Morgunblaðið - 19.03.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 19.03.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Vegakerfið er hrunið og stjórn- málamenn bera ábyrgð á því hvernig komið er. Það er vel skiljanlegt að ekki hafi verið svigrúm til að verja miklum fjár- munum til viðhalds vega fyrstu árin eftir hrun, en að hlutirnir hafi verið látnir reka á reiðanum í tíu ár er alvarlegt og verður okkur dýrkeypt,“ segir Sigþór Sigurðsson, forstjóri Hlaðbæjar Colas hf. Vegir koma illa undan vetri og það segir Sigþór renna sér til rifja. Vegir sem starfsmenn fyrir- tækis hans lögðu fyrir tíu til fimmtán árum séu í dag í mörg- um tilvikum holóttir, sprungnir og illa farnir og þar sé ekki neinu öðru um að kenna en viðhalds- leysi. Uppsöfnuð viðhaldsþörf 30 milljarðar króna Eftir hrun bankakerfis var viðhald á gatna- og þjóðvegakerf- inu skorið mikið niður og er enn ekki komið í fyrri hæðir. Sér- fræðingar telja, að sögn Sigþórs, að vantað hafi 2-3 milljarða króna ár hvert í viðhald og rekstur þjóðvega öll árin 2009-2017 og ef nú eigi að bæta tíunda árinu við muni uppsöfnuð þörf vera um 30 milljarðar króna. Þetta sé ein- göngu eðlilegt lágmarksviðhald og þá sé engu bætt við, til dæmis vegna stóraukinnar umferðar eða krafna um aukið öryggi. Vegir á Kjalarnesi, í Borgar- firði, Langadal í Austur- Húnavatnssýslu, Njarðvíkur- skriðum við Borgarfjörð eystri og í uppsveitum Árnessýslu eru nokkrir þeirra sem hafa verið til umfjöllunar hér í Morgunblaðinu að undanförnu vegna slæms ástands þeirra. Á höfuðborgar- svæðinu eru miklar skemmdir á malbiki svo að koma í ljós eftir veturinn sem var umhleypinga- samur. Þessu á að bregðast við eftir föngum bæði af sveitar- félögunum og Vegagerðinni sem ver liðlega átta milljörðum króna til viðhalds vega í ár. Mest fer í endurnýjun slitlags eða 3,7 millj- arðar króna. Krónu kastað fyrir aur „Vegagerðin þyrfti að setja tveimur til þremur milljörðum króna meira í ár í viðhalds- framkvæmdir svo einhver við- spyrna næðist. Ég hef í áraraðir rekið fyrirtæki sem sinnir mal- bikun og finnst sorglegt að sjá hvernig málum er komið. Krón- unni hefur verið kastað fyrir aur- inn og umhugsunarvert er að frá 2013 hafa ríkisútgjöld aukist um 40% á meðan vegamálin hafa al- veg setið á hakanum,“ segir Sig- þór. Bætir við að nú sé einmitt lag að fara í öflugt átak í vega- gerð enda séu stóru jarðvinnufyr- irtækin ekki í neinum stórum verkefnum sem stendur og vanti verkefni. Dýrafjarðargöng og þverun Berufjarðar séu stærstu verkefnin um þessar mundir og ekkert stórt í augsýn. „Það hafa allir skilning á því að ástandið sé alvarlegt en samt þokast mál ekki áfram. Því er mjög dapurlegt að heyra að hugs- anlega verði eitthvað skorið af þessum átta milljörðum króna sem áttu að fara í viðhalds- framkvæmdir í ár. Það er ávísun á enn meiri vanda sem vex þá áfram. Neyðarviðgerðir á mal- biksholum sem gengi frá okkur sem er á sólarhringsvakt sinnir hefur hins vegar sífellt meira að gera,“ segir Sigþór sem telur að horfa þurfi heildstætt á vandann sem nú er uppi í vegamálum. Klárt sé að eldneytisgjöld og aðr- ir markaðir tekjustofnar standi ekki undir þeim nauðsynlegu framkvæmdum sem fara þurfi í, bæði vegna fyrirsjáanlegs um- fangs þeirra, auk heldur sem bíl- um sem nota aðra eldsneytisgjafa en jarðefni fjölgi sífellt. Við því þurfi að bregðast með breyt- ingum á gjaldtöku. Nýjar leiðir í fjármögnun verði ræddar „Jón Gunnarsson, fyrrver- andi samgönguráðherra, var á sínum tíma kominn ágætlega af stað með skoðun á því hvort veg- tollar eða aðrar nýjar leiðir til að fjármagna vegaframkvæmdir gengju upp. Þeirri vinnu þarf að halda áfram, því með núverandi fjármögnun komumst við ekki lengra. Það er líka ljóst að fyrir 330 þúsund manna þjóð verður alltaf dýrt að halda úti vegakerfi í landi sem er 100 þúsund ferkíló- metrar. Því hefur stundum verið freistast til þess að nota ódýrari efni og aðferðir við vegagerðina en ella væri og það gengur alveg upp ef vegirnir fá þetta nauðsyn- lega viðhald. Það hefur hins veg- ar verið trassað og dýrkeyptar afleiðingarnar blasa nú við,“ seg- ir Sigþór. Verktaki segir viðhald vega hafa verið látið reka á reiðanum og átaks sé þörf Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hola „Dýrkeyptar afleiðingarnar blasa nú við,“ segir Sigþór Sigurðsson. Sorglegt ástand vega  Sigþór Sigurðsson er fædd- ur árið 1967. Hann er vélaverk- fræðingur frá Háskóla Íslands og hefur frá árinu 2002 verið framkvæmdastjóri Hlaðbæjar Colas. Það er dótturfyrirtæki Colas Denmark sem aftur er hluti af Colas Frakklandi sem er með höfuðstöðvar sínar þar í landi en starfar á heimsvísu. Hver er hann? Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Öryggi sjúkraflutninga verður áfram tryggt á meðan unnið er að því að koma skipulagi á þau mál. Þá verði unnið eftir þeirri forsendu að rekst- urinn verði að öllu leyti á hendi op- inberra aðila. Þetta kemur fram í tilkynningu sem velferðarráðuneytið sendi frá sér um helgina í kjölfar ákvörðunar Rauða krossins á Íslandi um að slíta samstarfi við ríkið um rekstur sjúkra- bíla. Í tilkynningunni segir ennfrem- ur að ágreiningur hafi verið milli Rauða krossins og ráðuneytisins um rekstur sjúkrabílanna og eignarhald á þeim. Ríkið hefur hingað til staðið straum af kaupum flestra nýrra sjúkrabifreiða, en eignarhaldið hefur verið Rauða krossins. Stefán Pétursson, formaður Lands- sambands slökkviliðs- og sjúkraflutn- ingamanna, segir kosti þess að flytja rekstur sjúkraflutningsbíla talsvert fleiri en gallana. „Þetta gerir vinnu- umhverfið skilvirkara, einfaldar rekstrarumhverfið og fækkar kjara- samningum,“ segir Stefán sem vonar að málið leysist sem allra fyrst. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra telur að sjúkraflutningar eigi að vera í höndum ríkisins, en mik- ilvægt sé þó að vel sé vandað til skiln- aðarins enda hafi Rauði krossinn séð nær alfarið um þjónustu við sjúkra- bíla frá árinu 1924. „Rauði krossinn hefur fullvissað ráðuneytið um að hann muni annast rekstur sjúkrabíl- anna meðan þess sé þörf, eða þar til ráðuneytið hefur fundið verkefninu farveg til framtíðar. Ráðuneytið mun hraða vinnu eins og kostur er til að ljúka málinu farsællega,“ segir Svan- dís og bætir við að sjúkraflutningar séu mikilvægur hluti af öflugu heil- brigðiskerfi. Ríkið muni sjá um reksturinn  Öryggi sjúkraflutninga verður áfram tryggt  Unnið að varanlegri lausn Morgunblaðið/Eggert Sjúkraflutningur Ríkið mun að öllum líkindum sjá um reksturinn. Isavia hefur beint því til fólks sem hyggst leggja land undir fót um páskana og ferðast til og frá Keflavík á eigin bíl að bóka bílastæði við flugstöðina fyrir- fram. Er það gert til að forð- ast það að fólk fái ekki stæði fyrir bíla sína þegar á staðinn er komið. Í fyrra fylltust stæðin við Leifsstöð og olli það fólki töluverðum óþæg- indum. Nýtt bókunarkerfi gerir fólki kleift að panta stæði í tíma og forpöntun fylgja einnig betri kjör á þjónustunni. Hvetja fólk til að bóka bílastæði Flug Komast þarf fyrst til Keflavíkur. Um 341 milljón króna hefur verið út- hlutað úr Húsafriðunarsjóði fyrir ár- ið 2018, en alls voru veittir 215 styrkir. 252 aðilar sóttu um styrki. Um 77 milljónum króna verður varið í verkefni tengd friðlýstum kirkjum, en hæsta styrkinn fékk Skálholtsdómkirkja, níu milljónir króna. Einnig fékk styrk Stóra- Núpskirkja. Styrkir vegna friðlýstra húsa og mannvirkja námu um 74 milljónum króna, en hæstan styrk fékk Faktt- orshúsið á Djúpavogi, tíu milljónir króna. Einnig fengu styrki gamli bærinn í Múlakoti, fimm milljónir króna. Kópavogshælið og Hljóm- skálinn í Reykjavík eru einnig meðal verkefna sem fengu styrk. Styrkt var um 133 milljónir króna í flokki friðaðra húsa og mannvirkja, en meðal verkefna sem styrkt verða eru Sigguhús í Hafnarfirði, og Út- skálahús í Garði. Í flokki annarra húsa og mann- virkja voru veittir styrkir fyrir um 22 milljónir króna samtals og í flokki húsakannana voru veittir styrkir fyrir 5,2 milljónir króna. Rannsóknir voru styrktar um rúmar fjórar millj- ónir króna og styrkir til verndar- svæða innan byggða voru 22 millj- ónir króna. meðal verkefna í þeim flokki er Gamli bærinn í Grindavík og Gamli bærinn á Skutulsfjarðar- eyri á Ísafirði. Styrkt fyrir 340 milljónir króna  Úthlutað úr Húsafriðunarsjóði Skálholt Skálholtsdómkirkja er eitt þeirra húsa sem gert verður að. Húsafriðunarsjóður » Alls voru veittir styrkir fyrir um 341 milljón króna úr Húsa- friðunarsjóði. » 215 styrkir voru veittir, en 252 sóttust eftir fjárveitingu úr sjóðnum. » Flest verkefni sem styrkt voru eru tengd viðhaldi og við- gerðum, einkum á gluggum. » Friðlýstar kirkjur voru styrktar um tæpar 78 milljónir króna. Guðjón Arnar Krist- jánsson, fyrrverandi al- þingismaður Frjáls- lynda flokksins, er látinn eftir baráttu við krabbamein, á 74. ald- ursári. Guðjón fæddist á Ísafirði hinn 5. júlí 1944. Foreldrar hans voru Kristján Sig- mundur Guðjónsson smiður og Jóhanna Jakobsdóttir húsmóðir. Hann lauk fiskimanna- prófi frá Stýrimanna- skólanum í Reykjavík árið 1966 og starfaði sem skipstjóri frá 1967 til 1997. Þá gegndi hann ýmsum félags- og stjórnunarstörfum, m.a. sem for- maður Skipstjóra- og stýrimanna- félagsins Bylgjunnar frá 1975 til 1984 og forseti Farmanna- og fiski- mannasambands Íslands frá 1983 til 1999. Guðjón var alþingismaður Vest- firðinga frá 1999 til 2003 og alþingismaður Norðvesturkjördæmis frá 2003 til 2009 fyrir Frjálslynda flokkinn. Þá var hann formaður þingflokks Frjálslynda flokksins frá 1999 til 2004. Guðjón átti sæti í sjávarútvegsnefnd 1999-2003, allsherjar- nefnd 2001-2003, kjör- bréfanefnd 2003-2007, samgöngunefnd 2003- 2009, sérnefnd um stjórnarskrármál 2004-2005, fjárlaganefnd 2006-2009 og sérnefnd um stjórnarskrármál 2009. Þá átti hann sæti í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2007-2009. Guðjón lætur eftir sig eiginkon- una Maríönnu Barböru Kristjánsson og sjö uppkomin börn, þau Guðrúnu Ástu, Ingibjörgu Guðrúnu, Kristján Andra, Kolbein Má, Arnar Berg, Margréti Maríu og Júrek Brján. Andlát Guðjón Arnar Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.