Morgunblaðið - 21.03.2018, Page 12

Morgunblaðið - 21.03.2018, Page 12
Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Snautaðu aftur inn í eldhús,andskotans kerlingar-skassið þitt!“ hrópar æsturaðdáandi í áhorfendastúk- unni þegar glímukappi að nafni Moonbeam, eða Mánaskin, í pallí- ettuskreyttum hlébarðabúningi og háum stígvélum, tekur vinstri krók á andstæðing sinn, beljaka mikinn, sem kallar sig Nazi Warrior, eða Nasista stríðsmann. Mánaskin lætur frammíköll ekki slá sig út af laginu. Þvert á móti segir hún það „mjög fallegt“ þegar karlkyns aðdáendur hreyta í hana svívirðingum af þessu tagi. „Það þýðir að maður stendur sig vel, ögr- ar þeim og að þeir fái útrás fyrir streitu,“ sagði hún blaðamanni AFP- fréttaveitunnar á dögunum þegar hann fylgdist með glímukeppni með yfirskriftinni „Stríð kynjanna“. Keppni sem að hans sögn var engin venjuleg mexíkósk glímukeppni, heldur hörku átök milli þriggja kvenna og þriggja karla, mun stærri en þær á alla kanta. „Með því að öskra fá karlarnir útrás fyrir reiði sína og vanmáttar- kennd í stað þess að lemja konurnar sínar þegar þeir koma heim,“ út- skýrði Mánaskin, sem er 42ja ára og þriggja barna móðir. Hún segist elska að berjast í blandaðri keppni, karla og kvenna, sem hún lítur á sem valdabaráttu. „Við viljum sýna al- menningi og mótherjum okkar að við getum líka farið í glímu, hún er ekki bara fyrir stóra, sterka karla. Við erum hæfileikaríkar, við vitum hvernig á að berjast og við getum sigrað þá,“ bætti hún galvösk við. Afrekaskrá hennar vitnar um að Mánaskin fer ekki með staðlausa stafi; hún hefur sigrað næstum sjö- tíu karlkyns andstæðinga á fimmtán Kynleg glíma kynjanna Glímukeppni með yfirskriftinni Stríð kynjanna þar sem konur eins og Mánaskin, Legna prinsessa og Lilly stjarna berjast við karla, sem eru stærri en þær á alla kanta, nýtur mikilla vinsælda í Mexíkó. Í landi þar sem karlremban á sér djúpar rætur og konur eru myrtar og þeim nauðgað í þúsundavís á hverju ári, speglar keppnin aukinn styrk kvenna. Glímudrottningarnar eru a.m.k. hvergi bangnar. AFP Stríð kynjanna Mánaskin slær Pambacin-trúðinn kaldan fyrir framan áhorfendur, sem eru af báðum kynjum og á öllum aldri – og sumir með snuð. AFP Í góðri þjálfun Þær Mánaskin og Lilly stjarna eru báðar í þjálfun hjá eig- inmanni þeirrar fyrrnefndu, sem einnig er glímukappi. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Ljósmyndir Rutar og Silju MYND ER MINNING Fermingarmyndir Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds Félag áhugafólks um Downs-heilkenni fagnar Alþjóðlega Downs-deginum, sem er í dag, 21. mars, með samkomu í veislusal Þróttar í Laugardalnum, milli kl. 17 og 19. Sameinuðu þjóðirnar lýstu því formlega yfir árið 2011 að þessi dagur væri alþjóðadagur Downs-heilkennis og markmiðið væri að auka vitund og minnka aðgreiningu. Dagsetningin er táknræn að því leyti að hún vísar til þess að Downs-heilkenni er orsakað af aukalitningi í litningi 21, þ.e. þrjú ein- tök af litningi 21 - 21.03. Allir eru velkomnir á samkomuna þar sem hátíðarskapið ræður ríkjum og Friðrik Dór mun gleðja gesti með nokkrum lögum. Alþjóðlegi Downs-dagurinn er í dag Gleði Á samkomunni í dag mun gleðin taka völdin eins og jafnan á þessum degi. Margbreytileikanum fagnað Andri Steinþór Björnsson, prófessor við Sálfræðideild Háskóla Íslands, fjallar um áhrif hugsana um eigið útlit á líðan ungmenna kl. 12 - 13 á morgun, fimmtudaginn 22. mars, í hátíðarsal Háskóla Íslands. Erindið er í röðinni Háskólinn og samfélagið - Best fyrir börnin. Andri leitast við að varpa ljósi á það af hverju útlit skiptir okkur máli og hvenær sú áhersla verður að sálræn- um vanda, á borð við átraskanir og lík- amsskynjunarröskun sem er algeng og oft alvarleg geðröskun. „Líkamsskynjunarröskun einkenn- ist af áleitnum hugsunum um útlits- galla sem eru ekki til staðar. Til þess að greinast með röskunina þarf fólk að hugsa um þessa líkamshluta og eigið útlit í minnst klukkutíma á dag, auk þess sem það bregst við þessum hugsunum með einhverjum hættim eins og með því að horfa tímunum saman í spegil, bera sig endurtekið saman við annað fólk, fela líkamshluta með farða, fötum eða með öðrum leið- um, og fara í endurteknar lýtaaðgerð- ir. Yfirleitt veldur þessi geðröskun mikilli vanlíðan og hefur talsverð nei- kvæð áhrif á líf fólks,“ segir Andri Steinþór sem hefur í rannsóknum sín- um og klínískum störfum sérhæft sig í líkamsskynjunarröskun og félagsfælni og þætti áfalla í sálrænum vanda. Háskólinn og samfélagið - Best fyrir börnin Af hverju skiptir útlitið máli? Líkamsskynjunarröskun Að spegla sig tímunum saman og bera sig endur- tekið saman við annað fólk getur bent til líkamsskynjunarröskunar. Getty Images/iStock photo

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.