Morgunblaðið - 07.03.2018, Side 26
Íslensk myndlist fyrr
og nú í brennidepli
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur á 70 ára afmæli í dag. Spurð-ur um það sem hann hefði helst fyrir stafni þessa dagana svar-aði Aðalsteinn: „Ætli ég brenni ekki enn fyrir því sama sem ég
gerði fyrir rúmlega fjörutíu árum, sögu íslenskrar myndlistar. Ég er
að kenna listfræði uppi í Háskóla Íslands í dag og að því loknu held ég
áfram að berja saman grein um íslenska listakonu fyrir tímaritið
Skírni í kompu minni heima. Á morgun og um helgina er ég með leið-
sögn um sýningar í Reykjavík og Listasafni Reykjaness, og í næstu
viku er sömuleiðis fullt prógramm, m.a. fundir í tengslum við bækur
um íslenska myndlist og menningarferð til Lissabon.“
Hvað hefur afmælisbarnið sér til afþreyingar þess utan?“ Veturnir
fara mikið í útivist ýmiss konar, með og án hunda, bóklestur, eltinga-
leik við góða tónlist, matargerð og í seinni tíð margs konar barna-
barnastúss, sem er kannski það skemmtilegasta af þessu öllu. Á sumr-
in leggst ég í skreppitúra til afskekktra staða og útlanda og meiri
útivist, þ.á m. fluguveiði.“
Og í tilefni dagsins? „Ég var að vona að ég kæmist klakklaust frá
þessum degi, en fjölskyldan hafði aðrar hugmyndir. Í kvöld borða ég
með fjölskyldu minni á valinkunnu indversku veitingahúsi hér í bæ,
en indverskur matur er með því allra besta sem við þekkjum.“
Eiginkona Aðalsteins er Janet S. Ingólfsson, börn þeirra eru Elva
Brá, Signý og Drífa og barnabörnin eru orðin sjö.
Morgunblaðið/Kristinn
Listfræðingur Aðalsteinn Ingólfsson handleikur málverk eftir Krist-
ján Davíðsson en um hann hefur Aðalsteinn skrifað bók.
Aðalsteinn Ingólfsson er sjötugur í dag
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018
hafðu það notalegt
Njóttu þess að gera baðherbergið að veruleika
miðstöðvarofnar
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
FINGERS 70x120 cm
Ryðfrítt stál
JAVA 50x120 cm
Ryðfrítt stál
COMB 50x120 cm
Ryðfrítt stál
S
igurgeir fæddist í Þór-
isholti í Mýrdal 7.3. 1938
og ólst þar upp. Hann hóf
barnaskólanám í Reyn-
isskóla, var í Skógaskóla
1951-54, lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum að Laugarvatni
1958, embættisprófi í læknisfræði við
HÍ 1965 og öðlaðist almennt lækn-
ingaleyfi 1967.
Sigurgeir var aðstoðarlæknir hjá
héraðslækninum á Blönduósi.1965,
kandidat við Landspítala og Landa-
kotsspítala 1965 og 1966, aðstoð-
arlæknir og í sérfræðinámi í almenn-
um skurðlækningum við The
Memorial Hospital í Worcester í
Massachusetts í Bandaríkjunum
1966-71, og aðstoðarlæknir í æða-
skurðlækningum við Massachusetts
General Hospital í Boston 1971-72.
Hann öðlaðist sérfræðingsleyfi í al-
mennum skurðlækningum 1972 og í
æðaskurðlækningum 1973. Auk þess
sótti hann námskeið í greiningu og
meðferð á illkynja æxlum við Har-
vard Medical School í Boston 1975 og
í æðaskurðlækningum við Massachu-
setts General Hospital í Boston 1977.
Sigurgeir var sérfræðingur í al-
Sigurgeir Kjartansson, fyrrv. yfirlæknir – 80 ára
Hjónin Sigurgeir og Jóhanna á góðri stund heima í stofu, en krummi lætur fara vel um sig í gluggakistunni.
Naut sín á skíðum og
undir seglum þöndum
Fjölskyldan Sigurgeir og Jóhanna, ásamt börnum hans og barnabörnum.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift aðMorgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.