Morgunblaðið - 26.02.2018, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú lítur feiknavel út í augum ann-
arra um þessar mundir. Dagurinn hentar vel
til að taka ákvarðanir varðandi fasteigna-
viðskipti og viðskipti fjölskyldunnar.
20. apríl - 20. maí
Naut Mundu að þú getur aldrei gert svo að
öllum líki. Sinntu hugðarefnum þínum líka
og leggðu þig fram um að rækta líkama og
sál.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Mundu að hver er sinnar gæfu
smiður og þú getur ekki sakast við neinn
nema sjálfan þig ef málin eru komin í
óþægilegan farveg. Beislaðu hugann.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur tilhneigingu til að van-
treysta sjálfum þér og ættir að forðast það
og fara eftir sannfæringu þinni. Láttu eftir
þér að skoða heiminn í kringum þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Dagurinn í dag verður þér ábatasamur.
Nú er rétti tíminn til að stefna félögunum
saman til fundar og leggja á ráðin um ferða-
lög og skemmtanir í nálægri framtíð.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vertu ekki hræddur við að gefa
ímyndunaraflinu lausan tauminn þótt ekki
væri nema bara þér til persónulegrar
ánægju. Fylgdu eðlisávísun þinni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef þér finnst aðrir setja sig upp á móti
óskum þínum í dag, skaltu ekki streitast á
móti. Þú munt eiga rólegan dag og gætir
fengið óvænta heimsókn sem gleður þig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Oftast fyllistu ekki valkvíða, en
valkostirnir eru nú svo girnilegir að þú verð-
ur að hugsa þig vel um. Leitaðu hjálpar ef
með þarf.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú finnur fyrir aukinni stígandi í
lífi þínu á næstu vikum. Um leið og þú rækt-
ar þinn eigin garð skaltu líka gefa þér tíma
til að sinna fjölskyldu og vinum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Gættu þess að ganga ekki á rétt
annarra þótt þú keppir að mikilsverðu tak-
marki. Eyddu jafn miklum peningum í sjálfan
þig og þú eyðir í að hjálpa öðrum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu ekki aðra gera þig að
blóraböggli þeirra mistaka. Gerðu þér far
um að ræða við fólk, því það mun njóta
þess sem þú segir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur þá dirfsku til að bera sem
ætti að duga til að koma metnaðarfullu
verkefni í höfn. Fólk sem þú telur þig þekkja
út og inn getur komið þér á óvart og það á
jákvæðan hátt.
Íævisögu séra Árna Þórarins-sonar er sérstakur kafli um hag-
yrðinga á Snæfellsnesi. – Jón Ein-
arsson á Rauðamel syðra var á ferð
í Stykkishólm. Hann kom í búðina
til Ágústs bróður séra Árna
snemma morguns. Úti var skaf-
renningur. Hann gekk að búð-
arborðinu og kvað:
Úr kafaldsrenning kem ég inn
svo kinnar og enni hlýni.
Þú ættir að nenna, Ágúst minn,
eftir brennivíni.
Hann fékk strax í staupinu.
Skömmu síðar gengur Guð-
mundur Finnur í Mýrdal í búðina.
Hann tekur litla buddu úr vasanum,
líklega tóma, og segir: „Góðan dag-
inn, Ágúst!“
Ágúst lítur til hans. Þá segir Guð-
mundur:
Tæmdi ég auratöskuna
tímanlega í morgun.
Fala ég því á flöskuna
fyrir engan borgun.
Jón Einarsson spurði eitt sinn
Þórdísi ekkju á Rauðamel, konu
bráðgáfaða:
Hver er mestur heimi í?
Hverja brestur völdin?
Hver býr flest til hryggðarský?
Hver fær bestu gjöldin?
Hún svaraði þegar:
Kraftur mesti er kærleik í.
Krankan brestur völdin.
Dauðinn flest upp dregur ský.
Dyggðin best fær gjöldin.
Dóttir Þórdísar er Ólöf Svein-
bjarnardóttir, kona Gests á Rauða-
mel. „Hún er mjög vel gáfuð og
hagorð,“ segir séra Árni. „Hún orti
þessa vísu til mín:“
Vefji þig gleði, vinur kær!
Vermi þig sólin skæra!
Hraunið, kirkjan, hóll og bær
hjartans kveðjur færa.
Guðmundur prófastur á Breiða-
bólstað hélt mikla brúðkaupsveislu
og bauð öllum hjónum á Skógar-
strönd þegar hann gifti Ásthildi
dóttur sína Pétri Thorsteinsson.
Þessi mannsöfnuður komst ekki all-
ur fyrir í híbýlum prests og því
urðu sumir gestanna að sitja í tjöld-
um eða skemmum og bar öllum
saman um að vel væri veitt. Jónas
Skógstrendingaskáld orti:
Drottins hjarðar hirði þann
hver, sem vill, má lofa.
En sína hefur ei sauði hann
saman í einum kofa.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hagyrðingar
á Snæfellsnesi
„LUKKUDÝRIÐ OKKAR VILL EKKI VERA
MEÐ HÖFUÐIÐ Á SÉR. VIÐ GÆTUM ÞURFT
AÐ ENDURSKOÐA ENDURSKOÐANDANN.“
„ÉG ER EKKI MEÐ TILBÚIÐ BORÐ NÆSTU
20 MÍNÚTURNAR. HÉRNA ER SÚPAN YKKAR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... einhver til þess að
slaka á með.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG VEIT HVAÐ VIÐ
GETUM GERT!
EF ÉG VILDI GERA
EITTHVAÐ, ÞÁ VÆRI ÉG
EKKI AÐ HANGA MEÐ ÞÉR.
PABBI, ÉG VIL EKKI VERA
VÍKINGUR ÞEGAR ÉG VEX
ÚR GRASI
ÉG VIL VINNA Í
HAPPDRÆTTINU OG
GIFTAST DANSARA!
VÁ! ÉG HEF GERT
EITTHVAÐ RÉTT!
Í fréttum í sl. viku sagði frá því að íNonnahaga, nýju íbúðahverfi á
Akureyri ætti að setja upp smáhýsi
fyrir óreglufólk eða þá sem glíma við
geðraskanir. Með þetta er fjöl-
skyldufólk með börn sem sett hefur
sig niður í hverfinu ósátt og gagn-
rýnir bæjaryfirvöld. Segir að vissu-
lega þurfi jaðarsett fólk sinn sama-
stað í tilverunni, en bara ekki í
nágrenni við sig. Allt hljómar þetta
kunnuglega; svona mál koma reglu-
lega upp og einkennast, að mati Vík-
verja, jafnan af eigingirni. Í þéttbýli
veljum við okkur aldrei nágranna og
því er lágkúrulegt að fjasa út af því
að í íbúðahverfum sé þjónusta fyrir
til dæmis aldraða með heilabilun,
heimili fyrir fötluð börn og svo fram-
vegis. Sjaldnast verður fólk þessara
nágranna vart fái þeir viðeigandi
hjálp. Reynsla Víkverja og vafalaust
fleiri er sú að verstu grannarnir eru
„frekjukarlar“, það er menn sem
eiga heilir að heita en eru ókurteisir
fýlupúkar sem ekki er hægt að
tjónka við.
x x x
Ekkert er að óttast nema óttannsjálfan, sagði Franklin Delano
Roosevelt Bandaríkjaforseti þegar
hann stappaði stáli í þjóð sína fyrir
um 80 árum. Víkverja verður stund-
um hugsað til þessa þegar fjölmiðlar
birta tilkynningar þar sem fólk er
varað við hættum; á stundum minni-
háttar málum og algjörlega mein-
lausum. Sé rennt yfir greinasafn
Morgunblaðsins frá síðustu vikum
má þar m.a. finna tilkynningu þar
sem lögregla varar við brennisteins-
mengun í íshelli, Vegagerðin brýnir
fyrir vegfarendum að sýna aðgát í
vetrarfærð, Umhverfisstofun hvetur
fólk til þess að gjalda varhug við
snyrtistofum án starfsleyfis, Mat-
vælastofnun varar við sýkingu í tóm-
ötum, og skemmst er að minnast
gruggsins í Gvendarbrunnavatninu
nú nýlega. Í tilkynningunum kemur
oft fram að hættan sé söm og engin,
en allur sé varinn góður. Sjálfsagt
eiga þessi varnaðarorð oft rétt á sér
en einhverra hluta vegna minna
þessar tilkynningar Víkverja stund-
um á söguna sem kölluð er „Úlfur –
úlfur“ – og að þær séu settar fram af
vandamálafræðingum sem þykjast
ómissandi. vikverji@mbl.is
Víkverji
Jesús mælti: Ég er upprisan og lífið.
Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann
deyi.
(Jóh: 11.25)