Morgunblaðið - 05.03.2018, Side 22

Morgunblaðið - 05.03.2018, Side 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018 Brynja Dögg Gunnarsdóttir, eigandi barnafataverslunarinnarAgú, á 40 ára afmæli í dag. Hún er frá Hveragerði en býr núnaí Þorlákshöfn. Hún hefur verið prjónandi og saumandi frá því að hún man eftir sér. „Prjónavörurnar mínar vöktu athygli en það var svo mikið að gera í saumaskapnum að ég festist í honum. Núna prjóna ég bara á dóttur mína.“ Brynja stofnaði Agú fyrir fimm árum og saumar föt á krakka frá fæðingu og fram að tíu ára að aldri. Í síðustu viku opnaði Brynja síðan netverslun. „Ég hef fengið mjög góð viðbrögð við henni og hef nóg að gera að taka á móti pöntunum og fór öll helgin í það.“ Brynja bjó um tíma í Reykjavík og þá voru vörur hennar til sölu á Laugaveginum og einnig hefur hún sýnt hjá Handverki og hönnun. Núna er hún með saumastofuna sína í bílskúrnum hjá sér í Þorláks- höfn. Mestallur tími hennar fer í saumaskapinn. „Ég er ekki einu sinni búin að ákveða hvað ég ætla að gera í tilefni afmælisins, það er búið að vera svo mikið að gera. En við stefnum á að hafa matarboð um næstu helgi og svo verður utanlandsferð í sumar.“ Sambýlismaður Brynju er Bjarni Valur Ásgrímsson, smiður og rek- ur eigið byggingafyrirtæki, BV verk ehf. Börn þeirra eru Ásgrímur Þór, f. 1998, Þorbergur Böðvar, f. 2001 og Ingibjörg Rós, 2012. Saumakonan Brynja með hluta af vörunum sínum. Opnaði netverslun í síðustu viku Brynja Dögg Gunnarsdóttir er fertug í dag S úsanna Sand Ólafsdóttir fæddist í Vestmanna- eyjum 5.3. 1968 og ólst þar upp fram að gosi, 1973, en flutti þá til Þor- lákshafnar og ólst þar upp eftir það: „Pabbi var á fiskibátnum Gunnari Jónssyni og við flúðum með þeim bát til Þorlákshafnar gosnóttina frægu. Ég man þetta ekki allt greinilega en man þó að ég var í brúnni og þegar við sigldum frá Eyjum sáum við bjarmann frá gosinu lýsa upp him- ininn. Allir flýttu sér sem mest þeir gátu og ég man að mamma sneri við til að sækja einhverja peninga sem gleymdust heima og við urðum nátt- úrulega dauðhrædd um hana. En all- ir komust klakklaust frá Eyjum eins og alþjóð veit.“ Súsanna var í Grunnskólanum í Súsanna Sand Ólafsdóttir hestakona – 50 ára Fjölskyldan Súsanna með eiginmanni sínum og dóttur, Guðmundi Björgvinssyni og Súsönnu Katarínu Sand. Temur, keppir, kennir, dæmir og ræktar hesta Sonur og tengdadóttir Rúrik Sand með eiginkonu, Erlu Guðrúnu, og syni. Hafnarfjörður Brimir Logi Ingólfsson fæddist í Reykjavík 24. febrúar 2017 kl. 21.40. Hann vó 3.745 g og var 53 cm lang- ur. Foreldrar hans eru Ingólfur Björgvin Jónsson og Stefanía Eir Ómarsdóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. eldu á milli fimm girnilegra tegunda f Snack Pot frá Knorr. Réttirnir eru ægilegir, ljúffengir og fljótlegir. ynntu þér úrvaIið á KNORR.IS V a þ Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.