Morgunblaðið - 21.03.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 21.03.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018 Aðalfundur Samtaka sparifjáreigenda verður haldinn á Hótel Sögu, miðvikudaginn 28. mars n.k. kl. 17.00. DAGSKRÁ Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 7. gr. samþykkta félagsins. Réttur til fundarsetu er bundinn við félagsmenn. Stjórn Samtaka sparifjáreigenda lífeyrissjóðum án þess að þær fjár- hæðir skerðist vegna tekna, þarf að uppfylla ákveðin skilyrði. Viðkom- andi þarf að vera orðinn 65 ára, greiðslur frá TR og lífeyrissjóðum þar sem einstaklingar hafa áunnið sér réttindi, þurfa að hefjast sam- tímis og samanlögð greiðsla frá TR og lífeyrissjóði má ekki vera lægri en sem nemur fullum lífeyri frá Tryggingastofnun. Hann er í dag 239.484 kr. hjá lífeyrisþega í sambúð og 300.000 hjá þeim sem búa einir. Einnig er hægt að taka út hálfa heimilisuppbót með hálfum lífeyri og tekjur hafa ekki heldur áhrif á þær greiðslur ef þessi kostur verður fyrir valinu hjá eftirlaunaþegum. að sjá sér hag í því miðað við þær reglur sem breytingarnar eru byggðar á. Geta frestað til 80 ára aldurs Aukinn sveigjanleiki í eftirlauna- kerfinu snýr bæði að möguleika á að flýta töku ellilífeyris gegn varan- legri lækkun á mánaðarlegum ellilíf- eyri eða að því að fresta henni til allt að 80 ára aldurs og þá gegn varan- legri hækkun fjárhæðarinnar. Markmið breytinganna er að ein- falda kerfið, auka möguleika á sveigjanlegum starfslokum og hvetja til aukinnar atvinnuþátttöku. Svo hægt sé að taka út 50% ellilíf- eyri hjá TR á móti 50% lífeyri frá Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Danska fyrirtækið DNAtest.dk býð- ur upp á ýmis erfðafræðileg próf, en athygli vekur hversu margir Ís- lendingar eru í viðskiptum við það. „Það eru um fimm manns á viku sem eru í viðskiptum við okkur frá Íslandi,“ segir Johannes Brejner, eigandi fyrirtækisins, sem svaraði sjálfur í símann sökum anna. Hann segir það svo sem ekki mikið m.v. heildarveltuna, en segir að fleiri Ís- lendingar séu í viðskiptum við sig en allir Kaupmannahafnarbúar, jafnvel þó að þeir séu um þrefalt fleiri en Íslendingar. Brejner, sem stofnaði fyrirtækið árið 1998, segir eftirspurnina fara vaxandi, ekki síst frá Íslandi og að þau séu nú að íhuga að gera vefsíðu fyrirtækisins í enskri útgáfu, m.a. til að geta þjónustað íslenska við- skiptavini betur sem virðast eiga í einhverju basli með dönskuna. Sjónvarpsþættir hafi áhrif Vinsælustu prófin sem Íslend- ingar láta gera séu faðernispróf, móðernispróf og systkinapróf, í þessari röð að sögn Brejner. „Fólk í dag er orðið mun áhugasamara um uppruna sinn en áður, svo virðist sem sjónvarpsþættir um fólk sem er að leita uppruna síns hafi áhrif,“ segir Brejner, sem hefur svo sem ekki sérstaka skýringu aðra á því hvers vegna Íslendingar leiti til fyr- irtækis hans í stórum stíl, en segir að hugsanlega sé þjónustan hans ódýrari og/eða fljótari en annað sem Íslendingum standi til boða í erfðafræðiprófum. Faðernispróf hjá DNAtest.dk kostar t.d. 1.385 DKK, eða tæpar 23 þúsund krónur og tekur tvo til fimm daga. DNA-próf vinsæl hjá Íslendingum  Danskt fyrirtæki hefur nóg að gera DNA Erfðaefnið geymir upplýs- ingar sem geta komið á óvart. Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Stjórnvöld munu að sjálfsögðu sinna ákallinu í loftslagsmálum. Það sést best á stjórnarsáttmálanum sem vitnar um mikinn metnað í þeim málum,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra. Tilefnið er gagnrýni fulltrúa lofts- lagshreyfingarinnar á takmarkaðar fjárveitingar til málaflokksins. Birtist gagnrýnin m.a. á vinnustofu um þessi mál hjá Toyota á Íslandi sl. föstudag. Guðmundur Ingi segir að á þessu ári muni ríkisstjórnin leggja fram að- gerðaáætlun til ársins 2030 sem verði í takt við markmið Parísarsamkomu- lagsins í loftslagsmálum. Sú áætlun sé nú í undirbúningi. Þegar þessum áfanga verður náð taki við undirbún- ingur að því mark- miði í stjórnarsátt- mála ríkis- stjórnarinnar að Ísland verði kol- efnishlutlaust samfélag árið 2040. „Þetta er stór og mikil áskorun sem hefur ekki áður verið á borði stjórnvalda,“ segir Guðmundur Ingi. Spurður um þá gagnrýni nokkurra fulltrúa loftslagshreyfingarinnar að fjármunir hafi ekki fylgt yfirlýsingum stjórnvalda vísar hann til áforma. „Við megum ekki gleyma því að ríkisstjórnin er aðeins þriggja mánaða gömul. Ég tek undir að auka þarf fjár- veitingar til loftslagsmála. Það þarf að setja fjármagn í að draga úr losun, í ný- sköpun og bindingu kolefnis. Þetta eru atriði sem við erum að vinna að í ráðu- neytinu og munum setja fram áætlanir um síðar í ár.“ Rangt að hafna leiðum Borið hefur á deilum innan ólíkra hópa loftslagshreyfingarinnar að undanförnu. Meðal annars er deilt um hvort endurheimt votlendis eða skóg- rækt sé heppilegri leið til að binda kol- efni í andrúmsloftinu. Guðmundur Ingi segir hreyfinguna ná meiri árangri sé hún samstillt. „Ég beini því til alls þessa góða fólks að þetta er samvinna en ekki sam- keppni. Hjá stjórnvöldum og þeim sem undir þau heyra hvílir sú skylda að sinna þessu ákalli í loftslagsmálum. Við höfum ekki efni á því að sniðganga ein- hverja eina leið fremur en aðra, heldur þurfum við að líta til þeirra allra og sjá hvernig við getum nýtt þær sem allra best.“ Guðmundur Ingi segir stjórnvöld jafnframt þurfa að skýra betur hvernig þau útdeila stuðningi til verkefna á sviði kolefnisbindingar, hvort heldur sem þau eru í formi skógræktar, land- græðslu eða endurheimt votlendis. „Ég hyggst vinna að því að skil- greina betur hvernig það verði gert og þá hvernig stuðningur hins opinbera við aðgerðir taki mið af heildstæðri stefnumörkun um landnotkun í þágu margþættra markmiða loftslagsmála, baráttunnar gegn landeyðingu og verndun líffræðilegrar fjölbreytni,“ segir Guðmundur Ingi sem telur að- spurður að skort hafi á heildstæða stefnu um landnýtingu. Ein leið til að taka á því sé í gegnum svonefnda landsskipulagsstefnu. Horfa líka til Kolviðar Reynir Kristinsson, stjórnarformað- ur Kolviðar, hefur gagnrýnt stjórnvöld fyrir að þiggja ekki boð um að kolefnis- jafna ríkisreksturinn. Guðmundur Ingi segist ekki viss hvort Reynir eigi við núverandi ríkis- stjórn. Hún hafi fyrir hálfum mánuði samþykkt að undirbúa áætlun sem hafi það markmið að ráðuneytin verði kol- efnishlutlaus. Leitað verði til fjöl- breyttra aðila vegna þess verkefnis. Kynna loftslagsáætlun síðar í ár  Umhverfisráðherra boðar auknar fjárveitingar  Hvetur loftslagshreyfingar til að slíðra sverðin  Heildstæð landnýtingarstefna fyrir Ísland í undirbúningi  Skilgreina þarf stuðning ríkisins betur Guðmundur Ingi Guðbrandsson Venjan er sú að taka ellilífeyris hjá Tryggingastofnun ríkisins hefst við 67 ára aldur en samkvæmt skýringum á vef TR koma til sérútreikningar ef menn velja að taka hálfan ellilífeyri fyrr eða seinna. Ef töku er flýtt til 65 ára aldurs lækkar sá hluti lífeyrisins sem er tekinn en frestaði hlutinn hækkar ef honum er frestað fram yfir 67 ára aldur. Hægt er að fresta töku allt til áttræðs eins og fyrr segir og þá kemur til hækkun á þann hluta mánaðarlegra lífeyrisgreiðslna sem tekinn er eftir 67 ára aldur og frestaði hlutinn heldur áfram að hækka þar til fullur ellilíf- eyrir er tekinn. Einstaklingar geta unnið samhliða töku hálfs lífeyris frá og með 65 ára aldri þar sem tekjur hafa ekki áhrif á greiðslur hálfs ellilífeyris frá TR. Þetta gildir um allar skattskyldar tekjur, s.s. atvinnutekjur, lífeyrissjóðs- tekjur og fjármagnstekjur. Lífeyrir lækkar ef töku er flýtt HÆGT AÐ FLÝTA EÐA FRESTA TÖKU HÁLFS ELLILÍFEYRIS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Sveigjanleiki hefur verið aukinn á töku ellilífeyris og verður 65 ára og eldri gert kleift á þessu ári að taka út hálfan ellilífeyri hjá Trygginga- stofnun ríkisins á móti hálfum lífeyri hjá lífeyrissjóði. Tekjur viðkomandi hafa þá engin áhrif á upphæð ellilíf- eyrisins ef töku hans er flýtt með þessum hætti. Gildir það þar til líf- eyristaka hefst að fullu. Lífeyrissjóðir breyta samþykktum sínum Breytingin um sveigjanlega töku ellilífeyris tók gildi 1. janúar sl. og byggist á lögunum um ellilífeyri sem tóku gildi 1. janúar 2017 en lífeyris- sjóðir hafa þurft lengri tíma til undirbúnings því breyta þarf sam- þykktum sjóðanna. Verður það gert á aðalfundum sjóðanna á næstu vik- um, verður m.a. tillaga stjórnar Líf- eyrissjóðs verslunarmanna að breytingum á samþykktum sjóðsins vegna aukins sveigjanleika lögð fram til umræðu og afgreiðslu á árs- fundi í dag. Skv. upplýsingum Þórhalls B. Jósepssonar, fjölmiðlafulltrúa Líf- eyrissjóðs verslunarmanna, er gert ráð fyrir að þessi breyting öðlist gildi hjá sjóðnum 1. september nk. Aðspurður á hann ekki von á að stór fjöldi sjóðfélaga muni nýta sér þennan möguleika þar sem viðkom- andi þurfa væntanlega að hafa áunnið sér rífleg lífeyrisréttindi til Morgunblaðið/Eggert Lífeyrisréttindi Þegar lífeyrissjóðir hafa breytt samþykktum sínum verður hægt að fá greiddan hálfan ellilífeyri hjá Tryggingastofnun ríkisins á móti 50% lífeyri frá lífeyrissjóðum frá og með 65 ára aldri að skilyrðum uppfylltum. Geta tekið út hálfan ellilífeyri 65 ára  Tekjur hafa engin áhrif á greiðslur hálfs lífeyris frá TR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.