Morgunblaðið - 19.03.2018, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 19.03.2018, Qupperneq 13
DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2018 Tækni Þorsteinn sækir raförvun á Grensási hjá Vilborgu Guðmundsdóttur sjúkraþjálfara þrisvar í viku. Það skýrist væntanlega í maí hvort flókin aðgerð og raförvun skili þeim árangri að Steini fái mátt í höndina að einhverju leyti. kvæm því í henni eru hvorki hár- sekkir né fitukirtlar,“ segir Steini og bætir við að hann hafi strax tek- ið ákvörðun um að hjóla aftur ef löngunin yrði til staðar þegar hann væri orðin hjólfær á ný og engin hræðsla fyrir hendi. Steini byrjaði að hjóla aftur og í fimm ár gekk allt eins og í sögu. „Ég fór með nokkrum starfs- mönnum Orkuveitunnar í mótor- hjólaferð vestur á firði í júní 2017. Allt gekk vel en á leiðinni úr Drangsnesinu og inn á Bjarnar- fjörðinn keyrði ég niður brekku og náði ekki beygju sem ég ætlaði að taka. Ég lenti í lausamöl og flaug víst út af veginum er mér sagt. Lendingin var harkaleg, ég skall niður á bakið með hjólið í fanginu.“ Við höggið brotnuðu allir háls- liðir og nokkur rifbein að sögn Steina sem man ekkert eftir sér frá því að hann flaug út af veginum og þar til hann var settur um borð í þyrlu á Hólmavík. „Ég man eftir ógnarkraftinum og titringnum í þyrlunni þegar við lögðum af stað og síðan ekki meir fyrr en á Landspítalanum í Foss- vogi þegar verið var að trilla mér þar inn. Þar var við störf mótor- hjólavinkona mín og ég man augna- blikið þegar hún kyssti mig á kinn- ina um leið og mér var keyrt inn í lyftu og svo man ég ekki meira næstu vikurnar,“ segir Steini sem var á gjörgæslu í átta daga og á Landspítalanum og Heilbrigðis- stofnun Suðurlands á Selfossi næstu fimm vikur. „Þegar ég var útskrifaður af sjúkrahúsinu á Selfossi spurði kon- an mín hvað mér fyndist ég hafa verið lengi á sjúkrahúsunum. Ég taldi það hafa verið tvo til þrjá daga. Það blæddi inn á höfuðið sem olli nokkru rugli fyrstu mánuðina en það hefur allt gengið til baka,“ segir Steini sem segist hafa náð sér ótrúlega vel ef frá eru talin meiðsli á vinstri hendi. Tilfærsla tauga og raförvun „Það kom í ljós að hreyfi- taugarnar í vinstri hendi höfðu slitnað frá mænunni. Ég var settur í viðamikla og mjög flókna sjö tíma aðgerð 4. desember þar sem taugar í herðablaði voru teknar til að hreyfa öxlina og taugar í litla putta færðar til að beygja olnboga. Ef vel tekst til þá á tilfærslan að hjálpa mér að lyfta upp hendinni,“ segir Steini sem fer þrisvar í viku á Grensás í raförvun hjá Vilborgu sjúkraþjálfara til þess að reyna að gera vöðvana móttækilegri fyrir taugunum. „Það kemur væntanlega í ljós í maí hvernig til tókst,“ segir Steini og hrósar Ingvari Hákoni Ólafssyni, heila- og taugaskurðlækni, sem hann segir mikinn snilling og þægi- legan mann í samskiptum. Steini segir að góð samskipti skipti gríð- arlega miklu máli. Hann er þakk- látur og hrósar öllu starfsfólki sjúkrahúsanna í Fossvogi og á Sel- fossi og sjúkraþjálfurum og iðju- þjálfum á Grensási sem veitt hafi ómetanlega hjálp. „Þakklátastur er ég konunni minni sem verið hefur mér afar hjálpleg í gegnum þetta allt. Það er ómetanlegt að eiga góðan maka sem keyrir mig út um allt og bókstaflega gyrðir upp um mig buxurnar. Ég vona að einn daginn verði ég fær um að gera það sjálfur,“ segir Steini „Við erum búin að vera saman í bráðum 50 ár við Dísa mín og af- leiðingar slyssins hafa tekið á. Álag- ið á makann gleymist oft í svona ástandi,“ segir Steini með hlýju í röddinni og bætir við að Dísa segi stundum að þetta sé í fyrsta skipti í 50 ár sem þau séu ekki alltaf vinir. Steini telur að hann hafi ekki breyst við slysið en það hafi komið tímar sem honum hafi fundist til- gangslaust að fara fram úr rúminu. „En þá fékk ég gleðipillu sem ég tek á kvöldin og það dugði mér til þess að geta horft fram á veginn á ný. Það er heilmikil breyting að þurfa að reiða sig á hjálp annarra með alla hluti og missa ákveðið frelsi,“ segir Steini og bætir við að galdurinn við langt og heillaríkt hjónaband sé umburðarlyndi. „Það væri ekki hægt að komast í gegnum þetta öðruvísi. Ég held að það sé ekki alltaf auðvelt að um- gangast mig og það koma dagar þar sem ekki er auðvelt að umgangast eiginkonuna. En með því að bera virðingu fyrir hvort öðru þá kom- umst við í gegnum allt.“ Saman eiga Steini og Dísa 3 börn og 10 barnabörn. Steini er úr Mýrdalnum og Dísa frá Selfossi. Þau hafa búið víða um land en eru nú sest að á Selfossi og una sér vel þar. Steini er vélfræðingur og starf- ar hjá Orkuveitunni í Reykjavík. „Ég er búinn með veikinda- réttinn hjá Orkuveitunni en ég held að þeir séu ekki búnir að henda mér,“ segir Steini hlæjandi og bætir við að hann hafi verið að koma úr ökutíma þar sem í ljós kom að það þyrfti að gera lítils háttar breyt- ingar á stýri til þess að hann geti keyrt bíl. „Ég kvarta ekki undan heil- brigðis- og tryggingakerfinu í mín- um slysum. Ég hef fengið alla þjón- ustu og hjálpartæki möglunarlaust.“ Steini segir að það þjóni engum tilgangi að dvelja í fortíðinni og kvelja sig með orðnum hlut. Með aðra hönd á stýri „Það versta við að lenda í al- varlegu slysi er að geta ekki séð um sig sjálfur og missa frjálsræðið til þess að gera það sem manni dettur í hug,“ segir Steini og bætir við að nú einbeiti hann sér að því að ná heilsu og aka um eins og Bjössi á mjólkurbílnum með aðra hönd á stýri. „Húmorinn fleytir mann langt,“ segir Steini sem tekur sjálf- an sig ekki of alvarlega og gleðst yf- ir því ef fólk getur hlegið þegar hann gerir eða segir einhverja vit- leysu. „Ég held að ég hafi ekki haft neitt gott af slysunum og ég hefði nú alveg viljað sleppa við þau og af- leiðingarnar,“ segir Steini einlægur og bætir við að konan sé búin að banna honum að keyra mótorhjól aftur. „Það er eflaust skynsamlegt en ég veit ekki upp á hverju ég tek ef ég fæ mátt í höndina og get tekið í kúplinguna,“ segir Steini sem er á leið til Þýskalands að fagna útskrift dótturdóttur úr hjúkrunarfræði. „Það má með sanni segja að ég ferðist milli landa með hangandi hendi,“ segir Steini léttur að vanda. Mótorhjóladella Tvö alvarleg mótorhjólaslys hafa ekki minnkað áhuga Steina á því að hjóla en tíminn einn leiðir það í ljós hvort hann hjólar á ný. Styrkur Þorteinn Árnason metur mikils stuðning og hjálp sem eiginkonan Arndís Ásta Gestsdóttir hefur veitt. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Nánar á www.BILO.is Eigum til afhendingar strax nýja vinnuflokkabíla, 7mannameð palli og 6mannameð sendirými. INNUBÍLAR - FORDTRANSITI Verð 4.490.000 +vsk 6manna 7manna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.