Morgunblaðið - 10.03.2018, Síða 23
Morgunblaðið/RAX
Lánakjör Mörg sveitarfélög hafa slegið lán hjá LS vegna hagstæðra kjara.
Lánasjóður sveitarfélaga hefur lánað
15 milljarða króna það sem af er
þessu ári til sveitarfélaga í landinu.
Þótt aðeins séu liðnir tveir mánuðir
af árinu hefur sjóðurinn aldrei lánað
meiri fjármuni á einu ári. Í fyrra
námu lánveitingar sjóðsins um 9,5
milljörðum, 6,6 milljörðum árið 2016
og 7,5 milljörðum árið 2015. Stærst-
an hluta lánveitinganna má rekja til
uppgjörs sveitarfélaganna vegna
breytinga á réttindastöðu sjóðfélaga
A-deildar Brúar lífeyrissjóðs. Þannig
var ákveðið að þau greiddu tæpa 10
milljarða í svokallaðan jafnvægissjóð
til að koma áfallinni stöðu sjóðsins í
jafnvægi, 27,3 milljarða í lífeyris-
aukasjóð til að mæta framtíðarskuld-
bindingum vegna lífeyrisauka og 3
milljarða í varúðarsjóð sem ætlað er
að styðja við lífeyrisaukasjóðinn.
Óttar Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri LS, segist gera ráð fyrir að á
yfirstandandi ári muni lánveitingar
sjóðsins slaga í 20 milljarða ef áætl-
anir gangi eftir.
„Í tengslum við þessar miklu lán-
veitingar réðumst við í skuldabréfa-
útgáfu í desember sem nam 4,2
milljörðum og svo 6,5 milljörðum í
janúar og febrúar. Útlánaukningin á
nýju ári kallaði á að við endurskoð-
uðum útgáfuáætlun ársins og var
það tilkynnt á fimmtudag,“ segir
Óttar.
Fram kemur í opinberum gögnum
að LS hafi lánað sveitarfélögunum til
fyrrnefnds uppgjörs við Brú á 2,6%
vöxtum. Á sama tíma stóð sveit-
arfélögunum til boða að gera upp við
Brú með lánveitingu frá lífeyris-
sjóðnum á 3,5% vöxtum.
Lánveitingarnar
stóraukast í ár
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018
Innblásið af Aalto
Með sjálfbærni að leiðarljósi
Finnsk innanhússhönnun
02.03–02.09.2018
Opið alla daga 11–17.Miðvikudaga 11–21
Norrænahúsið. Sæmundargötu 11
www.norraenahusid.is
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
10. mars 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 99.34 99.82 99.58
Sterlingspund 137.81 138.49 138.15
Kanadadalur 76.83 77.27 77.05
Dönsk króna 16.5 16.596 16.548
Norsk króna 12.659 12.733 12.696
Sænsk króna 12.034 12.104 12.069
Svissn. franki 105.05 105.63 105.34
Japanskt jen 0.936 0.9414 0.9387
SDR 144.29 145.15 144.72
Evra 122.96 123.64 123.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 149.67
Hrávöruverð
Gull 1319.35 ($/únsa)
Ál 2082.0 ($/tonn) LME
Hráolía 64.51 ($/fatið) Brent
● Það hægði heldur á hagvexti á liðnu
ári, en landsframleiðsla jókst að raun-
gildi um 3,6% árið 2017, samkvæmt
nýjum þjóðhagsreikningum Hagstof-
unnar. Til samanburðar jókst hún um
7,5% árið áður og um 4,3% árið 2015.
Hagvöxtur er nú 15,3% meiri en árið
2008. Einkaneysla jókst um 7,8% á
milli ára, samneysla um 2,6% og fjár-
festing um 9,3%. Útflutningur jókst um
4,8% á árinu 2017 samanborið við
10,9% árið áður.
Hagvöxturinn var 3,6%
samkvæmt Hagstofunni
STUTT
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og
framtakssjóðurinn Frumtak hafa
selt samtals 37% hlut sinn í hátækni-
fyrirtækinu Völku sem starfar á
sviði sjávarútvegs. Samhliða sölunni
var hlutafé félagsins aukið.
Helgi Hjálmarsson, stofnandi
félagsins, segir í
samtali við Morg-
unblaðið að kaup-
endurnir og þeir
sem tóku þátt í
hlutafjáraukning-
unni hafi þegar
verið í hluthafa-
hóp félagsins.
Þeirra á meðal sé
Vortindur, félag á
hans vegum,
Fossar í eigu Sig-
urbjörns Þorkelssonar, Vogabakki í
eigu Árna Haukssonar og Hall-
björns Karlssonar, Vindhamar, fé-
lag á vegum Kára Guðjóns Hall-
grímssonar auk núverandi og
fyrrverandi starfsmanna.
„Við stefnum á yfir 50% vöxt í ár,“
segir hann. Í fyrra hafi verið óveru-
legur vöxtur á milli ára en árið 2016
hafi tekjur aukist um 38% á milli
ára. Tekjur Völku námu 1,2 millj-
örðum króna árið 2016. Hagnaður-
inn nam 58 milljónum króna það ár
samanborið við 21 milljónar króna
tap árið áður.
„Fjárfestingin var mjög góð fyrir
sjóðinn,“ segir Huld Magnúsdóttir,
framkvæmdastjóri Nýsköpunar-
sjóðsins, í samtali við Morgunblaðið
en hún er bundin trúnaði um sölu-
verðið. „Þetta var gott dæmi um það
hvernig Nýsköpunarsjóðurinn getur
stutt við flott fyrirtæki, fengið
ávöxtun á sitt fé og getur vonandi
nýtt það til að fjárfesta aftur.“ Ný-
sköpunarsjóðurinn hóf að fjárfesta í
félaginu árið 2008 og Frumtak árið
2011.
Fyrirtækið var stofnað árið 2003 í
bílskúr Helga Hjálmarssonar fram-
kvæmdastjóra Völku. Starfsmenn
eru um sextíu manns og viðskipta-
vinir eru víða um heim. Hluthafar
voru 22 í árslok 2016.
Helgi segir í tilkynningu aðkomu
nýsköpunarsjóðanna beggja hafa
skipt sköpun fyrir vaxtarmöguleika
fyrirtækisins á miklu uppbygging-
artímabili
Nýsköpunarsjóður er ekki á fjár-
lögum frá ríkinu og þarf því að
ávaxta sitt pund til að geta fjárfest í
sprotum. Að sögn Huldar var sjóð-
urinn nokkuð stór hluthafi í
GreenQloud og seldi hlutinn í fyrra
með ágætum hagnaði. Nú hefur
hluturinn í Völku verið seldur og
minni eignir voru seldar í vetur.
Fyrir skömmu hafi sjóðurinn fjár-
fest í Florealis. „Það er jákvætt því
sjóðurinn hefur ekki getað hreyft sig
í nokkur ár.“ helgivifill@mbl.is
Stór hluti í Völku
skiptir um hendur
Vogabakki og Fossar meðal fjárfesta
Helgi
Hjálmarsson