Morgunblaðið - 26.02.2018, Side 16

Morgunblaðið - 26.02.2018, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Svo virðistsem út-ganga Breta úr Evrópu- sambandinu, hið svonefnda Brex- it, gæti orðið nokkuð útþynnt þegar til kastanna kemur. Nýtt stefnuskjal bresku rík- isstjórnarinnar í komandi samningaumleitunum við Evrópusambandið kom út í liðinni viku og olli þegar í stað talsverðum deilum inn- an breska Íhaldsflokksins, svo miklum raunar að hátt- settir ráðherrar í ríkisstjórn Theresu May munu hafa neitað að samþykkja skjalið áður en það var sent til Evrópusambandsins. Það sem einkum fór öfugt ofan í ráðherrana var það að ekkert var minnst á loforð May um að koma í veg fyrir komu innflytjenda frá ESB- ríkjunum eftir hinn form- lega útgöngudag í mars 2019, en margir af stuðn- ingsmönnum útgöngunnar telja nauðsynlegt að draga verulega úr komu slíkra til Bretlands. Þá var jafnvel talið að drögin gætu heft frelsi Breta til þess að gera hagstæða fríverslunarsamn- inga við ríki utan Evrópu- sambandsins meðan á „um- þóttunartímanum“ stendur, en talið er að það muni taka um tvö ár eftir 2019 að slíta tengslin á milli Bretlands og Evrópusambandsins. Sá tími er heldur ekki óumdeildur, enda þurfti rík- isstjórnin að draga til baka hugmyndir sínar um að það yrði sveigjanlegt hversu lengi Bretar þyrftu að vera í „aðlöguninni“. Hörðustu að- skilnaðarsinnar benda á, að Evrópusambandið muni geta sett lög og reglugerðir á þeim tíma, sem Bretar muni líklega þurfa að hlíta miðað við þær hugmyndir sem nú eru uppi á borðinu. Verði sú raunin, opnar það á þann möguleika, að settar verði sérstaklega íþyngjandi reglur, sem geti skaðað Breta „í refsingarskyni“ fyrir útgönguna. Raunar þurfti David Davis, helsti samningamaður Breta, að setja ofan í við Michel Barn- ier, aðalsamningamann Evr- ópusambandsins, fyrir að viðra slíkar hugmyndir fyrr í mánuðinum. Það er því ekki að undra að Jacob Rees-Mogg, einn af helstu leiðtogum Brexit- manna í Íhaldsflokknum, skuli hafa brugð- ist hart við stefnuskjali rík- isstjórnarinnar. Sagði hann skjal- ið opna á „Brexit án Brexit,“ það er að Bretar færu að nafn- inu til út úr Evrópusam- bandinu, en yrðu eftir sem áður jafnflæktir í Brussel- báknið og fyrr. Slík niður- staða yrði að mati hans í hróplegu ósamræmi við vilja kjósenda, eins og hann birt- ist sumarið 2016. En það sætta sig ekki all- ir við að lúta vilja kjósenda um Brexit og vilja finna leiðir framhjá niðurstöðu þessarar kosningar. Þeir hafa reynt ýmislegt og and- stæðingar útgöngunnar hafa nú myndað með sér samtök, hverra markmið það er að knýja fram aðra atkvæða- greiðslu um Brexit-málið vorið 2020. Telja aðstand- endur samtakanna að sá tími yrði sérstaklega góður fyrir þá til þess að spyrja Breta um Brexit, þar sem þá verði Bretland einmitt í miðjum aðlögunartímanum, komið út úr Evrópusam- bandinu og því sem næst áhrifalaust. Þannig yrði mögulega hægt að telja breska kjósendur á að sigla fleyinu aftur inn í faðm sambandsins. Slík endurtekin kosning væri mjög í anda þess lýð- ræðis sem stundað er í Brussel og gengur meðal annars út á það að fái al- menningur á annað borð að segja skoðun sína á mál- efnum Evrópusambandsins, sem er mjög undir hælinn lagt að hann fái að gera, þá sætti forysta sambandsins sig ekki við niðurstöðuna nema hún falli að skoðun forystunnar. Verði niður- staðan önnur sé farið í kringum hana með ein- hverjum hætti eða kosið aft- ur þar til ásættanleg nið- urstaða fæst. Eftir það er ekki kosið aftur, þannig að niðurstaðan sem elítunni í Brussel er þóknanleg er jafnan hin endanlega niður- staða. Ákveðin hætta er á að þessi ljóti leikur verði leik- inn um Brexit. Og hætt er við, að með klaufalegum að- förum sínum hafi ríkisstjórn May gert sitt til þess að halda dyrunum opnum á slíka niðurstöðu, jafnvel þó að það sé eflaust ekki ætl- unin. Bresk stjórnvöld sýna klaufalega fótatilburði í Brexit-dansinum} Dyrunum haldið opnum É g heimsótti m.a fallega Ólafs- fjörð í nýgenginni kjördæma- viku. Ég er fædd og uppalin í firðinum fagra og þykir alltaf jafn gott að koma heim. Það hittist svo á að Vinstri Græn voru með opinn íbúafund á Kaffi Klöru kvöldið sem ég kom á staðinn. Aðalumræðuefnið var um til- vist sjúkrabílsins sem tekinn hefur verið burt úr bænum. Það er ólga og reiði í bæjarbúum vegna þessa. Hvers vegna skyldu líf og limir Ólafs- firðinga ekki vera jafn mikils virði og ann- arra? Það vekur furðu mína hvernig hægt er að lítilsvirða íbúana með þessum hætti, eins og raun ber vitni. Hvernig er það t.d. mögulegt að því er virðist, að einn aðili geti ákveðið það upp á sitt ein- dæmi að Ólafsfirðingar hafi ekkert með sjúkrabíl í bæ- inn að gera. Það skiptir engu máli hvað fulltrúar bæj- arfélagsins segja, alveg sama hvaða rök eru lögð fram og hve mörgum undirskriftum er safnað beggja vegna ganganna, Héðinsfjarðar og Múla. Jón Helgi Björnsson, fyrrverandi sláturhússtjóri og núverandi forstjóri Heil- brigðisstofnunar Norðurlands (HSN), veit betur en allir aðrir. Sjúkrabíllinn skal burt, hvað sem hver segir. Ekki er það svo að bráðveikum Ólafsfirðingum eigi ekki að sinna, nei, það á bara ekki að sinna þeim alveg strax. Þeir geta sem sagt bara beðið lengur vegna þess að það eru til sjúkrabílar á Siglufirði og á Dalvík. Ekki virðist vera um það að ræða að sá möguleiki sé fyrir hendi að bílarnir á þessum stöðum geti verið uppteknir vegna slysa eða veikinda, nei, það virðist frekar eins og gera eigi ráð fyrir því að þeir séu að bíða klárir eftir því að geta drifið sig til Ólafsfjarðar til að sækja þangað dauðveikan sjúkling og koma honum til bjargar. Ég hef sannarlega ekki gleymt lof- orðaflaumnum og fagurgalanum sem flæddi stjórnlaus úr munni frambjóðenda í síðustu alþingiskosningabaráttu. Ég vona að þið haf- ið engu gleymt heldur. Falleg fyrirheit um eitt Ísland þar sem allir hafa jafnan rétt sama hvar á landinu þeir búa. Engum skal mismunað, allir skulu hafa jafnan aðgang að menntun sem heilbrigðisþjónustu óháð bú- setu og efnahag. Þess vegna kalla ég nú á einu mann- eskjuna sem getur tekið í taumana. Þrátt fyrir að vera ekki samflokksmaður heilbrigðis- ráðherra, þá gladdi það mig þegar hún tók að sér það erfiða verkefni sem heilbrigðismálin eru. Ég vil trúa því í einlægni, að hún muni berjast gegn hvers konar órétt- læti í kerfinu eins og hún mögulega getur. Að taka sjúkrabílinn af Ólafsfirðingum er óréttlátt, ósanngjarnt og felur í sér mismunun og lítilsvirðingu gagnvart lífi og limun þeirra sem þar búa. Þeirra líf á að vera jafnverðmætt annarra. Hjálpaðu þeim, hæstvirtur heilbrigðisráðherra, þinn er mátturinn. Inga Sæland Pistill Enginn sjúkrabíll á Ólafsfirði Höfundur er þingmaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Heildarafskriftir meðlags-krafna eftir skiptalokgjaldþrota einstaklingahafa aukist verulega að undanförnu. Frá vormánuðum 2013 og fram í nóvember á síðasta ári voru alls afskrifaðar meðlagskröfur sem hljóða upp á rúmlega 993 milljónir króna. Stór hluti þessara afskrifta var á síðasta ári en þá námu afskriftirnar 407 milljónum króna, þar af voru t.a.m. afskrifaðar kröfur vegna ógreiddra meðlaga 50 milljónir í des- ember sl. Aukningin er mikil milli ára því á árinu 2016 voru afskriftir vegna gjaldþrota og fyrninga komnar í 277 milljónir kr. og höfðu þá vaxið frá árinu á undan. Vekja athygli ráðherra og sveitarfélaga á stöðunni Sjórn Innheimtustofnunar sveitarfélaga sendi fyrr í vetur bréf til Sambands íslenskra sveitarfélaga, dómsmálaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins þar sem vakin er athygli á þessari þróun. Í bréfinu segir að um verulega aukn- ingu afskrifta hafi verið að ræða á undanförnum mánuðum. ,,Það sem vekur athygli stjórnar er að hluti þessarra afskrifta er vegna meðlagsgreiðenda sem hafa til þess tíma er afskrift fer fram verið að greiða af skuldum sínum, eftir at- vikum með sérstöku samkomulagi um ívilnun við stjórn stofnunarinnar eða með lögbundnum afdrætti af launum þeirra. Með öðrum orðum, þá eru þessir aðilar í flestum til- fellum borgunarmenn meðlags- skulda sinna, að minnsta kosti hluta þeirra,“ segir m.a. í bréfinu. Vöxtur afskrifta vegna gjald- þrota þarf ekki að koma á óvart þeg- ar haft er í huga að með breytingum sem gerðar voru á lögum um gjald- þrotaskipti árið 2010 styttist fyrning- artími á meðlagskröfum eftir gjald- þrotaskipti úr tíu árum í tvö ár. Eitt meginmarkmið breytinganna árið 2010 sem styttu fyrningarfrestinn var að aðstoða fólk sem fór í gjald- þrot við að koma sér sem fyrst aftur á réttan kjöl. Bragi R. Axelsson, lögmaður hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga, bendir á að það hafi í reynd verið fyr- irséð að afskriftirnar myndu aukast eftir þessa breytingu sem stytti fyrn- ingartíma krafnanna. Bragi bendir einnig á að upphæð afskrifta á hverj- um tíma ráðist töluvert af ytri að- stæðum, til dæmis tímasetningu skiptaloka. Þrátt fyrir þessar afskriftir hef- ur innheimta meðlaga almennt geng- ið vel og færri virðast vera í van- skilum um þessar mundir ef eitthvað er, sem oft virðist haldast í hendur við betra efnahagsástand. Samkvæmt upplýsingum Braga innheimtust alls 3.648.469.537 kr. vegna krafna sem stofnunin inn- heimtir fyrir Tryggingastofnun rík- isins, á seinasta ári. Heildarupphæð innheimtra meðlaga tekur mið af fjölda krafna og auk þess hafa með- lög hækkað undanfarin ár, að sögn hans. Þetta er töluvert hærri fjárhæð en á árinu 2016 en innheimta þess árs var tæpir 3,2 milljarðar kr. en þá hafði aldrei fyrr náðst viðlíka inn- heimta meðlagsskulda skv. saman- tekt á vefsíðu innheimtustofnunar- innar. Núna í febrúar eru 11.233 manns ýmist að greiða áfallandi með- lög til Innheimtustofnunar sveitarfé- laga eða að greiða eldri meðlags- skuldir. Sú tala getur tekið þónokkrum breytingum milli mán- aða. Frá 1. janúar sl. er upphæð með- lags 33.168 kr. Yngsti aðilinn sem greiðir meðlög í dag er fæddur 2000 en sá elsti 1926. Afskriftir meðlaga 993 milljónir frá 2013 Afskriftir meðlagskrafna 2017 Heimild: Innheimtu-stofnun sveitarfélaga 70 60 50 40 30 20 10 0 jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. 35,9 69,1 21,6 22,3 8,9 32,7 46,1 21,7 27,5 40,4 30,8 50,0 Samtals afskriftir 2017 407 milljónir kr. m. kr. Með styttingu fyrningarfrests meðlagskrafna er kveðið á um að hægt sé að rjúfa fyrningartímann en í bréfi stjórnar Innheimtustofnunar sveitar- félaga segir að rof fyrningar skv. lagaákvæði sé nánast óframkvæman- legt í reynd. Þá hafi engin formleg endurskoðun verið gerð á lögunum frá samþykkt þeirra 2010 þrátt fyrir að í þeim segi að lögin skuli endur- skoðuð innan fjögurra ára frá gildistöku. Í bréfinu segir að afskriftirnar sem hefur þurft að grípa til hafi leitt til umtalsverðrar skerðingar á kröfueign sveitarfélaganna „og virðist ekkert lát á því“, segir þar. ,,Virðist ekkert lát á því“ STJÓRNIN VEKUR ATHYGLI STJÓRNVALDA Á ÞRÓUNINNI Morgunlblaðið/Ásdís Meðlag Alls greiða 11.233 manns meðlag eða eldri meðlagsskuldir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.