Morgunblaðið - 05.03.2018, Side 27
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018
fram að það hafi vafalítið hjálpað
þeim Hildi í þeirra vinnu hversu lengi
þær unnu að þýðingunni. „Einu sinni
lá þýðingin óhreyfð í hálft ár áður en
við hófumst aftur handa. Ef maður
hefur tækifæri til held ég að það sé
oft kostur að geta sett hlutina í salt.“
Spurð um mikilvægi þýðinga vitn-
ar Elísabet til Sigurðar heitins Páls-
sonar skálds sem sagði að Ísland
væri á spássíu í Evrópu. „Við erum
lítið málsamfélag og tiltölulega lítið
skrifað á íslensku, þó magnið sé mik-
ið per haus. Þess vegna er mikilvægt
að fá bæði bókmenntir og fræðitexta
utan úr hinum stóra heimi inn í okkar
hugsun. Þýðingar eru ekki síður mik-
ilvægar fyrir tungumálið, því þær
endurnýja oft tungumál,“ segir El-
ísabet og minnist í því samhengi á
Jónas Hallgrímsson. „Hann bjó á 19.
öld til alls konar orð sem okkur finn-
ast hafa verið til í íslensku frá því á
miðöldum.“ Elísabet bendir á að
suma texta geti lesendur hreinlega
ekki skilið nema á móðurmálinu og
nefnir í því samhengi ljóð.
Spurð hvort verðlaunin nú séu
þeim Hildi hvatning til áframhald-
andi þýðingastarfa, segir Elísabet:
„Ég veit það nú ekki, enda höfum við
ýmislegt annað að gera.“
Þess má að lokum geta að ítarlegt
viðtal við þær Elísabetu og Hildi um
þýðinguna á Walden birtist í Morg-
unblaðinu 5. febrúar sl.
Morgunblaðið/Hanna
Þýðingar Guðni Th. Jóhannesson forseti afhenti Elísabetu Gunnarsdóttur og Hildi Hákonardóttur verðlaunin.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 16/3 kl. 20:00 Frums. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Lau 28/4 kl. 20:00 25. s
Sun 18/3 kl. 20:00 2. sýn Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s
Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Fim 3/5 kl. 20:00 27. s
Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Fös 4/5 kl. 20:00 28. s
Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Lau 5/5 kl. 20:00 29. s
Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s
Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Þri 8/5 kl. 20:00 31. s
Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s
Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Lau 12/5 kl. 16:00 34. s
Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s
Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 9/3 kl. 20:00 135. s Sun 11/3 kl. 20:00 137. s
Lau 10/3 kl. 20:00 136. s Lau 17/3 kl. 20:00 138. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fim 8/3 kl. 20:00 58. s Lau 10/3 kl. 20:00 60. s
Fös 9/3 kl. 20:00 59. s Sun 11/3 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðustu aukasýningar komnar í sölu.
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fös 13/4 kl. 20:00 Frums. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Sun 29/4 kl. 20:00 10. s
Lau 14/4 kl. 20:00 2. s Sun 22/4 kl. 20:00 6. s Mið 2/5 kl. 20:00 11. s
Sun 15/4 kl. 20:00 3. s Mið 25/4 kl. 20:00 7. s Fim 3/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 8. s Fös 4/5 kl. 20:00 12. s
Fim 19/4 kl. 20:00 4. s Fös 27/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 13. s
Fös 20/4 kl. 20:00 5. s Lau 28/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 14. s
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s
Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s
Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s
Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s
Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Lau 21/4 kl. 20:00 17. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fim 8/3 kl. 19:30 Auka Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn
Fös 9/3 kl. 19:30 6.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 Auka
Lau 10/3 kl. 16:00 5.sýn Fös 6/4 kl. 19:30 Auka Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn
Lau 10/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn
Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn
Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn
Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Fim 15/3 kl. 19:30 Auka Fös 16/3 kl. 19:30 Síðustu
Síðustu sýningar komnar í sölu
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 11/3 kl. 13:00 Síðustu
Síðustu sýningar komnar í sölu
Faðirinn (Kassinn)
Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 27.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 29.sýn
Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 28.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Efi (Kassinn)
Þri 6/3 kl. 19:30 13.sýn Sun 11/3 kl. 19:30 Auka Sun 18/3 kl. 19:30 19.sýn
Fös 9/3 kl. 19:30 16.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 18.sýn
Margverðlaunað og spennandi verk !
Ég get (Kúlan)
Sun 11/3 kl. 13:00 14.sýn Sun 18/3 kl. 13:00 15.sýn Sun 25/3 kl. 13:00 Síðasta
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Oddur og Siggi (Stóra sviðið)
Mán 5/3 kl. 11:00 Þri 6/3 kl. 11:00 Mið 7/3 kl. 11:00
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 8/3 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 22:30 Lau 10/3 kl. 22:30
Fös 9/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 7/3 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00 Fesival Mið 18/4 kl. 20:00
Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?
listsköpuninni að finna sér vinnu sem
tónmenntakennari í grunnskóla, eiga
þannig fyrir salti í grautinn og þurfa
ekki lengur að hafa áhyggjur af hvort
tónlistin hans fengi nægilega góða
spilun á Spotify til að listsköpunin
stæði undir sér. Anna tekur undir
þetta og segir mikið frelsi í því fólgið
að geta skapað list listarinnar vegna,
án þess að hafa áhyggjur af hvort
selja má verkin. „Það eru svo mikil
gæði að geta einfaldlega fengið að
vera skapandi, og veitir mikla lífsfyll-
ingu. Og ef maður þarf á meðan að
vinna að alls konar öðrum verkefnum
býður það einfaldlega upp á alls kyns
skemmtilega árekstra sem geta orðið
manni innblástur.“
Listsköpun uppi á jökli
Gott dæmi um hvernig Anna hefur
tvinnað saman verkefni annars eðlis
saman við listsköpunina eru verk sem
hún byggir á ferðum með Jöklarann-
sóknafélaginu. „Ég hef verið félagi
síðan 1997 og farið í nánast alla vor-
leiðangra félagsins í Grímsvötn,“ segir
hún og nefnir að ferðirnar kalli á alls-
konar mokstur og líkamlega vinnu.
„Rannsóknirnar hafa veitt mér
efnivið í fjölda listaverka. Verkið
Leiðangur var sýnt á samnefndri yf-
irlitssýningu á Kjarvalsstöðum 2017
og unnið út frá Grímsvatnaöskjunni
sem er heillandi fyrirbæri,“ segir hún
en verkið byggist á þeim 22 leið-
öngrum sem Anna hefur farið í
Grímsvötn. Verkið er sett saman úr
tveimur stórum útsaumuðum landa-
kortum af Grímsvatnasvæðinu. Ann-
að kortið sýnir fyrsta uppdráttinn af
Grímsvatnaöskjunni sem Hakon Wa-
dell birti 1920, þar sem engin mæling
hafði verið gerð með vélknúnu far-
artæki, aðeins mannsaugað og viðmið
líkamans komu þar við sögu. Hitt
kortið sýnir sama stað 98 árum síðar
með skráningu á öllum þeim vís-
indalegu mælingum sem gerðar hafa
verið á svæðinu þá daga sem Anna
hefur dvalið á jöklinum.
Anna segir myndlist vera rann-
sóknartæki, sem hún notar á mismun-
andi vegu. „Ég safna efnivið oft án
sýnilegs markmiðs en seinna á vinnu-
stofunni fylgdist ég með jökulís um-
breytast í vatn og hvernig gjóskukorn
fljóta um í plastpoka. Velti fyrir mér
hvort vatnið í sýna-pokanum væri
ennþá jökull, eða hvort staðurinn þar
sem ég fjarlægði ísinn sé ennþá til.
Þetta atferli kallaði fram ágengar
spurningar: Á hvaða augnabliki
hverfur staður? Hvernig verður stað-
ur til? Er hann samofinn lífi þeirra
sem hafa átt stundir með staðnum,
upplifað í gegnum staðinn eða heyrt
hans getið. Hvað um stað sem enginn
hefur séð, snert eða heyrt af? Og
hvaða merking felst í því að eigna sér
náttúruundur?“
Það virðist sem þeim listamönnum
fari fjölgandi sem nálgast starf sitt
með svipuðum hætti og Anna og segir
hún orðið minna um að myndlist-
armenn vinni eingöngu á vinnustof-
unni. „Eða kannski frekar að vinnu-
stofan er hreyfanlegri í dag en áður.
Vinnustofan, hvar og hvernig sem
hún er, er samt alltaf jafn mikilvæg,
en eins og t.d. mín vinnustofa þá er
hún stundum heima, stundum í Berl-
ín, uppi á Vatnajökli og bráðum í
Marrakesh og þetta er frekar dæmi-
gert fyrir daginn í dag,“ segir hún og
bætir við að þessi flötur á starfinu geti
verið eitt það skemmtilegasta við
starfið: „Maður getur skapað sér
ákveðið frelsi og listasamfélagið býð-
ur upp á samfélagslegan núning sem
gefur mikið. Í gegnum sýningar og
samstarf skapast tengsl við fólk víðs-
vegar að, oft með reynslu sem gefur
innsýn í áður óþekktan heim.“
Við fyrstu sýn virðast sum listaverk Önnu nánast eins og sjálfsprottin,
og oft að hún notar mjög hversdagslegan efnivið, eins og garn, tvinna
og borðbúnað. Þegar að er gáð eru verkin þó flóknari og hafa mikla
dýpt og skýra merkingu. „Það hefur verið ákveðið grunnstef í minni
vinnu að spyrja spurninga um hluti sem búið er að samþykkja að séu
„normal“, skoða markvisst röð pólitískra ákvarðana sem teknar hafa
verið í gegnum aldirnar til að búa til þennan „sáttmála“,“ segir hún
„Eitt sinn hélt ég sýningu með yfirskriftinni Kortlagning hversdags-
lífsins þar sem ég var í reynd að nota myndlist til að kortleggja ósýni-
leg öfl, reyna að átta mig á öllum þessum óskráðu reglum og kröfum
sem gerðar eru til okkar allra sem einstaklinga og framkalla þær með
myndlist.“
Annað gott dæmi er ljósmyndaverkið Má bjóða þér meira? sem sýn-
ir konu í kjól hella kaffi í bolla, nema hvað bollinn er löngu fullur og
kaffið fossar niður á gólf. Það sem virðist vera ósköp einföld mynd er
í reynd beitt samfélagsádeila. „Þarna fer hverstagsleg athöfn úr
böndunum og verður um leið að ógn við ríkjandi ástand. Stundum er
hversdagsleikinn svo ósýnilegur að það þarf framköllunarvökva til að
hann sjáist.“
Skoðar ósýnilegan
hversdagsleikann
Útlínur Anna gerði m.a. útsaumað verk út frá jöklamælingum.