Morgunblaðið - 07.03.2018, Side 29

Morgunblaðið - 07.03.2018, Side 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018 bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Bez t á fi skinn Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er nauðsynlegt að eyða tíma með ungviðinu og um leið að finna barnið í sjálfum sér. En mundu að rasa ekki um ráð fram. 20. apríl - 20. maí  Naut Vináttusambönd þín við aðra verða hlý, náin og innileg á komandi mánuðum. Mundu að leita til þeirra sem standa þér næst þegar þú þarft með. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú gefur gjafir, gerir rausnarlega samninga eða gefur með þér. Sýndu fjöl- skyldu þinni hlýju og ástúð því þú vilt að hamingja ríki á heimilinu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er engin ástæða til þess að þú takir því steinþegjandi og hljóðalaust að aðr- ir ráðskist með hluti sem þú átt að stjórna. Leyfðu þeim að bera byrðarnar með þér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Einlægni er það sem þú þarft að hafa í huga þegar þú talar fyrir þeim málefnum sem þú berð fyrir brjósti. Taktu tillit til skoð- ana annarra. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú þarft að reyna að hefja þig upp fyrir hversdagsleikann svo líf og starf verði skemmtilegt. Stattu vörð um heilsu þína og hamingju. 23. sept. - 22. okt.  Vog Flas er ekki til fagnaðar. Vertu á varð- bergi gagnvart þeim sem tala of mikið og jafnvel enn meira á varðbergi gagnvart þeim sem gefa þér loforð. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Til að eignast nýja vini þarftu fyrst og fremst að sýna öðrum vinsemd. Mundu að allir hafa eitthvað til síns ágætis. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Hlustaðu ekki á vini þína þegar þeir eru að hvetja þig til að eyða peningum í eitt eða annað. Skoðaðu málin með opnum huga. 22. des. - 19. janúar Steingeit Skoðanir þínar hafa vakið nokkra andstöðu sem þú þarft að taka tillit til og yf- irvinna með fullri sanngirni. Notaðu innsæi þitt til að vega og meta vandamál sem upp kemur. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Hugsaðu vel um fjármál þín því þér er eitthvað hætt á því sviði þessa dag- ana. Láttu ekki velgengni stíga þér til höf- uðs. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert til í að vinna jafnt og þétt og vanda þig við hvaða verkefni sem þér eru fengin og þú kemur miklu frá þér í vinnunni í dag. Guðmundur Arnfinnsson þýðirmargt og ávallt vel. Hér er „Dáravísa“ eftir Nils Ferlin: Er vorsólin á himni hló svo hýr og glöð í bragði, í drykkjuæði dárinn sló í dáravegg og sagði: „Hæ, sjálfumglaða sól, þú skín og sóar geislum þínum, ef legg ég aftur augu mín, þú óðar hverfur sýnum!“ Kötturinn Jósefína Meulengracht Dietrich lætur í sér heyra: Hvasst er úti, Kári slær á kinn og tásur, svo lítil kisa króknað getur kaldur er hann þessi vetur. Gísli Ásgeirsson er ráðagóður: Ekki sæmir eðalketti eymdarvælið. Lausn við þessu fann ég fína: Farðu í úlpu, Jósefína! Jósefína svarar um hæl: Eina læt ég á mig sauma úlpu hlýja og klæði mig sé kuldinn bitur, – kisan ráðagóð og vitur. Bjarni Gunnlaugur Bjarnason: Ógn er þegar úti kaldur ýlir vindur Nefburst mun í nösum titra þá næðir frost um köttinn vitra Allt mun skárra er úti fer svo enn að hlýna þá næðir ei um nefburst þína í næturferðum Jósefína Gunnar J. Straumland yrkir heil- ræðavísu: Engum gagnast undanbrögð né orða- gjálfur. Vera skal frekar heill en hálfur, helst af öllu maður sjálfur. Magnús Geir Guðmundsson skrif- ar í Boðnarmjöð á mánudag: „Einkar stillt var og fallegt snemma í morgun norðan heiða, töluvert búið að snjóa um helgina, en veður stillt og frostið ekki of mikið:“ Fannabreiða felur jörð, fagurbjört og hrein; þýð, svo ríkir þvert um fjörð, þögnin sönn og ein. Ármann Þorgrímsson kveður „aðdáunarvert“ þetta: Þó að lendi í þrengingum og þyngjast taki sporið syngja margir söngva um sólina og vorið. Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson kveður á Boðnarmiði: Ég hef þennan dýrðar dag, í dagbók mína skráð. Því að ég hef ljóð og lag lokið við í bráð. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af dára, kisu litlu og heilræði „HEFURÐU SÉÐ BUXURNAR MÍNAR?“ „ÉG VIL AÐ ÞÚ FARIR ÚT AÐ GANGA Í HÁLFTÍMA, TÍU MÍNÚTUM ÁÐUR EN ÞÚ FÆRÐ ÞÉR HÁDEGISMAT.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að segja hvort öðru drauma ykkar. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG HEYRÐI FYNDINN BRANDARA Í DAG EN ÉG MAN EKKI HVERNIG HANN ENDAR O JÆJA, „BANK, BANK“ EKKI BRÓÐIR HRÓLFUR, EF ÞÚ HLUSTAR Á GUÐ MUNTU ALDREI GERA SKYSSU! MÉR SKILST AÐ GUÐ HAFI EKKI MÆLT MEÐ RAKARANUM ÞÍNUM. Í tveimur kvikmyndum, sem til-nefndar voru til Óskarsverðlauna á þessu ári, var fjallað um neyðar- aðgerð Breta til að flytja brott inni- króaða hermenn í Dunkirk í Frakk- landi í maí 1940. Önnur myndin heitir einfaldlega Dunkirk, hin The Darkest Hour. Alls voru myndirnar tilnefndar til 14 verðlauna og hrepptu fimm. Þar á meðal fékk Gary Oldman verðlaunin fyrir best- an leik í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Winston Churchill, forsætis- ráðherra Bretlands. Báðar eru myndirnar mikið sjónarspil og fjalla um viku þar sem stríðið hefði getað snúist Þjóðverjum í vil, en áhöld eru um áreiðanleika frásagnarinnar. x x x Sagnfræðingurinn Max Hastingsfann að bardagaatriðum í upp- hafi myndarinnar Dunkirk. Þýski herinn hafi lítið beitt sér þegar her- mennirnir voru fluttir brott og ekk- ert hafi verið barist á jörðu niðri í borginni eða höfninni. x x x Sagnfræðingurinn Anthony Bee-vor segir að breskir kvikmynda- leikstjórar beri litla virðingu fyrir „sögulegum sannleika“ og finni hjá sér þörf til „úrbóta“ jafnvel þegar þess sé engin þörf. Hann segir að dregið sé úr þætti breskra herskipa í aðgerðinni til þess að upphefja hlut flota smábáta í eigu almennings. Í raun hafi herskipin sótt megnið af hermönnunum. x x x Leikstjórinn, Christopher Nolan,segir hins vegar að hann hafi heillast af hinni rómantísku sögu um óbreytta borgara í fararbroddi í björgunaraðgerðinni. Hann hafi sjálfur siglt yfir Ermarsundið á sama stað í litlum báti með konu sinni og segir að það sé „ein erfiðasta og satt að segja hættulegasta lífs- reynsla“ ævi sinnar. Beevor gagnrýnir einnig Darkest Hour og segir að atriði þar sem Winston Churchill ferðast með neðanjarðarlest og tekur að ræða við farþega um rétt og rangt og hvernig eigi að eiga við menn eins og Adolf Hitler sé hlægilegt og uppspuni frá rótum. vikverji@mbl.is Víkverji Jesús sagði: „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa ljós lífsins“ (Jóh: 8.12)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.