Morgunblaðið - 05.03.2018, Side 2

Morgunblaðið - 05.03.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018 Sími 775 1832 | Happie furniture - húsgögn Sérsmíðuð húsgögn fyrir heimili og fyrirtæki Happie furniture Happie.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Við munum bjóða fram sameigin- legan lista með Viðreisn í Kópavogi,“ segir Theodóra S. Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar, um komandi sveitarstjórnarkosningar. Í samtali við Morgunblaðið stað- festir Theodóra að hún muni leiða sameiginlegan lista Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. Þá mun Einar Þorvarðarson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri HSÍ, skipa annað sæti listans. „Það hefur verið tekin ákvörðun um að ég muni leiða listann. Viðreisn mun síðan skipa Einar í annað sæti listans,“ segir Theodóra og bætir við að uppstilling á listann sé nú í fullum gangi. „Við í Bjartri framtíð vorum langt komin með að stilla upp öllum listanum þegar Viðreisn óskaði eftir sam- starfi. Við erum nú í þeirri vinnu að stilla upp sameiginlegum lista sem gengur mjög vel,“ segir Theodóra. Spurð hvenær vænta megi þess að framboðslistinn verði birtur segir Theodóra að hún eigi von á því að listinn verði tilbúinn í næstu viku. „Uppstillingarnefndin er að vinna í þessu af fullum krafti núna. Ég geri ráð fyrir að hún muni klára þetta í næstu viku og í kjölfarið munum við senda frá okkur tilkynningu,“ segir Theodóra. Viðreisn í viðræðum víðsvegar Viðræður Viðreisnar við aðra flokka um samstarf í komandi sveit- arstjórnarkosningum ganga vel að sögn Þorgerðar Katrínar Gunnars- dóttur, formanns Viðreisnar. Líkt og Morgunblaðið greindi frá í síðasta mánuði átti Viðreisn í viðræðum við fjóra flokka um hugsanlegt sam- starf. Þorgerður segir að viðræður séu mislangt komnar. „Við höfum átt samtal í Hafnar- firði og svo auðvitað Kópavogi. Þá erum við að ræða við nokkra flokka á ákveðnum stöðum, ekki einungis Bjarta framtíð heldur fleiri,“ segir Þorgerður og bætir við að vel gangi að stilla upp á lista í sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. „Það gengur vel hjá okkur úti á Seltjarnarnesi og svo er fínn gangur í Garðabænum. Uppstillingarnefndin er að störfum í nokkrum sveitarfélögum, en þetta er margt fólk og tekur allt sinn tíma,“ segir Þorgerður sem er ekki tilbúin að fullyrða hvenær listar flokksins verða tilbúnir, en gerir þó ráð fyrir að einhverjar fregnir muni berast í vikunni. Aðspurð segir Þorgerður að Við- reisn muni bjóða fram í flestum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæð- inu. „Við munum bjóða fram á flest- um stöðum með beinum eða óbeinum hætti,“ segir Þorgerður. Fara saman í Kópavogi  Theodóra mun leiða sameiginlegan lista Viðreisnar og Bjartrar framtíðar í Kópavogi  Viðreisn í viðræðum við nokkra flokka fyrir norðan og í Hafnarfirði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Theodóra S. Þorsteinsdóttir Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Alvarlegur skortur heimilislækna á landsbyggðinni var meðal þess sem var rætt á málþingi heimilislækna um helgina. Salóme Ásta Árnadóttir, for- maður Félags íslenskra heimilis- lækna, segir ástandið ekki gott, en á málþinginu um helgina voru læknar af landsbyggðinni fengnir til að ræða ástandið auk þess sem lausnamiðaðar umræður fóru fram. „Við fengum lækna til þess að segja okkur frá aðstæðum úti á landi. Ástandið þar er auðvitað ekki gott, en á Austurlandi t.d. eru afar fáir heim- ilislæknar í föstu starfi. Það er geysi- stórt svæði og mikil óþægindi sem hljótast af því að geta ekki mannað það almennilega,“ segir Salóme og bætir við að skortur á heimilislækn- um á Suðurnesjum hafi verið ræddur sérstaklega. Halda ekki í við fjölgun íbúa Á Suðurnesjum sé ýmsu ábótavant enda hafi mönnun heimilislækna ekki verið í samræmi við mikla fjölgun íbúa undanfarin ár. „Það hefur orðið íbúasprenging á Suðurnesjunum og eðlilega hefur ekki tekist að halda í við það. Heilbrigðisstofnun Suður- nesja er auk þess að fara eftir fjár- lögum, en þeir gera sitt besta til að koma til móts við íbúa,“ segir Salóme. Auk umræðna var Jóhann Ágúst Sigurðsson læknaprófessor heiðrað- ur en annar dagur málþingsins var haldinn honum til heiðurs. Jóhann, sem er sjötugur, mun láta af störfum á næstunni. „Hann er mikill braut- ryðjandi og hefur verið drífandi í rannsóknum heimilislækninga hér- lendis. Það má segja að hann hafi ver- ið helsta vísindasprauta heimilis- lækna á Íslandi,“ segir Salóme. Á málþinginu héldu erlendir og ís- lenskir læknar erindi. Meðal þeirra voru Steinar Hundskår, prófessor við háskólann í Bergen í Noregi, Pétur Heimisson, lækningaforstjóri Aust- urlands, og Örn Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri lækninga á HSN. Ræddu alvarlegan skort á heimilislæknum hérlendis  Fáir heimilislæknar á landsbyggðinni eru í fullu starfi Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Á næstu vikum verða teknar í gagnið nýjar lögreglubifreiðar hjá lögregluembættum á landsbyggð- inni og verður samhliða því tekið upp nýtt útlit á bifreiðunum, sem svipar til merkinga lögreglu- bifreiða víða í Evrópu. Jónas Ingi Pétursson, fram- kvæmdastjóri rekstrar hjá ríkislög- reglustjóra, segir eina helstu ástæðu útlitsbreytinganna vera ör- yggissjónarmið. Öryggi lögreglu- þjóna og almennings sé lykilatriði og með breytingunum aukist sýni- leiki tækjanna til muna. Markmiðið er að gera tækin eins sýnileg og mögulegt er, án þess að þau séu „of áberandi“, segir hann en guli og blái liturinn var valinn með þau sjónarmið í huga. Alls verða átta Volvo V90CC, sérútbúnir lögreglubílar, teknir í gagnið á næstu vikum með þessum nýju merkingum. Ekki stendur til að merkja eldri bifreiðar lögregl- unnar með þessum nýju merk- ingum heldur aðeins nýjar. Bílar lög- reglu í nýj- um búningi Morgunblaðið/Árni Sæberg Merkingar Nýju merkingarnar eru einfaldari og sýnilegri en gömlu merkingarnar og lík- ari hinu „evrópska útliti“. Bifreiðarnar átta, sem fara til lögregluembætta landsbyggð- arinnar, eru sérútbúnar Volvo V90CC-lögreglubifreiðar. Útlitið var hannað af þeim Atla Þór Árnasyni og Herði Lárussyni hjá Kolofon Hönnunarstofu. Guli og blái liturinn varð fyrir valinu með hámarkssýnileika í huga við erfiðar veðuraðstæður. Filmurnar eru endurskinsfilmur sem auka sýnileika ökutækjanna meira en eldri merkingar í myrkri. Evrópskt útlit á nýjum lögreglubifreiðum sem fara til embætta á landsbyggðinni „Þetta er varan- legur skaði sem þýðir að hún er lömuð fyrir lífs- tíð,“ segir Páll Kristjánsson, lögmaður Sunnu Elviru Þorkels- dóttur. Hún hefur undanfarna viku verið í endurhæfingu á bækl- unarspítala í útjaðri Sevilla. Þar hefur hún fengið talsvert betri umönnun en hún hafði áður fengið á háskólasjúkrahúsi í Malaga þar sem hún lá fyrstu vikurnar eftir slysið. Spurður hvort nýrra frétta sé að vænta af máli Sunnu segist Páll ekki vita til þess. „Ég mun óska eft- ir upplýsingum á morgun [í dag] en það hefur engin breyting orðið á síðustu daga. Það er samt vonandi að hún geti farið að komast heim,“ segir Páll. aronthordur@mbl.is Sunna er varanlega sköðuð og lömuð fyrir lífstíð Sunna Elvira

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.