Morgunblaðið - 05.03.2018, Síða 23

Morgunblaðið - 05.03.2018, Síða 23
Þorlákshöfn og stundaði síðan nám við Húsmæðraskólann á Laugar- vatni og við Héraðsskólann að Laug- um í Þingeyjarsýslu. Þá lauk hún námi í tækniteiknun við Iðnskólann í Reykjavík, stundaði nám við Bænda- skólann á Hólum í Hjaltadal og lauk þaðan búfræðiprófi af hrossaræktar- braut 1992, stundaði framhaldsnám við Háskólann á Hólum í reiðkenn- aradeild og útskrifaðist sem reið- kennari árið 2008 og var í námi í Ráðgjafaskóla SÁÁ 2003-2008. Á unglingsárunum vann Súsanna í fiskvinnslu í Þorlákshöfn, var að- stoðarmaður tannlæknis í Reykjavík á árunum 1988-2000, vann við blikk- smíðar um skeið og var ráðgjafi hjá SÁÁ á árunum 2003-2008. Súsanna byrjaði að stússast í kringum hross þegar hún var korn- ung í Vestmannaeyjum: „Ég var aldrei alin upp við hross en hef haft dálæti á hestum frá því ég man eftir mér. Ég man að ég safnaði saman brauði í poka handa þeim örfáu hest- um sem voru í Eyjum. Ég fór á mitt fyrsta reiðnámskeið sex ára, hafði eignast minn fyrsta hest er ég var níu ára og hef verið með ólæknandi hestadellu síðan.“ Súsanna eignaðist ótamda meri er hún var 14 ára en það var fyrsta hrossið sem hún tamdi. Hún lærði síðan tamingar á Hólum og vann við tamningar með annarri vinnu frá 1992 en hefur eingöngu unnið við tamningar og reiðkennslu frá 2008 og er á félagssvæði Harðar í Mos- fellsbæ. Auk þess hafa Súsanna og eiginmaður hennar stundað hrossa- rækt í smáum stíl, kennda við Hvítárholt. Hún er nú þjálfari, reið- kennari, íþrótta- og gæðingadómari. Súsanna hefur verið knapi frá 1992 með góðum árangri. Hún hefur verið kjörin íþróttakona Hesta- mannafélagsins Harðar í Mos- fellsbæ, verið tilnefnd sem gæð- ingaknapi ársins á vegum Landssambands hestamannafélaga og hefur nokkrum sinnum verið til- nefnd sem íþróttakona Mosfells- bæjar. Súsanna hefur verið formaður Fé- lags tamningamanna frá 2013. Hún hefur unnið mikið að félagsmálum hestamanna: „Hér á ég ekki við setu í ráðum og nefndum, heldur í formi opinna málþinga, fræðslukvölda og pistla. Ég hef einkum haft áhuga á bættum samskiptum, opinni fræðslu og samtali í hestamennskunni, milli knapa, dómara, aðstandenda og allra sem að mótahaldi koma, milli kenn- ara, nema og nálgun í kennslu. Þessi viðleitni snýst kannski fyrst og fremst um það að byggja upp fremur en brjóta niður móralinn og um það að fólk tali saman í stað þess að tala hvert um annað. Þetta á auðvitað alls staðar við, en lífið verður bara svo miklu betra ef við öll drögum úr kvörtunum og dómhörku hver í sínu horni og stundum fordómalausa hestamennsku, enginn er eins. Auk þess má svo bæta því við að ég er hálffæreysk og fer reglulega til Færeyja til að kenna reiðmennsku.“ Fjölskylda Eiginmaður Súsönnu er Guð- mundur Björgvinsson, f. 25.8. 1966, símsmiður. Hann er sonur Björgvins Guðmundar Ingibergssonar, f. 11.7. 1944, fyrrv. símsmiðs, og k.h., Sól- veigar Guðmundsdóttur, f. 23.3. 1948, fyrrv. matráðs. Þau búa í Reykjavík Börn Súsönnu og Guðmundar eru Rúrik Sand, f. 12.12. 1984, rekur eig- ið fyrirtæki í Reykjavík, búsettur þar en kona hans er Erla Guðrún Grétarsdóttir nemi og er sonur þeirra Rökkvi Hrafnar Sand, f. 2016, og Súsanna Katarína Sand, f. 27.11. 1996, nemi í dýralækningum á Spáni. Bræður Súsönnu: Óskar Þór Sig- urðsson, f. 26.3. 1960, d. 17.12. 2007, véltæknifræðingur í Þorlákshöfn, var kvæntur Ástu Margréti Grét- arsdóttur og eignuðust þau tvö börn, og Andri Ólafsson, f. 20.2. 1965, húsasmíðameistari á Selfossi og á hann tvo syni. Foreldrar Súsönnu: Ólafur Sand- Edvinsson, f. 17.9. 1934, d. 19.12. 1995, sjómaður, af færeyskum ætt- um, og Guðrún Lísa Óskarsdóttir, f. 1.1. 1936, grunnskólakennari á Sel- fossi. Súsanna S. Ólafsdóttir Þórunn Snorradóttir húsfr. í Eyjum, frá Skálakoti undir Eyjafjöllum Jón Jónsson útgerðarm. í Hlíð í Vestmannaeyjum Ásta Jónsdóttir húsfr. í Eyjum Guðrún Lísa Óskarsdóttir kennari á Selfossi Óskar Jónsson útgerðarm. í Vestmannaeyjum Elín Einarsdóttir húsfr. í Hallgeirseyjarhjáleigu í A-Landeyjum Jón Guðnason b. í Hallgeirseyjarhjáleigu Ísleifur Sveinsson b. í Miðkoti Margrét Jóna Ísleifsdóttir tryggingafulltr. á Hvolsvelli Ingibjörg Pálmadóttir fyrrv. alþm. og ráðherra Ísleifur Gylfi Pálmason sveitarstjóri Rangárþings eystra og fyrrv. alþingismaður Margrét Guðnadóttir húsfr. í Miðkoti í Fljótshlíð Ólafur Ísleifsson hagfræðingur og alþm. Matthildur sleifsdóttir húsfr. í Vestmannaeyjum Í Ísleifur A. Pálsson skrifstofustj. Skreiðarsamlagsins og framkvæmdastj. eigin fyrirtækis Ísleifur Guðnason b. á Kirkjubæ í Vestmannaeyjum Úr frændgarði Súsönnu S. Ólafsdóttur Súsanna Katarina Olsen húsfr. á Sandi í Sandey, Færeyjum Edvin Sigmund Olsen sjóm. á Sandi í Sandey, Færeyjum Ólafur Edvinsson Sand sjómaður í Eyjum og Þorlákshöfn ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018 Verumgáfuð ogborðum fisk Plokkfiskur - Hollur kostur tilbúinn á 5mín. Kveðja Grímur kokkur • www.grimurkokkur.is Hollt og fljótlegt[ ] ÁNMSG P R E N T U N .IS Hafsteinn Þorsteinsson fædd-ist í Vestmannaeyjum 5.mars 1918. Hann var sonur hjónanna Þorsteins Hafliðasonar, skósmiðs þar, f. 1879 í Fjósum í Mýrdal, d. 1965, og Ingibjargar Þorsteinsdóttur húsfreyju, f. 1883 á Reykhólum í Reykhólasveit, d. 1949. Hafsteinn tók gagnfræðapróf frá Vestmannaeyjum, stundaði rit- símanám árin 1936-1938, lauk loft- skeytaprófi 1941 og símvirkjaprófi árið 1943. Hann var símritari í Vestmanna- eyjum og á Siglufirði 1938-1940 og símvirki hjá Landssímanum í Reykjavík 1941-1943. Árið 1943 var hann skipaður stöðvarstjóri við sím- stöðina á Reyðarfirði. Eftir það var Hafsteinn skipaður verkstjóri í símtæknideild Lands- símans í Reykjavík 1947, fulltrúi í sömu deild 1954 og fulltrúi bæjar- símstjóra í Reykjavík 1958. Hann var skrifstofustjóri bæjarsímans frá 1963, settur símstjóri í Reykjavík 1. janúar 1975 og skipaður í stöðuna 1. apríl sama ár. Því starfi gegndi hann til dauðadags. Hafsteinn var ritstjóri símaskrár- innar frá 1952, eða í meira en 30 ár, en hann vann í rúm 50 ár hjá Pósti og síma, frá því að hann hóf störf sem símasendill í Vestmannaeyjum, og hlaut fyrir það viðurkenningu stofnunarinnar. Hafsteinn var árið 1956 kjörinn formaður Byggingasamvinnufélags símamanna og sat í því embætti alla tíð síðan. Félagið byggði á annað hundrað íbúðir frá því skömmu eftir stríð og fram til um 1978. Hafsteinn var enn fremur nokkrum sinnum kosinn í félagsráð símamanna og sat á landsfundum þess. Fyrri kona Hafsteins var Mar- grét Snorradóttir, en þau slitu sam- vistir. Síðari kona hans var Nanna Þormóðs íþróttakennari, f. 28.5. 1915, d. 27.1. 2004. Hafsteinn átti engin börn en var fósturfaðir tveggja barna sem Nanna átti frá fyrra hjónabandi. Hafsteinn lést 11. apríl 1985. Merkir Íslendingar Hafsteinn Þorsteinsson 95 ára Birna Sigurðardóttir 90 ára Guðni Gestsson Hólmfríður Björnsdóttir Ingibjörg Steinunn Valdimarsdóttir 85 ára Kristrún Jónsdóttir Sverrir Guðlaugur Ásgeirss. Þórunn Þórðardóttir 80 ára Kristín Ína Pálsdóttir Ragna Guðmundsdóttir Rúnar Karl Borgþórsson 75 ára Aðalheiður Júlíusdóttir Bjarni Kristinn Garðarsson Eyjólfur Jónsson Guðmundur S. Grímsson Ragnheiður Brynjólfsdóttir Þröstur Magnússon 70 ára Henning L. Guðmundsson Hörður Sigtryggsson Marý Hörgdal Þórðard. 60 ára Atli Bryngeirsson Björk Hreiðarsdóttir Gyða Kristín Ragnarsdóttir Hafdís Eyland Gísladóttir Helga Pálmarsdóttir Helga Þórdís Guðmundsd. Kristinn Halldór Alfreðsson Kristján Henry Guðnason Lúðvík Berg Ægisson Magdalena M. Hermannsd. Magnús Jenni Narfason Margrét Hreggviðsdóttir Sangwan Sinpru Sólveig Bára Sævarsdóttir 50 ára Áslaug Jónsdóttir Elísabet Jónasdóttir Elsa Inga Jóhannsdóttir Helga Jónína Guðmundsd. Huldar Örn Sigurðsson Kristín Sigríður Geirsdóttir Kristín S. Sigtryggsdóttir Margrét Guðmundsdóttir Miroslaw W. Skwarski Ólafur Kárason Pernille Hargbøl Madsen Sorin Juncanaru Súsanna Sand Ólafsdóttir Þorfinnur G. Haraldsson 40 ára Agnar Áskelsson Agnieszka Wolkowicz Andrzej Kamil Markiewicz Ásgrímur Sigurðsson Ásthildur Ingvarsdóttir Benjamín H.A. Þórðarson Bjarki Traustason Brynja Dögg Gunnarsdóttir Brynja Huld Hannesdóttir Egill Sigurjónsson Erla Edvardsdóttir Kjartan Kjartansson Sigfús Atli Unnarsson Sindri Sigurjónsson Zaneta Sliuziene 30 ára Arnar Þór Björnsson Bergrós Arna Jóhannesd. Bjarni Þór Viðarsson Björn Sindri Eiríksson Guðfinna Betty Hilmarsd. Guðrún H. Fossdal Reynisd. Hafdís Inga Ólafsdóttir Hallgerður Elín Pálsdóttir Ingibjörg Elva Vilbergsd. Piotr Jaroslaw Jurek Saga K. Finnbogadóttir Sandra Sif Magnúsdóttir Símon Einarsson Til hamingju með daginn 40 ára Brynja ólst upp í Keflavík en býr í Njarðvík. Hún vinnur hjá Humar- sölunni. Maki: Jakob Hafsteinn Hermannsson, f. 1976, eigandi Humarsölunnar. Börn: Kristján Þórarinn, f. 1999, Brynjar Þór, f. 2003, Salvar Gauti, f. 2006, og Snorri Freyr, f. 2010. Foreldrar: Hannes Ein- arsson, f. 1948, og Laufey Steingrímsdóttir, f. 1948. Brynja Huld Hannesdóttir 30 ára Ingibjörg ólst upp í Garði en býr í Njarðvík. Hún rekur fyrirtækið Fjar- form ásamt manni sínum, og er í meistaranámi í mannauðsstjórnun. Maki: Logi Geirsson, f. 1982, einkaþjálfari. Börn: Vilberg Eldon, f. 2010, og Júlía Eldon, f. 2016. Foreldrar: Vilberg Jó- hann Þorvaldsson, f. 1962, og Helena Rafns- dóttir, f. 1964. Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 30 ára Símon ólst upp í Grafarvogi en býr í Kópa- vogi. Hann er verkfræð- ingur, með meistaragráðu í orkuverkfræði og er að- stoðarverkefnastjóri hjá VHE. Maki: Dorothea Páls- dóttir, f. 1987, tölv- unarfræðingur hjá Cyren. Börn: Benjamín Þór, f. 2013. Foreldrar: Einar G. Ólaf- son, f. 1956, og Hulda G. Gunnarsdóttir, f. 1954. Símon Einarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.