Morgunblaðið - 21.03.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.03.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að endur- skoðun tekjuskattskerfisins sé nú að hefjast hjá hópi sérfræðinga, sam- anber yfirlýsingu um aðgerðir rík- isstjórnarinnar í þágu félagslegs stöðugleika í tilefni af mati á kjara- samningum á almennum vinnumark- aði. Bjarni kynnti áætlunina á rík- isstjórnarfundi í gærmorgun. „Við höfum ákveðið að skipa hóp sérfræðinga sem mun fara í grein- ingarvinnu. Síðan verðum við með stýrihóp, með aðkomu fjármála- og efnahagsráðuneytis, félagsmála- ráðuneytis og forsætisráðuneytis,“ sagði Bjarni í samtali við Morg- unblaðið í gær. Fjármálaráð- herra segir að í þeirri vinnu sem nú er að hefjast, þar sem tekju- skattslækkun í lægra þrepi verð- ur undirbúin, verði lögð áhersla á að kalla eftir sjónarmiðum frá vinnumarkaðnum, um fyrirhugaðar breytingar. Mikil vinna við reiknilíkan „Við höfum lagt í talsvert mikla vinnu hér í fjármála- og efnahags- ráðuneytinu að undanförnu, við að búa til einskonar reiknilíkan, sem gerir okkur betur kleift að meta áhrifin af breytingum á þessum kerf- um og sú vinna mun gagnast mjög í framhaldinu,“ sagði Bjarni. Aðspurður hvort hann teldi að frumvarp um lækkun tekjuskatts kæmi fram á haustþingi og gæti tek- ið gildi frá næstu áramótum, sagði Bjarni: „Ég vonast til þess, en við verðum bara að gefa vinnunni þann tíma sem þarf.“ Miðað hefur verið við það í und- irbúningsvinnu þeirri sem farið hef- ur fram, að neðra tekjuskattsþrepið lækki um eitt prósentustig, og slík lækkun myndi kosta ríkissjóð um 14 milljarða í minni tekjum. Fjármála- ráðherra sagði ótímabært að úttala sig um kostnað á þessu stigi. Fjari út með hækkandi tekjum „Meðal þess sem við höfum verið að skoða er að breyta persónuaf- slætti. Við munum fara yfir það hvernig það kæmi út að hafa hann útgreiðanlegan og láta hann fjara út, eftir því sem tekjur eru hærri. En við ætlum líka að leggja mat á sam- spil bótakerfanna, allt frá húsnæð- isbótum, yfir til barnabóta og vaxta- bóta, við tekjuskattskerfið og persónuafslætti og sjá hvort við get- um gert breytingar sem tryggja bet- ur að við náum markmiðum okkar varðandi lægri tekjuhópana,“ sagði Bjarni. Tekjulágir fái persónuafslátt  Fjármála- og efnahagsráðherra vonast til þess að tekjuskattslækkun geti tekið gildi frá næstu áramótum  Lækkun skattsins um 1% kostar 14 milljarða króna Bjarni Benediktsson Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra, upplýsti í skriflegu svari á Alþingi í gær að op- inbert nafn sveitarfélagsins þar sem höfuðborg Íslands er staðsett væri Reykjavík. Vísaði hann í því sambandi til 2. mgr. 10. gr. sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn borgarinnar. Fyrirspyrjandi var Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, sem á yfirstandandi þingi hefur lagt fram 72 fyr- irspurnir um hin aðskiljanlegustu mál. Í fyrirspurn um nöfn sveitarfélaga vildi hann auk upplýsinga um heiti höfuðborg- ar Íslands fá að vita hvert væri opinbert nafn sameinaðs sveitarfélags Grímseyjar, Hríseyjar og Akureyrar annars vegar og sameinaðs sveitarfélags Norðfjarðar, Mjóafjarðar, Eskifjarðar, Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar og Stöðvar- fjarðar hins vegar. Í svari ráðherra kom fram að í fyrra til- vikinu væri nafnið Akureyrarkaupstaður og í hinu síðara Fjarðabyggð. Morgunblaðið spurði þingmanninn að því fyrir nokkrum dögum af hverju hann legði fram fyrirspurn, þegar svarið lægi í augum uppi. „Þessari fyrirspurn var skipt í tvennt í yf- irlestri þingsins þannig að samhengið glataðist aðeins. Þetta var hluti af fyrirspurn um skráningu á fæðingarstað barna. Ég er með dæmi um ósamræmi og langar til þess að vita hvort það ósamræmi heldur í svari ráðherra. Annars hefði þetta verið fyrirspurn til upplýsingasviðs bara,“ sagði hann. „Höfuðborgin heitir Reykjavík“  Þingmaður Pírata spurði ráðherra um nöfn sveitarfélaga Morgunblaðið/Eggert Alþingi Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, hef- ur borið fram 72 fyrirspurnir um aðskiljanleg efni. Dagmóðir á höfuðborgarsvæðinu var í gær dæmd í níu mánaða skil- orðsbundið fangelsi fyrir sér- staklega hættulega líkamsárás og brot á barnaverndarlögum gegn tæplega tveggja ára stúlkubarni sem var í hennar umsjá haustið 2016. Þá var henni gert að greiða hálfa milljón króna í miskabætur. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins, en dómurinn hefur ekki verið birtur á vef dómstólanna. Konan neitaði sök og sagði barnið hafa fallið úr barnastól en dómurinn taldi sannað að hún hefði gerst sek um brot gegn 2. málsgrein 218. greinar almennra hegningarlaga sem fjallar um sérstaklega hættu- lega líkamsárás og brot gegn 98. grein barnaverndarlaga sem fjallar um brot umsjáraðila gagnvart barni. Konan hætti störfum sem dagfor- eldri í apríl á síðasta ári, um sex mánuðum eftir að atvikið átti sér stað. Dagmóðir dæmd fyrir árás á barn Alvöru bókabúð og miklu meira www.boksala.is 50-70% afsláttur af erlendum bókum og völdum vörum. 15. mars til 20. apríl Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Bæjarstjórn Reykjanesbæjar sam- þykkti á fundi sínum í gærkvöldi nýtt deiliskipulag fyrir Framnesveg 9 til 11 þar sem gamla Sundhöll Keflavíkur stendur. Deiliskipulagið var samþykkt af meirihluta bæjar- stjórnar auk fulltrúa Framsóknar- flokksins en bæjarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins greiddu atkvæði á móti. Með nýju skipulagi gefst nú- verandi eiganda svæðisins í kringum sundlaugina tækifæri til þess að rífa gömlu Sundhöllina og byggja á lóð- inni fjölbýlishús. Ragnheiður Elín Árnadóttir, for- ystumaður áhugahóps um verndun gömlu Sundhallarinnar, segist vera ósátt við að bæjarstjórn hafi sam- þykkt nýtt deiliskipulag og það sé sorglegt að hugsa til þess að gamla Sundhöllin verði rifin. „Sundhöllin er eitt af þremur hús- um í Reykjanesbæ sem teiknað er af Guðjóni Samúelssyni, og það er vel hægt að finna þessu fallega húsi hlutverk,“ segir Ragnheiður Elín. Hún segir með ólíkindum að bæjar- stjórn hafi samþykkt deiliskipulagið þrátt fyrir að bent hafi verið á að nefndarmaður í umhverfis- og skipu- lagsráði sé hugsanlega vanhæfur til þess að taka þátt í afgreiðslu málsins vegna tengsla við eiganda hússins sem er líka byggingarfyrirtækið sem hefur rétt á framkvæmdum á lóðinni eftir að deiliskipulag hefur verið samþykkt. „Þessi sami nefndarmaður hefur áður talið sig vanhæfan við af- greiðslur sem tengdust byggingar- fyrirtækinu en í þessu máli er ein- hverra hluta vegna annað upp á teningnum. Sem skattgreiðanda í Reykjanesbæ finnst mér ekki góð stjórnsýsla að ganga svo frá málum að bærinn skapi sér hugsanlega skaðabótaskyldu gagnvart bygging- arfyrirtækinu sem sé hugsanlega komið með réttmætar væntingar um leyfi til framkvæmda,“ segir Ragn- heiður Elín og bætir við að áhuga- hópurinn um verndun Sundhallar- innar sé hvergi af baki dottinn. Hann muni kæra hugsanlegt vanhæfni fulltrúa meirihlutans í umhverfis- og skipulagsráði og ef það dugi ekki til verði óskað eftir skyndifriðun Minja- stofnunar á gömlu Sundhöllinni. Það verði allra leiða leitað til þess að vernda húsið. Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, seg- ir að farið hafi verið að sveitarstjórn- arlögum þegar deiliskipulagið var samþykkt í umhverfis- og skipulags- ráði Reykjanesbæjar. „Fyrir bæjarstjórnarfundinn í dag létum við kanna lögmæti afgreiðslu umhverfis- og skiplagsráðs og það kom í ljós að fulltrúi meirihlutans var ekki vanhæfur við afgreiðslu deiliskipulagsins samkvæmt 20. gr. sveitarstjórnarlaga,“ segir Guð- brandur og bætir við að það sé nefndarmanna að meta hæfi sitt til afgreiðslu mála. „Það eru annars vegar stjórn- sýslulög sem segja til um vanhæfi en síðan eru það sveitarstjórnalög sem taka yfir stjórnsýslulega þegar um sveitarstjórnarmál er að ræða Samkvæmt sveitarstjórnarlögum er fulltrúinn ekki vanhæfur,“ segir Guðbrandur sem telur að sjálfstæð- ismenn séu að leita sér að tylliástæð- um til að gera þetta mál tortryggi- legt. „Sjálfstæðismenn eru í leðjuslag og þyrla upp moldviðri sem ekkert er,“ segir Guðbrandur og gefur lítið fyrir áhyggjur af því að Reykjanes- bær geti hugsanlega hafa skapað sér skaðabótaskyldu gagnvart bygging- arfyrirtækinu sem fékk úthlutað lóð- inni á Framnesvegi 9 til 11. Guðbrandur segir að allir bæjar- fulltrúar hafi lýst því yfir að það ætti að rífa þetta hús á einhverjum tíma- punkti og hann skilji ekki viðhorfs- breytingu sjálfstæðismanna í mál- inu. „Menn eru held ég að nýta sér þetta mál til þess að búa sér til stöðu í aðdraganda sveitarstjórnarkosn- inga,“ segir hann. Pétur Ármannsson, sviðstjóri hjá Minjastofnun, segir að stofnunin hafi fundað með bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ í gærmorgun og muni funda með áhugahópi um verndun Sundhallarinnar í vikunni. Hann segir að skoða þurfi málið vel og það sé ekki tímabært að ræða skyndifrið- un Sundhallarinnar strax. Pétur segir að nýtt deiliskipulag fari nú til umfjöllunar hjá Skiplags- stofnun og sjái stofnunin enga ann- marka á skipulaginu né fái athuga- semdir við það geti afgreiðsla skipulagsins tekið allt að sex vikur. Ef deiliskipulagið verði afgreitt óbreytt eigi svo eftir að auglýsa það í Stjórnartíðindum. „Það er nógur tími til stefnu og við munum skoða málið vel áður en um- ræða verður tekin um það hvort grípa eigi til skyndifriðunar,“ segir Pétur. Skyndifriðun er kostur í stöðunni  Heimilt að rífa Sundhöll Keflavíkur í kjölfar nýs deiliskipulags  Fulltrúi meirihlutans gæti verið vanhæfur  Minjastofnun skoðar stöðuna  Áhugahópur um Sundhöllina leitar allra leiða til verndunar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Minjar Sundhöll Keflavíkur er eitt af þremur húsum í Reykjanesbæ sem Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins, teiknaði. Það á sér mikla sögu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.