Morgunblaðið - 05.03.2018, Side 4

Morgunblaðið - 05.03.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. SÍÐUSTU SÆTIN Allt að 15.000kr. afsláttur á mann PÁSKASÓL GRAN CANARIA 25. mars í 9 nætur íbúðir í Örfirisey án þess að ráðast í meiriháttarbreytingar á gatnakerf- inu. Innviðagjaldið verði afnumið Á meðal kosningaáherslnanna sem kynntar voru á fundinum er af- nám innviðagjaldsins. Greint var frá því í Morgunblaðinu í lok janúar að Reykjavíkurborg innheimti sem svarar 1,5 milljónum króna í inn- viðagjald á hverja 100 fermetra í fyrirhuguðum íbúðum í Furugerði við Bústaðaveg. Eyþór segir að þegar upp sé stað- ið bitni innviðagjaldið á íbúðakaup- endum. „Það er á endanum fólkið sem kaupir húsin sem borgar. Við teljum að þetta sé ósanngjarnt gjald og að það sé íþyngjandi fyrir hús- næðiskaupendur og leigjendur.“ Þá vill Eyþór ráðast í stórátak til að fækka hættulegum gatnamótum í Reykjavík. konar þaki, líkt og á lestarstöðvum erlendis.“ Hann nefndi að eigendur Kringlunnar væru að skoða framtíð- aruppbyggingu á svæðinu og því þyrfti að nýta tækifærið. Stórfelld uppbygging íbúða Eyþór kynnti einnig hugmyndir um að reisa tvö stór hverfi; eitt í Örfirisey og annað við Keldur. „Við teljum að það þurfi framboð á lóðum þar sem ekki eru gróin hverfi. Örfirisey og Keldur eru mjög góð dæmi um svæði sem ekki eru þegar gróin og þess vegna er hægt að fara í uppbyggingu þar á hagkvæman hátt og með nægileg- um myndarskap þannig að það hafi áhrif á markaðinn. Þéttingin, eins og hún hefur verið framkvæmd, hefur verið dýr og seinleg og þess vegna er ástandið á húsnæðismark- aðinum svona erfitt.“ Eyþór sagði að hægt væri að byggja um þúsund Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@mbl.is Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík, vill skoða möguleikann á því að byggja upp samgöngumiðstöð í Kringlunni. Eyþór kynnti kosningaáherslur borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis- flokksins á blaðamannafundi við Kringluna í gær. Á fundinum sagði Eyþór að sam- göngumiðstöð vantaði á höfuðborg- arsvæðinu en Kringlan væri mun betri kostur en BSÍ. „Við sjáum fyr- ir okkur möguleikann á því að sam- göngumiðstöð rísi hér í Kringlunni. Kringlan er miðsvæðis, ekki út úr eins og BSÍ, og gæti þjónað öllu höfuðborgarsvæðinu,“ sagði Eyþór á blaðamannafundinum. „Kringlan gæti tekið á móti Strætó þannig að gengið yrði út innandyra, þ.e.a.s. undir einhvers Morgunblaðið/Hari Áherslur Efstu frambjóðendur á lista kynntu hugmyndirnar við Kringluna þar sem þeir vilja að miðstöðin rísi. Samgöngumiðstöð rísi á Kringlusvæðinu  Sjálfstæðismenn telja Kringluna betri kost en BSÍ Tæplega 400 félagsmenn í Efl- ingu stéttarfélagi höfðu kosið ut- an kjörfundar í stjórnarkjöri fé- lagsins þegar skrifstofu félagsins var lokað sl. föstudag. Stjórnarkjörið fer síðan fram í dag og á morgun, á skrifstofum Eflingar í Reykjavík og Hvera- gerði og í Kiwanishúsinu í Þor- lákshöfn. Tæplega 16 þúsund manns eru á kjörskrá. Tveir listar eru í kjöri, A-listi stjórnar og trúnaðarráðs þar sem Ingvar Vigur Halldórsson er for- mannsefni og B-listi Sólveigar Önnu Jónsdóttur. Kosningabaráttan hefur farið vel fram að sögn Magnúsar M. Norðdahl, lögfræðings ASÍ, sem er formaður kjörstjórnar. Kjör- klefar hafa verið settir upp á kjörstöðum sem og innsiglaðir kjörkassar sem fengnir eru að láni hjá Reykjavíkurborg. Aðeins fullgildir félagsmenn Atkvæðisrétt eiga fullgildir fé- lagsmenn en til þess að vera full- gildur félagsmaður þarf viðkom- andi að vera greiðandi félagi og hafa verið það síðustu þrjá mán- uði og vinna samkvæmt kjara- samningi Eflingar á starfssvæði félagsins sem er á höfuðborg- arsvæðinu og í vesturhluta Ár- nessýslu. Þótt fólk greiði félagsgjald til Eflingar er það ekki sjálfkrafa félagsmenn. Magnús segir að hægt sé að ganga í félagið á kjör- stað, ef öðrum skilyrðum er full- nægt. helgi@mbl.is 400 atkvæði greidd utan kjörfundar  Stjórnarkjör hefst í Eflingu í dag Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég er búin að vera formaður í langan tíma, rúm 30 ár. Upphaf- lega var ég formaður fagfélagsins og stóð að því að stofna stéttar- félagið og gera fyrsta kjara- samning þess ár- ið 1994. Síðan hafa markmiðin náðst eitt af öðru. Svo er ég komin á þann aldur að mig langar að snúa mér að öðru,“ segir Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, sem ekki gefur kost á sér til endur- kjörs og hættir á aðalfundi félags- ins 12. maí næstkomandi. Kristín segir að ágætur árangur hafi náðst í kjarabaráttunni. „Við náðum ákveðnu samspili við laun hjúkrunarfræðinga sem við höfum haldið í tíu ár. Það er hins vegar álit mitt að kvennastéttir í heilbrigðisþjónustunni séu allt of lágt launaðar. Þess vegna hef ég lagt það til við hjúkrunarfræðinga að við leggjumst saman á árarnar en það hefur ekki verið gert. Ég tel að við næðum besta árangri með sameiginlegri vinnu fagstétta innan heilbrigðiskerfisins,“ segir Kristín. Skortur á sjúkraliðum Hún segir að ótrúlega mikið sé óunnið í heilbrigðiskerfinu. „Ég hef gagnrýnt að umræðan um vanda heilbrigðiskerfisins snú- ist aðeins um vöntun á fólki í tvær stéttir, hjúkrunarfræðinga og lækna. Það er ekki síður skortur á sjúkraliðum. Ef við lítum til þess hvernig heilbrigðiskerfin eru rekin annars staðar á Norðurlöndunum má sjá að hægt væri að fjölga störfum sjúkraliða hér og nýta menntun stéttanna á réttari hátt,“ segir Kristín og nefnir að ódýrara og fljótlegra sé að mennta sjúkra- liða en hjúkrunarfræðinga. Ef sjúkraliðar fengju meiri verk- efni væri auðveldara að laða að ungt fólk sem sæi tækifæri í að afla sér þeirrar menntunar og tak- ast á við störfin. Óhugnanleg mynd Kristín segir óhugnanlegt hversu margir sjúkraliðar séu á örorku. Hún segir að sú mynd birtist þegar upplýsinga er aflað bæði um ör- orkulífeyri og skjólstæðinga Virk starfsendurhæfingarsjóðs. „Það er svo mikil undirmönnum á vinnustöðunum og veikindi að það endar oft með örorku sjúkra- liða, ef ekkert er að gert,“ segir Kristín. Kvennastéttir of lágt launaðar  Kristín Á. Guðmundsdóttir, fráfarandi formaður sjúkraliða, segir að undirmönnun á stofnunum leiði til örorku allt of margra sjúkraliða  Hefur verið formaður fag- og stéttarfélags sjúkraliða í yfir þrjátíu ár Morgunblaðið/Eva Björk Barátta Sjúkraliðar hafa náð ýms- um markmiðum í kjarabaráttunni. Kristín Á. Guðmundsdóttir Þrír sjúkraliðar bjóða sig fram til formanns Sjúkraliðafélags Íslands. Nýr formaður verður kosinn fyrir aðalfund félagsins sem verður 12. maí næstkomandi. Frambjóðendurnir eru: Guðrún Lárusdóttir sjúkraliði á gjörgæslunni við Hringbraut. Sandra Bryndísardóttir Franks, sjúkraliði og stjórnmálafræðingur með framhaldsmenntun í stjórn- sýslufræðum og meistarapróf í lögfræði. Hún starfar á Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins. Sigurlaug Björk J. Fjeldsted, sjúkraliði og viðskiptafræðingur, sem starfar á Landspítala – Landa- koti. Félagið heldur fund til kynningar á frambjóðendum 15. mars. Hann verður í félagsaðstöðu sjúkraliða en verður einnig streymt á netinu. Þrjár bjóða sig fram FORMANNSKJÖR FRAMUNDAN HJÁ SJÚKRALIÐUM Sandra Bryndísardóttir Franks Sigurlaug Björk J. Fjeldsted Guðrún Lárusdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.