Morgunblaðið - 07.03.2018, Qupperneq 10
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Jónas Jóhannsson hæstaréttarlög-
maður hefur ritað Sigríði Á. Ander-
sen dómsmálaráðherra bréf vegna
skipunar dómara í Héraðsdóm
Reykjavíkur 19. febrúar. Jónas var í
hópi 31 umsækjanda um embættið en
Arnaldur Hjartarson var valinn.
Jónasi barst eins og öðrum um-
sækjendum bréf frá ráðherra þar
sem tilkynnt var um valið. Var viðtak-
endum boðið að óska eftir rökstuðn-
ingi fyrir ákvörðun ráðherra. Ákvað
Jónas að gera það með vísan til 21.
greinar stjórnsýslulaga. Segir í þeirri
grein að „aðili máls getur krafist þess
að stjórnvald rökstyðji ákvörðun sína
skriflega hafi slíkur rökstuðningur
ekki fylgt ákvörðuninni þegar hún var
tilkynnt“. Skal bera fram beiðni um
rökstuðning fyrir ákvörðun innan 14
daga frá því að aðila var tilkynnt
ákvörðunin og skal stjórnvald svara
henni innan 14 daga frá því hún barst.
Jónas óskaði eftir rökstuðningi 28.
febrúar og hefur ráðherra samkvæmt
því frest til 14. mars.
Mun ráðast af næstu skrefum
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að Tryggvi Gunnarsson, umboðsmað-
ur Alþingis, er að afla gagna vegna
starfa dómnefndar um umsækjendur
um stöðu dómara. Hann mun síðan
ákveða farveg málsins. Mun Jónas
vera að baki umræddri kvörtun.
Spurður um næstu skref, ef um-
boðsmaður telur tilefni til að rann-
saka málið frekar, segir Jónas fram-
haldið í höndum lögmanns síns.
„Ég er með lögmann í málinu,
Helga Birgisson hæstaréttarlög-
mann. Ég treysti honum til að taka
ákvörðun um framhaldið. Það er hans
að meta þetta sjálfstætt.“ Spurður
hvort til greina komi að fara með mál-
ið fyrir dómstóla kveðst Jónas ekki
útiloka það. „Ég hef hins vegar engan
áhuga á málaferlum við ráðherra. En
ég útiloka það ekki.“
Stigagjöfin sett til hliðar
Athygli hefur vakið að við skipun
dómara í Landsrétt notaði dómnefnd
stigagjöf út frá 12 matsþáttum. Við
valið á dómara í Héraðsdóm Reykja-
víkur var slík stigagjöf hins vegar
ekki notuð heldur var valið rökstutt
með almennum orðum.
Dómnefndina vegna Héraðsdóms
Reykjavíkur skipuðu þau Jakob R.
Möller, Guðrún Björk Bjarnadóttir,
Kristín Benediktsdóttir, Ragnheiður
Harðardóttir og Ragnhildur Helga-
dóttir. Fram kom í nýju umsögninni
að formannsskipti urðu við valið.
Gunnlaugur Claessen, formaður
nefndarinnar, og Greta Baldursdótt-
ir, varamaður hans, hefðu bæði vikið
sæti við meðferð málsins „fyrst og
fremst vegna tímabundinna anna“.
Til upprifjunar lét Jakob R. Möller
þau orð falla á fundi lagadeildar Há-
skólans í Reykjavík 24. janúar sl. að
stigagjöfin væri varhugaverð. „Hætt-
an í sambandi við boxamerkingarnar“
væri t.d. sú að sá sem hefði unnið í 10
ár væri „fimm sinnum betri en sá sem
hefur unnið í 2 ár“. „Þetta er hætta
sem ber mjög víða á þar sem mann-
auðsfræðingarnir hafa ráðið ríkjum,“
sagði Jakob þá m.a.
Jakob sagði við Morgunblaðið í
gær að dómnefndin hefði frest til 28.
mars til þess að svara umboðsmanni.
Mismunandi nálgun dómnefnda
Benda þessi sjónarmið setts nefnd-
arformanns til að munur hafi verið á
nálgun dómnefnda vegna Landsrétt-
ar annars vegar og Héraðsdóms
Reykjavíkur hins vegar. Fram hefur
komið að tveir umsækjendur um
Landsrétt fengu dæmdar bætur eftir
að þeir höfðuðu mál gegn ráðherra
fyrir að víkja frá tilnefningum dóm-
nefndar. Komst Hæstiréttur að þeirri
niðurstöðu að ráðherra hefði ekki
sinnt rannsóknarskyldu.
Ákveðið fyrirfram
Jónas sótti líka um Landsrétt.
Spurður um mismunandi nálgun
dómnefnda segir Jónas margt benda
til að nefndin undir forystu Jakobs R.
Möller hafi ákveðið að tilnefna Arnald
sem dómara. Rökstuðningur hafi svo
fylgt í kjölfarið. Efnislegur saman-
burður á umsækjendum hafi ekki far-
ið fram. „Vinnubrögð nefndarinnar
gætu bent til þess að hún taki ákvörð-
un um hvern skipa skuli og reyni svo
að rökstyðja það eftir á,“ segir Jónas
um dómnefndina.
Morgunblaðið hefur afrit af bréfi
hans til ráðherra vegna skipunar
dómara í Héraðsdóm Reykjavíkur:
„Ég vek sérstaka athygli á því að
ég var meðal umsækjenda um emb-
ætti 15 dómara við Landsrétt, sem
þér skipuðuð í 2017, en eins og með-
fylgjandi listi frá dómnefnd um hæfni
umsækjenda til að sitja í Landsrétti
ber með sér … raðaðist ég í 20. sæti
af 33 umsækjendum og var m.a. met-
inn hæfari en sex gamalreyndir hér-
aðsdómarar; Sandra Baldvinsdóttir,
Ólafur Ólafsson, Bogi Hjálmtýsson,
Hildur Briem, Ragnheiður Braga-
dóttir og Jón Finnbjörnsson. Ragn-
heiður raðaðist í 23. sæti og Jón
vermdi 30. sætið.“
Lagði áherslu á dómarareynslu
Jónas rifjar upp orð ráðherra.
„Mér líður ekki úr minni þegar þér
lýstuð því ítrekað yfir á opinberum
vettvangi, áður en skipað var í emb-
ættin, að þér mætuð það svo, sem sér-
fræðingur, að efstu 23-24 umsækj-
endurnir væru allir jafn hæfir til að
hreppa embætti landsréttardómara
og að þess utan legðuð þér áherslu á
langa dómarareynslu umsækjenda.
Með þessum röksemdum skipuðuð
þér Ragnheiði Bragadóttur og Jón
Finnbjörnsson í embætti landsréttar-
dómara,“ skrifar Jónas.
Má hér rifja upp að dómsmálaráð-
herra lýsti því í bréfi til forseta Al-
þingis 29. maí 2017 að hann teldi dóm-
nefnd ekki hafa gefið reynslu af
dómarastörfum nóg vægi við tilnefn-
ingar á landsréttardómurum.
Jónas ber í bréfi sínu til ráðherra
saman eigin reynslu og reynslu þess
sem dómnefnd tilnefndi í Héraðsdóm
Reykjavíkur og ráðherra skipaði 19.
febrúar síðastliðinn.
Mikill munur á reynslunni
„Þess er vænst að í rökstuðningi
yðar verði skilmerkilega greint frá
því hvernig þér teljið lög geta staðið
til þess að ég sé að áliti dómnefndar
metinn hæfari til að gegna embætti
landsréttardómara en ofangreindir
tveir dómarar sem þér skipuðuð í
Landsrétt, en teljist þrátt fyrir þetta
ekki hæfastur til að öðlast héraðs-
dómaraembættið sem þér skipuðuð
Arnald Hjartarson í. Með fyllstu virð-
ingu fyrir Arnaldi er m.a. sá veiga-
mikli munur á starfsferli okkar og
reynslu að ég var áður héraðsdómari í
17 ár og hef ríflega 6 ára lögmanns-
reynslu á meðan Arnaldur hafði verið
settur héraðsdómari í 3 mánuði og
var með innan við árs reynslu af lög-
mannsstörfum. Ég árétta í þessu
sambandi fyrri skírskotun mína til 1.
mgr. 22. gr. stjórnsýslulaga,“ skrifar
Jónas til ráðherrans.
Segir í þeirri grein að „í rökstuðn-
ingi skal vísa til þeirra réttarreglna
sem ákvörðun stjórnvalds er byggð
á“. „Að því marki, sem ákvörðun
byggist á mati, skal í rökstuðningnum
greina frá þeim meginsjónarmiðum
sem ráðandi voru við matið.“
Útilokar ekki að höfða mál
vegna skipunar héraðsdómara
Umsækjandi við Héraðsdóm Reykjavíkur krefur dómsmálaráðherra skýringa
Morgunblaðið/Hari
Héraðsdómur Reykjavíkur Dómsmálaráðherra skipaði dómara 19. feb. sl.
Umsækjandi um embættið hefur óskað skýringa frá ráðherra vegna valsins.
Jónas
Jóhannsson
Jakob R.
Möller
Sigríður Á.
Andersen
Arnaldur
Hjartarson
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018
Leitar þú að traustu
BÍLAVERKSTÆÐI
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
TÍMAPANTANIR
587 1400
Við erum sérhæfðir í viðgerðum
á amerískum bílum.
Mótorstilling býður almennar
bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla.
RAFVÖRUR
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Hita-
kútar
30-450 lítrar
Umboðsmenn um land allt
Amerísk
gæðaframleiðsla
Tvö vinnuslys urðu í umdæmi lög-
reglunnar á Suðurnesjum um síð-
ustu helgi. Annað þeirra vildi þann-
ig til að maður féll aftur fyrir sig úr
stiga, sem var utan á vinnulyftu á
Keflavíkurflugvelli, og lenti á flug-
hlaðinu sem er steypt. Hann var
fluttur með sjúkrabíl á bráða-
móttöku Landspítala í Fossvogi og
Vinnueftirlitinu var gert viðvart
um atvikið.
Í hinu tilvikinu var maður að fara
út í bát sem lá við bryggju í Grinda-
víkurhöfn en skrikaði fótur og datt
á bryggjuna.
Hann var fluttur á Landspítala í
Fossvogi og reyndist vera með
brotna mjaðmakúlu.
Datt á bryggju og
braut mjaðmakúlu
Brotist var inn í
hesthús á Suð-
urnesjum um
helgina og var
þar talsverðu
magni af reið-
tygjum stolið,
samkvæmt því
sem fram kemur
í tilkynningu frá
lögreglunni á
Suðurnesjum.
Meðal þess sem var stolið voru
sjö hnakkar, mörg beisli, reið-
hjálmar og ýmis annar búnaður til
hestamennsku.
Í tilkynningunni segir að lög-
reglan á Suðurnesjum rannsaki nú
málið.
Stálu sjö hnökkum,
beislum og hjálmum
Reiðtygi Sjö
hnökkum var stolið.
Matvælastofnun
innleysti nú um
mánaðamótin lið-
lega 607 þúsund
lítra greiðslu-
mark í mjólk frá
7 bændum og
endurúthlutaði
til 93 búa.
Innlausn rík-
isins á mjólk-
urkvóta kemur í
stað kvótamarkaðar Mast sem í
gildi var þar til núverandi búvöru-
samningur kom til framkvæmda.
Alls sóttu 93 bændur um viðbót-
arkvóta, samtals nærri 9,2 milljónir
lítra.
Allir fengu eitthvað
Meirihluti þess kvóta sem Mast
úthlutaði að nýju fór til forgangs-
hópa, til þeirra sem framleitt höfðu
umfram kvóta á tilteknu tímabili og
nýliða. 150 þúsund lítrum var skipt
á öll þau 93 bú sem sóttu um og kom
því lítið í hlut hvers.
Innlausnarvirði greiðslumarks-
ins er 122 krónur á lítra á þessu ári.
helgi@mbl.is
Margföld spurn
eftir mjólkurkvóta
Kýr Mjólkurkvótinn
er eftirsóttur.
Karlmaður var í gær í Héraðsdómi
Reykjaness úrskurðaður í tveggja
vikna áframhaldandi gæslu-
varðhald, eða til 20. mars, á grund-
velli rannsóknarhagsmuna að kröfu
Lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu. Maðurinn var handtekinn í síð-
ustu viku vegna rannsóknar lög-
reglu á innbrotum í umdæminu.
Annar maður, sem var handtekinn
af sama tilefni, hefur verið úrskurð-
aður til að sæta vistun í úrræði á
vegum barnaverndaryfirvalda til 20.
mars, en hann er 17 ára. Samtals
voru fjórir karlmenn handteknir
grunaðir um innbrot í síðustu viku,
tveir í Hafnarfirði og tveir í Garða-
bæ. Mennirnir sem teknir voru í
Garðabæ eru erlendir ríkisborgarar
sem eru ekki með íslenska kennitölu
og talið er að þeir hafi komið hingað
gagngert til að stunda innbrot. Ann-
ar þeirra sem tekinn var í Hafn-
arfirði er Íslendingur en hinn er-
lendur ríkisborgari.
Áfram í varðhaldi
grunaður um innbrot