Morgunblaðið - 05.03.2018, Page 6

Morgunblaðið - 05.03.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018 Hindberjajógúrt Lífrænar mjólkurvörur • Engin aukaefni • Meira af Omega-3 fitusýrum • Meira er af CLA fitusýrum sem byggja upp vöðva og bein • Ekkert undanrennuduft • Án manngerðra transfitusýra www.biobu.is NÝ AFURÐ FRÁ BIOBÚ! Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Markmið okkar að setja eina nýja íslenska bók inn á veituna dag hvern. Þetta eru skáldsögur, krimmar, ævisögur, barna- og unglingabækur og í raun og veru flest það sem við komumst yfir en skáldsögur hafa verið áberandi núna í upphafi,“ segir Stefán Hjör- leifsson, framkvæmdastjóri Story- tel á Íslandi. Streymisþjónusta Storytel var opnuð fyrir tveimur vikum og nú getur fólk gegn áskriftargjaldi hlustað ótakmark- að á fjölbreytt úrval hljóðbóka í gegnum farsímaapp. Bækurnar sem bjóðast eru bæði gamlar og nýjar og á íslensku og ensku. Í upphafi verða nokkur hundruð íslenskir titlar og yfir 30.000 titlar á ensku í boði. Auk þeirra býðst gott safn rafbóka. Storytel Iceland er í eigu Storytel AB sem skráð er á hlutabréfa- markað í Svíþjóð og er með starf- semi þar og í níu öðrum löndum. Áskrifendur eru nú orðnir yfir 500.000 í tíu löndum og Ísland er tíunda landið sem býður þjónustu Storytel á tungumáli viðkomandi lands. Ávinningur rithöfunda Nokkuð hefur verið deilt um höfundarrétt á efni þeirra bóka sem fara inn á streymisveiturnar. Fulltrúar rithöfunda og forleggj- ara hafa átt í viðræðum um það mál. Storytel er ekki í beinum samningi við rithöfunda enn sem komið er en hefur kappkostað að halda þeim upplýstum um starf- semina. „Við sendum rithöfundum bréf um leið og við heyrðum af þessu álitamáli. Viðbrögðin við því voru mjög góð og við höfum fengið fjölda fyrirspurna og góðar kveðj- ur frá ánægðum rithöfundum,“ segir Stefán og heldur áfram: „Ávinningur höfunda er breytilegur og fer eftir því hve margar bækur hver áskrifandi hlustar á. Það sem mestu skiptir er að þessi notkun tekur ekki frá hefðbundinni sölu bóka nema síður sé. Þetta einfaldlega stækkar bókaþjóðina. Fleiri leggja sig eftir góðum bókum og reynslan frá Sví- þjóð og víðar sýnir að yngra fólk kemur sterkt inn og hlustar á bókalesturinn. Og þetta er auðvit- að sá hópur sem mikilvægast er að ná til, nú þegar gjarnan er sagt að bóklestur sé á undanhaldi. Stór hluti áskrifenda Storytel er nýir lesendur bóka.“ Syndafallið og Góði dátinn Fyrstu vikuna sem Storytel var í loftinu voru vinsælustu bæk- urnar þar Syndafallið eftir Mikael Torfason, Gatið eftir Yrsu Sigurð- ardóttur og Sakramentið eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson. Einnig koma sígild verk eins og Hobbitinn og Góði dátinn Svejk sterk inn. „Bækur í hefðbundnu formi munu lifa áfram. Þó þekkjum við dæmi þess á öðrum mörkuðum Storytel að bækur komi aðeins út rafrænt og þá gjarnan sem hljóð- bók í fyrstu útgáfu verksins. En auðvitað getur þetta breyst mjög fljótt líkt og dæmin úr öðrum geir- um afþreyingar sýna. Það er óhjá- kvæmilegt að raf- og hljóðbækur muni sækja á í framtíðinni í takt við tækniþróun. Hljóðbækur eru sú grein innan bókmenntanna sem vex hvað hraðast. Þá má nefna að fjölmiðlun hefur að miklu leyti færst yfir á netið úr blöðunum og neysla á tónlist er í dag að miklu leyti komin á áskriftarveiturnar sem eru í forminu eðlislíkar Story- tel.“ Tvennt í einu Ætla verður að flestir tengi hljóðbækur við blinda og sjón- skerta, sem ekki geta notið bók- mennta með öðru móti. Reynslan er samt sú að þegar fólk kemst upp á lagið með að hlusta á hljóð- bókalestur verður ekki aftur snú- ið. „Með tilkomu snjallsímans hefur orðið sprenging í notkun hljóðbóka. Þó að slíkar bækur séu frábærar fyrir þá sem eiga erfitt með hefðbundinn lestur er stærst- ur hluti notenda þeirra fólk sem kýs hljóðbækur umfram prentaðar vegna þess að það vill láta lesa fyr- ir sig meðan það er á ferðinni, í bílnum, á hjólinu og í heima til dæmis við eldhúsverkin. Þannig kemst fólk yfir miklu fleiri bækur og getur gert tvennt í einu,“ segir Stefán að síðustu. Storytel ætlar að setja eina nýja íslenska hljóðbók í loftið daglega Morgunblaðið/Sigurður Bogi Lestur Það er óhjávæmilegt að raf- og hljóðbækur muni sækja á í framtíðinni, segir Stefán Hjörleifsson. Bókaþjóðin stækkar  Stefán Hjörleifsson, fram- kvæmdastóri Storytel á Ís- landi, er fæddur árið 1964. Hann er tónlistarmaður með MBA-gráðu. Stefán hefur kom- ið víða við sem tónlistarmaður, lengst af með hljómsveitinni Nýdönsk. Stofnaði tónlistar- veituna Tónlist.is sem fór í loft- ið 2003 og hefur komið að stofnun nokkurra fyrirtækja sem starfa enn í dag. Hver er hann? Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Undirbúningur fyrir endurskoðun búvörusamninga og umræður um starfsskilyrði landbúnaðarins verða ofarlega á baugi á búnaðarþingi sem hefst í dag. Einnig verður farið yfir nýtt félagskerfi Bændasamtakanna. Búnaðarþing verður sett í dag við hátíðardagskrá sem hefst í Súlnasal Hótel Sögu klukkan 10.30 í dag. Yf- irskrift þingsins að þessu sinni er „Hér á ég heima“. Sindri Sigurgeirs- son, formaður Bændasamtaka Ís- lands, flytur setningarræðu og Krist- ján Þór Júlíusson landbúnaðarráð- herra ávarpar gesti. Landbúnað- arverðlaun 2018 verða veitt og boð- ið upp á tónlistar- atriði. Þingstörf hefjast eftir há- degi og standa yf- ir í tvo daga. Í fyrsta sinn er bún- aðarþing pappírslaust, öll gögn eru á tölvutæku formi. „Við munum ræða endurskoðun búvörusamninga, meðal annars hvaða áherslur við eigum að leggja í viðræð- um við ríkið og í endurskoðunarhópn- um,“ segir Sindri. „Svo munum við ræða nokkuð um starfsskilyrði landbúnaðarins, ekki síst tollverndina. Sú staða er uppi núna að innflutningur búvara er að aukast mjög mikið. Margir tollar eru ákvarðaðir í krónutölu og hafa ekki verið uppfærðir og þegar íslenska krónan er sterk bítur tollverndin ekki og samkeppnisstaða innlendrar bú- vöruframleiðslu versnar gagnvart innflutningi,“ segir Sindri. Hann bæt- ir því við að breytingar á reglum um innflutning á hráu kjöti þurfi einnig að ræða mjög vel. Bændur sætti sig ekki við að þær gangi sjálfkrafa yfir. Farið yfir félagskerfið Bændasamtökin tóku upp nýtt fé- lagskerfi á síðasta ári. Aðild að sam- tökunum er frjáls. Sindri segir að það hafi komið nokkuð vel út en tekjur af félagsgjöldum hafi þó orðið heldur minni en vænst var. Tæplega 70% bænda eru nú aðilar að Bændasam- tökum Íslands. „Við munum fara yfir samþykkt- irnar og sníða af agnúa og ræða fyr- irkomulagið í framtíðinni,“ segir hann. Áhyggjur af starfsskilyrðum  „Hér á ég heima“ er yfirskrift búnaðarþings sem hefst í dag með hátíðardagskrá Sindri Sigurgeirsson Á meðan stormur geisar á megin- landi Evrópu byrjar mars með nokkuð sólríku móti á Íslandi. Á fyrstu fjórum dögum mánaðar- ins hafa þegar mælst 30 sól- skinsstundir í Reykjavík. Um- skiptin í veðri komu í takt við mán- aðamótin, þ.e. síðustu fjórir dagar febrúar voru nær sólskinslausir. Einar Sveinbjörnsson veðurfræð- ingur segir gott veður á Íslandi á þessum árstíma gjarnan haldast í hendur við óveður og kulda á meginlandinu og að þessi sólarblíða sé því ekki óvenjuleg. Sólrík byrjun á marsmánuði Mögulegt vandamál í tengslum við símakosningu í Söngvakeppninni um helgina er nú til skoðunar hjá RÚV. Stofnuninni hafa borist ábendingar um að ekki hafi öll atkvæði sem ætluð voru Degi Sigurðssyni borist. „Við höf- um verið að fá einhverjar ábendingar um að atkvæði til Dags hafi ekki skil- að sér. Við munum því ekki birta úrslit í seinni kosningunni fyrr en það er búið að fara yfir málið,“ segir Rúnar Freyr Gíslason, verkefnastjóri Söngvakeppninnar, við Morgunblaðið. Dagur tapaði úrslitaeinvíginu gegn Ara Ólafssyni, sem verður fulltrúi Ís- lands í Eurovision sem fram fer í Lissabon í maí. Keppnin fór fram í tveim- ur hlutum en í fyrri keppninni fékk Dagur flest atkvæði en Ari hafnaði í öðru sæti. Þeir kepptu því til úrslita þar sem Ari bar sigur úr býtum. Rúnar Freyr segir niðurstöðu að vænta fljótlega. »29 og baksíða Fara yfir símakosningu í Söngvakeppninni Landgræðslan hefur auglýst gamla lúpínuakra í Gunnarsholti til leigu. Áhugi er á að nýta þá til kornræktar. „Það er gott að fá menn til að taka við landi sem búið er að græða upp og koma því í nytjar,“ segir Reynir Þorsteinsson, deildarstjóri fram- kvæmdadeildar Landgræðslunnar. Reynir segir að hugur sé í mönn- um að hefja kornrækt og hafi ein- hverjir óskað eftir að fá land í Gunn- arsholti. Það varð til þess að ákveðið var að auglýsa til leigu á annað hundrað hektara af lúpínuökrum sem eru tilbúnir fyrir akuryrkju í stað landgræðslu. „Þetta eru akrar þar sem áður voru berir melar. Lúpína hefur verið í þeim í 20-30 ár og kominn ágætur lífrænn massi í jarðveginn,“ segir Reynir. Hagur fyrir alla Mikið er ræktað af korni og grasi á uppgræðslulandi Landgræðsl- unnar í Gunnarsholti. Meðal annars ræktar svínabóndi bygg til að nota í fóður svínanna og bóndi framleiðir hey til útflutnings til Færeyja. Reynir segir að Landgræðslan sé með sanngjarna leigutaxta. Þarna sé verið að brjóta nýtt land til rækt- unar og það sé hagur Landgræðsl- unnar að fá leigjendur til að koma uppgræddu landi á næsta stig með því að hefja þar akuryrkju. helgi@mbl.is Leigja lúpínuakra til kornræktar  Uppgræðsluland nýtt til akuryrkju Morgunblaðið/Ómar Lúpína Öflug landgræðsluplanta undirbýr jarðveginn fyrir ræktun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.