Morgunblaðið - 07.03.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 07.03.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '*-�-��,�rKu�, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI Iðnaðareiningar í miklu úrvali Helgi Bjarnason Anna Sigríður Einarsdóttir Logi Einarsson, formaður Samfylk- ingarinnar, segir að Sigríði Á. And- ersen dómsmálaráðherra sé ekki treystandi til að fara með málefni dómstólanna í landinu. Hann var fyrsti flutningsmaður tillögu Sam- fylkingarinnar og Pírata til þings- ályktunar um vantraust á dóms- málaráðherra. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagðist ekki fá séð að rökin með vantrauststillögunni væru fullnægjandi. Vantrauststillagan var felld. 29 þingmenn greiddu henni atkvæði en 33 voru á móti. Niðurstaðan fór að miklu leyti eftir línum stjórnar og stjórnarandstöðu. Þó greiddu tveir þingmenn VG, Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björg Brynjólfsdóttir, at- kvæði með stjórnarandstöðunni, studdu vantraust, og Bergþór Óla- son, þingmaður Miðflokksins, sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Logi sagði í framsöguræðu sinni að aðalatriði málsins væri að vegna ólögmætrar embættisfærslu væri óvissa um heilt dómstig. Bréf um- boðsmanns Alþingis gæfi fullt tilefni til að ætla að allt væri komið fram er varðaði embættisfærslur dómsmála- ráðherra. Engin mál fyrir dómstól- um snérust um stöðu dómsmálaráð- herra, eingöngu um slæmar afleiðingar ólögmætrar embættis- færslu ráðherra. „Þess vegna er dómsmálaráðherra ekki treystandi til að fara með málefni dómstólanna í landinu eða vinda ofan af þeim vand- ræðagangi sem dómstólar eru komn- ir í. Hún verður því að axla ábyrgð á þeim og það er nauðsynlegt að það birtist með skýrum hætti,“ sagði hann. Koma höggi á ríkisstjórnina Bjarni Benediktsson, fjármálaráð- herra og formaður Sjálfstæðis- flokksins, sagði meðal annars í sinni ræðu að þeir sem stæðu að þessari tillögu væru í leiðangri sem gengi út á það eitt að reyna að koma höggi á ríkisstjórnina. „Í ljósi þeirrar langdregnu um- ræðu sem stjórnarandstöðuflokk- arnir hafa staðið fyrir um þetta mál, sem er löngu upplýst og margskoð- að, verð ég að segja að það er visst fagnaðarefni að fá hér tækifæri til að binda formlega enda á málið, fá tækifæri til að lýsa stuðningi við ráð- herrann hér á Alþingi,“ sagði Bjarni. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráð- herra og formaður Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs, sagði ekki rétt að afsögn dómsmálaráð- herra eyddi réttaróvissu vegna skip- unar dómara í Landsrétt, henni yrði eingöngu eytt með því að dómstólar lykju málsmeðferð sinni. „Ég fæ satt að segja ekki séð að rökin með þessari vantrauststillögu séu fullnægjandi,“ sagði Katrín Jak- obsdóttir. Sæmir ekki ráðherra „Í stað þess að gleðjast yfir þeim tímamótum, sem stofnun Landsrétt- ar er, þá hafa þau verið sveipuð tor- tryggni og vantrausti,“ sagði Rósa Björk Brynjólfsdóttir er hún gerði grein fyrir sínu atkvæði. Andrés Ingi sagði stöðu Landsréttar vera eina ástæðu þess að hann hefði ekki stutt stjórnarsamstarf VG og Sjálfstæðis- flokksins eftir síðustu kosningar. „Mér þótti málið slæmt í nóvember, en síðan hefur það stöðug versnað.“ Vinnubrögðin sæmi ekki ráðherra. Bergþór Ólason, þingmaður Mið- flokksins, sagðist telja ríkisstjórnina vonda en lagalegar hliðar dómara- skipanar væru þó þess eðlis að hann styddi ekki tillöguna. Tveir með stjórnarandstöðu  Vantrauststillaga Samfylkingar og Pírata felld  Atkvæði að mestu eftir línum stjórnar og andstöðu  Andrés Ingi og Rósa Björk fylgdu ekki þingmönnum stjórnarinnar  Bergþór Ólason sat hjá Morgunblaðið/Hari Úr þingsal Allir þingmenn voru við umræður og atkvæðagreiðslu um tillögu um vantraust á dómsmálaráðherra. Meirihlutinn felldi tillöguna. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Líkt og fram kom í fréttum í gær- morgun lögðu þingflokkar Pírata og Samfylkingar fram vantrausts- tillögu á Sigríði Á. Andersen dóms- málaráðherra vegna framgöngu hennar í landsréttarmálinu. Til- lagan var send inn laust fyrir mið- nætti í fyrrakvöld. Fram kemur á vef Alþingis að vantraust á ríkisstjórn er lagt fram og afgreitt sem þingsályktun- artillaga. Um meðferð vantraust- stillagna gildi ákvæði 2. mgr. 45. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991. Yfirleitt séu tillögurnar mjög stuttorðar. „Frá 1944 hafa verið lagðar fram þingsályktunartillögur um van- traust á ríkisstjórn í 24 skipti. Þar af var ein tillaga um vantraust á alla ráðherra í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar 1994 en henni var vísað frá að tillögu forsætisráðherra. Á tímabilinu var aðeins ein van- trauststillaga samþykkt. Það var árið 1950 þegar ríkisstjórn Ólafs Thors fór frá. Árið 1974 rauf Ólaf- ur Jóhannesson þing áður en van- trauststillaga á ríkisstjórn hans kom til umræðu á þinginu,“ segir orðrétt á vef Alþingis, þar sem fjallað er um vantrauststillögur. Þar kemur einnig fram að árið 2016 voru fluttar tvær vantrausts- tillögur, fyrst á ríkisstjórn Sig- mundar Davíðs Gunnlaugssonar og síðar á ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar. Sömu flutningsmenn voru að báðum tillögunum: Árni Páll Árnason, Katrín Jakobsdóttir, Óttar Proppé og Birgitta Jóns- dóttir. Lýstu vantrausti á ráðherra  Vantrauststillögur afgreiddar sem þingsályktunartillögur  24 slíkar tillögur á ríkisstjórnir hafa komið fram frá 1944 „En fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Þessi vantrauststillaga sýnir að valdið til að skipa dóm- ara á að vera í höndum ráðherra en ekki hjá andlitslausri stjórnsýslunefnd. Ráðherrann er hægt að draga til ábyrgðar eins og flutningsmenn reyna að gera með þess- um hætti. Hæfnisnefndir verða ekki dregnar til ábyrgð- ar,“ sagði Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra í ræðu við umræður um vantrauststillögu á dómsmálaráð- herra. Hún fór yfir tillögu sína til Alþingis um skipan dómara við Landsrétt. Hún hefði talið að dómarareynslu um- sækjenda hefði ekki verið gefið nægt vægi. Við breytingu sína hefði hlutur karla og kvenna í Landsrétti jafnast. Varðandi rannsókn á málinu sem Hæstiréttur taldi ekki nægjanlega segist hún hafa innt af hendi viðamikla rannsókn á umsóknum og öðrum gögnum og talið sig hafa rannsakað málið nægjanlega áður en hún lagði til- lögu sína fyrir Alþingi. Vilja ábót á dómsniðurstöðu „Þegar menn telja nú dóm Hæstaréttar frá því í des- ember vera tilefni til afsagnar minnar eða vantrausts Al- þingis á mér þá er á ferðinni einhver misskilningur um þrígreiningu ríkisvaldsins. Ráðherra hefur ekki síðasta orðið um túlkun á lagareglum þegar hann tekur sínar ákvarðanir. Þegar um matskenndar reglur er að ræða og ágrein- ingur er um túlkun þeirra kemur auðvitað fyrir að nið- urstaða stjórnvalds sé borin undir dómstóla og það eru dómstólar sem hafa þá lokaorðið. Þetta á ekki síst við um ýmsar matskenndar reglur stjórnsýsluréttarins. Jafn eðlilegt er að stundum dæmi dómstólar stjórnvaldi, ráð- herra, sveitarfélagi, ríkisstofnun, í óhag. Dómstólar eru stundum ósammála. Þar er einfaldlega réttarríkið að verki og við höfum komið okkur saman um að una nið- urstöðunni. Þessi tillaga um vantraust sem við ræðum hér sýnist mér til marks um að háttvirtir flutningsmenn uni ekki niðurstöðu dómstóla og vilji fá einhverskonar ábót á dómsniðurstöðuna. Menn hafa reynt að kreista slíka ábót út úr stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og umboðsmanni Alþingis,“ sagði Sigríður. Einhver misskilningur um þrígreiningu ríkisvaldsins  Sigríður Á. Andersen segist hafa rannsakað málið ítarlega Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alþingi Sigríður Á. Andersen og Lilja Alfreðsdóttir við umræður um vantraust á dómsmálaráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.