Morgunblaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 22
BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Eignarhaldið á lyfjarisanum Alvogen hefur alla tíð verið sveipað mikilli dul- úð. Gögn sem Morgunblaðið birtir nú í fyrsta sinn varpa hins vegar ljósi á hvernig þriðjungshlutur í fyrirtækinu er undir stjórn sjálfseignarstofnunar (trust) sem Róbert Wessman kom á fót á aflandseyjunni Jersey árið 2015. Með birtingu upplýsinganna, sem byggjast á gögnum frá Íslandi, Jer- sey, Lúxemborg, Bandaríkjunum og Svíþjóð er áralöngum vangaveltum um raunverulegt eignarhald á hinu ört vaxandi fyrirtæki, sem teygir starfsemi sína víða um heim, eytt. Forsvarsmenn Alvogen hafa ætíð haldið því fram að Róbert, sem er stofnandi og forstjóri fyrirtækisins, hafi aldrei átt hlut í því frá því að það var stofnað árið 2009. Ásamt Róberti komu að stofnun þess samstarfsmenn hans frá þeim tíma er hann var for- stjóri lyfjafyrirtækisins Actavis og hefur því verið haldið fram að eign- arhaldið á félaginu hafi verið á hönd- um þeirra, einkum Árna Harðarson- ar, lögmanns og aðstoðarforstjóra Alvogen. Hefur eignarhaldinu verið stillt upp í gegnum net félaga sem flest bera heiti sem hefjast á orðinu „Aztiq“. Fjárfestingarsjóðurinn sem heldur utan um hlutinn, og er undir stjórn Róberts, nefnist Aztiq Pharma Partners og vistað er í Lúxemborg. Það félag er hins vegar í eigu Aztiq Finance Holding í Lúxemborg sem aftur er í eigu Aztiq Partners AB í Svíþjóð. Hlutafjáraukning sjálfs- eignarsjóðs sýnir á spilin Upplýsingar sem Morgunblaðið hefur aflað sýna hins vegar svart á hvítu að eignarhaldið á Aztiq Part- ners AB í Svíþjóð er ekki ótengt per- sónulegum umsvifum Róberts Wessman. Þannig sést að félagið er að 24% hluta í eigu Aztiq Pharma ehf., sem er félag á Íslandi í eigu félaga undir stjórn Árna Harðarsonar og Bandaríkjamannsins Divya Patel. 74% hlutur í Aztiq Partners AB er hins vegar í höndum eignarhalds- félagsins Hexalonia Holdings í Lúx- emborg. Það félag er aftur í eigu Hex- alonia Investments á Jersey sem svo er í 100% eigu sjálfseignarsjóðsins Hexalonia Trust sem einnig var stofn- að til á aflandseyjunni litlu norður af Normandí. Árni Harðarson, aðstoðarforstjóri Alvogen, staðfestir að Hexalonia Holdings í Lúxemborg haldi á 74% hlut í Aztiq Partners AB og að eignar- hluturinn sé kominn til vegna fjár- magns sem Hexalonia hafi lagt inn í félagið í formi nýs hlutafjár seint á árinu 2015. Sú hlutafjáraukning, sem byggðist á verðmætum sem Róbert lagði inn í HT við stofnun þess fyrr- nefnt ár, tryggja honum 74% eignar- hlut í félagi sem heldur á 30% hlut í Alvogen. Sjálfseignarsjóður til hagsbóta fyrir fjölskyldu Róberts Morgunblaðið hefur undir höndum stofngögn félagsins Hexalonia Trust (HT) á Jersey sem á fyrrnefndan 30% hlut í Alvogen. HT var stofnað í lok nóvember 2015 í því skyni að halda utan um verðmæti sem ætlunin er að nýtist til hagsbóta fyrir fjölskyldu Róberts í framtíðinni. Sjálfseignarsjóður er formlega í forsjá lögmanna á vegum fjármála- fyrirtækisins Ogier á Jersey. Sér- fræðingar sem Morgunblaðið hefur rætt við og borið stofnskjölin undir segja hins vegar að fyrirkomulag af þessu tagi sé ætíð af þeim toga að sá sem leggur sjálfseignarsjóðnum til þau verðmæti sem í henni eru vistuð, hafi í raun fulla stjórn á ráðstöfun þeirra þegar upp er staðið. Afar ólík- legt væri að nokkur myndi afsala sér umráðum yfir slíkum verðmætum nema að nafninu til. Í tilviki HT er það Róbert Wessm- an sem ekki aðeins er skilgreindur sem þiggjandi verðmætanna (benefi- ciary) ásamt fyrrverandi eiginkonu sinni og börnum, heldur einnig stjórn- andi þeirra (first power holder) sem að lokum ræður ráðstöfun þeirra verðmæta sem umsjónarmennirnir (trustees) hafa með höndum. Árni Harðarson, hafnar því hins vegar að Róbert hafi stjórn á þeim verðmætum sem lögð voru inn í HT á sínum tíma og þar með að Róbert sé raunverulegur eigandi að Hexalonia- félögunum á Jersey og í Lúxemborg sem aftur eiga 74% hlut í Aztiq Part- ners í Svíþjóð. Stofnun Hexalonia hafi þann kost að Róbert geti tryggt að ráðstöfun fjármuna úr sjóðnum fari ekki til annarra en erfingja til fram- tíðar og þó um leið sé fórnað ákveðnu skattalegu hagræði. Árni segir enn fremur að form slíkra sjóða sé, á sama veg og gildir um sjálfseignarstofnanir á Íslandi, þannig að Róbert afsali sér að fullu rétti til eignahalds, ákvarðana eða ráðstafana varðandi eignir sjóðsins og sé þannig ekki eigandi þeirra eigna er undir sjóðinn falla og getur ekki undir neinum kringumstæðum ráðstafað eignum hans. Gríðarleg verðmæti í Alvogen Samkvæmt nýlegu viðtali við Ró- bert sem birtist í tímaritinu World Finance kemur fram að Alvogen framleiði um 350 tegundir lyfja og að tekjur þess á árs grundvelli sé yfir 1,1 milljarður dollara, jafnvirði 110 millj- arða íslenskra króna. Þar sem Alvo- gen er ekki skráð á markað er í raun flest á huldu um raunverulegt virði þess. Hlutir í fyrirtækinu hafa hins vegar gengið kaupum og sölum á síð- ustu árum í nokkrum stórum við- skiptum. Árið 2015 var talið að fyrir- tækið væri metið á 2 milljarða dollara, jafnvirði 200 milljarða króna en heim- ildarmenn innan úr fyrirtækinu sem fréttaveitan Bloomberg ræddi við undir lok septembermánaðar í fyrra segja fyrirtækið nú metið á um 4 milljarða dollara. Reynist það rétt hefur fyrirtækið tvöfaldast í virði á þremur árum. Sé mið tekið af eignarhlut Aztiq Partners AB í félögum sem halda á ríflega 30% hlut í Alvogen má því gera ráð fyrir að sjálfseignarsjóðurinn sem Róbert Wessman stofnaði til í árslok 2015, til hagsbóta fyrir sig og fjöl- skyldu sína, haldi á hlut í Alvogen sem metinn er á um 90 milljarða króna. Þá má áætla að hlutur Árna Harðarson- ar sé metinn á um 6,4 milljarða króna. Meirihlutaeigendur að Alvogen eru hins vegar stórir alþjóðlegir fjárfest- ingarsjóðir en þar eru stærstir CVC Capital Partners og Temasek Hold- ings Pte. Þeir komu að fyrirtækinu árið 2015. Fleiri afar verðmætar eignir Hexalonia Trust heldur á fleiri afar verðmætum eignum gegnum eignar- haldsfélögin Hexalonia Investment í Lúxemborg og Hexalonia Holdings í Svíþjóð. Þannig á dótturfélag síðast- nefnda félagsins, Aztiq Investment Advisory AB annað dótturfélag sem nefnist Alvogen Aztiq AB. Það félag er 100% hluthafi í Fasteignafélaginu Sæmundi (FS). Það félag á tæplega 13 þúsund fermetra byggingu að Sæ- mundargötu 15-17 í Vatnsmýrinni. Það hús hýsir starfsemi Alvogen og Alvotech á Íslandi. Samkvæmt árs- reikningi FS 2016 eru eignir þess 6,9 milljarðar króna. Skuldir félagsins eru hins vegar einnig gríðarlegar og er eigið fé þess neikvætt um 16,4 milljarða. Félagið á byggingarrétt að um 10 þúsund fermetra byggingu til viðbótar við þá sem nú þegar er risin í Vatnsmýrinni. Hexalonia Holdings í Lúxemborg á einnig félagið Park 66B LLC í Banda- ríkjunum. Það félag er skráð fyrir íbúð í 69 hæða stórhýsi við 432 Park Avenue í New York. Í frétt sem birt- ist á Vísi í september í fyrra er íbúðin metin á 1,7 milljarða króna en að þar af hafi um 1,6 milljarður komið til greiðslu í formi lánsfjár. Þessar fasteignir í Vatnsmýri og New York eru að fullu og öllu leyti í eigu eignarhaldsfélaga sem eru undir stjórn Hexalonia Trust á Jersey. Þá á sama félag einnig hagsmuna að gæta í byggingaframkvæmdum á Hlíðar- enda gegnum eignarhald á félaginu Frostaskjól ehf. Árni Harðarson ÍSLANDI Aztiq Iceland ehf. ÍSLANDI Aztiq Pharma Partners ehf. ÍSLANDI Aztiq Pharma ehf. ÍSLANDI Aztiq Cayman L.P. CAYMANEYJUM Hexalonia Trust JERSEY Aztiq Partners AB SVÍÞJÓÐ Aztiq Investments Advisory AB SVÍÞJÓÐ Aztiq Finance Holding S.a.r.l. LÚXEMBORG Aztiq Finance S.C.A. LÚXEMBORG Aztiq Finance Management S.a.r.l. LÚXEMBORG Aztiq Pharma Management S.A. LÚXEMBORG Aztiq Pharma Partners SCA Celtic Structure LÚXEMBORG Alvogen Lux Holdings S.a.r.l. LÚXEMBORG Park 66B LLC BANDARÍKJUNUM Hexalonia Holdings S.A. LÚXEMBORG Hexalonia Investments ltd. JERSEY Aztiq Holdings S.a.r.l. Aztiq Senior Equity Holdings S.a.r.l. Aztiq Priority Senior Equity Holdings S.a.r.l. Aztiq Priority Senior Equity S.a.r.l. Aztiq Senior Equity S.a.r.l. Aztiq SICAR AB SVÍÞJÓÐ Aztiq US LLC BANDARÍKJUNUM Sage International Ventures LLC DELAWARE, BANDARÍKJUNUM Divya Patel BANDARÍKJUNUM Róbert Wessmann ÍSLANDI 100% 100% 100% 100% 100% 100% 100%100% 100%100% 100% 100% 100% 100% 100% 0,01% 0,01% 99,99% 30% 53,2% 19,23% 80,67% 99,99% 74% 26% Flókið net félaga um eignarhaldið á Alvogen Ljósi varpað á eignarhald Alvogen  Hlutur Róberts Wessman í Alvogen metinn á allt að 90 milljarða króna  Eignarhaldið í gegnum sjálfseignarsjóð á Jersey  Aðstoðarforstjóri Alvogen segir Róbert ekki ráða yfir hlutnum í raun Róbert Wessmann Árni Harðarson Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon Eign Stórhýsið við Sæmundargötu 15-17 er að fullu leyti í eigu félags sem sjálfseignarsjóðurinn, sem Róbert setti á fót 2015, á. Húseignin er því ekki að neinu leyti í eigu Alvogen eða Alvotech. Húsið er bókfært á yfir 6 milljarða. 22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.