Morgunblaðið - 10.03.2018, Page 48

Morgunblaðið - 10.03.2018, Page 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018 Ákall er yfirskrift föstutónleika Mótettukórs Hallgrímskirkju sem fram fara á morgun, sunnudag, kl. 17. Samkvæmt upplýsingum frá kórnum er efnisskráin samansett af áhrifaríkum trúarlegum kór- verkum sem fjalla um missi, sorg, bæn og huggun í skugga krossins á árstíma píslarsögu Krists og Passíusálma Hallgríms Péturs- sonar. „Stærsta tónverkið, When David heard eftir Eric Whitacre, er tón- setning á sorgarákalli Davíðs kon- ungs (2. Samúelsbók), þegar hann frétti af aftöku sonar síns Absal- oms og vék afsíðis og hrópaði nafn sonar síns í sífellu. Inn á milli þekktra kórverka eftir erlend tón- skáld eldri og yngri, þá Henry Purcell, William Byrd, Pablo Ca- sals, Morten Lauridsen og Tave- ner, hljóma sálmar Hallgríms með tónlist eftir íslenska höfunda, bæði útsetningum eldri laga og frum- saminni tónlist eftir Jón Leifs, Jón Nordal og Sigurð Sævarsson. Á tónleikunum frumflytur kórinn mótettu sem Halldór Hauksson samdi við andlátsbæn Hallgríms Péturssonar. Stjórnandi kórsins er Hörður Áskelsson.“ Miðasala er á midi.is og við inn- ganginn. Almennt miðaverð er 3.500 kr. en 1.700 kr. fyrir aldr- aðra, nemendur og öryrkja. Morgunblaðið/Árni Sæberg Metnaður Mótettukór Hallgrímskirkju syngur á föstutónleikum á morgun. Kórverk um missi, sorg, bæn og huggun Sumarbörn, fyrsta kvikmynd Guð- rúnar Ragnarsdóttur í fullri lengd, vann INIS-verðlaunin á FIFEM – alþjóðlegu barnakvikmyndahátíð- inni í Montreal í Kanada. Þetta eru fyrstu alþjóðlegu verðlaun mynd- arinnar. Sumarbörn unnu nýverið til Edduverðlauna fyrir besta barna- og unglingaefni ársins. „Myndin var frumsýnd hérlendis í Bíó Paradís í október síðastliðnum og frumsýnd erlendis í nóvember á hinni virtu Tallinn Black Nights- kvikmyndahátíð í Eistlandi. Þar hlaut hún góðar viðtökur,“ segir í tilkynningu. Í byrjun árs var mynd- in sýnd á Scandinavian Film Festi- val LA í Bandaríkjunum og tekur nú þátt á Kosmorama – alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Þrándheimi í Noregi. Næst á dagskrá er þátttaka á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Titanic í Búdapest í Ungverjalandi í apríl. Í byrjun maí verður myndin frumsýnd í norskum kvikmynda- húsum og síðar í maí mun hún ferðast til Zlín-kvikmyndahátíð- arinnar í Tékklandi, hátíðar fyrir börn og unglinga. Sumarbörn vann INIS-verðlaunin Sumardvöl Sumarbörn segir frá systk- inunum Eydísi og Kára, sem send eru til sumardvalar á afskekkt barnaheimili. Ljósmyndasmiðja þar sem unnið er með sjálfsmyndir og ímyndir verður haldin í tengslum við sýn- inguna Líkamleika í Gerðarsafni í dag milli kl. 13 og 15. „Í smiðjunni verður skoðað á hvaða hátt sjálfsmyndir eða sjálf- ur (e. selfies) eru notaðar til þess að varpa ljósi á félagslegt um- hverfi okkar, stöðu í samfélaginu og hvernig við skilgreinum okkur eftir þjóðerni. Unnið verður með sjálfur á mismunandi hátt og gefst þátttakendum meðal annars tæki- færi á að taka sjálfsmynd í ljós- myndastúdíói sem sett verður upp á neðri hæð safnsins. Smiðjan verður óháð tungumáli og er ætl- uð allri fjölskyldunni. Leiðbein- endur tala íslensku, arabísku, frönsku, ensku og þýsku,“ segir í tilkynningu. Sjálfsmyndir og ímyndir í Gerðarsafni Á uppboðsvef Gallerís Foldar, uppbod.is, stend- ur nú yfir upp- boð á málverkum eftir Sigurð Sig- urðsson mynd- listarmann (1916-1996). Boðnir eru upp tæplega tveir tugir málverka, landslagsmynda, abstraktverka og portretta; öll eru ómerkt en stað- fest af dánarbúinu. Sigurður var úr Skagafirði og varð áhrifamikill kennari og myndlistarmaður og auk þess vinsæll portrettmálari. Uppboðinu lýkur 15. mars. Bjóða upp mörg verk eftir Sigurð Hluti af einu verk- anna á uppboðinu. Hin viðamikla listkaupstefna The Armory Show hófst í New York á fimmtudag og stendur yfir nú um helgina. Eins og mörg undan- farin ár er i8 gallerí með sýn- ingarsvæði á kaupstefnunni og hefur sett upp úr- val verka nokkurra listamanna sem galleríið vinnur með, verk eftir þau Birgi Andrésson, Ólaf Elíasson, Callum Innes, Ragnar Kjartansson, Alicja Kwade og Rögnu Róberts- dóttur. i8 tekur þátt í The Armory Show Birgir Andrésson The Florida Project Morgunblaðið bbbmn Metacritic 92/100 IMDb 7,7/10 Bíó Paradís 18.00 The Nothing Factory Bíó Paradís 16.00 Pure Hearts Bíó Paradís 23.15 Women of Mafia Bíó Paradís 20.00 Asphyxia Bíó Paradís 16.00 Loveless Morgunblaðið bbbbm Bíó Paradís 18.00 Spoor Bíó Paradís 20.00 Redoubtable Bíó Paradís 19.15 A Gentle Creature Metacritic 82/100 IMDb 7,0/10 Bíó Paradís 22.45 The Workshop Bíó Paradís 21.15 Andið eðlilega IMDb 7,3/10 Laugarásbíó 17.45, 22.15 Smárabíó 14.00, 16.30, 17.40, 20.00, 22.30 Háskólabíó 15.30, 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 18.00, 20.00 Fullir vasar 12 Morgunblaðið bmnnn Laugarásbíó 22.15 Smárabíó 17.10, 20.00, 22.30 Borgarbíó Akureyri 18.00 The Post 12 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 83/100 IMDb 7,5/10 Sambíóin Kringlunni 16.40 Fifty Shades Freed 16 Metacritic 32/100 IMDb 4,3/10 Laugarásbíó 20.00 Status Update Sambíóin Álfabakka 15.20, 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 13.00, 15.20, 17.40, 20.00 Sambíóin Akureyri 17.40, 20.00 Sambíóin Keflavík 17.45, 20.00 Darkest Hour Morgunblaðið bbbmn Metacritic 75/100 IMDb 7,4/10 Sambíóin Álfabakka 17.00, 19.40 Semiramide Sambíóin Kringlunni 17.55 Death Wish 16 Metacritic 31/100 IMDb 6,1/10 Laugarásbíó 17.40, 20.00, 22.20 Smárabíó 19.00, 19.50, 21.30, 22.20 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.00 The Shape of Water 16 Morgunblaðið bbbnn Metacritic 86/100 IMDb 7,8/10 Sambíóin Álfabakka 17.00, 19.40, 22.20 Háskólabíó 18.00, 20.50 Three Billboards Outside Ebbing, Missouri 16 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 88/100 IMDb 8,4/10 Háskólabíó 20.30 Bíó Paradís 22.30 Svanurinn 12 Morgunblaðið bbbmn IMDb 7,0/10 Háskólabíó 15.50 The Greatest Showman 12 Metacritic 68/100 IMDb 6,4/10 Háskólabíó 18.10 Jumanji: Welcome to the Jungle 12 Metacritic 58/100 IMDb 7,0/10 Smárabíó 15.00 Steinaldarmaðurinn Metacritic 48/100 IMDb 8,0/10 Laugarásbíó 13.45, 15.45 Sambíóin Keflavík 14.00 Smárabíó 12.50, 15.10, 17.30 Háskólabíó 15.30 Lói – þú flýgur aldrei einn Morgunblaðið bbbbn Laugarásbíó 13.50, 15.55 Smárabíó 13.00, 15.20, 17.30 Háskólabíó 15.40 Sambíóin Keflavík 14.00, 15.50 Bling Sambíóin Álfabakka 12.50, 13.30, 15.40 Sambíóin Egilshöll 13.00, 15.00 Sambíóin Kringlunni 14.00 Sambíóin Akureyri 14.50 Ævintýri í Undirdjúpum IMDb 4,0/10 Sambíóin Álfabakka 13.00, 15.00 Sambíóin Egilshöll 13.00 Paddington 2 Metacritic 89/100 IMDb 8,1/10 Laugarásbíó 14.00, 17.00 Smárabíó 14.50 Coco Metacritic 81/100 IMDb 8,7/10 Sambíóin Álfabakka 13.00, 14.45 Sambíóin Kringlunni 14.00 Sambíóin Akureyri 15.20 T’Challa, nýr konungur í Wakanda, þarf að vernda land sitt frá óvinum bæði erlendum sem innlendum. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 87/100 IMDb 7,1/10 Sambíóin Álfabakka 14.30, 17.30, 20.30, 22.20 Sambíóin Egilshöll 14.00, 15.00, 17.00, 18.00, 20.00, 21.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 16.40, 19.30, 22.20 Sambíóin Akureyri 16.40, 19.30, 22.20 Sambíóin Keflavík 16.20, 19.30 Black Panther 12 Red Sparrow 16 Dominika Egorova er elskuleg dóttir sem er staðráðin í að vernda móður sína, sama hvað það kostar. Metacritic 56/100 IMDb 5,4/10 Laugarásbíó 19.50, 22.40 Sambíóin Kringlunni 19.10, 22.20 Sambíóin Keflavík 22.20 Smárabíó 19.30, 22.20 Háskólabíó 17.50 Borgarbíó Akureyri 22.00 Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio Game Night 12 Vinahjón sem hittast vikulega og spila leiki fá um nóg að hugsa þegar nýr morðleikur er kynntur fyrir þeim. Metacritic 70/100 IMDb 7,5/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 22.00 Sambíóin Akureyri 22.20 Sambíóin Keflavík 22.20 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.