Morgunblaðið - 05.03.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 05.03.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018 Frá morgnifyrir allafjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds Sími: 411 5000 • www.itr.is Laugarnar í Reykjavík NÆRING FYRIR LÍKAMA OG SÁL Brynjólfur G. Stefánsson, vagn-stjóri hjá Strætó, skrifar at- hyglisverða hugleiðingu um borg- arlínu og samgöngur í höfuð- borginni á undanförnum árum.    Brynjólfur rifjarupp að árið 2005 hafi nýtt leiðakerfi Strætó verið kynnt til sög- unnar, kallað „stofnleiðakerfi“. Með því hafi Strætó átt að verða „raunhæfur kostur“ fyrir fólk til að komast í vinnuna.    Um þetta segir vagnstjórinn:„Þessi útópía vitringanna endaði með algjöru „lestarslysi“, kostnaðurinn við stofnleiðakerfið hljóp á milljörðum. Hvar var allt fólkið sem vildi nota Strætó? Það kom aldrei í leitirnar. Afleiðing- arnar fyrir Strætó voru skelfileg- ar, niðurskurður og aftur nið- urskurður. Að lokum þurfti ríkissjóður að leggja nokkra milljarða í reksturinn. Höf- uðborgarbúar sátu eftir í umferð- arteppu, engar skynsamlegar ve- gaúrbætur hafa litið dagsins ljós í yfir tíu ár. Það er hið raunveru- lega vandamál, aðgerðir í vega- málum hafa ekki fylgt eftir auk- inni bílaumferð. Höfðinu var einfaldlega stungið í sandinn.“    Brynjólfur bendir að á að núeigi stofnleiðakerfið að heita „borgarlínan“. „Þetta er nýi draumur vinstrimanna sem vilja skikka almenning í Strætó og bjarga heiminum,“ segir hann.    Hvernig stendur á því aðvinstrimenn í borginni eru svo staðráðnir í að koma í veg fyrir eðlilega uppbyggingu sam- gangna en leggja allt undir til að þvinga fólk inn í strætisvagna undir nýjum og nýjum nöfnum? Brynjólfur G. Stefánsson Borgarlína: Gamalt vín, nýr belgur STAKSTEINAR Veður víða um heim 4.3., kl. 18.00 Reykjavík -1 heiðskírt Bolungarvík -4 skýjað Akureyri -3 alskýjað Nuuk -4 skýjað Þórshöfn 3 skýjað Ósló -2 skýjað Kaupmannahöfn -2 skýjað Stokkhólmur -3 heiðskírt Helsinki -7 heiðskírt Lúxemborg 7 rigning Brussel 8 rigning Dublin 4 súld Glasgow 2 skúrir London 7 skúrir París 7 alskýjað Amsterdam 8 þoka Hamborg 1 skýjað Berlín 3 heiðskírt Vín 1 léttskýjað Moskva -9 snjóél Algarve 15 skúrir Madríd 12 léttskýjað Barcelona 13 skýjað Mallorca 16 skýjað Róm 11 rigning Aþena 18 heiðskírt Winnipeg 2 alskýjað Montreal 1 snjókoma New York 5 alskýjað Chicago 3 heiðskírt Orlando 18 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 5. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:21 18:58 ÍSAFJÖRÐUR 8:30 18:59 SIGLUFJÖRÐUR 8:13 18:42 DJÚPIVOGUR 7:52 18:27 Anton Kári Hall- dórsson bygg- ingarfulltrúi skip- ar efsta sæti D-lista sjálfstæð- ismanna og ann- arra lýðræðis- sinna í Rangár- þingi eystra fyrir komandi sveitar- stjórnarkosn- ingar. Hann er jafnframt sveitarstjóraefni listans, að því er fram kemur í tilkynningu. Gerð var skoðanakönnun meðal félagsmanna í Kára, félagi sjálfstæð- ismanna, og tók uppstillingarnefnd fullt tillit til niðurstaðna hennar. Listinn var samþykktur á félags- fundi fyrir helgi. Jafnt kynjahlutfall er á listanum, sjö konur og sjö karlar. Í öðru sæti listans er Elín Fríða Sigurðardóttir viðskiptafræðingur. Guðmundur Viðarsson, bóndi og at- vinnurekandi, skipar þriðja sætið og Harpa Mjöll Kjartansdóttir ferða- skipuleggjandi það fjórða. Angelia Fjóla Vilhjálmsdóttir, Baldur Ólafs- son og Esther Sigurpálsdóttir eru í næstu sætum þar á eftir. Anton Kári sveitar- stjóraefni  D-listinn í Rangár- þingi eystra ákveðinn Anton Kári Halldórsson Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Nótan, uppskeruhátíð tónlistar- skóla, var haldin í níunda sinn í gær í Eldborgarsal Hörpu. Þar voru haldnir tvennir tónleikar og 24 tón- listaratriði flutt. Tæplega hundrað nemendur úr tónlistarskólum víðs vegar um landið stigu þar á svið til að sýna afrakstur vinnu sinnar. Á lokaathöfn eftir tónleikana flutti Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, ávarp og kom að af- hendingu verðlaunagripa. Nótunni er ætlað að vera uppskeruhátíð „grasrótar tónlistarsköpunar“ á Ís- landi og er haldin með samstarfi alls tónlistarskólakerfisins. Jafnframt er henni ætlað að styrkja ungt tónlist- arfólk til að efla listir og menningu í samfélaginu. Uppskeruhátíð tón- listarnema í Hörpu Morgunblaðið/Árni Sæberg Tónlist Ungir tónlistarnemar við verðlaunaafhendingu eftir tónleikana í El- borgarsal í Hörpu. Tæplega hundrað tónlistarnemar tóku þátt í Nótunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.