Morgunblaðið - 10.03.2018, Síða 19

Morgunblaðið - 10.03.2018, Síða 19
Í þessari ferð verður boðið upp á fjölbreytta dagskráþar sem náttúra, matur og menning koma við sögu. Við ætlum að fara um slóðir Jakobsstígsins við strendur Norður Spánar, heimsækja margar fagrar borgir og einstaka staði. Við fáum innsýn í matargerð heimamanna, en Norður Spánn hefur löngum verið þekktur fyrir frábært hráefni og snilldar kokka enda margar Michelin stjörnur hérna niðurkomnar. Við byrjum ferðina í borginni San Sebastian þar sem gist er fyrstu þrjár næturnar. Við heimsækjum því næst borgirnar Bilbao og Santander, förum m.a. á Guggenheim           Við heimsækjum miðaldarbæinn Santillano de Mar og hina frægu Altamira hella og förum í göngutúr um þjóðgarðinn Picos de Europa þar sem við skoðum Covadonga vötnin og njótum okkar í sveitasælunni. Einnig heimsækjum við Basilíku og helgidóm Covadonga en þessi sérstaki staður á sér mikla sögu og hingað leggja margir pílagrímar Jakobsstígsins leið sína til þess að heiðra jómfrú helgidómsins, La Virgen de Covadonga. Hin gamla borg Oviedo verður einnig heimsótt og þegar við dveljum þar nýtum við tækifærið og smökkum hið fræga „La Sidra“ vín heimamanna. Við endum ferðina í Santiago de Compostela á Norð-vesturhorni Spánar. Þar ætlum við meðal annars að skoða hina frægu dómkirkju þar sem gröf heilags Jakobs er (St. James), en þangað liggur leið allra pílagríma Jakobsstígsins. Frá kr. 249.995 m/fæði skv. ferðal. Bi rt m eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th .a ðv er ðg etu rb re ys tá nf yri rva ra . E N N E M M / S IA • N M 8 6 6 9 9 Á slóðum JAKOBSSTÍGS 19. júní 10 nætur Frá kr. 249.995 m/fæði skv. ferð Netverð á mann m.v. 2 í gistingu. Innifalið:                 Allur akstur samkvæmt ferðalýsingu. Gisting á 4* hótelum í San Sebastian, Santander og Oviedo og á 3* hóteli í Galicia. Morgunverður innifalinn alla daga ásamt 4 kvöldverðum. Aðgangseyrir og leiðsögn í Guggenheim listasafnið, aðgangseyrir og leiðsögn í Altamira safnið, aðgangseyrir í dómkirkju Oviedo og í dómkirkju Santiago de ! "   #    $      %    Fararstjóri: Brynjar Karlsson Matur og menning á Norður Spáni MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Framlög ríkisins til grunnrannsókna á jarðrænum auðlindum landsins hafa dregist mikið saman og eru þær orðnar nánast að engu. Þetta kom fram í máli Ólafs G. Flóvenz, for- stjóra, ÍSOR, Íslenskra orkurann- sókna, á ársfundi ÍSOR sl. fimmtu- dag. Ólafur fór yfir starfsemi ÍSOR og nefndi að það væri orðið tímabært að endurskoða rekstrarform og hlut- verk ÍSOR eftir 15 ára starfsemi. Stjórnvöld þyrftu að svara því hvort þau ætluðu ÍSOR eitthvert ákveðið hlutverk fyrir hið opinbera í framtíð- inni eða ekki. Selji þjónustu ÍSOR á samkeppnismarkaði Í umfjöllun um málið í ársskýrslu ÍSOR segir Ólafur að um tvo meg- inkosti sé að ræða. „Annar er sá að ÍSOR verði falið opinbert hlutverk og selji jafnframt þjónustu á samkeppn- ismarkaði líkt og nú er gert hjá öðr- um innlendum rannsóknarstofnunum og einnig hjá flestum jarðfræðistofn- unum í Evrópu. Hinn kosturinn er sá að ríkið selji ÍSOR enda varla hlut- verk ríkisins að reka fyrirtæki sem ekki gegnir neinu opinberu hlutverki. Til þess þarf fyrst að breyta ÍSOR í hlutafélag sem síðan yrði opnað fyrir öðrum,“ segir Ólafur í ársskýrslunni og heldur áfram; ,,Í kjölfarið er lík- legt að ÍSOR hf. sameinaðist fyr- irtæki á sama starfssviði, eins og til dæmis stórri verkfræðistofu. Í þessu tilviki myndi ÍSOR hætta að sinna þeim grunnrannsóknum og sam- félagslegu verkefnum sem ÍSOR hef- ur sinnt sem opinber rannsókn- arstofnun. Þetta yrði talsverður skaði fyrir grunnrannsóknir á sviði jarðvís- inda og jarðhitanýtingar í landinu.“ Ólafur sagði framtíð ÍSOR varða marga. Auk ríkisins væru orkufyr- irtæki, jarðvísinda- og jarðhita- samfélagið í landinu hagaðilar í mál- inu að ótöldum starfsmönnum ÍSOR. Því væri mikilvægt að höfð yrði víð- tæk samvinna þegar og ef hafist yrði handa við breytingar á rekstrarformi og hlutverki ÍSOR. Alls störfuðu 76 manns hjá ÍSOR um seinustu ára- mót. Ólafur bendir á að í reynd hafi áherslur ÍSOR hverfst um jarðrænar auðlindir og jarðvísindi. Megin- áherslan verið lögð á rannsóknir á jarðhita og nýtingu hans þótt grunn- vatn, jarðefni, umhverfiseftirlit og hafsbotnsrannsóknir komi talsvert við sögu. ,,ÍSOR varðveitir gríðarmikið safn gagna um jarðhitavinnslu og jarðvís- indi sem í langflestum tilvikum eru eign viðskiptavina ÍSOR. Gagnasafn- ið er ein af helstu undirstöðum starf- semi ÍSOR,“ segir í grein hans. Meginverðmæti ÍSOR er að mati Ólafs fólgið í viðamikilli þekkingu og reynslu starfsmanna og hæfni þeirra til að tengja saman mismunandi fræðasvið til jarðhita- og náttúrufars- rannsókna. Sú reynsla hafi byggst upp á rúmlega 70 ára samfelldu rann- sóknar- og vísindastarfi. Hækkandi gengi og miklar almennar launahækkanir Fram kemur í ávarpi Sigrúnar Traustadóttur, stjórnarformanns ÍSOR, að rekstrarniðurstaða ÍSOR á seinasta ári varð lakari en áætlanir í upphafi árs gerðu ráð fyrir. Á árinu 2017 nam veltan 1.361 milljón kr. og dróst saman um tæp 8 prósent frá árinu á undan. Tekjur vegna erlendra verkefna urðu mestar 44% af heildartekjum árið 2012 og hæstar í krónutölu árið 2015, 479 milljónir kr., en hafa lækk- að síðan. Í fyrra drógust tekjur af verkefnum erlendis saman um 27% milli ára og námu 305 milljónum króna, eða 22% af heildartekjum árs- ins. ,,Því veldur einkum hækkandi gengi krónunnar og miklar almennar launahækkanir á Íslandi sem tor- velda samkeppnisstöðuna,“ segir í ársskýrslunni. Óvissa um þróun orkumála Fram kemur að tekjur af inn- lendum verkefnum námu rúmum milljarði í fyrra og eru svipaðar og þær höfðu verið árin tvö á undan eftir stöðuga aukningu árin þar á undan. Erfitt sé að spá fyrir um hvernig eft- irspurnin verður á komandi miss- erum vegna óvissu um þróun ís- lenskra orkumála. Verkefni í 13 öðrum löndum ÍSOR sinnir fjölmörgum jarð- hitaverkefnum m.a. á Reykjanesi og í Svartsengi, á Hellisheiði og Nesja- völlum og á Kröflusvæðinu og á Þeistareykjum og víða annars staðar. ÍSOR kemur einnig að viðamiklum hafsbotnsrannsóknum og segir í yf- irliti yfir starfsemina í fyrra að nú- verandi verkhluta eigi að ljúka 2019 en gert sé ráð fyrir framhaldi verks- ins eftir það til 2021. Þá stóð ÍSOR að verkefnum í 13 löndum í fyrra skv. yfirliti yfir árið, m.a. ráðgjafarverkefnum og þjónustu vegna borana svo sem í Tyrklandi, Níkaragva, Eþíópíu, Djíbútí, Fíd- jíeyjum og El Salvador. Framlög ríkisins eru nánast orðin að engu  Annar af tveimur kostum er sagður sá að ríkið selji ÍSOR Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þeistareykjavirkjun ÍSOR kom að ýmsum þáttum borframkvæmdanna. • Bindivír 1 mm U hankir og rúllur 1.4 mm • Fjarlægðarstjörnur og steinar 20-50 mm • Plastlistar á undirslegnar plötur, einnig harðir • U listar á ull eða plasteinangrun • Járnstólalengjur, sterkir og góðir stólar frá 50 mm • Mótarör og kónar 10–50 mm • Öryggishlífar á kambstál, listar og sveppir Járnabakkar Járnabindingavörur Erum með á lager allar helstu gerðir af járnabökkum Vír og lykkjur ehf www.viroglykkjur.is - viroglykkjur@internet.is 772-3200/692-8027

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.