Morgunblaðið - 05.03.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.03.2018, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018 ✝ Þórhallur PállHalldórsson fæddist í Reykjavík 26. júlí 1941. Hann andaðist á deild 12-E á Landspít- alanum við Hring- braut, 24. febrúar 2018. Foreldrar hans voru hjónin Þórunn Jónína Mey- vantsdóttir, f. 2.8. 1914, d. 1981, og Halldór Þór- hallsson, f. 18.9. 1919, d. 1978. Börn þeirra voru Sigrún, f. 1935, d. 2012, Þórhallur Páll, f. 1941, d. 2018, María Elísabet, f. 1942, d. 1943, Már E.M., f. 1945, Lilja Hjördís, f. 1951, og Sigurbjörn Frímann, f. 1957. Þórhallur Páll kvæntist Guðbjörgu Jónsdóttur, f. 29.12. 1942, 16. desember 1961. Foreldrar hennar voru Geirný Tómasdóttir, f. 1.9. 1912, d. 1995, og Jón Indriði Halldórsson, f. 13.6. 1909, d. 1989. Þórhallur og Guð- björg eignuðust fjóra drengi þeir eru 1) Halldór Þór, kvæntur Þóru Ingvarsdóttur, hann á þrjú börn með fv. eiginkonu og eitt barna- barn, 2) Ómar, hann á þrjú börn með tveimur fv. eiginkonum, en eitt þeirra missti hann í bílslysi ár- víkur og stefndi þá á nám í bif- vélavirkjun, sem hann þó lauk ekki. Hófst þar með fyrsta teng- ing hans við það fyrirtæki sem hann átti eftir að helga stærstan hluta af starfsævi sinni. Einnig starfaði hann um árabil hjá Land- síma Íslands við akstur fyrir síma- vinnuflokka víðsvegar um land. Um miðjan marsmánuð árið 1969 hóf hann aftur störf hjá Stræt- isvögnum Reykjavíkur, síðar Strætó b/s og starfaði þar óslitið síðan. Fyrst sem vagnstjóri, síðar sem varðstjóri og að lokum deild- arstjóri aksturs-og farþegaþjón- ustu. Við sjötíu ára aldursmörkin hætti hann störfum sem deild- arstjóri en starfaði áfram í hluta- starfi við umsjón með biðstöðvum allt til ársins 2015 að hann hætti störfum. Þannig urðu starfsárin hjá fyrirtækinu samtals 50 ár. Einnig starfaði hann um árabil með Lionsklúbbnum Tý. Meðfram starfinu hjá SVR ók hann leigubíl í nokkur ár meðan aflað var tekna til íbúðarkaupa. Frá árinu 1979 var hann virkur félagi í Strætó- kórnum, þar sem hann söng ann- an bassa. Sá kór átti aðild að sam- bandi samskonar starfsmannakóra á Norð- urlöndum NSSF (Nordisk Spor- veis Sangerforbund) og fór Þór- hallur á fjölda söngmóta hérlendis og erlendis á vegum þess. Útför Þórhalls fer fram frá Ás- kirkju í dag, 5. mars 2018, klukk- an 13. ið 1999. 3) Jón Indr- iði, hann á sjö börn með fjórum fv. eig- in- og sambýlis- konum og þrjú barnabörn, 4) Þröst- ur, í sambúð með Sylvíu Rún Guðnýj- ardóttur, þau eiga tvö börn. Í dag eru barnabörn þeirra hjóna fimmtán að tölu og barnabarna- börnin fjögur. Þórhallur ólst upp á Eiði v/ Nesveg, en vegna veikinda föður fór hann ungur í fóstur til föð- urforeldra sinna, Þórhalls Bald- vinssonar og Pálínu Steinadóttur, sem þá bjuggu í húsinu Sjáv- arborg á Akranesi. Dvaldi hann að mestu leyti hjá þeim uns þau fluttu til Reykjavíkur árið 1947. Eftir það dvaldi hann í föð- urhúsum og var í sveit á Narfa- stöðum í Melasveit á sumrum. Fjórtán ára að aldri fór hann til sjós sem vikadrengur/messi á strandferðaskipið Heklu og sigldi m.a. til Norðurlanda með því skipi. Einnig var hann á varðskip- unum Þór og gamla Ægi. Á ár- unum 1958 til 1961 starfaði hann á verkstæði Strætisvagna Reykja- Ekkert varir að eilífu, það á einnig við um lífið og þann tíma sem við fáum hér á jörð. Að sitja hér, eftir fráfall föður okk- ar Þórhalls Páls Halldórssonar, óskar maður þess að pabbi væri eilífur, svo einstakur var hann. Pabbi okkar var gull af manni, hann var okkar stoð og stytta í gegnum lífið. Alltaf tilbúinn að hlusta þegar eitthvað bjátaði á, hann leiðbeindi okkur með sinni yfirveguðu rödd þannig að mað- ur skildi nákvæmlega hvað hann meinti. Aldrei hækkaði hann róminn. Pabbi var með eindæmum þolinmóð persóna, stundum um of, allavega þegar við vorum í bílaviðgerðum oft við afar frumlegar aðstæður á bílaplönum hér og þar. En árið 1999, þegar þú og mamma flutt- uð á Barðastaði, fékkst þú bíl- skúrinn sem þig hafði dreymt um í svo mörg ár. Það er alveg sama hvaða hugsun kemur upp um pabba í sambandi við fjöl- skylduna, mömmu, börnin, barnabörnin. Hann var ávallt til staðar fyrir alla. Áhugamálun- um, eins og Strætókórnum sem hann var í yfir 30 ár, sinnti hann eins og einu af sínum börnum. Við getum ekki sleppt að minnast þess hversu mikill Benidorm-maður pabbi var og alltaf kom sælubros yfir hann þegar rætt var um þær ferðir. Hann og mamma nutu sín vel þar og var meiningin hjá þeim að fara fleiri slíkar ferðir á komandi árum. Pabbi hafði hætt að vinna fyrir einungis tveimur árum og nú skyldu hann og mamma njóta efri ár- anna saman, eins og þau höfðu gert í 60 ár. Elsku pabbi, við þökkum fyr- ir samfylgdina gegnum öll árin og við munum passa vel upp á mömmu eins og þú gerðir með stakri prýði öll árin. Minning þín er og verður ljós í lífi okkar. Hvíl í friði. Halldór og Ómar. Mikið er það erfitt að setjast niður og skrifa minningargrein um þig, pabbi minn. Ég er ennþá hálfdofinn og í afneitun yfir því að ég sjái þig ekki aft- ur. Ég var svo lánsamur að fá þig sem pabba minn í þessu lífi og þú og mamma voruð alveg einstök hjón. Kærleiksríkur, hjálpsamur, þolinmóður, staðfastur, nægju- samur, vinur, duglegur, fórnfús, auðmjúkur, Elvis, Akranes, Vaka, bílskúrinn, kórinn, Strætó, Boggan, Hammond Innes, Charles Bronson, þetta eru orðin sem koma þegar ég sit hér og hugsa til baka hvern- ig best er að lýsa þér. Hjá þér voru allir jafnir sem sást best á þínum fjölbreytta vinahóp og þú gafst öllum þann tíma sem hver þurfti. Nægjusemi þín og þolinmæði var mikil og mér verður hugsað til þess hvað það var gaman að fylgjast með þér hér áður þegar þú fórst í Hagkaup og varst kominn með augastað á skópari sem þig langaði í. En þér fannst verðið of hátt og beiðst í tvo mánuði áður en þú komst aftur. Þá höfðu þeir lækkað um 500 kr. þannig að þú beiðst aftur í tvo mánuði og aftur var búið að lækka um 500 kr. en þú beiðst aftur í tvo mánuði og þá loksins voru þeir komnir á verð sem þú sættir þig við. Þessi saga lýsir þér vel. Það lá aldrei neitt á og þú varst ekkert að eyða meira en þurfti í sjálfan þig. Þegar ég eignaðist strákinn minn kom ekkert annað til greina en að gefa honum nafnið Þórhallur. Krista og Halli elska að koma á Barðastaði til ömmu og afa og ég spurði þau hvort ég ætti að skrifa eitthvað til þín frá þeim. Krista sagði við mig „ljósið lifir í minningunni“ og frá Halla átti ég að segja „ég elska þig, afi“. Sylvía talar um hversu velkomin hún var þegar hún kom inn í fjölskylduna og að henni liði ekki eins og tengdadóttur ykkar heldur eins og dóttur ykkar. Elsku pabbi, það á eftir að verða tómlegt á Barðastöðum núna þegar þú ert farinn. Ég skal hugsa vel um mömmu, pabbi minn, þangað til þið hitt- ist aftur. Takk, mamma og pabbi, fyrir að hafa verið alltaf til staðar fyrir okkur. Þröstur, Sylvía, Krista, Þórhallur (Halli). Nú syngja englarnir þig í ei- lífan svefn. Það er erfitt og skrýtið að hugsa hvað skal segja þegar maður stendur frammi fyrir því að kveðja afa sinn, sem var minn besti vinur. Margs er að minnast og bröll- uðum við svo sannarlega margt saman í áranna rás. Í sársauk- anum er ríkidæmi að eiga þess- ar minningar um einstakan og góðhjartaðan mann, því þær getur enginn tekið frá okkur. Þið amma hafið verið mín stoð og stytta í gegnum tíðina og vináttan milli okkar þriggja al- veg einstök. Fyrir það er ég þakklát. Ég átti alltaf skjól í faðmi þínum og þið amma höfð- uð einstakt lag á að gera til- veruna betri. Mér er svo minn- isstætt þegar við hringdumst á nær daglega og ég spurði hvernig þú hefðir það, þá sagð- irðu alltaf: „Já, ég segi allt gott, þegar ég heyri í svona fallegri stelpu eins og þér.“ Elsku afi minn, þú munt allt- af eiga sérstakan stað í hjarta mínu og ég mun aldrei gleyma þér. Ég lofa að gæta ömmu og segja Henry mínum Thor sög- urnar af okkur, svo hann fái að kynnast þér á sinn hátt. Ég elska þig meira en lífið sjálft. Hafðu þökk fyrir allt og hvíldu friði. Minning þín er mynd svo hrein og tær. Minning þín um eilífð lifað fær. Öll sú von sem ást þín sendi okkur nýjan skilning kenndi Þín mynd er mér svo kær. Af gleði græt ég nú því Guð á himnum lét sinn engil birtast mér. Í frelsi flýgur þú og fegurð þessa heims býr í hjarta þínu. (Guðbjörg Magnúsdóttir) Þín, Ólöf (Olla). Þórhallur Páll Halldórsson  Fleiri minningargreinar um Þórhall Páll Halldórs- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, G. ERNA HALLDÓRSDÓTTIR frá Hlíðarendakoti í Fljótshlíð, síðast til heimilis að Seftjörn 9, Selfossi, varð bráðkvödd á heimili sínu 25. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 6. mars klukkan 14. Fyrir hönd aðstandenda, Viðar Zophoníasson Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRA BLÖNDAL, Efstaleiti 14, Reykjavík, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 28. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Kjartan Blöndal Svanhildur Blöndal Júlíus Vífill Ingvarsson Ragnar Halldór Blöndal Ari Blöndal Eggertsson barnabörn og langömmubörn ✝ Ásgeir Tóm-asson fæddist 29. mars 1929 á Reynifelli á Rang- árvöllum. Hann lést 23. febrúar 2018 á Hjúkr- unarheimilinu Eir í Reykjavík. Foreldrar hans voru Tómas Sig- urðsson, f. 21.6. 1890, d. 6.1. 1983, frá Árkvörn í Fljótshlíð og síðar bóndi á Reynifelli, og kona hans Hannesína Kristín Einarsdóttir, f. 24.7. 1904, d. 16.11. 1990, ætt- uð frá Neðra-Hreppi í Skorra- dal í Borgarfirði. Systkini Ás- geirs, nú látin, voru Sigurður, f. 9.12. 1925, d. 29.8. 2012, Guðjón Ársæll, f. 30.10. 1933, d. 29.1. 2017, Guðrún Magnea, f. 29.4. 1935, d. 28.12. 2011, og Ármann Reynir, f. 18.2. 1943, d. 13.10. 1999. Eftirlifandi eru Fanney, f. 24.9. 1930, Trausti, f. 31.5. 1939, Unn- ur, f. 22.12. 1940, og Birgir, f. 11.9. 1944. Ásgeir var upp- alinn í foreldra- húsum á Reynifelli og sinnti fljótt al- mennum bústörfum með foreldrum sín- um og systkinum. Um vetrartímann fór hann á vertíð í Vest- mannaeyjum og líkaði vel. Ás- geir tók við öllum búskap á Reynifelli árið 1961 og bjó þar til ársins 1976, þegar hann flutti niður í Fljótshlíð og vann þá mest við skógrækt á Tumastöð- um, þar til hann hóf búskap í Kollabæ í sömu sveit árið 1998. Útför Ásgeirs fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 5. mars 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Kær bróðir, frændi og vinur hefur kvatt. Ásgeir Tómasson bóndi á Reynifelli á Rangárvöll- um og síðar í Kollabæ í Fljóts- hlíð. Minningar um góðan bróð- ur ylja. Samrýnd systkini, aðeins rúmt ár á milli í aldri, að leik í Öldunni fyrir ofan bæinn á Reynifelli, Ásgeir og Fanney. Voru þar með sinn búskap ásamt yngri systkinum, leggir og skeljar í lykilhlutverki. Tím- inn leið fljótt, enda mikið að gera á stórbúi. Síðan tók önnur alvara við. Systkinahópurinn stór, og gæta þurfti þeirra yngri. Ósjaldan setið saman tvö ein í rökkrinu, ruggandi þeim í fanginu og raulandi, meðan beðið var eftir fullorðna fólkinu af engjum. Styrkur sóttur hvert til annars. Fljótlega tóku við heyskapar- störf og önnur bústörf. Geiri var vel lesinn og nátt- úruunnandi. Hafði unun af að ferðast og fór margar ferðir með fjölskyldunni sinni. Þekkti flest örnefni og fjöll í kringum sig. Einnig var hann dýravinur. Hafði gott lag á skepnum og miðlaði þeirri færni til frænd- systkinanna, Hafsteins og Kristínar. Ánægju hafði hann af hestum og naut þess að fara í útreiðartúra, þá sjaldan tími gafst til þess á fyrri hluta æv- innar. Fljótlega kom í ljós, að Geiri var fjárglöggur. Hann hermdi eftir kindum og lömbum með tilburðum, og við krakkarnir höfðu gaman af. Hafsteinn var öll sumur hjá Ásgeiri frænda allan sinn uppvöxt og Kristín ófá sumur. Skólinn hans var góður. Geiri vann mikið. Þrátt fyrir mikla vinnu og erfiða var stutt í glettnina og hláturinn. Skemmtilegur frændi. Brandarar og vísur við öll tækifæri á takteinum. Væri vís- an ekki til, þá varð hún til. Hvatti þá, sem voru nær, til að svara sér í vísu og börnin til að syngja lögin með. „Nú blikar við sólarlag“ var í uppáhaldi og hljómaði hátt og snjallt í takt við vélarhljóðin í gamla Fergu- son. Um að gera að syngja hærra en traktorinn. Þá lifnaði yfir hundinum, og sólin skein bjart. Góður tími. Geiri var ekki hræddur við að treysta krökkunum, fá okkur ábyrgð. Við okkur talaði hann eins og fullorðið fólk. Vinna þurfti verkin, og reyndum við okkar besta. Hækkuðum aðeins í loftinu. Gott innlegg fyrir framtíðina. Innistörfum þurfti að sinna svo sem að þrífa, elda og búa til skyr, en það síðast- nefnda kenndi hann Kristínu með nærgætni og hlýju eins og honum var lagið. Kennari góð- ur. Ekki var fjasað út af fyrstu eldamennskunni, hundasúru- súpunni, þar sem öllu tiltæku í eldhússkápnum var hrært sam- an í pott ásamt hundasúrum. Bragðið var hræðilegt. Engar skammir eða læti, aðeins „betra hef ég nú smakkað það ... en best að slafra þessu í sig, fyrst búið er að eyða öllu í þetta“. Þurfti ekki meira. Hvatinn til að gera betur næst var kominn. Aldrei var kvartað. Heldur haldið áfram, þrátt fyrir að heilsan gæfi sig. Systkinin lögðu honum þá lið sem endra nær. Þar bar hæst Birgi, yngsta bróðurinn og dóttur hans, Fjólu Björk. Þau voru vakandi yfir velferð hans, og kærleikur þeirra og velvilji ein- stakur að öllum öðrum ólöst- uðum. Minning um góðan bróð- ur, frænda og vin lifir. Fanney, Hafsteinn og Kristín Hanna. Elsku besti Geiri, einn af uppáhaldsfrændum mínum. Nú hefur þú kvatt okkur saddur líf- daga. En fram á síðasta dag varstu eins og alltaf, leifturklár í kollinum og sposkur á svip. Fyrstu minningarnar og trú- lega ástæða þess að þú skipaðir þér öruggan sess með uppá- haldsfrændunum var að þú skildir fljótt dýraáhuga minn. Á leið úr réttum að hausti, ég trú- lega fjögurra ára, kipptir þú mér framfyrir þig á hnakknefið. Mér fannst þú mikið góður að taka eftir mér og leyfa mér á bak. Hvatning þín og stuðning- ur átti án efa mikinn þátt í að áhuginn á hestum og dýrum bara efldist. Ég var svo sex ára þegar ég fór norður í land í sveit hjá föð- urfjölskyldu þar sem ég dvaldi í átta sumur. Þú komst líka í heimsókn þangað og tókst góð- ur vinskapur milli þín og míns góða frændfólks. Fram á síð- asta dag bar ég kveðjur ykkar á milli. Síðar átti ég orðið tvo hesta sjálf, en flutti utan til náms í dýralækningum. Hryssurnar mínar voru í hagagöngu á Suð- urlandi en ekki vildi betur til en að sú yngri, öllum að óvörum, kastaði folaldi seint í nóvember. Þú bjargaðir mér og tókst þau mæðgin að þér. Hestfolaldið, hann Blakkur, varð einn af þín- um uppáhaldsreiðhestum og var ekki felldur fyrr en í hárri elli. En það átti nú eiginlega við alla þína hesta og skepnur. Þetta voru fyrst og fremst sannir vin- ir þínir sem þú dekraðir við eins og börnin þín, enda komu kindurnar þínar þegar þú kall- aðir þó þær stykkju á braut ef aðrir nálguðust. Þegar ég var löngu síðar starfandi dýralækn- ir þá fékk ég að njóta að vera þér til aðstoðar í sauðburði ásamt móður minni, dóttur og vinkonu hennar. Þetta var há- punktur ársins sem dóttir mín beið með óþreyju vetur hvern. Eftir nokkur vor í sauðburði voru hnáturnar litlu orðnar býsna lunknar að sjá hvort allt væri með felldu eða ekki, enda með góðan lærimeistara. Sökn- uðurinn var, held ég, jafn mikill hjá þeim og þér þegar þú varðst að bregða búi og selja féð vegna heilsubrests. Góð huggun var þó að féð fór til góðs frænda okkar í Hlíðinni og stelpurnar tvær héldu áfram að vakta þær í sauðburði nokkur ár enn. Þegar þú svo komst í höf- uðborgina bjóstu til skiptis hjá okkur og bróður þínum kæra. Þá komstu meira en gjarna með okkur í hesthúsið og áður en maður vissi af varstu stokkinn í hlöðuna og farinn að græja næstu gjöf. Þú komst líka með okkur í hestaferð, þó þú værir þá nýhættur að fara á bak sjálf- ur, sast keikur í trússbílnum og sagðir sögur milli stoppa og hvattir ungviðið til dáða á baki. Elsku Geiri frændi, þú skip- aðir sérstakan sess. Þú áttir stökur og vísur við hvert tæki- færi og þreyttist aldrei á að segja mér þær aftur og aftur þó ég gleymdi þeim jafn óðum. Enda mundir þú allt, alltaf og fram á síðustu stund þá hafðir þú fulla yfirsýn hvað fór fram. En þú varst sáttur að langt og litríkt líf væri að enda komið. Þegar við kvöddumst í hinsta sinn hélstu lengi í hönd mína, klappaðir mér á handarbakið og sagðir mér að fara gætilega. Sólarhringnum síðar varstu far- inn á vit góðra vina, tví- og fer- fættra. Hvíl í friði, elsku frændi, og takk fyrir allt. Þín frænka, Þóra Jóhanna Jónasdóttir. Ásgeir Tómasson  Fleiri minningargreinar um Ásgeir Tómasson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.