Morgunblaðið - 05.03.2018, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018
SAMSTARFSAÐILI
Hringdu í 580 7000
eða farðu á
heimavorn.is
AR SEM ÞÚ ERTHV
Kommúnistaflokkur Kína mun
kjósa um stjórnarskrárbreytingar
hinn 11. mars næstkomandi. Frá
þessu er sagt á fréttavef AFP.
Meðal fyrirhugaðra breytinga er
niðurfelling laga sem takmarka
embættistíð forseta alþýðulýðveld-
isins við tvö fimm ára kjörtímabil.
Gangi þessar breytingar í gegn
mun Xi Jinping forseti, sem ekki
hefur útnefnt neinn eftirmann líkt
og venjan hefur verið meðal for-
vera hans, geta setið í embætti eins
lengi og hann vill. Kínverskir ráða-
menn hafa gert lítið úr þessum
breytingum og sagt að hér sé að-
eins verið að samræma forsetaemb-
ættið aðalritaraembætti
kommúnistaflokksins, sem ekki er
bundið sömu tímamörkum.
KÍNA
AFP
Forseti Xi Jinping syngur kínverska
þjóðsönginn á ráðstefnu í Peking.
Xi Jinping opnar fyr-
ir lengri forsetatíð
Donald Trump
Bandaríkja-
forseti hyggst
leggja verndar-
tolla á innflutt
stál og ál til
Bandaríkjanna í
næstu viku. Frá
þessu er greint á
AFP. Erlendir
ríkisleiðtogar,
þar á meðal í
Bretlandi, Kína og Kanada, hafa
tekið illa í þessa ákvörðun og Evr-
ópusambandið er þegar farið að
skoða möguleikann á því að setja
móttolla á innfluttar bandarískar
vörur. „Tollastríð eru góð og auð-
velt að vinna þau,“ sagði forseti
Bandaríkjanna áhyggjulaus.
BANDARÍKIN
„Tollastríð eru góð,“
segir Trump
Donald Trump
Bandaríkjaforseti
Ítalir gengu til spennuþrunginna
þingkosninga í gær. Mjótt var á
munum í fyrstu útgönguspám í gær-
kvöldi og enginn flokkur virtist lík-
legur til að ná hreinum þingmeiri-
hluta. Frá þessu var sagt á fréttavef
BBC.
Kosningarnar gætu komið Silvio
Berlusconi, fyrrverandi forsætisráð-
herra Ítalíu, aftur í valdastöðu í
ítölskum stjórnmálum. Berlusconi
er formaður stjórnmálaflokksins
Forza Italia og leiðtogi kosninga-
bandalags miðhægriflokka, sem
vann flest þingsæti samkvæmt
fyrstu útgönguspám. Þótt bandalag-
ið vinni kosningarnar getur Berlus-
coni þó ekki gerst forsætisráðherra
á ný þar sem hann hefur verið
dæmdur fyrir skattsvik og er mein-
að með lögum að gegna opinberu
embætti þar til á næsta ári.
Samkvæmt útgönguspánum verð-
ur stærsti staki flokkurinn á þingi þó
Fimmstjörnuhreyfingin, sem ein-
kennist af andófi gegn spillingu í við-
urkenndu stjórnmálakerfi Ítalíu. Ef
útgönguspárnar reynast réttar verð-
ur líklega erfitt að mynda nýja rík-
isstjórn. thorgrimur@mbl.is
AFP
Kjör Silvio Berlusconi greiðir atkvæði. Samkvæmt útgönguspám fékk
bandalag hans flest atkvæði en óvíst er hvort það nægir til að mynda stjórn.
Gengið til tvísýnna
kosninga á Ítalíu
Bandalag Berlusconi sterkast
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Meðlimir þýska Jafnaðarmanna-
flokksins hafa greitt atkvæði með því
að ganga á ný til stjórnarsamstarfs
við Kristilega demókrataflokkinn,
flokk Angelu Merkel Þýskalands-
kanslara. Frá þessu er sagt á frétta-
vef AFP. Þetta greiðir leið Merkel til
þess að gegna sínu fjórða kjörtíma-
bili sem kanslari Þýskalands. Um
tveir þriðju kjósenda úr röðum jafn-
aðarmanna studdu endurnýjun
„stóra stjórnarsamstarfsins“ (Große
Koalition eða GroKo á þýsku) sem
hefur myndað ríkisstjórn Þýskalands
frá árinu 2013.
Andóf frá hægri og vinstri
Jafnaðarmannaflokkurinn hlaut
sína verstu kosningu frá því fyrir
seinni heimsstyrjöldina í september
2017. Því hafði Martin Schulz, for-
maður jafnaðarmanna, útilokað
áframhaldandi samstarf við Kristi-
lega demókrata og vonast til þess að
flokkurinn gæti safnað kröftum í
stjórnarandstöðu næstu árin. Schulz
lét undan þrýstingi til að hefja
stjórnarmyndunarviðræður á ný eft-
ir að fyrri viðræður Merkel við tvo
smærri flokka mistókust en gaf þó
þann fyrirvara að ekki yrði gengið
inn í stjórnarsamstarfið án þess að
almennir flokksmeðlimir samþykktu
það í atkvæðagreiðslu.
Stjórnarsamstarf flokkanna
tveggja á sína gagnrýnendur. Kevin
Kuehnert, formaður ungliðahreyf-
ingar Jafnaðarmannaflokksins, hafði
barist gegn því að gengið yrði til
samstarfs við flokk Merkel á ný og
hefur nú lýst yfir vonbrigðum með
niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar.
Jafnframt hefur óánægju með
stjórnarsáttmálann gætt í röðum
Kristilegra demókrata, sér í lagi með
að fjármálaráðuneytið verði undir
stjórn jafnaðarmanna.
Endurskoðun eftir tvö ár
Andófsmenn beggja fylkinga hafa
kallað eftir endurnýjun og endur-
skoðun á stefnumálum flokkanna.
Jens Spahn, nýr heilbrigðismálaráð-
herra, hefur kallað eftir því að
Kristilegir demókratar taki íhalds-
samari stefnu til þess að forðast
frekara fylgistap til öfgahægriflokks-
ins Alternative für Deutschland
(AfD) sem vann um þrettán prósent
atkvæða í síðustu kosningum. Sam-
kvæmt stjórnarsáttmálanum verður
samstarf flokkanna tekið til endur-
skoðunar eftir tvö ár.
Stjórnarkreppunni lokið
Angela Merkel leiðir endurnýjað samstarf Kristilegra demókrata og jafnaðar-
manna í Þýskalandi Andófsmenn beggja flokka kalla eftir stefnubreytingum
AFP
Hjarta Fulltrúi á flokksþingi Kristilegra demókrata hinn 26. febrúar bar
barmmerki með setningunni „Merkel forever,“ eða „Merkel að eilífu.“
Stjórnvöld í Burkina Faso hafa
handtekið mann sem grunaður er
um að standa á bak við hryðju-
verkaárásir sem framdar voru á
bækistöð hersins og franska sendi-
ráðið í Ouagadougou síðasta föstu-
dag. Frá þessu er greint á AFP.
Fréttum ber ekki saman um hve
margir létust í árásinni en um 80
manns eru taldir hafa særst. Jihad-
ista-samtökin GSIM hafa lýst yfir
ábyrgð á árásinni. Stjórnvöld grun-
ar að njósnari innan hersins hafi
lekið upplýsingum í vígamennina til
að gera þeim árásina léttari.
Burkina Faso
Grunaður
árásarmað-
ur klófestur
AFP
Vakt Hermenn á verði á götu Ouagadougou hinn 3. mars eftir mannskæða hryðjuverkaárás daginn áður.