Morgunblaðið - 07.03.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.03.2018, Blaðsíða 23
Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018 hann náði að smjatta og tyggja hátt þegar hann borðaði þær. Afi sýndi manni alltaf mikla athygli, spurði hvernig gengi í skólanum og í vinnunni og sýndi alltaf mik- inn áhuga ef að maður hafði sögu að segja. Afi var mjög varkár maður og alltaf að passa upp á mann, hann varð alveg vitlaus þegar hann sá okkur koma ná- lægt trampólíni því að hann var svo hræddur um að við myndum slasa okkur. En enginn maður lét manni líða jafn vel eins og afi, því maður vissi alltaf að ef hann var nálægt var passað upp á mann. En þótt hann afi okkar sé fallinn frá vitum við að hann vakir yfir okkur. Engin knús voru betri en afa knús, þétt og löng, svo hvíslaði hann hlýjum orðum í eyra manns. Oft sagði hann „farðu varlega og guð veri með þér“. Elsku afi, nú segjum við við þig þegar þú kveður okkur farðu var- lega og guð veri með þér. Þín barnabörn Alexander Hrafn Breiðfjörð Kjartansson og Viktoría Benný Breiðfjörð Kjart- ansdóttir. Elsku afi, það sem það var sárt að fá símtalið að þú værir farinn frá okkur; þú barðist eins og hetja en því miður hafði krabbinn bet- ur. Það er skrýtið að hugsa til þess að nú sé komið að endalokum en minningarnar geymum við í hjörtum okkar. Elsku afi, þú varst alltaf svo góður, jákvæður, hreinskilinn og glaðlyndur. Við minnumst þessara orða sem þú sagðir alltaf þegar þú kvaddir langafabörnin: „Guð blessi barnið og fjölskylduna líka.“ Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði er frá. Nú héðan lík skal hefja, ei hér má lengur tefja í dauðans dimmum val. Úr inni harms og hryggða til helgra ljóssins byggða far vel í Guðs þíns gleðisal. (Valdimar Briem) Þín afa-, langafabörn og makar Ágúst Ingi, Salóme Ýr, Vilberg Þór Annes. Elsku afi okkar, nú ertu farinn eftir hetjulega baráttu við krabbamein sem þú barðist við eins og þér var einum lagið. Aldr- ei kvartaðir þú í veikindum þín- um, sama hve erfiða daga þú áttir. Þú hefur alltaf verið nagli og sýndir okkur enn og aftur hve magnaður einstaklingur þú varst. Nærvera þín var alltaf svo góð, þú sýndir okkur mikinn áhuga og gafst þér tíma til að spjalla um allt milli himins og jarðar. Þegar við rifjum upp minningar tengdar þér verður okkur hugsað til þess þegar við fórum í útilegur, þar sem þú lékst við okkur og skap- aðir minningar sem munu veita okkur hlýju um ókomna tíð. Afi, þú varst einstaklega duglegur og kraftmikill maður, alltaf eitthvað að stússast hvort sem það var heima hjá þér eða úti í bæ. Við eigum margar minningar um þig í garðinum að dytta að einhverju, hvort sem þú varst að smíða, mála, þrífa eða skreyta. Þú var alltaf mikill snyrtipinni og hugs- aðir einstaklega vel um alla þína hluti, öll verkfæri og hver einasta skrúfa átti sinn stað. Þú varst allt- af vel til hafður og ilmaðir ávallt vel, enda voruð þið amma þekkt fyrir glæsileika. Þið voruð alltaf dugleg að skreyta húsið ykkar hver jól og það sem sló í gegn var jólasveinarnir sem dönsuðu og sungu sem hægt var að hlæja að. Þú varst svo góður við langafa- börnin þín, duglegur að ná í dót og leika við þau. Styrmir Þór var varla kominn inn á Erluhraunið þegar hann var búinn að draga þig með sér niður í kjallara að ná í bíla. Þín verður sárt saknað og stórt skarð sem þú skilur eftir. Það mun taka tíma fyrir alla að átta sig á að þú sért farinn frá okkur, elsku afi okkar. Nú er stutt síðan þú kvaddir og breytingin er mikil þegar við komum á Erluhraunið, Styrmir litli spyr enn um þig og verður erfitt að útskýra þetta fyr- ir honum. Hvíl í friði, elsku afi Monni, við elskum þig og þú munt alltaf eiga stóran stað í okkar hjarta. Ingibjörg Ása, Davíð Örn og Veronika Ósk. Hér sitjum við eftir þrjár syst- ur til að kveðja þig elsku bróðir. Við systkinin ólumst upp við ást og umhyggju góðra foreldra á yndislegum stað undir hamrinum og við lækinn. Þar eyddum við öll æskuárunum. Monni var miðjan af okkur systkinum, hann var allt- af kátur og hress. Þökkum fyrir það að hafa átt þig sem bróður og fengið að njóta af öll þessi ár. Sárt er að þurfa að kveðja þig svona fljótt, elsku bróðir. Margs er að minnast og margs er að sakna. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Við sendum elsku Ingu okkar og fjölskyldu okkar dýpstu sam- úðarkveðjur. Þínar systur Jóhanna, Fjóla og Ragna og fjölskyldur. Í dag verður til moldar borinn minn kæri vinur Salómon Krist- jánsson, eða Monni eins og við kölluðum hann alltaf. Fyrir um fjórum árum greind- ist Monni með erfiðan sjúkdóm, sem að lokum dró hann til dauða eftir hetjulega baráttu, sem hann háði af miklu æðruleysi. Það er líklega frekar sjaldgæft að eignast vini þegar menn eru komnir vel yfir miðjan aldur, en árið 2005 kynntumst við Monni þegar við störfuðum báðir fyrir SÍF í Hafnarfirði og með okkur tókst góð og traust vinátta. Mál þróuðust þannig að skömmu eftir að við kynntumst hætti Monni hjá SÍF en vann áfram fyrir ýmsa aðila í sínu fagi, sem var vél- og trésmíði. Það varð svo til þess að Monni tók að sér að gera upp tvö hesthús sem undirritaður og fjölskylda áttu og leiddi það til þess að við áttum heilmikið saman að sælda og margar góðar og ógleymanleg- ar stundir í hesthúsunum. Monni var einhver allra vandaðasti smiður og fagmaður sem ég hef kynnst. Allt sem hann lagði hönd á var fallega unnið og snyrtilega um alla hluti gengið. Að gera upp gömul hús getur ver- ið snúið, en vafðist aldrei fyrir Monna, sem leysti alla hluti fag- lega. En Monni var ekki bara góður smiður og fagmaður, hann var góður drengur með hlýtt hjarta og fallega framkomu. Oft sátum við vinirnir tímunum saman uppi í hesthúsi og ræddum um alla heima og geima og nutum þess að segja hvor öðrum sögur af mönn- um, málefnum og fjölskyldunum. Þessar stundir eru nú kær minning og koma oft upp í hug- ann. Konan mín Sif og dóttir mín Thelma, sem báðar eyddu miklum tíma í hesthúsunum, kynntust Monna vel og nutu vináttu hans og umhyggju. Nú situr lítil dóttir Thelmu og leikur sér að fallegri dúkku sem Monni færði henni í haust og þessi litla brúða minnir okkur á okkar góða vin og hans fallega viðmót. Við söknum hans öll og minnumst með vinsemd og virð- ingu í huga. Með dýpstu samúðarkveðjum, Benedikt Sveinsson. Að klífa þrítugan hamarinn var hún nú ekki gönguferð okkar Sal- ómons upp á Hamarinn í Hafn- arfirði í júlímánuði árið 2015, en þennan margumtalaða Hamar hafði ég aldrei „klifið“ fyrr en í fylgd þessa góða vinar míns. Hafði oft auðvitað heyrt talað um hann en aldrei látið mér detta í hug að ganga á hann. Salómon fræddi mig heilmikið um Hafnar- fjörð í þessari gönguferð. Frá- sagnir hans hófust við gömlu Reykdalsvirkjunina, héldu áfram upp á hamarinn í víðsýnið þar og fóru á flug þegar við gengum nið- ur Öldugötuna, m.a. framhjá heimili hans forðum. Það sem ein- kenndi frásagnir hans allar var hógværð og velvilji í garð sam- borgaranna, lífs og liðinna. Hall- mælti ekki nokkrum manni – þvert á móti hafði ég á tilfinning- unni að góðir grannar hefðu verið svo til í hverju húsi. En svona var Salómon, réttlátur eins og nafni hans Ísraelskonungurinn forðum. Við Þurý kynntumst Salómon og Ingu fljótlega eftir að Steini sonur okkar og Hulda, dóttir þeirra, felldu hugi saman, og höf- um síðan átt með þeim fjölmargar ánægjustundir sem fært hafa okkur gefandi vináttu. Má í því sambandi nefna skötuveislurnar á Lækjargötunni – sjávarfang af bestu gerð og félagsskapurinn ekki síðri. Því miður hafði í síð- ustu veislu fækkað um einn. Kjartan faðir Ingu fallinn frá og enn tómlegra verður það næst þegar við getum ekki skipst á skoðunum við Salómon um ágæti hverrar skötutegundar fyrir sig. Einnig minnumst við ánægju- legrar heimsóknar Ingu og Sal- ómons með Huldu og Steina í sumarbústaðinn okkar í Borgar- firðinum, sannkölluð gleðistund sem til stóð að yrðu fleiri. En undanfarin ár hafa verið vini okkar erfið, batahorfur góðar inn á milli, en aftur og aftur syrti í álinn og síðustu mánuðir og sér- staklega síðustu vikur voru hon- um afar erfiðar. Þegar við Þurý komum til hans og Huldu á líkn- ardeildina um miðjan febrúar tókst okkur að ræða lítillega við hann, og dæmigert var það fyrir hann að þegar ég spurði um líðan hans og verki hafði hann fá orð um það, en spurði, eins og alltaf þegar ég hringdi til hans, hvernig mér liði. Þegar ég fór svo aftur í Kópavoginn, tæpum þremur sól- arhringum áður en hann lést, náði ég ekki sambandi við hann og því miður var ljóst að hverju stefndi. Hamarinn ókleifur. Stundin við rúm hans með Ingu, Huldu og Möggu var því eðlilega harm- þrungin. Þeim, Kjartani, fjölskyldum þeirra og ástvinum öllum, send- um við Þurý samhryggðarkveðj- ur. Heiðríkja umlykur minningu Salómons Kristjánssonar. Óli H. Þórðarson. Í dag er borinn til grafar kær vinur og samferðamaður, Salóm- on Gunnlaugur Gústaf Kristjáns- son, best þekktur sem Monni. Það er erfitt fyrir okkar kyn- slóð að ganga í fótspor kynslóðar Monna. Ekkert nema erfiðisvinnu að fá og þá helst við sjómennsk- una. Þar voru ólíklegustu atburð- ir sem þurfti að takast á við og ekkert gefið eftir. Monni vann í skipasmíðastöð- inni Bátalóni 1971 og smíðaði m.a. 70 tonna báta fyrir Indverja sem ekki voru gerðir fyrir úthöf. Þeir voru tveir fengnir til að sigla bát- unum Víkingi 1 og Víkingi 2 frá Reykjavík til Hamborgar, og lögðu af stað í enda nóvember. Í byrjun ferðar meiddist vélstjór- inn á fæti og áætlaðir voru fjórir sólarhringar í siglinguna. Vegna aftakaveðurs urðu þeir að hvílast í Eyjum og einnig í Færeyjum. Þá var vélstjórinn orðinn slæmur í fætinum og var komið á sjúkra- hús. Þar vildu læknar gefa honum pensilín og var siglt í brjáluðu veðri og vélin bilaði í öðrum bátn- um. Á þessum tímapunkti var vél- stjórinn orðinn svo slæmur að Monni tók tæki sem til voru, skar í fótinn og hleypti greftri út. Monni sagði svo frá í Fjarðar- póstinum 15. júní 2017: „Ég sauð svo tangir og náði heilmiklum nabba úr, saumaði saman og batt um. Vélstjórinn var ekki deyfður eða neitt, öskrandi og veinandi greyið. Hann sagði alltaf við mig að ég hefði bjargað fætinum. Við vorum á endanum 11 sólarhringa á leiðinni og þegar við komum til Hamborgar var stórt flutninga- skip sem bátarnir voru hífðir upp í lestarlúgu á eins og hver annar varningur.“ Samtíma Monna í Bátalóni vann tengdafaðir hans, Kjartan Friðriksson, og myndaðist þar sú vinátta sem tengdi þá saman. Kjartan var ákveðinn maður og viljafastur og Monni lyfti öllu upp á léttara plan með sitt létta skap. Samstarf okkar Monna var alltaf á góðu nótunum. Eignuð- umst við sameiginlega vini sem við unnum með og satt að segja sá Monni um samskiptalegu hliðina, var tryggur og trúr þeim sem við unnum fyrir og hafði alltaf tíma í kaffispjall á meðan ég var önnum kafinn í öðrum störfum. Mig vant- aði þolinmæðina og umhyggjuna sem Monni hafði. Monni var yndislegur karakter sem gott var að umgangast. Það lýsti sér best þegar hann birtist a vinnustað mínum, Menntaskólan- um við Sund, þar sem höfðingleg- ar móttökur biðu hans alltaf. Það var eins og hann hefði unnið þar í mörg ár. Bros hans og framkoma laðaði alla að honum. Monni sagði svo frá í greininni: „Við strákarnir vorum eins og mýs og rottur að hirða það sem var nýtilegt í höfninni og feður okkar komu í verð erlendis. Lífið var viðburðaríkt þegar ég ólst upp.“ Á þessum tíma var ákveð- inn rígur á milli Suðurbæjar og Vesturbæjar sem gekk aðallega út á það hvort hverfið væri betra. „Við hittumst því oft uppi á hamr- inum, 10-12 ára strákar, til að gera upp málin með sverðum og skjöldum eins og sannir víkingar. Svo fjaraði þetta út þegar við fór- um að vera saman í skóla.“ Eftir 15-16 ára aldur gekk lífið mikið út á sjómennsku. Strákarnir sóttu yfirgefna báta, sæmilega stórar trillur, í fjöruna og drógu upp á götu. „Við vorum bara að stríða lögreglunni. Algjör prakkara- skapur, ekkert alvarlega en það.“ Þessi lýsing er dæmigerð í hvaða bæjarfélagi sem er á þess- um árum og á vel við á mínum æskustöðvum, Akranesi, þar sem þessi lýsing á svo sannarlega vel við. Megi guð vera Ingu og fjöl- skyldu hennar stuðningur. Takk fyrir allt, Monni. Sigurður Ingi Georgsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, ERLA DÜRR, sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 27. febrúar, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 9. mars klukkan 13. Magnús H. Guðjónsson Ása V. Einarsdóttir Páll R. Guðjónsson Sigurlaug Val Sigvaldadóttir Kristinn Guðjónsson Marianne E. Klinke Hjördís Dürr Anna Sigríður Pálsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SÆMUNDAR HAFSTEINS JÓHANNESSONAR, Sóltúni 25, Selfossi. Sérstakar þakkir fyrir alúð og umhyggju fær starfsfólk Áss í Hveragerði og Vinaminnis. G. Magnea Magnúsdóttir Magnús Orri Sæmundsson Guðrún Gísladóttir Jóhanna F. Sæmundsdóttir Katla Magnea, Stígur og Flóki Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVÖVU BRYNJÓLFSDÓTTUR, áður til heimilis að Langagerði 28. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks Hrafnistu í Boðaþingi fyrir góða umönnun. Kristinn Á. Guðjónsson Ómar Kristinsson Kristín Geirsdóttir Hörður Kristinsson Rut María Jóhannesdóttir Pálmi Kristinsson Salome Tynes Svandís Kristinsdóttir Sveinn Bragason Reynir Holm barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, MARÍN SVEINBJÖRNSDÓTTIR, Kárastíg 7, Hofsósi, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki föstudaginn 2. mars. Útförin fer fram frá Hofsóskirkju laugardaginn 10. mars klukkan 11. Blóm og kransar er afþakkað. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Björgunarsveitina Gretti á Hofsósi, kt. 600488-1399, reikningsnúmer 0310-26-043363. Anna Hulda Hjaltadóttir Sigurður Hólmar Kristjánsson Kristján Hjalti Sigurðsson Álfheiður Kristín Harðardóttir Hallur Aron Sigurðsson Jónas Pálmar N. Sigurðsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN JÓRUNN MAGNÚSDÓTTIR, Kiddý, Miðleiti 7, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 3. mars. Útför fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 12. mars klukkan 13. Örn Andrésson Guðbjörg Erla Andrésdóttir Magnús Andrésson Þórdís Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.