Morgunblaðið - 21.03.2018, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 1. M A R S 2 0 1 8
Stofnað 1913 68. tölublað 106. árgangur
KYNLEG
GLÍMA
KYNJANNA FEMÍNÍSK ÚTÓPÍA
MARKADROTTNING
OLÍS-DEILDAR Í
HANDKNATTLEIK
GAGNVIRK ÞÁTTTÖKULEIKSÝNING 33 RAGNHEIÐUR JÚLÍUSDÓTTIR ÍÞRÓTTIRGLÍMUKEPPNI Í MEXÍKÓ 12
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Líklegt er að nýtt sölumet hafi verið
sett á íslenskum fasteignamarkaði í
Bríetartúni 9-11. Íbúðirnar fóru í
sölu í síðustu viku og er nú tæplega
helmingur seldur. Miðað við ásett
verð á söluvef Höfðatorgs kosta
seldar íbúðir rúma 2,3 milljarða. Þar
af kosta tvær þeirra 99,9 milljónir.
Greinendur á fasteignamarkaði
hafa að undanförnu lýst yfir efa-
semdum um eftirspurn eftir dýrari
íbúðum í miðborg Reykjavíkur. Mið-
að við eftirspurnina í Bríetartúni er
sá markaður á hreyfingu.
Fjárfestar í kaupendahópnum
Pétur Guðmundsson, stjórnarfor-
maður Eyktar, segir trúnað gilda um
kaupendur íbúðanna. Kaupendahóp-
urinn sé fjölbreyttur. Þar séu bæði
einstaklingar og fjárfestar.
„Menn líta á þetta sem góða fjár-
festingu. Þessi tilboð hafa verið að
berast síðastliðinn hálfan mánuð,“
segir Pétur en formleg sala íbúðanna
hófst á mánudag í síðustu viku.
Spurður hvort hann hafi áður selt
svo margar íbúðir svona hratt segist
Pétur ekki minnast þess.
Spurður um fjármögnun íbúðanna
segir Pétur meiri varkárni í kaup-
unum en fyrir hrun. Veðsetning sé
minni og kaupendur almennt „hóf-
stilltari“ við kaupin.
Metsala á lúxusíbúðum
Eykt selur 42 íbúðir á 2,3 milljarða króna í nýjum turni á aðeins rúmri viku
Stjórnarformaður Eyktar minnist þess ekki að hafa selt svo mikið svona hratt
MKaupendur biðu ekki … »4
3 íbúðir á 7-800 milljónir
» Þrjár efstu íbúðirnar á 11. og
12. hæð eru óseldar.
» Ætla má að samanlagt verð
þeirra sé 700-800 milljónir.
» Tvær hinna seldu íbúða
kosta um 100 milljónir hvor en
þær eru báðar á 8. hæð.
„Við munum hlíta þessum úrskurði
og gerum prófin opinber. Við mun-
um birta sjálf prófin á heimasíðunni
okkar. Svo erum við að skoða tækni-
lega útfærslu á því að birta niður-
stöður nemenda eins og þær koma
út úr prófakerfinu okkar,“ segir
Arnór Guðmundsson, forstjóri
Menntamálastofnunar.
Greint var frá því á Mbl.is um
helgina að Menntamálastofnun
þyrfti að afhenda föður stúlku sem
þreytti samræmd könnunarpróf í
september 2016 aðgang að úrlausn-
um stúlkunnar í íslensku og stærð-
fræði ásamt fyrirgjöf fyrir hverja
spurningu. Úrskurðarnefnd um upp-
lýsingamál kvað upp úrskurð þessa
efnis í síðustu viku.
Menntamálastofnun hafði neitað
að afhenda umrædd próf og úrlausn-
ir stúlkunnar þar sem mikilvægt
væri talið að geta nýtt spurningar
oftar en einu sinni.
„Mikilvægt er að það komi fram
að þetta gildir bara um prófin í 4. og
7. bekk. Úrskurðurinn sneri bara að
þeim. 9. bekkjar prófin verða ekki
gerð opinber fyrr en í fyrsta lagi í
haust, þegar allri fyrirlögn er lokið,“
segir Arnór. hdm@mbl.is »4
Umdeild
próf
ekki birt
að sinni
Morgunblaðið/Eyþór
Próf Samræmd próf og úrlausnir
verða gerð aðgengileg á netinu.
Samræmd próf 9.
bekkjar birt í haust
Börnin á leikskólanum Mánagarði léku sér í gær
við styttuna af Sæmundi fróða sem er fyrir fram-
an aðalbyggingu Háskólan Íslands. Börnin sungu
nokkur lög í Sæmundarstund í gær, en hún hefur
verið haldin árlega við styttuna af Sæmundi á
selnum frá árinu 2011. Styttan sem Ásmundur
Sveinsson gerði vísar til þjóðsögu um viðureign
Sæmundar við kölska sem endaði með því að Sæ-
mundur var fluttur heim til Íslands í selslíki.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fjörugir krakkar
tóku lagið í
Sæmundarstund
Íslendingar
eru góðir kúnn-
ar danska fyrir-
tækisins DNA-
test.dk, en um
fimm Íslend-
ingar eru viku-
lega í viðskipt-
um við fyrir-
tækið, sem
býður upp á ódýr og fljótleg
erfðafræðileg próf eins og t.d. fað-
ernis-, móðernis og systkinapróf,
svo eitthvað sé nefnt. Eigandi
fyrirtækisins segir fleiri Íslend-
inga vera í viðskiptum heldur en
Kaupmannahafnarbúa og að eftir-
spurnin fari vaxandi. »6
Íslendingar leita
sannleikans í DNA
Nýjar tölur Hagstofunnar sýna að
verulega hægði á veltuaukningu í
byggingarstarfsemi hér á landi í
fyrra samanborið við árið 2016.
Aukningin í fyrra var 14,8% en árið
þar á undan 36,1%.
Tölurnar sýna einnig að dregið
hefur úr vexti ferðaþjónustunnar.
Vöxtur á sviði rekstrar gististaða
og veitingahúsa var 9,5% á nýliðnu
ári, sem er mun minna en á milli
áranna 2015 og 2015 þegar hann
var 26,9%. Bílaleiga heldur hins
vegar áfram að aukast og nam
veltuaukning í greininni 51 milljarði
í fyrra. Það er 12,5% aukning miðað
við 45 milljarða aukningu árið á
undan.
Velta í sjávarútvegi dregst áfram
saman milli ára og heldur sú þróun
áfram frá fyrra ári. Þannig reynist
velta í fiskveiðum, fiskeldi og
vinnslu sjávarafurða 318 milljarðar í
fyrra, samanborið við 348 milljarða
árið þar á undan. Er það samdráttur
upp á 8,6%.Verulegur samdráttur
hefur einnig orðið á sviði heild- og
umboðsverslunar með fisk. »16
Veltan eykst talsvert minna
Morgunblaðið/Hari
Framkvæmdir Veltuaukning í
byggingarstarfsemi dregst saman.
Minni aukning en undanfarið í stóru atvinnugreinunum Dæmi eru um að fasteignagjöld áatvinnuhúsnæði í Reykjavík hafi
hækkað um 35% á árunum 2016 til
2018. Samkvæmt Árbók Reykjavík-
ur skiluðu fasteignagjöld á atvinnu-
húsnæði í borginni 8,42 milljörðum
króna 2015 en 10,67 milljörðum í
fyrra. Það er 27% hækkun. Fast-
eignagjöld í borginni eru nú í lög-
legu hámarki. „Það er deginum
ljósara að borgin hefur mokað inn
mörgum milljörðum í aukna skatt-
byrði á fyrirtæki án þess að það sé
neitt að gerast í rekstri langflestra
þessara fyrirtækja sem endur-
speglar það,“ segir framkvæmda-
stjóri Félags atvinnurekenda. »14
Fasteignagjöld
hækkuðu um 35%