Morgunblaðið - 10.03.2018, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 10.03.2018, Qupperneq 39
MESSUR 39á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018 AKURINN kristið samfélag | Sam- koma í Núpalind 1, Kópavogi, kl. 14. Biblíufræðsla, söngur og bæn. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Petrína Mjöll og Sr. Þór Hauksson þjóna. Kristina Kalló Szklenár organisti. Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng. Sunnudaga- skóli á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar. Eftir guðsþjónustu er stutt- ur fundur með foreldrum ferming- arbarna vorsins 2018. Kirkjukórinn verður með kökubasar. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Kristný Rós Gústafsdóttir djákni og Dagur Fannar Magnússon guð- fræðinemi annast samverustund sunnudagaskólans. Sigurður Jónsson sóknarprestur þjónar fyrir altari. Þorgils Hlynur Þorbergsson cand. the- ol. prédikar. Kór Áskirkju syngur, organisti Bjartur Logi Guðnason. Kaffisopi eftir messu. ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11. Árni Heiðar Karlsson annast tón- listina og félagar úr kór kirkjunnar leiða söng. Prestur er Hulda Hrönn M. Helgadóttir og meðhjálpari Sig- urður Þórisson. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur. Hressing og samfélag á eftir. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga- skóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Um- sjón með stundinni hefur Sigrún Ósk Ólafsdóttir. BORGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Organisti Steinunn Árnadóttir. Prestur Páll Ágúst Ólafsson. BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudaga- skóli kl. 11 í umsjá Steinunnar Þor- bergsdóttur og Steinunnar Leifs- dóttur. Skaftfellingamessa kl. 14. Prestar Ingólfur Hartvigsson, Gísli Jónasson og Magnús Björn Björns- son. Söngfélag Skaftfellinga syngur ásamt kirkjukórum Kirkjubæjarklaust- urs- og Víkurprestakalla. Organist- arnir Brian Haroldsson, Einar Melax og Friðrik Vignir Stefánsson leika og stjórna. Kaffisala Skaftfellingafélags- ins eftir messu. Ensk bænastund kl. 15.30. Prestur Toshiki Toma, prestur innflytjenda. BÚSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Hreiðar Örn, Ragnar Bjarni, Jónas Þórir og Pálmi leiða sam- veruna. Foreldrar og afar og ömmur hvött til þátttöku með börnunum. Gospelmessa kl. 14. Gospelkórinn syngur, stjórnandi Þórdís Sævars- dóttir. Jónas Þórir við hljóðfærið. Messuþjónar aðstoða. Prestur Pálmi Matthíasson. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur Bára Friðriksdóttir. Organisti Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Félagar úr Samkór Kópavogs leiða söng. Sunnudagaskóli í kapellu á neðri hæð. Veitingar í safnaðarsal að messu lokinni. Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Messa virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 (vigilmessa). DÓMKIRKJAN | Séra Eva Björk Valdimarsdóttir prédikar kl. 11. Sunnudagaskóli á kirkjuloftinu. Dóm- kórinn og organisti er Kári Þormar. Bílastæði við alþingishúsið. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón- usta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og predikar. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Matthíasar Harðarsonar organ- ista. Meðhjálpari Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Kaffisopi og djús eftir stundina. Dýrfirðingamessa kl. 14. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjón- ar, Bjarni Guðmundsson flytur hug- vekju. Kór Dýrfirðinga leiðir messu- söng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 13. Barna- og krílakórar kirkjunnar syngja ásamt kirkjukórnum. Stjórn- andi er Kirstín Erna Blöndal. Basar Kvenfélagsins hefst að lokinni guðs- þjónustu. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón- usta kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jó- hannsson safnaðarprestur leiðir stundina. Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða tón- listina ásamt Gunnari Gunnarssyni organista. Fermingarbörn og fjöl- skyldur þeirra eru hvött til að mæta. Verið öll hjartanlega velkomin. GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upp- haf í messu. Sr. Guðmundur Guð- mundsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Petru Páls- dóttur. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organ- isti er Hákon Leifsson. Sunnudaga- skóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðar- dóttir og undirleikari er Stefán Birkis- son. GRAFARVOGUR – KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG | Selmessa kl. 13. Séra Sig- urður Grétar Helgason prédikar og þjónar. Vox Populi leiðir söng og org- anisti er Hilmar Örn Agnarsson. Sér- stakir gestir eru tónlistarfólkið Kai Robert Johansen og Anette Lyche Brautaset. GRENSÁSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli, Daníel Ágúst, Ásta og Sóley taka á móti börnunum í messunni sem hefst kl. 11 og svo fara þau í sitt starf. Í messunni þjón- ar sr. María Ágústsdóttir ásamt messuþjónum. Samskot til Hjálp- arstarfs kirkjunnar. Organisti er Ásta Haraldsdóttir og sönghópur frá Do- mus vox syngur. Kaffisopi á undan og eftir messu. Bænastund kl. 10.15. Hversdagsmessa á fimmtudag kl. 18.10-18.50. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Prestur Leifur Ragnar Jónsson, organ- isti Hrönn Helgadóttir og kvennakór Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf í umsjá Sigurðar Óskars og Hákons Darra. Kirkjuvörður Lovísa Guð- mundsdóttir og meðhjálpari Guðný Aradóttir. Kaffisopi eftir messu. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sameig- inlegt upphaf. Félagar úr Barböru- kórnum syngja, Organisti er Guð- mundur Sigurðsson. Prestur er Þór- hildur Ólafs. Leiðtogar sunnudaga- skólans eru Erla Björg og Hjördís Rós. Hressing í Ljósbroti Strand- bergs, safnaðarheimilis Hafnarfjarð- arkirkju, eftir stundirnar. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hró- bjartsson prédikar og þjónar fyrir alt- ari ásamt sr. Irmu Sjöfn Ósk- arsdóttur. Messuþjónar aðstoða. George Mason University Singers og félagar úr National Philharmonic Cho- rale syngja. Dr. Stan Engebretson stjórnar, meðleikari Jane Moore Ka- ye. Organisti er Björn Steinar Sól- bergsson. Umsjón með barnastarfi hefur Inga Harðardóttir æskulýðs- fulltrúi. Tónleikar Mótettukórsins kl. 17. Æskulýðsmessa kl. 20. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Helga Soffía Konráðsdóttir pré- dikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Þorvaldur Örn Davíðsson. Kór Há- teigskirkju syngur. Samskot dagsins renna til Blindrafélagsins. Aftan- söngur þriðjudaginn 12. mars kl. 20 í umsjá Þorvaldar Arnar, Steinars Loga, Helgu Soffíu og Kórs Háteigs- kirkju. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðs- þjónusta með kvikmyndatónlist kl. 20. Um tónlistina sjá Kór Hjallakirkju undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur og Brassband Reykjavíkur undir stjórn Jóhanns Björns Ævarssonar. Hugleið- ingar flytja Sigfús Kristjánsson, Sunna Dóra Möller og Karen Lind Ólafsdóttir. Sunnudagaskóli í safn- aðarheimili kl. 11 í umsjá Markúsar og Heiðbjartar. HREPPHÓLAKIRKJA | Messa kl. 11. Magnús Magnússon, sókn- arprestur á Hvammstanga, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sókn- arpresti. Kirkjukór Hvammstanga- kirkju syngur ásamt Kirkjukór Hruna- og Hrepphólasókna. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Samkoma kl. 11. Samkoma á spænsku kl. 13. Reuniónes en esp- añol. Samkoma á ensku kl. 14. Engl- ish speaking service. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barna- kirkja kl. 13. Vitnisburðarstund. Eftir stundina verður boðið upp á kaffi og samfélag. KEFLAVÍKURKIRKJA | Fjöl- skyldumessa kl. 11. Börn í skapandi starfi syngja. Arnór organisti spilar. Fermingarbörn lesa bænir. Súpa og brauð, frjáls framlög í bauk renna til verkefnis Hjálparstarfsins til styrktar byggingu steinhúsa fyrir munaðarlaus börn í Úganda. Æskulýðsmessa kl. 20. Sálmari leiðir tónlistina. Fermingarbörn sjá um lestra. Boðið verður upp á kaffihús. Kakó og heimabakað á 500 kr. Ágóði rennur til HK til styrktar byggingu steinhúsa fyrir munaðarlaus börn í Úganda. Prestarnir leiða messurnar. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur und- ir stjórn Lenku Mátéovu, kantors kirkjunnar. Sunnudagaskóli í safn- aðarheimilinu Borgum á sama tíma. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Gríma Katrín Ólafsdóttir og Birkir Bjarnason. LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknar- prestur þjónar og predikar. Organisti er Magnús Ragnarsson. Kór Lang- holtskirkju leiðir safnaðarsöng og tek- ur lagið fyrir kirkjugesti. Messunni verður útvarpað á Rás 1. Kirkjuvörður og messuþjónar aðstoða við helgi- haldið. Sunnudagaskóli fer fram á sama tíma. Hafdís og Hekla taka á móti börnum á öllum aldri. Kvenfélag Langholtssóknar fagnar 65 ára af- mæli með veglegum kökubasar í safnaðarheimili að messu lokinni. LAUGARNESKIRKJA | Æskulýðs- messa kl. 11. Davíð Þór Jónsson og Hjalti Jón Sverrisson leiða stundina. Skólahljómsveit Austurbæjar leikur tónlist, Magnús Atlason leikur á pí- anó og Stella Roloff á orgel. Kaffi og samvera á eftir. Helgistund kl. 13 í Betri stofunni, Hátúni 12, með Sr. Davíð Þór og Elísabetu organista. Mánudagur 12. mars. Gospelkvöld kl. 20 í félagsheimili Sjálfsbjargar, Há- túni 12. Fimmtudagur 15. mars. Kyrrðarstund kl. 12. Tónlist, hugvekja, altarisganga og fyrirbænir. Súpa á eftir. Samvera eldri borgara kl. 13.30. LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Kristín Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Þórðar Sigurðs- sonar organista. Sunnudagaskóli kl. 13 í umsjá Hreiðars Arnar og Þórðar. Barnakór Lágafellsskóla syngur undir stjórn Berglindar Björgúlfsdóttur. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Föstuguðsþjónusta Eldriborgararáðs kl. 20. Séra Dís Gylfadóttir prédikar og þjónar fyrir alt- ari ásamt Þóreyju Dögg Jónsdóttur djákna. Kór Lindakirkju leiðir almenn- an safnaðarsöng undir stjórn Óskars Einarssonar. Eftir guðsþjónustuna bjóða Eldriborgararáð og Lindasöfn- uður kirkjugestum upp á kvöldhress- ingu. Mosfellskirkja í Grímsnesi | Föstu- messa miðvikudagskvöld 14. mars kl. 20.30. Egill Hallgrímsson sóknar- prestur og Kristján Valur Ingólfsson Skálholtsbiskup annast stundina. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Fjölskyldu- guðsþjónusta og töfrabrögð kl. 14. Sr. Pétur þjónar fyrir altari og fremur einhver töfrabrögð. Messugutti er Petra Jónsdóttir. Félagar úr fjárlaga- nefnd leiða sönginn, svör og sálma, við undirleik Kristjáns Hrannars. Ólafur Karlsson tekur á móti öllum. Hlaðborð af alls kyns góðgæti á báð- um hæðum í kaffinu á eftir til styrktar Bjargarsjóði. Ekki posi á staðnum. SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Kirkjukórinn syngur, organisti Edit A. Molnár. Prestur Guðbjörg Arnardóttir. Sunnudagaskóli á sama tíma, um- sjón Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir ásamt leiðtogum. Súpa og brauð í safn- aðarheimilinu á eftir. Batamessa kl. 17. Prestur Guðbjörg Arnardóttir. Veit- ingar og kaffi í safnaðarheimilinu eftir messu. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Óli og Tómas leiða sam- veruna. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólaf- ur Jóhann leiðir stundina. Kór Selja- kirkju syngur undir stjórn Tómasar Guðna. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Björgvin Schram segir frá dvöl sinni sem barn og unglingur á Hofi í Öræfasveit. Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Kaffiveitingar og samfélag eftir at- höfn. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Egill Hallgrímsson sóknar- prestur annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. SÓLHEIMAKIRKJA | Kirkjuskóli laugardag 10. mars kl. 14. Messa sunnudag 11. mars kl. 14. Sr. Sveinn Alfreðsson. Valdís Ólöf Jónsdóttir pré- dikar. Elísa Elíasdóttir er organisti. Cell-stúdentar syngja, leika á hljóð- færi og lesa ritningarlestur. María K. Jacobsen leiðir lokabæn. Meðhjálpari er Valdís Ólöf Jónsdótttir. Kirkjuverðir eru Reynir Pétur Steinunnarson og Hanný María Haraldsdóttir. STÓRUBORGARKIRKJA Gríms- nesi | Bæna- og kyrrðarstund við kertaljós kl. 20.30. Egill Hall- grímsson sóknarprestur leiðir stund- ina. STRANDARKIRKJA | Miðfasta. Messa kl. 14. Kór Þorlákskirkju. Miklos Dalmay. Sóknarprestur. TORFASTAÐAKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 14. Egill Hallgrímsson sókn- arprestur annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Síðasta messa fyrir fermingar. Kór Vídal- ínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar og þjónar ásamt messuþjónum. Molasopi, djús og samfélag í messulok. Kyrrðarstund í hádegi hvern þriðjudag. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjuferð frí- múrara. Bjartmar Sigurðsson syngur einsöng og félagar úr Drengjakór Hamars leiða almennan söng. Prédik- un: Gísli Kr. Björnsson. Organisti: Helga Þórdís Guðmundsdóttir. Prestur: Bragi J. Ingibergsson. Sunnu- dagaskóli kl. 11. Orð dagsins: Jesús mettar fimm þúsund manna. (Jóh. 6) Morgunblaðið/Ómar Stykkishólmskirkja. Í dag stöndum við á tíma- mótum, afkomendur systkin- anna á Hverfisgötu 96, þegar við kveðjum Fríðu frænku. Fríða frænka átti stað í hjarta okkar allra fyrir margra hluta sakir. Fyrst skal nefna að hún hefur verið aldursforseti ætt- arinnar um nokkurra ára skeið og sinnt því hlutverki af alúð og festu. Hlutverki hennar má líkja við hlutverk Heimdallar í norrænni goðafræði, hún vissi allt og kunni ráð við flestu. Eins og gefur að skilja gengur mikið á í stórri fjöl- skyldu, afmæli, útskriftir, brúðkaup, fermingar, barns- fæðingar, skírnir og andlát og skipst hefur á gleði og sorg eins og gengur. Fríða frænka hefur ætíð staðið sem klettur í lífi okkar, ætíð hægt að leita til hennar með hvað sem okkur lá á hjarta. Fríða frænka hefur kennt okkur margt í gegnum tíðina, kannski ekki með orðum held- ur gjörðum. Staðfesta, réttlæt- iskennd, frændrækni og trú á eigin sannfæringu eru allt hugtök sem geta lýst þessari einstöku frænku sem við kveðjum nú. Árið 1972 þegar Björg, syst- ir Fríðu, lést gekk hún mér og fjölskyldu minni því sem næst í móðurstað, æ síðan hefur hún sýnt mér, Rósu og börnunum ástúð og athygli. Ekki hefur verið sá fjölskylduviðburður sem Fríðu frænku hefur vant- að á og ef hún átti ekki heim- angengt sendi hún kveðju sína. Lýsandi dæmi um það er að fjórum dögum fyrir andlát sitt gat hún ekki fundið hugarró fyrr en hún var fullviss um að afmæliskveðja hefði borist frá henni til Rósu. Þegar nýr fjölskyldumeð- limur bættist í hópinn var hefð fyrir því að systurnar Jóna, Ása og Fríða kæmu í heim- sókn, helst á fæðingardeildina. Þar dáðust þær að nýjum frænda eða frænku og kom fljótt í ljós hvort ungbarnið var: „hátt til hnés, með rós- arhnappaeyrun og allt í okkar ætt“. Að því sögðu gátu ný- bakaðir foreldrar andað léttar og ekki er enn vitað um tilfelli sem þetta á ekki við. Fríða frænka bjó yfir mann- kostum sem við öll myndum vilja hafa, hún var ætíð stolt af sér og sínum, sýndi náungan- um kærleika og virðingu og var ábyrgur þjóðfélagsþegn. Á kveðjustund er okkur efst í huga þakklæti. Þakklæti fyr- ir svo margt sem Fríða frænka hefur kennt okkur og skilur eftir sig. Þakklæti fyrir hversu ríka áherslu hún lagði á að stórfjölskyldan hittist og að við fengjum að fylgjast hvert með öðru. Þakklæti fyrir þær stundir sem hún tók á móti okkur í spjall yfir kaffibolla um menn og málefni líðandi stundar. Þakklæti fyrir að sýna okkur að það er í lagi að vera ekki alltaf sammála – að þín skoðun geti verið ágæt þrátt fyrir að vera ekki sú sama og mín skoðun. Rósu, Hjalta, Steinunni og fjölskyld- um sendum við okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Skarð Hólmfríður Gísladóttir ✝ HólmfríðurGísladóttir fæddist 23. júlí 1923. Hún lést 16. febrúar 2018. Hólmfríður var jarðsungin 1. mars 2018. Greinar þess- ar eru endurbirtar vegna mistaka sem urðu þegar þær birtust í blaðinu á útfarardegi. Fríðu frænku verður vandfyllt og minning hennar lifir með okkur öll- um. Gils Stefánsson, Rósa Héðins- dóttir og börn. Ástkær móður- systir mín, Hólm- fríður Gísladóttir, alltaf kölluð Fríða, lést 16. febrúar síðastliðinn og langar mig að minnast hennar í örfá- um orðum. Björg móðir mín og Fríða voru yngstar systkinanna sjö á Hverfisgötu 96 og milli þeirra systra var mikill samgangur. Eftir að móðir mín dó langt um aldur fram átti ég ávallt öruggt skjól hjá Fríðu frænku, Magnúsi eiginmanni hennar og frændsystkinum mínum, þeim Rósu, Hjalta og Steinunni í Heiðargerði 100 í Reykjavík. Dvaldi ég sem barn og ung- lingur um nokkurra ára skeið gjarnan hjá þeim um helgar og sótti ég í að fá að dvelja hjá þeim, umvafinn ást og hlýju Fríðu frænku sem hefur dekr- að við mig, eins lengi og ég man eftir mér og hugsa ég að frændsystkinum mínum í Heiðargerði hafi oft þótt nóg um dekrið við frændann úr Firðinum. Í minningunni var sandkakan hennar ómótstæði- lega, sem var í sérstöku uppá- haldi hjá mér, alltaf á borðum og hún sá til þess að að ég fengi uppáhaldsmatinn minn sem barn, bjúgu með kart- öflum og uppstúf, reglulega þegar ég dvaldi í Heiðargerð- inu. Fríða var einstaklega gjaf- mild kona og styrkti hún m.a. nunnurnar í Karmelklaustri í Hafnarfirði reglulega með matar- og peningagjöfum og keypti af þeim ýmsa muni til margra ára. Hugsa ég að hún hafi fundið bæði gleði og ham- ingju í gjafmildi sinni til svo margra í kringum sig og þar var ég alls ekki undanskilinn og nutum við fjölskylda mín gjafmildi hennar ríkulega. Fríðu var mjög umhugað um ættmenni sín enda ætt- rækni henni í blóð borin og fylgdist hún vel með ættingj- um sínum í leik og starfi. Hún hafði iðulega nóg að gera við að mæta á hina ýmsu viðburði hjá stórfjölskyldunni, s.s. skírnir, fermingar og gifting- ar. Hún var stálminnug fram á síðasta dag bæði á menn og málefni og nöfn á öllum börn- um og barnabörnum frænd- fólks síns virtist hún muna án fyrirhafnar. Hún var tónelsk, spilaði á píanó og hafði gaman af góðum tónlistarflutningi. Þrátt fyrir hrakandi heilsu nú síðari ár bjó hún ein í Fannafoldinni og sá um sig sjálf með aðstoð barna sinna. Hún var ótrúlega dugleg í ýmsu félagslífi, bæði hjá kirkj- unni sinni í Grafarvogi og hjá Blindrafélaginu þar sem hún mætti reglulega síðustu miss- erin eftir að sjón hennar fór að hraka. Hún hafði reyndar á orði að verst þætti sér að geta ekki keyrt lengur en hún keyrði þó framundir nírætt sem mörgum þætti nú eflaust ágætt. Ég vil að lokum senda frændsystkinum mínum, þeim Rósu, Hjalta og Steinunni og fjölskyldum þeirra mínar inni- legustu samúðarkveðjur og bið Guð að styrkja þau í sorg sinni. Blessuð sé minning Hólm- fríðar Gísladóttur. Árni og fjölskylda. Minningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.