð,“ segir Einar Sveinbjörnsson veður- fræðingur. „Ísland verður um miðja vikuna inni í háþrýstisvæði næstu daga, hér verður bjartviðri og sól- skin um nær allt land en frost á nótt- inni. Síðan fer hæðin til vesturs og við það snýst í norðlægar áttir með kólnandi veðri, en þurru lofti í grunninn svo ekki snjóar að ráði. Reyndar er daginn nú farið að lengja svo að líklegt er að sólin vermi næstu daga svo vel að hitastig verði í plús en frost á nóttinni.“ Miklar hrannir í ánni og jakar á bökkunum  Flóðahættan afstaðin  Dæmafátt annríki hjá slökkviliði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hvítá Ekki hefur verið jafn mikill ís í ánni í mörg ár, segir Magnús Guðmundsson bóndi í Oddgeirshólum í Flóa. Rok Í SA-átt á laugardag feyktust fossarnir í Fljótshlíð til og frá. „Siglingin gekk bara ljómandi vel,“ sagði Tómas Kárason, skipstjóri á uppsjávarskipinu Beiti NK, þegar Morgunblaðið náði tali af honum á tíunda tímanum í gærkvöldi. „Við erum rétt að leggjast að bryggju.“ Beitir NK kom í land í Neskaup- stað í gærkvöld eftir rúmlega tveggja sólarhringa siglingu með rúmlega 3.000 tonn af kolmunna sem veiddust suðvestur af Írlandi, um 900 sjómílur suður af Íslandi. Aðspurður segir Tómas þetta ekki venjulegan túr. „Það er bara verið að nota tækifærið, loðnan er ekki almennilega farin af stað og við þurfum alltaf að taka eitthvað utan lögsögu.“ Tómas segir þá svo ætla að drífa sig á loðnu þegar búið verður að landa kolmunnanum, lík- lega á morgun. Á föstudag landaði Guðrún Þor- kelsdóttir SU um 1.600 tonnum af kolmunna á Eskifirði, en hún var einnig á kolmunnamiðunum suð- vestur af Írlandi. 900 sjómílur með 3.000 tonn af kolmunna Beitir NK landar í dag um 3.000 tonnum af kolmunna eftir 900 sjómílna siglingu. Bragi Þorfinns- son náði loka- áfanga að al- þjóðlegum meistaratitli í skák á Kragerö- mótinu í Noregi í gær. Hann hlaut sjö vinn- inga í níu skák- um, en í síðustu skákinni lagði hann ensku lands- liðskonuna Jovanka Houska í 57 leikjum. Sigur þessi þýddi þriðja stórmeistaraáfanga Braga, en áð- ur hafði hann náð áföngum á Ís- landsmóti skákfélaga og í breskri keppni taflfélaga. Þá hefur Bragi náð 2500 skák- stigum og þá eru öll formsatriði fyrir stórmeistaratitil uppfyllt. Bragi verður að öllum líkindum útnefndur stórmeistari á fundi Al- þjóða skáksambandsins sem hald- inn verður í Hvíta-Rússlandi í apr- íl. Bragi Þorfinnsson stórmeistari í skák Bragi Þorfinnsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.