Morgunblaðið - 10.03.2018, Side 49
Sól Hluti af innsetningu listakon-
unnar Rebeccu Erin Moran.
Bandaríska listakonan Rebecca Erin
Moran sýnir innsetninguna „Blue-
print for a sunday afternoon“ í 002
Galleríi um helgina og er sýningin
opin frá sólarupprás til sólarlags,
nánar tiltekið frá kl. 8.00 til 19.16 í
dag og frá kl. 7.57 til 19.19 á morgun.
Í verkinu notar Moran veggfóður
með sólarljósnæmri blöndu sem skrá-
ir hreyfingu sólarinnar yfir vetrar-
sjóndeildarhringinn.
Sýningin er sú fjórða og síðasta á
Ljóslistahátíð 002 Gallerís, en þetta
sérstaka gallerí hefur verið til húsa á
heimili Birgis Sigurðssonar, mynd-
listarmanns og rafvirkja, í íbúð 002 á
Þúfubarði 17 í Hafnarfirði. Galleríið
var stofnað 2010 og í þessi átta ár
hefur það verið vettvangur yfir 30
sýninga með þátttöku meira en 100
listamanna. „Sýningarnar spanna
flest svið íslenskrar samtímalistar en
síðasta viðbótin er yfirstandandi
Ljóslistahátíð sem lýkur með sýningu
Moran. Þetta er jafnframt síðasta
sýning gallerísins á Þúfubarði 17. Í
staðinn mun 002 Gallerí breytast í
viðburðagallerí með engan fastan
sýningarstað. Galleríð mun fram-
vegis sérhæfa sig í ljósverkum ís-
lenskra samtímalistamanna,“ segir í
tilkynningu.
„Ég hvet alla vini og velunnara
galleríins til að koma og kveðja sýn-
ingarrýmið á Þúfubarði 17 um
helgina. Þetta er búið að vera alveg
frábært ferðalag og margir hafa lagt
hönd á plóginn. Ég vil hvetja alla til
að koma og kveðja með mér það
gamla og fagna nýjum farvegi gall-
eríisins,“ skrifar Birgir.
Rebecca Erin Moran lauk BA-námi
frá Art Institute í Chicago en býr nú
og starfar í Reykjavík. „Verk hennar
sveima umhverfis skynjun okkar á
ytri veruleika, efninu, tímanum. Þau
skoða og prófa spurningar sem við
setjum fram varðandi veruleikann og
hvernig þessar spurningar hafa áhrif
á samskipti okkar í daglegu lífi.“
Síðasta sýningin
í 002 Galleríi
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018
Marina er þjónn og syng-ur á skemmtistað.Hún er líka transkonaog á í sambandi við
Orlando, sem er talsvert eldri en
hún. Samband þeirra virðist ein-
kennast af ást, innileika og gagn-
kvæmri virðingu. Hann fær slag-
æðagúlp og Marinu tekst ekki að
koma honum á sjúkrahús í tæka
tíð til að bjarga lífi hans.
Dauði Orlandos setur líf Marinu
á annan endann. Hún á sínar vinj-
ar í lífinu, en utan þeirra mætir
hún andúð, grimmd, fjandskap og
fordómum.
Fjölskylda Orlandos hefur
greinilega átt erfitt með að sætta
sig við að hann væri kominn í tygi
við transkonu og Marina lendir í
rimmu við son hans og fyrrverandi
eiginkonu, sem líkir lífi manns síns
með henni við sápuóperu. Nú eigi
fjölskyldan skilið að hún láti sig
hverfa.
Á leiðinni á sjúkrahúsið fellur
Orlando niður stiga og sárin, sem
hann hlaut í fallinu, gera dauða
hans tortryggilegan. Athygli lög-
reglu beinist að Marinu og er hún
ítrekað niðurlægð, ekki síst af lög-
reglufulltrúa, sem lýsir ítrekað yfir
fordómaleysi sínu.
Niðurlægingin af hálfu yfirvalda
virðist ekki beinlínis stafa af fjand-
skap, heldur af því að fulltrúar
valdsins átti sig ekki á hvernig eigi
að umgangast hana. Í einu atriði
myndarinnar biður lögregluþjónn
hana um skilríki. Þar er Marina
skráð með nafninu Daniel og lög-
reglan kýs að ávarpa hana þannig,
ekki með nafninu, sem hún notar.
Daniela Vega (Danielsnafnið á skil-
ríkjunum mun ekki vera vísun í
nafn hennar) leikur Marinu. Hún
er transkona og hefur talað um
það í viðtali að í Chile sé ekki
hlaupið að því að fá formlega leið-
réttingu á kyni og nýtt nafn. Til
þess þurfi að fara fyrir dómstóla.
Hún gæti farið þá leið, en neitar
að gera það og segir að þar með
væri hún að gefa pólitískri kúgun
stimpil velþóknunar.
Vega leikur Marinu af miklu ör-
yggi og sannfæringu. Hún ber
myndina uppi með bravúr og á
skilið það mikla hrós, sem gagn-
rýnendur víða um heim hafa hlaðið
hana. Hún á ekki lítinn þátt í því
að Stórkostleg kona fékk Óskars-
verðlaun fyrir tæpri viku sem
besta erlenda myndin.
Þegar Vega var spurð að því um
miðjan febrúar hvaða möguleika
hún teldi að transdrama um trans-
konu ætti á að fá Óskarinn sagði
hún að heimurinn væri tilbúinn, en
ekki bandaríska kvikmyndaaka-
demían. Það var öðru nær.
Vega hefur sagt frá því að í
æsku þegar hún var að átta sig á
hver hún væri hefði hún sætt of-
beldi og einelti í skóla, sér hefði
verið hrint niður stiga og skóla-
félagar hefðu pissað á hana á kló-
settum. Hún hefði hins vegar notið
stuðnings fjölskyldunnar.
Við fáum hins vegar ekkert að
vita um forsögu Marinu í myndinni
og er það með vilja gert. Hún bara
er rétt eins og annað fólk.
Sama hvað á gengur, alltaf er
Marina yfirveguð og blátt áfram
og tekur mótlætinu með stóískri
ró. Í hegðun hennar er engin ögr-
un, hún ögrar einfaldlega umhverf-
inu með tilveru sinni.
Vega segir að hún sé ekki fyrir-
myndin að Marinu, þótt hún hafi
lagt ýmislegt úr sínum reynslu-
heimi til málanna. Áhorfandinn
fær til dæmis að vita að ekki er við
hæfi að spyrja transfólk hvort leið-
réttingunni sé lokið og það sé búið
að fara í „aðgerðina“.
Frásögnin í Stórkostleg kona er
að mestu leyti hrein og bein. Af og
til birtist þó Orlando sjónum Mar-
inu og minnir á sig. Hann getur þó
lítið gert til að vernda hana þegar
fjölskylda hans byrjar að vega að
henni með ýmsum hætti. Í tveimur
atriðum brýst síðan fram suður-
amerískt töfraraunsæi, sem brýtur
myndina upp. Í öðru þeirra er
Marina á götu úti á gangi þegar
magnast upp slíkur vindur að hún
kemst vart úr sporunum þótt hún
halli sér upp í hann. Í öðru fær
hún skyndilega glimmervængi inni
á skemmtistað og hefur sig til
flugs upp úr andstreyminu og
sorginni.
Stórkostleg kona er um margt
mögnuð mynd. Í henni er með
beittum hætti fjallað um það hvað
samfélagið getur átt erfitt með að
höndla það sem er öðruvísi og
hvað það getur kallað fram ógeð-
felldar hliðar á fólki. Í raun má
segja að hún dragi fram hvað það
er fáránlegt þegar samfélag getur
ekki einfaldlega stutt fólk til að
fara sína leið til að finna hamingj-
una þótt hún sé ekki sú fjölfarn-
asta í vegahandbókinni. Myndin er
þó enginn harmagrátur og í loka-
atriðinu stígur Marina fram í nýju
hlutverki og kemur áhorfandanum
enn á óvart.
Stórleikur Leikkonan Daniela Vega hefur ekki mikla reynslu af leik á hvíta tjaldinu, en hún ber chilesku Ósk-
arsverðlaunamyndina Stórkostleg kona, sem nú er sýnd í Bíó Paradís, uppi með tilþrifum.
Kvikmyndahátíðin Stockfish -
Bíó Paradís
Stórkostleg kona (Una Mujer
Fantástica) bbbbn
Leikstjóri: Sebastián Lelio. Leikarar:
Daniela Vega, Francisco Reyes, Luis
Gnecco, Aline Küppenheim, Nicolás
Saavedra, Amparo Noguera og Trinidad
González. Chile, Þýskaland, Spánn og
Bandaríkin. Spænska, 104 mín.
KARL BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Þegar tilveran ein er ögrun
Söngvaskáldið
Svavar Knútur
heldur tónleika í
Hannesarholti í
dag, laugardag,
kl. 14. Í klukku-
stundarlangri
dagskrá hyggst
hann flytja sí-
gildar söng-
perlur eftir höf-
unda á borð við Sigfús Halldórsson,
Jón Nordal, Pál Ísólfsson og Sig-
valda Kaldalóns við ljóð eftir Tóm-
as Guðmundsson, Davíð Stefánsson,
Halldór Laxness og Jónas Hall-
grímsson. Með einungis gítarinn og
ukuleleið meðferðis flytur Svavar
Knútur perlur úr fjársjóðskistu
þjóðarinnar. Almennt miðaverð er
3.000 kr. en frítt fyrir börn í fylgd
með fullorðnum, auk þess sem líf-
eyrisþegar og námsmenn fá afslátt.
Svavar Knútur í
Hannesarholti
Svavar Knútur
Sýning á innsetn-
ingu Ráðhildar
Ingadóttur, Ulti-
mate, Relative,
lýkur í aðalsal
Hafnarborgar nú
um helgina. Af
því tilefni mun
Ágústa Kristó-
fersdóttir, for-
stöðumaður
Hafnarborgar,
veita leiðsögn um sýninguna kl. 14
á sunnudag. Aðgangur er ókeypis
og allir velkomnir.
Með sýningunni dregur Ráðhild-
ur upp svipmyndir af eigin heimi
með upptökuvél, þar sem hún sækir
í eigin reynslu og dregur fram
minningar. Áhorfandinn greinir
líka einstakling sem rennir augum
sínum yfir fjölda upplifana.
Leiðsögn um sýn-
ingu Ráðhildar
Frá sýningu Ráð-
hildar Ingadóttur.
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3
ICQC 2018-20