Morgunblaðið - 05.03.2018, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 05.03.2018, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Lok á heita potta og hitaveitu- skeljar Stærðir í cm: 200x200, 210x210, 220x220, 235x235, 235x217, 217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000 kg jafnarðarþunga af snjó. Vel ein- angruð og koma með 10 cm svuntu. Sterkustu lokin á markaðnum. Litir: Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að auðvelda opnun á loki. www.heitirpottar.is Sími 777 2000 Haffi og 777 2001 Grétar Þjónusta Faglærðir málarar Tökum að okkur öll almenn málningarstörf. Tilboð eða tímavinna. Sími 696 2749 - loggildurmalari@gmail.com Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Húsviðhald Atvinnuauglýsingar Interviews will be held in Reykjavík in May. For details contact: Tel.:+ 36 209 430 492 Fax:+ 36 52 792 381 E-mail: omer@hu.inter.net internet: http://www.meddenpha.com Study Medicine and Dentistry In Hungary “2018” Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Við byrjum daginn á opnu vinnustofunni okkar kl 9, leikfimi í KR kl 10.30 þar sem hann Guðjón sjúkraþjálfari sér um leikfimina. Útskurður og myndlist kl 13, í hreyfisalnum og félagsvist kl. 13 í matsalnum. Árskógar Opin smíðastofa kl. 9 - 16. Ganga um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðb. kl. 12.30 - 16. Félagsvist með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16 - 20. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40 - 12.45. Kaffisala kl. 15 - 15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s 535 2700. Boðinn Leikfimi kl. 10.30. Félagsvist kl. 13. Spjallhópur Boðans kl. 15. Dalbraut 18-20 Brids kl.13. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun 8.30 - 12.30. Bókabíllinn á svæðinu 10 -10.30. Hjúkrunarfræðingur á svæðinu 10 - 11.30. Hand- aband - opin vinnustofa með leiðbeinendum ókeypis og öllum opið 10 - 12, frjáls spilamennska 13. Bókband 13 -17. Söngstund við píanóið 13.30 - 14.15, Kaffiveitingar 14.30. Handavinnuhópur 15 - 19. Verið velkomin á Vitatorg, s 411 9450. Garðabæ Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 9.30 - 16. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 14 - 15.40. Vatnsleikfimi Sjál. Kl. 7.40/8.20/15.15. Kvennaleikfimi Sjál. kl. 9.05. Stólaleikfimi Sjál. kl. 9.50. Kvennaleikfimi Ásg. kl. 10.40. Tiffany námskeið í Kirkjuhvoli kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15. Bridge fellur niður vegna aðal- fundar FEBG í Jónshúsi kl. 13.30. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30 - 16. Útskurður m/leiðb. kl. 9 - 16. Línudans kl. 13 - 14. Kóræfing kl. 14.30 - 16.30. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 Boccia, kl. 9.30 ath. postulíns- málun fellur niður í dag, kl.10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta, kl. 20. GÓUGLEÐI - Leikarinn og skemmtikrafturinn Örn Árnason kemur og slær á létta strengi - frítt inn. Gullsmári Postulínshópur kl 9. Jóga kl 9.30. Ganga kl. 10. Handa- vinna / Bridge kl 13. Jóga kl 18. Félagsvist kl 20. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9 - 14. Bænastund kl. 9.30 - 10. Jóga kl. 10.10 - 11.10. Hádegismatur kl. 11.30. Prjónaklúbbur kl. 14. Kaffi kl. 14.30 Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 - 16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga hjá Carynu kl. 10, hádegismatur kl. 11.30. Tálgun kl. 13, spilað bridge kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30, jóga hjá Ragnheiði kl. 16. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl. 9-12, línudansnámskeið kl. 10, ganga kl. 10, myndlistanámskeið hjá Margréti Zophoníasdóttir kl. 12.30, handavinnuhornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í s. 411 2790. Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 9 í Borgum. Postulínsnámskeið kl. 9 í Borgum. Gönguhópar kl. 10 frá Borgum, Grafarvogsikrkju, inni í Egilshöll, Félagsvist í Borgum kl. 13 og Skartgripagerð með Sesselju kl. 13 í Borgum. Fleiri velkomnir í hópinn, Tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum og kóræfing Korpusystkin kl. 16 í Borgum. Seltjarnarnes Leir, Skólabraut kl. 9. Billjard, Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga í salnum, Skólabraut kl. 11. handa- vinna, Skólabraut kl. 13. Glerlist á neðri hæð félagsheimilisins við Suðurströnd kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 8.30. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Zumba Gold kl. 10.30 - undir stjórn Tanyu. Smá- og raðauglýsingar Raðauglýsingar sími 569 1100 ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ? Hörður, „farin heim“ eins og skát- arnir nefna það að fara til feðra sinna og mæðra. Þau voru bæði södd lífdaga þegar kallið kom. Þeirra er sárt saknað. Það er svo merkilegt með þetta líf og reyndar lífslokin, það er eins og við getum að einhverju leyti ákveðið sjálf hvenær nóg er lifað. Ásthildur varð 85 ára þann 3. febrúar og það var haldin dálítil veisla heima hjá Bessu og Bjarna, dóttur og tengdasyni. Hún virtist njóta mjög nærveru fjölskyldunn- ar, var kannski ofurlítið angur- vær. Fáum dögum síðar virtist vera ljóst að hverju hverju stefndi. Það var næstum eins og hún hefði hugsað: „Orðin 85 ára, naut dagsins í faðmi fjölskyldu, nú er komið gott.“ Hún fékk hægt andlát um- kringd fólkinu sínu. Ég vil að leið- arlokum þakka þessari einstöku konu samfylgdina, jólin verða ekki söm án Harðar og Ásthildar, en góðar minningar lifa. Hjördís Smith. Í dag kveðjum við síðustu manneskjuna af þeim sem við kölluðum ömmu og afa. Afar og ömmur gegna veigamiklu hlut- verki í lífi ungs fólks og þar var Ásthildur amma engin undan- tekning. Hún hafði nóg að gera í því hlutverki enda á hún 19 barna- börn. Við vorum svo lánsöm að til- heyra þeim föngulega hópi og vegna fjölda barna var oft líf og fjör á Tjarnarbraut 13. Henni og afa fannst ekkert tiltökumál að bjóða börnum sínum sjö og öllum þeirra fylgifiskum í mat og þá var nú kátt á hjalla. Það var eitt sem einkenndi heimsóknirnar á Tjarn- arbrautina að þar var alltaf nóg að borða og alltaf eitthvað sem okkur fannst gott. Amma átti til að mynda alltaf rúsínur sem hún fékk sér með kaffinu og stálumst við gormarnir nú oft í rúsínudall- inn. Það var engin lognmolla í kringum hana ömmu. Það heyrð- ist í henni hvar sem hún var. Hún átti oftar en ekki orðið og fór oft mikinn. Börnin hennar sum hafa erft þessa eiginleika og þeir vita sem þekkja til hverjir það eru. En það var ekki svo að amma kynni ekki að hlusta því hún hafði ein- lægan áhuga á því sem aðrir voru að gera og spurði fólk spjörunum úr. Hún vissi alltaf hvað allir voru að fást við og gat tekið upp þráð- inn frá fyrri samtölum þótt langt liði á milli. Amma og afi mættu í öll afmæli barna og barnabarna og eins og áður hefur fram komið er fjöldinn slíkur að nóg var að gera við þær heimsóknir. Amma og afi gáfu alltaf bækur, enda mennta- fólk, og eftirvæntingin var alltaf mikil að eiga von á einum hörðum pakka frá afa og ömmu. Amma var mikil kvenréttinda- kona og það má glöggt merkja á afkomendum hennar að þar sáði hún mikilvægu fræi í litla kolla. Hún spurði okkur iðulega fyrir allar kosningar hvort við ætluð- um ekki örugglega að kjósa og hvort við ætluðum ekki að kjósa einhverja konu. Hún var góð fyr- irmynd fyrir stúlkur og drengi, hafði sterkar skoðanir og lá ekki á þeim. Það mynduðust því oft fjörugar og ansi háværar umræð- ur um menn og málefni þegar margt var um manninn á Tjarn- arbrautinni. Við krakkarnir laumuðumst þá oft upp á loft þar sem var meiri friður með óminn af pólitískum umræðum í bak- grunni. Við systkinin minnumst ömmu með hlýju í hjarta og þakklæti fyrir það sem hún kenndi okkur. Við gleðjumst yfir því að strák- arnir okkar fengu að kynnast henni og munum við halda minn- ingu hennar á lofti með sögum af kraftmikilli jafnréttiskonu og stolnum rúsínum. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni Jónsson frá Gröf) Hugrún Ósk Bjarnadóttir og Kjartan Bragi Bjarnason. Elsku amma. Þegar ég hugsa um þig þá koma nokkur vel valin orð í hug- ann. Það fór ekki framhjá neinum að þú varst mikil baráttukona og afrekaðir margt á þínum árum. Þú nýttir allan þinn tíma í að berjast fyrir þá sem minna máttu sín og kvenréttindi eiga þér mikið að þakka. En fyrir mér varstu meira en þetta hörkutól sem tal- aðir mig reglulega til þegar ég gerði eitthvað af mér. Þú varst nefnilega amma mín, indæl, mjúk og hlý. Einnig varstu afar þolinmóð. Ég veit ekki hversu oft ég kom til ykkar afa eftir skóla. Á köldum vetrardög- um var það vinsælt að fara út á ísilagðan lækinn við Tjarnar- brautina. Ég, grallarinn sem ég var, átti það til að brjóta ísinn með þeim afleiðingum að ég rennblotnaði oftast. Í hvert ein- asta skipti sagðir þú mér að fara ekki í vatnið, en um leið og ég fór út settir þú vatn í ketilinn og föt á ofninn. Þannig að þegar ég kom eina ferðina enn blautur inn þá beið mín heitt kakó og hlý föt. Það fylgir því mikill söknuður að skrifa þessa grein og þegar ég fer að reyna að lýsa því hversu in- dæl þú varst þá skil ég af hverju afi samdi hundruð ljóða þér til heiðurs og hvert öðru fegurra. Það eru nefnilega engin orð sem ná að lýsa því hversu góð amma þú varst og ég mun sakna þín að eilífu. Gunnar Þór Sigurjónsson. Síðustu vikurnar höfum við rifjað upp margar góðar sam- verustundir með ömmu, hugur manns byrjar alltaf á Tjarnar- brautinni þar sem hún tók á móti okkur með opnum örmum, rölti yfir götuna með okkur að gefa öndunum brauð, var alltaf tilbúin að búa til grjónagraut handa mat- vöndum barnabörnum eða taka eina æsispennandi ótukt. Við systkinin eigum einnig ótal minningar frá bílferðum með ömmu og afa þar sem afi keyrði og amma stjórnaði (án þess að hafa nokkurn tímann tekið bíl- bróf) og þuldi upp allar sögur af öllum hólum sem ekið var framhjá, við mismikinn áhuga hjá okkur. En í dag keyrum við um landið okkar með vinum eða eigin fjölskyldum og þyljum upp allt það sem amma kenndi okkur um hvern hól og hæð. Síðustu ár, bæði á Sólvangs- vegi og á Sólvangi, hafa verið ró- legri, en það var alltaf mjög af- slappandi að koma í heimsókn þar sem hún hélt í höndina á okk- ur og sagði alltaf góðar sögur frá sínum yngri árum, til dæmis frá því þegar hún var ung stelpa í sveit á Kirkjubóli eða þegar Gunna týndist í Danmörku þegar þau bjuggu þar. Amma sagði allt- af svo skemmtilega frá að yfirleitt enduðum við skellihlæjandi, húmorinn var aldrei langt undan. Þegar maður hugsar til baka fyllumst við þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast þessari kraftakonu, hún kenndi okkur góð gildi en var fyrst og fremst alltaf góð amma. Takk fyrir allt, sjáumst síðar, Hildur, Sigurður (Siggi), Bjarki, Fjóla og Ólöf.  Fleiri minningargreinar um Ásthildi Ólafsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Allar eru þær sveipaðar hlýju, skemmtilegheitum, gleði og ánægju. Margt ber að þakka, Atli, og verður veröldin fátækari án þín. Vil ég og mín fjölskylda þakka þér fyrir samfylgdina og megir þú njóta Guðs blessunar. Ættingjum og vinum sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Valdimar Bergsson og fjölskylda. Aldrei hefði mig grunað það á laugardaginn fyrir rúmri viku að við ættum ekki eftir að sjást aft- ur, þegar við spjölluðum saman og ég spurði þig hvernig þú hefð- ir það, þá varstu í ljómandi fínum gír að vanda. Það var mér því mikið áfall að frétta af því að þú hefðir kvatt okkur skyndilega síðastliðinn mánudag. Mig grunaði það ekki fyrst þegar ég hitti þig árið 1999 þegar við störfuðum báðir fyrir Hug að þú kæmir til með að verða einn af mínum betri vinum. Það hentaði okkur vel að vinna sem teymi, þú hafðir góða þekkingu á bókhaldi en ég hafði aftur á móti tækni- þekkinguna sem þig skorti. Ég lærði margt af þínu skipulagða vinnulagi og ég nýti mér reglu- lega atriði sem þú kenndir mér á sínum tíma. Þú varst það ná- kvæmur að ef þú varst ekki mættur svo gott sem á slaginu 9 til vinnu þá var ég jafnvel farinn að undrast um þig! Það að vinna með þér er með því skemmti- legra sem ég hef gert, því það var ávallt stutt í húmorinn og léttleikann. Þú varst líka einn sá þrjóskasti maður sem ég hef kynnst, það voru litlar líkur á að ég gæti fengið þig til að skipta um skoðun en þú bættir það upp með því að vera einstaklega skemmtilegur og traustur. Þú varst mikill stríðnispúki og þær voru margar skemmtilegar sögurnar sem þú sagðir mér af þér á árum áður. Ein var þegar þú varst á þjóðhátíð í Eyjum og þú og félagar þínir voruð allir spurðir hvað þið störfuðuð, allir voruð þið jú viðskiptafræðingar en þegar kom að þér þá fannst þér það engan veginn nægilega skemmtilegt þannig að þú sagð- ist vera prestur til þess að lífga nú aðeins upp á stemninguna. Það endaði með því að þú gafst saman par á hátíðinni! Það var eitthvað sem þú varst stoltur af. Ég hafði nú líka gaman af því að stríða þér. Á góðum stundum kallaði ég þig Tuma Turbo þegar þú áttir þennan hrikalega kraft- mikla Subaru Impreza Turbo og gott ef ég var ekki eilítið smeyk- ur á köflum þegar þú varst að keyra þann bíl, svo kraftmikill var hann. Á endanum skiptirðu yfir í settlegri bíl og fljótlega eft- ir það tók ég eftir samskonar bíl og þú hafðir átt á bílasölu. Ég velti því fyrir mér hvort þetta væri bílinn þinn, því í auglýsing- unni stóð að aðeins einn eigandi hefði verið að bílnum og sá væri eldri maður. Ég sýndi þér aug- lýsinguna en þú hafðir enga trú á því að þetta væri gamli bíllinn þinn enda værir þú enginn eldri maður. Ég lagði þá til að við kæmum við á bílasölunni og at- huguðum málið. Í ljós kom að þetta var sannarlega gamli bílinn þinn og þú varst þessi eini eldri eigandi, eftir það var reglulega gert grín að þessu og eins og venjulega hafðir þú bara gaman af. Þegar ég var að fara að taka þátt í mínu fyrsta Reykjavíkur- maraþoni þá hafði ég það á orði að ég ætti skilið bjór eftir slík átök, það stóð ekki á þér og þú varst að sjálfsögðu mættur með bjór handa mér í markinu. Mér þykir það virkilega sárt að eiga ekki eftir að hitta þig aft- ur og það mun taka tíma að með- taka það að þú sért farinn frá okkur. Það er erfitt að sætta sig við það. Ég mun ylja mér við all- ar góðu minningarnar. Takk fyr- ir allt, kæri vinur. Már Karlsson.  Fleiri minningargreinar um Atla Heiðar Þórsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.