Morgunblaðið - 05.03.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.03.2018, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 5. MARS 64. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. „Guð, ef þú ert til, hjálpaðu …“ 2. Hafði ákveðið að myrða Wall 3. Fótboltinn verður að engu 4. Vísindin eiga mig alla »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Óperusöngkonan Guja Sandholt kemur fram ásamt Antoníu Hevesi píanóleikara á hádegistónleikum í Hafnarborg í dag kl. 12. Á undan- förnum árum hefur Guja komið fram sem mezzósópran en vinnur nú smám saman að því að færa sig upp um rödd á svið sóprans. Verkin sem þær Antonía hafa valið til flutnings endurspegla þetta og til gamans titla þær tónleikana Kynskiptingar og raddbreytingar í hádeginu. Kynskiptingar og raddbreytingar  Finnur Frið- riksson, dósent í ís- lensku við Háskól- ann á Akureyri, heldur þriðjudags- fyrirlesturinn Face- book: Sköpun sjálfsmyndar í máli og myndum, í Lista- safninu á Akureyri, Ketilhúsi, í dag kl. 17. Finnur mun fjalla um rannsóknir sínar á tjáningu unglinga á Facebook og einkum huga að því hvernig sjálfsmyndarsköpun fer þar fram með myndrænni jafnt sem málbundinni framsetningu. Sköpun sjálfsmyndar  Arnþór Gunnarsson sagnfræðingur flytur fyrirlesturinn „Reykjavíkur- flugvöllur. Saga flugvallarmálsins“ í dag kl. 12.05 í fyrirlestr- arsal Þjóðminjasafns Íslands. Þetta er fjórða erindi þessa vormisseris í röð fyrir- lestra sem Sagnfræð- ingafélag Íslands skipuleggur í sam- vinnu við Þjóð- minjasafnið. Fyrirlestur um sögu flugvallarmálsins Á þriðjudag Austan og norðaustan 8-15 m/s, en 15-20 með suð- urströndinni í fyrstu. Dálítil él norðan- og austanlands, annars þurrt að kalla. Frost 0 til 7 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Svipað veður og í gær, en bætir í ofankomu austan til á landinu og hvessir á Suðausturlandi. Norðan og norð- austan 8-15 m/s. Frost 0 til 8 stig, minnst syðst. VEÐUR ÍR kom í veg fyrir að Haukar gætu fagnað deildarmeist- aratitlinum í körfubolta karla í Hertz-hellinum í Breiðholti í gær, með því að vinna leik liðanna 64:62. Tindastóll getur jafnað Hauka að stigum með sigri á Stjörnunni í kvöld en örlög Hauka eru áfram í þeirra höndum fyrir lokaumferðina á fimmtudag. Þór Þ. heldur í vonina um að komast í úr- slitakeppnina. »2 Haukar fengu ekki fagnað í Hellinum „Það hafa verið fæðingargallar á þessu, sem er eðlilegt þegar það er verið að taka eitthvað nýtt upp. Ég held að þetta verði bara til góðs, sér- staklega til framtíðar,“ segir Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, um myndbands- dómgæslu. Allt útlit er fyrir að tækn- in verði nýtt á heimsmeistaramótinu í Rússlandi í sumar. »1 Eðlilegir fæðingargallar en þetta er til góðs ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Ég varð alveg stjarfur þegar úr- slitin voru tilkynnt, enda æsku- draumur að rætast,“ segir Ari Ólafsson, nýkjörinn fulltrúi Íslands í Eurovision-söngvakeppninni sem haldin verður í Lissabon í maí. Eftir að síma- og dómnefndaratkvæði höfðu verið talin voru lögin „Our Choice“ með Ara og „Í stormi“ með Degi Sigurðssyni efst og mættust þeir því í einvígi þar sem Ari bar sigur úr býtum. Ari segir að upp- haflega hafi markmiðið verið að komast í úrslitaeinvígið. „Þetta gat auðvitað brugðið til beggja vona þegar í úrslitakeppnina var komið. Ég var því orðinn mjög ánægður þegar ég komst þangað, en svo var stórkostlegt að takast að vinna þetta,“ segir Ari sem hefur haft áhuga á söng- og leiklist frá blautu barnsbeini. Fyrst kom Ari fram í sýningunni Oliver Twist í Þjóðleikhúsinu einungis níu ára gamall, en síðan þá hefur hann tekið þátt í fjölmörgum leiksýningum. Oft verið líkt við Johnny Logan Nú síðast vakti Ari athygli fyrir frammistöðu sína þegar hann söng með norsku stjörnunni Sissel Kyrkjebø í Eldborgarsal Hörpu. „Ég frétti af því að Sissel vantaði sópranrödd til að syngja með sér. Ég sendi upptöku sem Sissel hlust- aði á og vildi í kjölfarið fá mig til að syngja með sér. Það var mik- il upplifun að syngja með henni,“ segir Ari. Í aðdraganda söngva- keppninnar hér heima hefur Ara oft á tíðum verið líkt við söngvarann Jonnhy Logan sem sigraði tvívegis í Euro- vision fyrir um þremur ára- tugum. Spurður um saman- burðinn segir Ari það vera mikinn heiður að vera líkt við stórstjörnu á borð við Johnny Logan. „Þetta byrjaði allt saman þegar mamma vinar míns setti mynd af okkur tveimur á Facebook-síðu sína. Síðan þá hefur þetta verið að koma reglulega upp, en ég kvarta ekki, enda ekki leiðum að líkjast,“ segir Ari Í haust mun hann hefja nám við breska söngskólann, Royal Aca- demy of Music, sem er í Lundúnum. „Þetta er einn stærsti söng- og leik- listarskóli í heimi, en þarna er manni kennt allt sem hægt er að læra um tónlist. Ég held að þarna muni ég ná að bæta mig mikið sem söngvari þannig að spennan fyrir flutningnum er orðin mikil,“ segir Ari. Æskudraumur Ara rættist  Fer í haust í einn stærsta söngskóla heims Morgunblaðið/Eggert Sigurvegari Ari Ólafsson bar sigur úr býtum í Söngvakeppninni eftir úrslitaeinvígi við Dag Sigurðsson. Ari Ólafsson mun verða næst- yngsti Íslendingurinn til að flytja lag í lokakeppni Eurovisi- on, einungis 20 ára gamall. Ari verður rúmum fimm mánuðum eldri en Jóhanna Guðrún sem er yngsti ís- lenski keppandinn, en hún hafnaði í öðru sæti í keppninni árið 2009. „Ég var búinn að heyra eitthvað af þessu. Það kemur kannski ekki mikið á óvart enda er ég bara 19 ára gamall,“ segir Ari sem mun fagna tvítugsafmælinu þegar keppnin fer fram. „Það eru fáir staðir sem ég myndi frekar vilja vera á. Þetta verður án efa afar skemmtilegt,“ segir Ari. Spurður hvort hann sé farinn að leiða hugann að lokakeppninni segir Ari svo vera. Mikil tilhökkun sé fyrir ferðinni enda um risastór- an viðburð að ræða. Næstyngstur - Jóhanna yngst ARI VERÐUR TVÍTUGUR MEÐAN Á EUROVISION STENDUR Jóhanna Guðrún Aðeins er tímaspursmál hvenær Man- chester City landar Englandsmeist- aratitlinum í knattspyrnu en liðið vann fráfarandi meistara Chelsea 1:0 í gær, án þess að Chelsea ætti skot á mark. City þarf aðeins fjóra sigra í viðbót til að verða meistari, og fagn- ar hugsanlega titlinum eftir Manchester- slag í apríl. »6 City er fjórum sigrum frá meistaratitlinum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.