Morgunblaðið - 05.03.2018, Side 1

Morgunblaðið - 05.03.2018, Side 1
M Á N U D A G U R 5. M A R S 2 0 1 8 Stofnað 1913  54. tölublað  106. árgangur  STUNDAR LIST LISTARINNAR VEGNA UNGIR ÍSLANDS- MEISTARAR UNGMENNI MEÐ SÉR- ÞARFIR BORÐTENNIS ÍÞRÓTTIR NÁMSKEIÐ 12ANNA LÍNDAL 26 Norðurljósasýning Hundaræktarfélags Íslands og Royal Can- in var haldin í Reiðhöllinni í Víðidal um helgina. Þar komu saman um 900 hundar ásamt eigendum sínum fyrir framan al- þjóðlega dómnefnd skipaða sérfræðingum frá Portúgal, Finn- landi, Svíþjóð og Íslandi. Hundarnir eru af rúmlega 100 hrein- ræktuðum hundategundum. Mótið hófst á föstudeginum með hvolpasýningu og hélt áfram á laugardag og sunnudag með keppni eldri og reyndari hunda. Einnig fór fram keppni með- al ungra sýnenda á föstudaginn. Meðal keppenda á fyrri sýn- ingunni voru ríkjandi Norðurlandameistarar úr liði Íslands sem unnu nýlega fyrstu verðlaun á Nordic Winner-sýningunni í Helsinki. Um 900 hundar komu saman í Víðidal um helgina Morgunblaðið/Árni Sæberg  Kosningar fóru fram á Ítalíu í gær. Sam- kvæmt fyrstu út- gönguspám í gærkvöldi vann enginn afgerandi sigur í þeim en miðhægribanda- lag Silvio Berlu- sconi, fv. for- sætisráðherra, vann flest þingsæti. Stærsti staki flokkurinn á þingi verður þó Fimmstjörnuhreyfingin, sem berst m.a. gegn spillingu í stjórnmálakerfi Ítalíu, fyrir beinu lýðræði og nýrri nálgun á hnatt- væðingu. Líklegt er að erfitt verði að mynda ríkisstjórn að loknum kosningum. »15 Tvísýnt með úrslit kosninga á Ítalíu Silvio Berlusconi  Húseigendafélagið hefur fengið nokkur mál inn á borð til sín þar sem kvartað er undan búsetu yngri íbúa í fjölbýlishúsum sem ætluð eru eldri borgurum. Hafa kvaðir þá verið settar um aldursmörk, sem miðast einkum við 50 eða 60 ár. „Svona kvaðir halda yfirleitt, eins langt og þær ná,“ segir Sig- urður Helgi Guðjónsson hjá Hús- eigendafélaginu. »16 Þeir eldri kvarta yfir þeim yngri  Sjálfstæðismenn vilja skoða möguleikann á því að byggja upp samgöngumiðstöð við Kringluna. Þetta var meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi Eyþórs Arn- alds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, en þar kynnti hann kosningaáherslur flokksins. Þá kynnti flokkurinn einnig hug- myndir um afnám innviðagjalds. Eyþór segir að þegar upp sé staðið bitni innviðgjaldið á íbúðakaup- endum. „Það er á endanum fólkið sem kaupir húsin sem borgar. Við teljum að þetta sé ósanngjarnt gjald og það sé íþyngjandi fyrir húsnæðiskaupendur og leigj- endur,“ segir Eyþór sem einnig vill ráðast í mikla íbúðauppbyggingu í Örfirisey og við Keldur. »4 Morgunblaðið/Hari Blaðamannafundur Efstu frambjóðendur Sjálfstæðisflokks kynntu hugmyndir í gær. Leggja til afnám innviðagjalds Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Kristín Á. Guðmundsdóttir, sem lætur af embætti formanns Sjúkra- liðafélags Íslands á aðalfundi félags- ins í maí, segir óhugnanlegt hversu margir sjúkraliðar séu metnir ör- yrkjar. „Það er svo mikil undir- mönnun á vinnustöðunum og veik- indi að það endar oft með örorku sjúkraliða, ef ekkert er að gert,“ segir Kristín. Þessar upplýsingar um hlutfalls- lega mikla örorku meðal sjúkraliða koma fram þegar félagaskrár Sjúkraliðafélagsins eru bornar sam- an við opinberar skrár og einnig þegar reiknað er út hlutfall starfs- stétta vinnumarkaðarins í starfs- endurhæfingu hjá Virk starfsend- urhæfingarsjóði. Kvennastéttir standi saman Kristín hefur verið formaður sjúkraliða í yfir 30 ár. Hún telur að ágætur árangur hafi náðst í kjara- baráttunni. Það hafi náðst fram að laun sjúkraliða taki mið af launum hjúkrunarfræðinga. „Það er hins vegar álit mitt að kvennastéttir í heilbrigðisþjónustunni séu allt of lágt launaðar. Þess vegna hef ég lagt það til við hjúkrunarfræðinga að við leggjumst saman á árarnar en það hefur ekki verið gert. Ég tel að við næðum besta árangri með sameiginlegri vinnu fagstétta innan heilbrigðiskerfisins,“ segir Kristín Á. Guðmundsdóttir. Undirmönnun leiðir til örorku meðal sjúkraliða  Hlutfallslega meiri örorka en hjá sambærilegum stéttum Morgunblaðið/Eva Björk Þrýstingur Sjúkraliðar hafa staðið saman um kröfur um bætt kjör. MKvennastéttir … »4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.