Morgunblaðið - 26.02.2018, Page 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2018
• Gamli lykillinn
virkar áfram
• Vatns- og
vindvarinn
Verð: 45.880 kr.
LYKILLINN ER Í SÍMANUM
Lockitron Bolt gerir snjallsímann þinn að öruggum lykli
til að opna fyrir fjölskyldu, vinum eða öðrum gestum
þegar þér hentar og hvaðan sem er.
Þægilegt og öruggt. Þú stjórnar lásnum og fylgist með
umgengni í símanum. Hægt er til dæmis að opna fyrir
börnunum eða iðnaðarmönnum tímabundið án þess að
fara heim eða lána lykil.
Lockitron Bolt snjalllásinn fæst í Vélum og verkfærum.
Sölumenn okkar taka vel á móti þér.
● Greint var frá
því í vikulok að
samkomulag hefur
náðst milli skipta-
stjóra þrotabús
United Silicion og
Arion banka um að
bankinn fái að
ganga að veðum sínum og taki yfir allar
helstu eignir félagsins.
Í tilkynningu frá bankanum segir að
stofnað verði nýtt félag um starfsemi
kísilverksmiðjunnar í Helguvík og mark-
mið Arion banka sé að vinna að úrbót-
um á verksmiðjunni og selja hana eins
fljótt og kostur er. ai@mbl.is
Arion banki tekur yfir
eignir United Silicon
STUTT
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Hinn 23. maí næstkomandi mun
bandaríska flugfélagið United Air-
lines hefja beint flug á milli New-
ark-flugvallar og Keflavíkur. Um
árstíðabundið flug er að ræða sem
verður í boði fram til 4. október. Nú
þegar eru góðar tengingar á milli
Íslands og flugvalla New York-
borgar og fljúga bæði Icelandair og
WOW air til Newark og JFK og
Delta flýgur árið um kring til JFK.
Flug United er
þó á öðrum tíma
dags, með brott-
för frá Keflavík
kl. 11:55 og lend-
ingu í Newark kl.
14:05, en hin
flugfélögin leggja
af stað frá Kefla-
vík ýmist
snemma morg-
uns eða síðdegis.
United flýgur frá
Newark til Íslands kl. 22:30 með
lendingu kl. 8:10 morguninn eftir, á
meðan hin flugfélögin þrjú fljúga til
Íslands að morgni til eða fyrr um
kvöldið.
Bob Schumacher, sölustjóri Unit-
ed fyrir Bretland, Írland og Ísland,
segir flugið m.a. geta hentað vel
fólki sem ferðast í viðskiptaerindum
því notaðar verða Boeing 757-200-
vélar með Polaris-viðskiptafarrými
þar sem leggja má sætin flöt. Er
aðeins hægt að halla bakinu á sæt-
unum á viðskiptafarrými hinna flug-
félaganna. „Farþegar á við-
skiptafarrými geta líka notað
Polaris-setustofuna í Newark,
snætt þar fyrir flugið og þannig
haft betri tíma til að sofa á leiðinni
til Íslands,“ segir hann og bætir við
að Newark sé sá flugvöllur sem hafi
bestu tengingarnar við Manhattan
og hægt að fara þaðan beint á Penn
Station á skömmum tíma.
Mögulegar tengingar
til Skandinavíu
Að sögn Schumachers var ákveð-
ið að fljúga til Íslands eftir vand-
lega skoðun á markaðnum. Hann
segir Ísland vera bandarískum
ferðalöngum ofarlega í huga og
áfangastað sem ætti að falla vel að
þörfum viðskiptavina United en ár-
lega ferðast um 149 milljón farþeg-
ar með flugfélaginu.
Varð úr að fljúga frá Newark
enda flugvöllurinn þungamiðjan í
leiðakerfi United á austurströnd
Bandaríkjanna og sá flugvöllur sem
öðrum fremur tengir leiðakerfi
United við Evrópu. „Um 50% far-
þega okkar sem lenda í Newark
fara til New York á meðan afgang-
urinn flýgur áleiðis á annan áfanga-
stað, innan eða utan Bandaríkj-
anna,“ útskýrir Schumacher og
bætir við að brottfarar- og komu-
tímar í fluginu til Íslands henti vel
fyrir tengiflug í vesturátt. „Við er-
um líka hluti af Star Alliance-
hópnum og mögulegt að með flug-
inu til Íslands getum við, með sam-
starfsflugfélögum okkar, boðið upp
á góðar tengingar áfram til Evrópu,
í gegnum Keflavík, og þá sér í lagi
til Skandinavíu.“
Skoða framhaldið
Lausleg könnun bendir til þess
að flugið með United verði á svip-
uðu verði og hjá Delta og Icelandair
en töluvert dýrara en farið með
WOW. Bob segir United ætla að
bjóða upp á samkeppnishæft verð
og þægilegar tengingar og að flug-
félagið sé alvant því að keppa á
flugleiðum þar sem margir eru um
hituna líkt og verður raunin í sumar
á milli New York og Keflavíkur.
„Rösklega 80 ára saga flugfélagsins
sýnir það vel að við erum ekki
hrædd við samkeppni.“
Gangi salan vel segir Bob að svo
geti farið að United fljúgi til Kefla-
víkur allt árið. „Þótt mjög snemmt
sé að segja til um framhaldið á
þessu stigi þá höfum við áður byrj-
að á nýjum áfangastöðum með árs-
tíðabundnu flugi sem við höfum síð-
an smám saman lengt í báða enda.“
Nýr valkostur í Bandaríkjaflugi
Ljósmynd/United Airlines
Slagur Ekki væsir um farþega í Polaris-sætunum. Fjögur flugfélög munu fljúga til New York í sumar.
Polaris-viðskiptafarrými verður í boði á flugleið United milli Keflavíkur
og Newark Flogið verður frá maí til október og heilsársflug ekki útilokað
Bob
Schumacher
Fjárfestirinn snjalli Warren Buf-
fett sendi hluthöfum Berkshire
Hathaway árlegt bréf um helgina
þar sem hann ræddi um stöðu fé-
lagsins. Þar kom m.a. fram að sjóð-
ir Berkshire séu mjög digrir, og að
félagið eigi samtals um 116 millj-
arða dala í reiðufé og ríkisskulda-
bréfum sem bera litla ávöxtun.
Kveðst Buffettt gjarnan vilja nota
peningana til að stækka fyrir-
tækjasafn Berkshire, en erfitt sé
að finna rekstur sem kaupa má á
góðu verði.
Reuters greinir frá þessu og hef-
ur eftir Buffett að stjórnendur
stórfyrirtækja hafi orðið „kaupóð-
ir“ og nýtt sér gott aðgengi að
ódýru lánsfjármagni til að ráðast í
yfirtökur, sem hafi valdið því að
seljendur fyrirtækja vilja núna fá
meira fyrir sinn snúð.
Ekkert um vanda Wells Fargo
Bréf Buffetts var óvenju stutt að
þessu sinni eða aðeins rösklega
8.000 orð að lengd en var um
14.000 orð í fyrra. Minntist hann
ekki á rekstur Wells Fargo sem
Berkshire er stór hluthafi í. Wells
Fargo hefur átt í verulegu basli að
undanförnu, og gripu bandarísk
stjórnvöld til aðgerða í febrúar til
að stöðva frekari vöxt bankans þar
til áhættustýring og stjórnunar-
hættir hans hafa batnað.
Hagnaður Berkshire nam 44,94
milljörðum dala á síðasta rekstr-
arári, sem er nýtt met. Þar af kom
um 29,1 milljarðar til vegna ný-
legra breytinga á sköttum á banda-
rísk fyrirtæki. ai@mbl.is
AFP
Naskur Buffett vill gjarnan kaupa,
ef hann fær að greiða gott verð.
Buffett leitar góðra
kauptækifæra
Berkshire með
116 milljarða dala
til að fjárfesta með
● Ingimundur Sig-
urpálsson, forstjóri
Íslandspósts, segir
mikið tap hafa verið
á samkeppnis-
rekstri fyrirtækisins
á óvirkum mörk-
uðum en að tapinu
hafi m.a. verið mætt
með hagnaði af
einkaréttar-
starfsemi og með
hagnaði af annarri starfsemi, s.s. pakka-
sendingum, vörusölu og hagnaði af
rekstri dótturfélaga. Þetta kemur fram í
tilkynningu sem Íslandspóstur sendi frá
sér á föstudag vegna birtingar ársreikn-
ings fyrir árið 2017.
Hagnaður af rekstri félagsins nam 216
milljónum króna en var 121 milljón árið
áður. Er hagnaðurinn minni en áætlanir
gerðu ráð fyrir og skýrist af því að fækk-
un dreifingardaga í þéttbýli kom síðar til
framkvæmda en áformað var, að sögn
Ingimundar.
Rekstrartekjur námu 9.194 milljónum
króna, og jukust um 8% milli ára. EBITDA
var 759 milljónir króna og EBITDA hlut-
fallið 8,3% en var 8,5% árið 2016.
Á síðasta ári varð veruleg fjölgun í
pakkasendingum frá útlöndum, eða
55%, og pakkasendingum innanlands
fjölgaði um 12%. Fréfum fækkaði hins
vegar um 8,5% á milli ára. ai@mbl.is
Hagnaður Íslandspósts
nær tvöfaldast milli ára
Ingimundur
Sigurpálsson