Morgunblaðið - 26.02.2018, Síða 17

Morgunblaðið - 26.02.2018, Síða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2018 Breiðamerkursandur Jökulsárlón og fjaran fyrir framan er fjölsóttur viðkomustaður ferðamanna jafnt vetur sem sumar og vinsæll til myndatöku. RAX Enginn miðill sam- einar fólk með sama hætti og sjónvarpið, þegar fjölskyldan safn- ast saman til að njóta saman spennandi við- burða og dagskrár á skjánum. Þessar stóru stundir eru merkilega margar. Stórir íþrótta- viðburðir, skemmti- og spurningaþættir, Ára- mótaskaup og Söngvakeppnin hafa á undanförnum árum fyllt þennan flokk sjónvarpsviðburða sem sameina þjóð- ina fyrir framan viðtækin. En nýlega hefur stór hluti þjóðar- innar líka tekið fagnandi nýjum ís- lenskum leiknum þáttaröðum eins og Ófærð, Föngum og Ligeglad og bein- ar útsendingar frá leiksýningum og sinfóníutónleikum hafa fallið í kramið. Er þessi viðbót í takt við stóraukna áherslu RÚV á framboð á íslensku efni á íslenskri tungu. Norrænt gæðaefni á RÚV Á mánudag bættist enn í þennan hóp, þegar um þriðjungur lands- manna fylgdist agndofa með tveimur lokaþáttum sænsk-dönsku þáttanna Brúarinnar. Örlög Sögu vöktu um- ræður á samfélagsmiðlum, helteknir aðdáendur söfnuðust jafnvel saman á öldurhúsum til að verða vitni að enda- lokunum. Og hver sá sem ljóstraði þeim upp mátti búast við hörðum við- brögðum þeirra sem ekki vissu. RÚV skynjaði þennan mikla áhuga og brá þess vegna á það ráð að sýna lokaþættina tvo sama kvöld. En kvöldið markaði líka önnur tímamót, því að um leið voru allir þættirnir af Brúnni, allt frá upphafi, gerðir að- gengilegir í nýjum spilara RÚV á RÚV.is. Það er merkilegt af fleiri en einni ástæðu. Á árum áður hefði það talist til tíð- inda ef stór hluti þjóðarinnar hefði setið á sætisbrúninni yfir skandinav- ískum þætti. Mín kynslóð man helst eftir dönskutímum í skóla og efninu sem þar var sýnt. Hvorugt var sér- staklega vinsælt. Sem betur fer eru tímarnir breyttir. Nú er norrænt leik- ið efni komið í fremstu röð á heims- vísu, danska ríkisútvarpið DR tók við Emmy-verðlaunum í fyrra, norska ríkisútvarpið NRK á síðasta ári og aldrei hefur verið meiri eftirspurn eftir leiknu íslensku sjónvarpsefni. RÚV hefur mætt þessum breytta áhuga og kröfum, dregið úr framboði á bandarísku afþreyingarefni og auk- ið efni á öðrum tungu- málum – þar með talið á íslensku. Erlendar efn- isveitur bjóða upp á sí- fellt meira af vandaðri afþreyingu á ensku svo að nánast má tala um ofgnótt. Meðal annars af þeirri ástæðu setjum við í forgrunn íslenska dagskrárgerð og fram- boð af gæðaefni frá Norðurlöndunum, Evr- ópu og ýmsum hornum heimsins. Vandað leikið efni, fræðslumyndir og heimildar- myndir hafa forgang. Og það ánægjulega er að þvert á spár margra dró ekki úr áhorfi lands- manna við þessar breytingar, heldur hefur það haldist stöðugt. Reglulegar viðhorfsmælingar staðfesta að við- horf í garð RÚV er jákvæðara nú en um langt árabil. Nýjar miðlunarleiðir Nýr spilari er einnig til marks um breyttar áherslur RÚV. Almanna- þjónusta á að bjóða eitthvað fyrir alla; upplýsa, fræða og skemmta. Hún þarf líka að mæta breyttu notk- unarmynstri almennings, breyttum kröfum og tækni. Það gerir RÚV með nýjum spilara, bæði í tækni- legum skilningi og með því að bjóða þar upp á annars konar áhorfs- mynstur – til dæmis að horfa á alla þætti Brúarinnar frá upphafi. Til að bæta og auka enn framboð á framúrskarandi norrænu efni hafa al- mannaþjónustumiðlar á Norðurlönd- unum, DR, NRK, RÚV, SVT og YLE, nú gert samkomulag um stór- aukið samstarf og samframleiðslu. Þessi aukning mun skila sér beint til íslenskra áhorfenda með meira gæðaefni frá systurstöðvum RÚV, bæði í línulegri dagskrá sem og í nýj- um spilara sem býður upp á notkun hvar og hvenær sem hverjum hentar. Sem fyrr skiptir mestu máli að efn- ið sjálft spegli okkar líf, segi okkar sögu eða setji umheiminn í samhengi. Því öll elskum við góða sögu. Eftir Magnús Geir Þórðarson » Á árum áður hefði það talist til tíðinda ef stór hluti þjóðarinnar hefði setið á sætisbrún- inni yfir skandinav- ískum þætti. Magnús Geir Þórðarson Höfundur er útvarpsstjóri. Öll elskum við Sögu Það var mikið lán fyrir Íslendinga að standa utan Evrópu- sambandsins þegar fjármálakerfið hrundi haustið 2008, hvað þá ef við hefðum verið bú- in að taka upp evru sem gjaldmiðil. Þá hefðum við fengið að kynnast þumalskrúf- unum sem grísk þjóð hefur mátt þola eftir að samansúrrað valda- kerfi fjármálamanna og erindreka þeirra í stjórnkerfi Evrópu- sambandsins tók ákvörðun um að láta gríska skattgreiðendur borga lánveitendum lán sem með sviksemi hafði verið þröngvað upp á Grikk- land. Þetta reyndu vel að merkja Bret- ar og Hollendingar gagnvart okkur þegar þvinga átti Ísland til að lög- festa skuldbindingar íslenskra skattgreiðenda vegna Icesave. ESB reyndi þá að aðstoða við ofbeldið á bak við tjöldin en gat aldrei orðið annað en bakrödd vegna þeirrar fjarlægðar sem þó var á milli Ís- lands og Evrópusambandsins. Óábyrgir lánveitendur Það deila engir um að Grikkland var orðið gríðarlega skuldsett þegar Evrópusambandið lét til skarar skríða gegn Grikkjum fyrir fáeinum árum og að þar hafði spilling komið mjög við sögu. En þá er það líka til umhugsunar sem hinn virti banda- ríski þjóðfélagsrýnir Noam Chomsky hefur sagt, að ef um hefur verið að ræða óábyrga lántöku þá hafa líka verið á ferðinni óábyrgir lánveitendur. Og annar ágætur maður, nóbelsverðlaunahafinn Stig- litz, hefur bent á að nauðsynlegt sé að skoða lántöku Grikkja, á hvaða forsendum bankar, einkum franskir og þýskir, hafi lánað þeim, hverjir hefðu hagnast og hvernig með féð hefði verið farið. Þetta yrði að skoða áður en gengið yrði frekar á lífskjör almennings. Þá hefur komið fram að fjármálafyrirtækið Goldman Sachs hafi sogið ófáa milljarðana upp úr grískum skatthirslum þegar fyrir- tækið var sjálf köngulóin í miklum fjármálatilfærslum og falskri uppsetningu á skuldastöðu Grikkja til að koma þeim inn á evrusvæðið þótt ekki væru fyrir því for- sendur, um og upp úr aldamótunum. Ekki geð í sér að sitja í forsæti Öll þessi sviksemi og síðan þvingunarvald Evrópusambandsins gagnvart Grikkjum var grunnstefið í erindi Zoe Konstantopoulous, fyrrum forseta gríska þingsins og þingmanns stjórnarflokksins Sy- riza í Safnahúsinu í Reykjavík í byrjun mánaðarins. Hún legg- ur höfuðáherslu á að ít- arleg rannsókn fari fram á lántöku Grikkja og glæp- samlegu athæfi í því samhengi. Al- menningur verði ekki látinn blæða fyrir saknæmt atferli innan fjár- málakerfis og stjórnsýslu. Sjálf hef- ur hún sérhæft sig í alþjóðlegum refsirétti. Zoe sagði af sér þingforsetaemb- ættinu og gekk úr Syriza eftir að sá flokkur hafði gengið í björgin í Berl- ín og Brüssel og svarið fjendum sín- um þar hollustu. Sjálf hafði hún ekki geð í sér til að sitja í forsæti á þjóðþingi sem svo átti að heita, eftir að sú skipan komst á að öll fyrir- huguð lög gríska þingsins yrðu áður að hljóta samþykki lánardrottnanna og erindreka þeirra í ESB! Þá þagnaði Alþingi Allar þessar þvinganir eru fyrir opnum tjöldum þótt aðeins þau sjái sem vilja sjá. Það er gömul saga og ný. Minna fer fyrir hægfara þving- unum og þrýstingi. Átakanlegasta birtingarmyndin hefur mér þótt vera á Alþingi Íslendinga jafnan þegar það rennur upp fyrir þing- mönnum að lagafrumvörpin sem eru til umfjöllunar og menn hafa haft miklar skoðanir á, eru þegar allt kemur til alls byggð á tilskipunum frá Evrópusambandinu með milli- lendingu í EES, Evrópska efna- hagssvæðinu. Þegar þetta gerist lýkur allri umræðu eins og hendi sé veifað. Hinir trúuðu taka þá nær undantekningalaust að mæla ráðs- laginu bót en aðrir vita sem er að þetta er nokkuð sem að óbreyttu verður að láta yfir sig ganga. Að vísu má stundum reyna að draga úr ýtrustu útfærslum en í grunninn verða menn að hlýða. Lýðræði aðeins tryggt með aðkomu að ákvörðunum Oft hefur komið fram að þeir eru ófáir sem vilja markaðs- og einka- væðingu, sölu helst allra ríkiseigna og hömulaus viðskipti og eru sáttir við flest sem frá Evrópusambandinu kemur í þessa veru. En ef vilji er til að markaðsvæða raforkuna eins og gert hefur verið í ESB og ef vilji er til að takmarka frelsi til að verjast innflutningi á sýktri landbúnaðar- vöru eins og gert hefur verið í ESB eða til að auka á markaðsvæðingu velferðarkerfanna eins og gert hef- ur verið í ESB; ef þessi vilji er fyrir hendi hér á landi þá skulum við tak- ast á um hann og leiða til lykta þar sem við höfum raunverulega að- komu að ákvörðunum. En að fá ákvarðanir um þessi efni í formi til- skipana að utan er önnur saga. Og reyni enginn að halda því fram að öðru vísi væri þessu farið ef við sæt- um á þingi Evrópusambandsins og gætum þar haft áhrif á framvinduna og þar með okkar hlutskipti! Um- rætt þing ræður nánast engu. Og þar sem leyndarhyggja er nú tals- vert til umræðu þá er ástæða til að minnast þess að hvergi hefur leynd- arhyggjan verið stækari en í með- förum Evrópusambandsins á alþjóð- legum viðskiptasamningum á borð við GATS og TiSA. Um það mætti hafa langt mál. Lýðræðisvinkillinn nægir mér Sem betur fer eru sífellt fleiri að vakna til vitundar um þá tilskip- anapólitík sem vera okkar í EES hefur í för með sér. Menn sjá jafn- framt að fyrirskipanir frá Brussel gerast sífellt ágengari og frekari. Ég læt öðrum eftir að tala um hag- stæða tvíhliða samninga Evrópu- sambandsins við lönd utan EES sem nú eru farnir að dúkka upp og opna augu manna fyrir öðrum val- kostum. Mér nægir að beina sjónum að lýðræðishallanum til að vilja útúr EES. Enda er sá halli ekki þýðingar- lítill. Eftir Ögmund Jónasson » Allar þessar þvinganir eru fyrir opnum tjöldum þótt aðeins þau sjái sem vilja sjá. Ögmundur Jónasson Höfundur er fyrrverandi innanríkisráðherra. Grikkland, Ísland, Evrópu- sambandið og lýðræðið Samkvæmt almennum hegning- arlögum er refsivert að valda með vísvitandi líkamsárás öðrum manni tjóni á líkama og heil- brigði. Hvernig ætli standi á því að sumt fólk, þ.m.t. úr hópi starfandi lækna, telji sjálfsagt að valda vís- vitandi líkamstjóni hjá ómálga börnum? Telja þeir að foreldrar þeirra hafi heimild til að sam- þykkja líkamsmeiðinguna? Og biskup Íslands fellur í fang Kára læknis og tekur undir þessa vitleysu. Það þarf enga lagabreytingu til að banna mönnum að valda börnum líkamsmeiðslum. Ákvæði um þetta eru nú þegar í lögum. Ég segi bara eins og móðir mín heitin hefði sagt: Nú þykir mér tíra! Jón Steinar Gunnlaugsson Nú þykir mér tíra! Höfundur er lögmaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.