Morgunblaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018 ✝ Böðvar Páls-son fæddist á Búrfelli í Gríms- nesi 11. janúar 1937. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 3. mars 2018. Foreldrar hans voru Laufey Böðv- arsdóttir, f. 24. nóv. 1905, d. 6. nóv. 1974, hús- freyja, og Páll Diðriksson, f. 8. okt. 1901, d. 6. júní 1972, bóndi á Búrfelli, Grímsnesi. Systur Böðvars eru Ólöf, f. 30. apríl 1930, gift Bjarna Kr. Bjarna- syni, d. 22. nóv. 1998, Ingunn, f. 30. mars 1933, gift Guðmundi Axelssyni, d. 17. feb. 1998, Edda Laufey, f. 20. okt. 1938, gift Svani Kristjánssyni, d. 10. ágúst 2011, og Ragnheiður, f. 17. feb. 1941, gift Sigvalda Hólm Péturssyni. Böðvar kvæntist 26. okt. 1963 eftirlifandi eiginkonu sinni, Lísu Thomsen, f. 17. júlí 1944. Böðvar og Lísa eignuðust fimm börn, þau eru: 1) Sig- urður, f. 26. feb. 1964, kvæntur Guðrúnu Bragadóttur. Börn þeirra eru Sigríður Laufey og Böðvar. Eldri börn Sigurðar með Önnu Kristínu Ólafsdóttur gripahirðingu að vetrum. Hann stofnaði nýbýlið Búrfell 3 úr hálfri jörðinni Búrfelli 2 árið 1964 og hóf þar búskap ásamt Lísu. Hann bjó á Búrfelli alla sína ævi. Hann var kjörinn í hrepps- nefnd Grímsneshrepps á árinu 1972 og átti þar sæti í 32 ár, þar af 14 ár sem oddviti. Hann var jafnframt sýslunefnd- armaður og átti sæti í héraðs- nefnd. Þá var hann lengi hrepp- stjóri. Böðvar var formaður búnaðarfélagsins í sinni sveit og fulltrúi á aðalfundum Stéttarsambands bænda. Hann sat í stjórn Stéttarsambandsins og sat fyrir hönd þess í ýmsum nefndum og ráðum, meðal ann- ars í Öldrunarráði Íslands og innan þess formaður stjórnar sjúkrastofnunarinnar Skjóls. Böðvar var virkur í félags- málum. Hann var formaður Ungmennafélagsins Hvatar og framkvæmdastjóri félagsheim- ilisins Borgar. Böðvar var stofnandi og fyrsti formaður Lionsklúbbsins Skjaldbreiðar og einn af stofnendum Odd- fellow-reglunnar Hásteins nr. 17 á Selfossi. Böðvar var kirkjubóndi og þótti afar vænt um Búrfells- kirkju. Útför Böðvars fer fram frá Skálholtsdómkirkju í dag, 10. mars 2018, og hefst athöfnin klukkan 14. eru Lísa Margrét, Eysteinn og Bjarki. Fyrir á Guðrún Hugó Pétur og Láru. 2) Laufey, f. 20. des. 1966. Börn hennar og Jóns Gunnars Schram eru Böðvar, Elísa, Magdalena Salvör og Ingunn Ýr. 3) Bryndís Ásta, f. 11. júní 1971, eigin- maður hennar er Pétur Ingi Haraldsson og eiga þau þrjú börn, Arnar Pál, Láru Björk og Auði. 4) Anna Ýr, f. 15. feb. 1979, sambýlismaður hennar er Sigurður Benediktsson. Börn Önnu Ýrar og Hjalta Más Bald- urssonar, d. 12. nóv. 2015, eru Elísa Björk, Ester Laufey og Hjalti Már. 5) Lára, f. 20. des. 1980, eiginmaður hennar er Sturla Jónsson. Börn þeirra eru Eva Björk og Páll Eysteinn. Böðvar eignaðist sitt fyrsta langafabarn, Sigurð Matthías, son Lísu Margrétar og Krist- jáns H. Johannessen, í janúar sl. Böðvar lauk landsprófi frá Héraðsskólanum á Laugarvatni árið 1955 og stundaði nám í Íþróttaskól-anum í Haukadal. Eftir það vann hann sem skurð- gröfustjóri á sumrin og við Það er sárt að þurfa að kveðja hann Böðvar Pálsson á Búrfelli, tengdaföður minn. Minningar af okkar góðu kynnum undanfarin ár eru þó huggun harmi gegn. Margir minnast Böðvars sem hins mikla héraðshöfðingja sem hann sannarlega var. Böðvar vann ötullega að málefnum Grímsness sem oddviti og hrepp- stjóri í áratugi. Hann var formað- ur ungmennafélagsins í sveitinni og fulltrúi í Stéttarsambandi bænda. Sat í ótal nefndum og stjórnum og þar oftar en ekki í formennsku. Þá var Böðvar fyr- irmyndarbóndi þó svo að oft á tíð- um hafi skort tíma til sinna bú- störfum sökum anna í sveitar- stjórnar- og félagsmálum. Sjálfur kynntist ég Böðvari sem hæglátum eldri manni fyrir um áratug. Hann þá hættur störf- um en þó hvergi nærri sestur í helgan stein. Böðvar var annálað góðmenni og auðvelt að njóta samvista hans. Hafsjór af fróð- leik, góður sögumaður og hafði einstaklega gaman af því að fræða um menn og málefni. Oft var maður drifinn í bíltúr um sveitina þar sem rifjaðar voru upp sögur á bak við einstök örnefni og af gömlum sveitungum. Tónlistin var aldrei langt undan og var Böðvar þar jafnvígur á orgelið og harmonikkuna. Þá hafði hann ein- stakt lag á að framreiða sérstak- lega ljúffengan grjónagraut, sem er kúnst sem síuppteknir borg- arbúar munu seint geta tileinkað sér. Þeirrar eldamennsku verður sárt saknað. Mér bæjarbarninu hefur þó fundist virðingarvert að hafa fengið að kynnast sönnum sveitarhöfðingja eins og honum Böðvari. Böðvar fæddist á Búr- felli í Grímsnesi, bjó þar alla sína ævi og mun að lokum verða lagð- ur þar til grafar. Umhyggja hans fyrir sveit sinni og jörð duldist engum og það var sem náttúran á Búrfelli og Böðvar væru eitt. Á stundum hefur mér fundist Böðvar vera meðal síðustu kynd- ilbera hinnar rómantísku ís- lensku sveitamenningar sem ein- hvern veginn virðist vera að líða undir lok. Fyrir rúmum fjórum árum óskaði ég eftir inngöngu í stúku Oddfellow-reglunnar á Selfossi. Áhugi minn á reglustarfinu kviknaði eftir spjall við tengda- foreldra mína en Böðvar og Lísa eru bæði virk reglusystkin og hafa verið í áratugi. Það var heiður að fá að sitja í stúkunni með honum síðustu árin og er ég einstaklega þakklátur fyrir sam- verustundir okkar þar. Það var sárt að upplifa Böðvar takast á við veikindi sín undanfarna mán- uði, ekki síst eftir að ljóst var í hvað stefndi. Böðvar var ekki há- aldraður maður og það er ein- hvern veginn eins og frekari tími hefði átt að standa okkur til boða. Það er ljóst að fráfall Böðvars skilur eftir sig mikið tómarúm í fjölskyldunni. Megi minningin um hann verða okkur sem eftir stöndum leiðarljós á ókomnum árum. Sturla Jónsson. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Okkar elskulegi afi er fallinn frá. Okkur systkinum er efst í huga þakklæti fyrir allar þær ótalmörgu góðu stundir sem við höfum átt með afa Böðvari í gegnum tíðina. Hjá ömmu og afa á Búrfelli hefur okkur alltaf þótt gott að vera; sem börn fengum við að kynnast frelsinu í sveitinni þegar við lékum okkur niðri við læk eða úti á túni. Í seinni tíð nutum við þess að kíkja inn á Búrfelli og hlusta á sögur yfir rjómalagaða grjónagrautnum hans afa og kaffi. Afi var einstakur maður, hlýr og hláturmildur og hafsjór af fróðleik, enda með eindæmum minnugur. Hann var ekki síður hrókur alls fagnaðar – spilaði á nikkuna og sagði gamansögur eða fór með vísur. Afi var mjög fjölskyldurækinn og þykir okkur afskaplega vænt um allar góðu minningarnar úr fjölskylduboð- unum á Búrfelli, ekki síst frá ár- legu jólaboði stórfjölskyldunnar sem hófst alltaf á hátíðlegri stund í Búrfellskirkju sem afi stýrði af mikilli einlægni og festu. Fól hann þá einhverjum afkomendunum að lesa vel valda sögu eða annan texta í kirkjunni og svo auðvitað jólaguðspjallið og jafnvel að spila á hljóðfæri. Sungu svo allir saman Heims um ból, hér áður fyrr við undirleik afa á orgelið, og kveiktum á kert- um í lokin. Eftir helgistundina var haldið niður að bæ heim til afa og ömmu í veislumat og síðar um kvöldið komu jólasveinar nið- ur af Búrfelli að heilsa upp á börnin, dansa með þeim í kring- um jólatréð og gefa þeim epli eða mandarínur. Okkur eru minnis- stæð ein jólin fyrir mörgum ár- um þegar afi lék annan jólasvein- inn en sá jólasveinn var með skegg á nefinu þar sem gervi- skeggið hafði hliðrast til í öllum hamaganginum og sat skakkt á andliti afa. Vakti það mikla kát- ínu hjá börnunum og fjölskyld- unni allri þau jólin og æ síðan þegar það atvik er rifjað upp. Við systkinin eigum ekki síður dýrmætar æskuminningar úr fjárhúsunum með afa, t.d. þegar hann gaf okkur kindur og leyfði okkur að gefa þeim nafn, og úr reiðtúrum og bíltúrum með hon- um um Búrfellslandið sem hann nýtti til að fræða okkur um jörð- ina. Fyrir þessar samverustund- ir og minningar og fjölmargar aðrar verðum við ævinlega þakk- lát. Afa Böðvars söknum við sárt. Blessuð sé minning hans. Lísa Margrét, Eysteinn og Bjarki. Kær frændi minn, Böðvar á Búrfelli, er látinn. Við vorum systra- og bræðra- börn og vinátta mikil milli heim- ilanna. Minningarnar streyma fram frá skóladögum á Ljósa- fossi. Kennarinn var 22 ára útskrif- aður úr Kennaraskólanum, Böðvar Stefánsson frá Minni- borg. Kennslustundin byrjaði ávallt með söng. Við kyrjuðum fjárlögin eða ítalskar aríur. Það var gott veganesti út í daginn. Eitt er mér minnisstætt frá okk- ar fyrstu dögum. Böðvar á Búr- felli fékk heimþrá. Hann var ekkert að segja frá, heldur strauk hann úr skólanum. Ég var steinhissa, ég hefði heldur strokið að heiman í skólann, svo gaman þótti mér. Við vorum níu ára gömul. Páll pabbi hans kom ríðandi með hann næsta dag. Böðvar var keppnismaður bæði í íþróttum og námi. Við vorum í heimavist í tvær vikur og tvær vikur heima. Þær helgar sem við vorum í skólanum voru dansæf- ingar eða eitthvað annað, t.d. skíða- eða skautaferðir. Um fermingu fórum við þrjú frændsystkinin, Böðvar, Dúna (Guðrún Halldórsdóttir) og ég að læra á orgel hjá Kjartani Jó- hannessyni. Ég gafst fljótlega upp, en Böðvar og Dúna náðu góðum árangri og gátu spilað hvort sem var í kirkjum eða á skemmtunum. Böðvar tók bros- andi á móti okkur spilandi á harmonikku, þegar við litum inn Böðvar Pálsson Nýframkomið frumvarp nokk- urra þingmanna að banna með lögum umskurn drengja varðar tvö grundvallargildi: Annað er friðhelgi líkama barnsins og hitt er frelsi til iðkunar trúarbragða og menningar. Ljóst er að í þessu tilviki eru þessi tvö mikilvægu gildi í mótsögn hvort við annað. Góð og rétt leið til þess að fara þegar staðið er frammi fyrir slík- um andstæðum er að finna lausn- ir sem ná sanngjörnu jafnvægi eða jafnræði á milli gildanna tveggja. Gott dæmi er jafnvægið á milli málefna sem tengjast einka- lífi og annarra sem varða þjóðaröryggi. Annað gott dæmi er verndun tjáningarfrelsis annars vegar en lög gegn hvatningu, hatursumræðu o.s.frv. hins vegar. Framangreint frumkvæði al- þingismanna leiðir því miður ekki til slíks jafn- vægis heldur felur það í sér einhliða val á einu gildi framar öðru. Það er engin tilviljun að ekkert land heimsins hefur samþykkt róttæka löggjöf í líkingu við frumvarpið og ef Ísland gerir það verður bent á Ísland sem það land sem sýnir vanvirðingu að óþörfu og smánar aldagamlar venjur tvennra eingyðistrúarbragða – íslams og gyðingdóms. Móðgun þessi er óþörf vegna þess að feikinóg er til af áreiðanlegum læknisfræðilegum upp- lýsingum sem sýna fram á það að karlkyns um- skurn, ef faglega er að unnið, skaðar ekki heilsu drengsins heldur dregur jafnvel úr tíðni og al- gengi tiltekinna sjúkdóma síðar á lífsleiðinni. Ekki er vitað til þess að umskurn hafi neikvæð áhrif á kynlíf karlmanna. Í þessu sambandi er fullyrðingin að enginn munur sé á milli um- skurnar drengja og eyðileggingar kynfæra mjög ónákvæm og jafnvel villandi. Til að ganga úr skugga um að umskurn sé gerð af fagfólki er þess krafist í lögum sumra þjóða að framkvæmdin sé undir eftirliti læknis. Aðrar þjóðir takmarka réttinn til framkvæmdar enn frek- ar með því að áskilja að aðeins læknir geti framkvæmt umskurn. Báðar þessar lausnir leiða til ákveðins jafnvægis. Trúfastir gyð- ingar og múslimar eru líklega ekki ánægðir, því þeir vilja frekar að trúarleiðtogi sjái um athöfnina, en framangreindar lausnir opna þeim þó leið til þess að halda í trúarlegar hefðir. Staðbundið frumkvæði, eins og umrætt frum- varp leggur til, gengur hins vegar of langt og ræðst að óþörfu gegn mikilvægum undirstöðum trúarbragðafrelsis og menningararfleifðar. Hugtakið réttindi barnsins er í þessu tilfelli frekar misnotað og endurspeglar hugarfar ver- aldlegs ofríkis og megnrar vanvirðingar fyrir trúarlífi annarra. Ég tel að alþingismenn ættu að huga vel að málum áður en þeir ákveða að setja Ísland í fararbrodd slíks óréttlætis. Bann gegn umskurði drengja – veraldlegt ofríki Eftir Raphael Schutz Raphael Schutz » Sendiherra Ísraels gagn- rýnir frumvarp um breyt- ingu á almennum hegning- arlögum sem felur í sér að umskurður á drengjum verður refsiverður. Höfundur er sendiherra Ísraels í Noregi og á Ís- landi, með aðsetur í Osló. Húsnæðismál eru ein af stærstu kjaramálum dagsins í dag. Verðlag leiguhúsnæðis getur ráðið úrslitum um af- komu fólks og er því brýnt að leiga haldist eins lág og mögu- legt er á hverjum tíma. Í meira en áratug hefur leigu- verð stigið upp og er nú orðið svo hátt að allar kjarabætur fólks á vinnumarkaði hverfa til leigusala. Þróunin er öll á verri veg og virðist engin breyting vera framundan. Hvorki rík- isvaldið né sveitarfélögin hafa staðið sig eða sýnt nokkurn vilja til þess að grípa inn í þessa vondu þróun. Verkalýðsfélögin hafa því miður unnið hægt að þessum málum þó svo að umræðan hafi verið til staðar innan hennar öll þessi ár. Fyrirhugað hefur verið í mörg ár að hefja byggingu íbúða á vegum verkalýðsfélaganna en þar eru áformin lítil og langt í að eitt- hvað gerist. Sem sagt, allt of hægt og allt of seint. Það er einnig dapurlegt að horfa á líf- eyrissjóðina okkar hafna aðkomu að upp- byggingu íbúðarhúsnæðis á forsendum verkalýðsfélaganna. Stjórnendur sjóðanna telja að okkar eigin peningum í lífeyrissjóð- unum sé betur varið í að kaupa í fyr- irtækjum sem fara í þrot, í kauphöllina þar sem allt er keypt hverju nafni sem það nefnist og í fjárfestingar í húsnæðisfélögum sem eru rekin með hagnaðarsjónarmiði sem síðan hefur gert það að verkum að verð á húsnæði hefur hækkað án fordæma og leiga upp úr öllu valdi. Okkar eigin peningar í líf- eyrissjóðunum éta upp þær kjarabætur sem barist er fyrir á hverjum tíma. Er þetta ekki öfugsnúið? Hver ræður för í þessari hringavitleysu? Nú þarf að snúa blaðinu við í húsnæðis- málum. Ástandið í húsnæðismálum er eitt af því sem drífur mig áfram til að bjóða mig fram í stjórn VR. VR hefur áform um að kaupa íbúðir sem eru í byggingu og leigja út á betri kjörum heldur en markaðurinn sem leikur okkur svo grátt býður upp á. Fari VR í þessa vegferð er sleginn nýr tónn á íslenskum leigumarkaði. Þeir sem verða svo heppnir að leigja íbúðir hjá VR munu strax njóta verulegrar kjarabótar. Nú er uppsveifla og hinn fjandsamlegi húsnæðismarkaður drifinn áfram af ofurhagn- aðarvonum. Ef horft er til hag- sögunnar mun að öllum lík- indum verða niðursveifla í íslensku hagkerfi innan fárra ára. Ég sé fyrir mér að VR haldi áfram næstu ár að byggja íbúðir, kaupa íbúðir og leigja þær áfram á sanngjörnum kjör- um. Fleiri verkalýðsfélög munu bætast í hópinn með svipuðum aðgerðum og áhrifin verða þau að leiguverð mun hvar- vetna fara niður þegar fram í sækir. Þá sé ég fyrir mér að verkalýðsfélögin haldi áfram byggingu íbúða og bæti í en stöðvi ekki allar framkvæmdir eins og gerist reglulega hjá byggingarverktökum. Skortur á húsnæði verður þá ekki viðvarandi eins og gerist þegar hagsveiflan fer svo aftur upp á ný. Verkalýðsfélögin eru fólkið og fólkið legg- ur til fé í sjóði verkalýðsfélaganna. Það er því eðlilegt að sá kraftur og það fjármagn sem er falið í verkalýðsfélögunum sé nýtt til þess að kjarabætur hverfi ekki sem arður til fárra aðila á ónýtum húsnæðismarkaði. Engum er betur treystandi en verkalýðs- félögunum til þess að vinna að hag félaga sinna. VR er á réttri leið og hefur tekið af skarið með nýjum áformum um húsnæðis- mál. Við eigum að taka því fagnandi þegar góðar hugmyndir líta dagsins ljós, sér- staklega þegar alvöru kjarabætur eru undir. Styðjum VR á réttri braut í húsnæðismálum Eftir Arnþór Sigurðsson » Okkar eigin peningar í líf- eyrissjóðunum éta upp þær kjarabætur sem barist er fyrir á hverjum tíma. Er þetta ekki öfugsnúið? Arnþór Sigurðsson Höfundur er frambjóðandi til stjórnar VR, en kosningu lýkur á hádegi 13. mars. addisig@simnet.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.