Morgunblaðið - 07.03.2018, Side 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018
Ráðhúsið í Reykjavík Það gustar um suma stjórnmálamenn og ferðamaður tekur enga áhættu í sömu byggingu.
Hanna
Það er rétt sem seg-
ir í stjórnarsáttmála
ríkisstjórnar Katrínar
Jakobsdóttur að
launahækkanir und-
anfarinna ára, hækkun
á lífeyrisframlagi at-
vinnurekenda og
sterkt gengi, hafa
„dregið úr samkeppn-
ishæfni atvinnulífsins,
einkum útflutnings-
greina“. Einmitt þess vegna er að
talið mikilvægt að styrkja sam-
keppnisstöðu fyrirtækja samhliða
því að bæta kjör almennings í
kjarasamningum. Til að styðja við
farsæla niðurstöðu kjarasamninga
er lögð áhersla á tvennt í stefnu-
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar: Ann-
ars vegar að lækka neðra þrep
tekjuskatts og hins vegar að lækka
tryggingagjald.
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
27. febrúar, í tengslum við mat á
kjarasamningum á almennum
vinnumarkaði, er gengið nokkuð
lengra í fyrirheitum um lækkun
tekjuskatts. Það kemur til greina
að stokka upp spilin. Orðrétt segir í
yfirlýsingunni:
„Hafin verður endurskoðun á
tekjuskattskerfinu með áherslu á
lækkun skattbyrði og mögulegar
breytingar á fyrirkomulagi per-
sónuafsláttar og samspili við bóta-
kerfi sem ætlað er að styðja við
tekjulægri hópa (lágtekjur og lægri
millitekjur). Meðal þess sem skoðað
verður er að sett verði á fót heild-
stætt kerfi er taki jafnt til stuðn-
ings hins opinbera við
barnafjölskyldur og
stuðnings vegna hús-
næðiskostnaðar, hvort
heldur er fyrir íbúðar-
eigendur eða leigj-
endur. Þessi vinna
verður undir forystu
fjármála- og efnahags-
ráðuneytis í samstarfi
við samtök launþega í
því skyni að sem
breiðust samstaða geti
náðst um áherslur og
endanlegar breytingar.
Ætlunin er að ljúka þessari vinnu á
haustmánuðum 2018 áður en fjárlög
ársins 2019 verða afgreidd.“
Skattkerfið skorið upp
Þrepaskipt tekjuskattskerfi ein-
staklinga með persónuafslætti og
tekjutengdum vaxta-, húsnæðis- og
barnabótum vinnur, ólíkt því sem
margir halda, gegn launafólki sem
lægstu tekjurnar hefur. Ég hef leitt
að því rök að jaðarskattar auki
launamuninn fremur en að þeir
jafni kjörin. Verst er að fólk festist
í gildru jaðarskatta – því er refsað í
hvert sinn sem það nær fram kjara-
bótum í viðræðum við atvinnurek-
endur.
Hversu mikið er eftir í launa-
umslaginu eftir að skattar og ið-
gjöld í lífeyrissjóði hafa verið
greidd, skiptir launamanninn meira
máli en hversu há launin eru í
krónutölu. Ráðstöfunartekjur ráða
afkomunni en ekki laun fyrir skatta
og gjöld. En fleira spilar hér inn í.
Hvernig samspil launaþróunar og
barna-, vaxta- og húsnæðisbóta er
háttað hefur veruleg áhrif. Tekju-
og eignatengingar þessara bóta-
flokka eru með þeim hætti að þeim
sem síst skyldi er refsað um leið og
hagur þeirra vænkast. Jaðarskattar
éta oft upp allan ábatann og á
stundum gott betur. Þeir sem
standa sterkast að vígi á vinnu-
markaði eiga hins vegar möguleika
á að fá bættan „skaða“ sem háir
jaðarskattar og/eða hækkun tekju-
skatts valda. Þrepaskipt tekju-
skattskerfi eykur vandann enn
frekar – refsigleði skattkerfisins
magnast.
Það er með hliðsjón af þessum
innbyggðu göllum sem ég hef í
mörg ár barist fyrir því að inn-
leiddur sé flatur tekjuskattur – ein
almenn skattprósenta. Í janúar síð-
astliðnum lagði ég til að samhliða
flatri tekjuskattsprósentu yrði per-
sónuafslættinum breytt til að lag-
færa brotalöm í kerfinu. Fyrir þann
sem er á lágmarkslaunum skiptir
persónuafslátturinn meira máli en
fyrir þann sem hefur á aðra milljón
á mánuði. En þegar persónuafslátt-
urinn hækkar, þá gengur hækkunin
upp allan tekjustigann – láglauna-
maðurinn fær sömu krónutölu-
hækkun og sá sem hærri launin
hefur. Einmitt þess vegna er það
gríðarlega „dýrt“ fyrir ríkissjóð í
hvert skipti sem persónuafslátt-
urinn hækkar.
Svipaða sögu er að segja um
hækkun skattþrepa í samræmi við
hækkun launavísitölu svo komið sé í
veg fyrir að skattbyrði (ekki síst
millitekjufólks) hækki. Þeir sem
lökust hafa kjörin njóta þeirrar
hækkunar lítt eða ekki, en hún get-
ur skipt annað launafólk miklu.
Stiglækkandi persónuafsláttur
Í Morgunblaðsgrein í janúar hélt
ég því fram að flatur tekjuskattur
með stiglækkandi persónuafslætti
væri skynsamlegur. Samhliða upp-
stokkun á tekjutengdu bótakerfi
virðist hagkvæmara og réttlátara
að ónýttur persónuafsláttur sé
greiddur út. Breytingar í þessum
anda gera skattkerfið bæði einfald-
ara og réttlátara. Skattbyrðin verð-
ur misjöfn. Þeir sem eru með laun
undir skattleysismörkum greiða
ekkert, (fá hugsanlega greiddan út
ónýttan persónuafslátt og eru því
með neikvæða skattbyrði). Eftir því
sem tekjur eru hærri því þyngri
verður skattbyrðin (raunveruleg
skattprósenta) þar sem persónu-
afslátturinn lækkar eftir tekjum.
Við ákveðnar tekjur fellur persónu-
afslátturinn út að fullu og þá verður
skattprósentan flöt – sú sama.
Ég fæ ekki betur séð en að hug-
mynd af þessu tagi falli vel að yf-
irlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í
febrúar. Kerfisbreyting af þessu
tagi verður ekki gerð í andstöðu við
aðila vinnumarkaðarins, en því
verður vart trúað að forystumenn
launþegasamtaka taki ekki opnum
örmum hugmyndum um uppskurð
skattkerfisins, sem felur í sér
hækkun ráðstöfunartekna þeirra
sem lægstu launin hafa.
Undir forystu Bjarna Benedikts-
sonar fjármálaráðherra voru stigin
mörg mikilvæg skref til að einfalda
skattkerfið á árunum 2013 til 2016.
Í upphafi síðasta árs féll milliþrep í
tekjuskatti einstaklinga niður sem
jók ráðstöfunartekjur stórs hluta
launafólks. Almenn vörugjöld voru
felld niður, tollar af fatnaði og skóm
heyra sögunni til. Kaupmáttur
heimilanna jókst. Efsta þrep virð-
isaukaskattsins var lækkað úr
25,5% í 24% og hefur aldrei verið
lægra. Neðra þrepið var hækkað
samhliða því sem skattstofninn var
breikkaður.
Tryggingagjald hefur lækkað úr
8,65% árið 2011 í 6,85%. Trygginga-
gjaldið er ekki annað en skattur á
laun og störf. Ríkisstjórnin hefur
gefið fyrirheit um frekari lækkun
gjaldsins enda er það enn mun
hærra en það var árið 2008; 5,34%.
Þegar tekin er ákvörðun um lækk-
un tryggingagjalds skiptir miklu að
sú lækkun komi fyrst og fremst
litlum og meðalstórum fyrirtækjum
til góða, enda þungur baggi.
Verkefnin í skattamálum eru fjöl-
mörg, þótt þar vegi þyngst einföld-
un á tekjuskattskerfi og lækkun
tryggingagjalds. Fjölmörg gjöld
eru lögð á fyrirtæki og einstaklinga,
sem eru fremur til óþurftar og gefa
takmarkaðar tekjur. Ýmis er hægt
að fella þau niður eða sameina. Allt
til að gera lífið bærilegra og von-
andi sanngjarnara.
Eftir Óla Björn
Kárason » Þrepaskipt tekju-
skattskerfi með per-
sónuafslætti og tekju-
tengingum vinnur, ólíkt
því sem margir halda,
gegn launafólki sem
lægstu tekjurnar hefur.
Óli Björn Kárason
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Uppstokkun og einföldun skattkerfisins
Í alþingiskosn-
ingunum sl. haust
töluðu sumir
stjórnmálamenn
fyrir því að vilja
eyða allri leynd-
arhyggju. Nú fara
þessir sömu aðilar
gegn þeim dóms-
málaráðherra sem
setti fótinn niður
við einkaklúbb val-
nefndar sem taldi einungis fimm-
tán dómara vera hæfa í Lands-
rétt. Aðeins 0,025 stig skildu þar
á milli feigs og ófeigs. Ljóst var
frá upphafi að ekki var meirihluti
á Alþingi fyrir tillögu aukastafs-
nefndarinnar og því lagði ráð-
herra fram nýja tillögu á mál-
efnalegum grunni. Meirihluti
Alþingis samþykkti þá tillögu
ráðherra. Þeir sem nú tala hæst
virðast fljótir að gleyma eigin
kosningaloforðum. Enginn veit
hvernig valnefndin komst að
þessari niðurstöðu og valdi 15
umsækjendur umfram hina 22.
Umboðsmaður Alþingis hefur
meira að segja boðað skoðun á
störfum dómnefndar um hæfi
umsækjenda. Hvar eru efndir og
tal um aukið gagnsæi?
Ákveðin öfl tala einnig um að
almenningur eigi skilið sterkan
málsvara gegn stjórnlyndi. Nú
gera þeir atlögu að ráðherra sem
neitar því að stjórnkerfið starfi
án ábyrgðar og sé þannig ríki í
ríkinu. Ráðherrann sem afnam
það ferli að dæmdir kynferð-
isbrotamenn fengju uppreist æru
á færibandi, undirbýr nú lög þess
efnis að börn foreldra sem hafa
skilið geti haft tvö lögheimili svo
jafnréttis sé gætt og leggur til að
helgidagafriður skuli afnuminn.
Þessi sami ráðherra vill afnema
mannanafnalög og mun vafalaust
fá samþykki meiri-
hluta Alþingis fyrir
því. Stjórn-
málamenn sem vilja
ekki að ráðamenn
takmarki borg-
araleg réttindi ættu
öllu heldur að bera
fullt traust til þessa
ráðherra.
Þessir kjörnu
fulltrúar eru líka að
gera lítið úr því að í
fyrsta sinn í sögu
dómsvalds á Íslandi er kynjahlut-
fall dómara á einu dómstigi jafnt.
Má skilja það sem svo að þeir
sem nú berjast gegn dóms-
málaráðherra vilji viðhalda
ójöfnu hlutfalli kynjanna? Sumir
hefðu jafnvel slegið sig til riddara
hefðu þeir sett jöfn kynjahlutföll
í Landsrétt sem kosningamál og
komið því svo í framkvæmd. And-
stæðingar ríkisstjórnarinnar
hafa ekki áttað sig á því að mál-
svarinn gegn stjórnlyndi,
ógagnsæi og kerfisákvörðunum
er fundinn en í blindu hatri hafa
þeir ákveðið að fara gegn honum.
Nú fara þeir gegn betri vitund
með vantrauststillögu sinni.
Traust eða
vantraust?
Eftir Völu
Pálsdóttur
Vala Pálsdóttir
»Ákveðin öfl tala
einnig um að al-
menningur eigi skilið
sterkan málsvara
gegn stjórnlyndi. Nú
gera þeir atlögu að
ráðherra sem neitar
því að stjórnkerfið
starfi án ábyrgðar og
sé þannig ríki í ríkinu.
Höfundur er formaður Lands-
sambands sjálfstæðiskvenna.