Morgunblaðið - 21.03.2018, Síða 13

Morgunblaðið - 21.03.2018, Síða 13
Mánaskin. ára ferli sínum sem glímukappi. Blönduð keppni kynjanna eins og hér um ræðir segir blaðamaður AFP að spegli að mörgu leyti sam- skipti kynjanna í Mexíkó. Í landi þar sem karlremba á sér djúpar rætur og þar sem konur berjast fyrir jafn- rétti og eru myrtar og þeim nauðgað í þúsundavís á hverju ári. Skurðir og sár Glíma er feikilega vinsæl hjá áhorfendum og í Mexíkó flokkast hún mitt á milli þess að vera alvöru íþrótt og skemmtun. Glímukapp- arnir, sem kalla sig skringilegum nöfnum, með fáránlegar grímur og í búningum í stíl, skapa enda heil- mikið sjónarspil. Úrslitin eru ekki ákvörðuð fyrirfram, fullyrðir Mána- skin og glímusystur hennar, þær Melisa, Legna prinsessa og Lilly stjarna. En höggin eru sannarlega raunveruleg, allar þjást af bakverkj- um og fót- og handleggir þeirra eru alsettir skurðum, skrámum og mar- blettum. Þá mega þær þola kynja- misrétti og gagnrýni – stundum af hálfu fjölskyldna sinna – fyrir að keppa í karlaíþrótt. „Fjórar af hverj- um fimm keppnum eru bara fyrir karla,“ segir Legna prinsessa sem skartar grænblárri grímu. Kvenkyns glímukappar þurfa yfirleitt að deila búningsklefum með körlunum og stundum segir Legna prinsessa að þeir áreiti þær með augunum. Nasista stríðsmaðurinn, sem fullyrðir að hann hafi einungis valið nafnið vegna þess að það hljómi svo ógnvekjandi, segir að hann reyni að vera ekki eins ruddalegur þegar hann berst við konur í hringnum. „Ofbeldi gagnvart konum er „í lagi“ upp að vissu marki,“ sagði hann í gríni við blaðamann AFP áður en hann klifraði upp á sviðið ásamt móður sinni, glímukappa sem kallar sig Swastika. Eiginmaður Mánaskins og þjálfari, Gabriel Martinez, sem einn- ig er glímukappi, segir að hann kom- ist í uppnám þegar kona hans meið- ist í hringnum. „En þetta er vinnan hennar og gjaldið sem hún þarf að greiða fyrir að gera það sem hana langar til að gera,“ bætir hann við. Öðruvísi líf Kófsveitt vippar Mánaskin sér frá köðlunum og stefnir að miklu stærri andstæðingi, sem kallaður er Pambacin-trúðurinn og slær hann kaldan. Hún segist alltaf hafa viljað verða eitthvað annað en húsmóðir. Og sé heppnari en margar mexí- kóskar konur, ekki aðeins með að eiginmaður hennar sé femínisti held- ur hafi faðir hennar alltaf stutt hana skilyrðislaust. „Ég á starfsframann pabba að þakka. Hann borgaði lík- amsræktarkortið mitt, keypti handa mér íþróttaskó og hefur alltaf verið stoltur af mér,“ segir hún. Mánaskin býr og þjálfar í einu fátækasta ríki í Mexíkó, skammt frá höfuðborginni, þar sem ofbeldi gagnvart konum er það mesta á landsvísu, 301 kona var myrt þar í fyrra. Hún lauk ekki gagnfræðaprófi frekar en margar konur á þessum slóðum, en segir að sem glímukappi hafi hún öðlast „öðruvísi“ virðingu sem hún hefði ekki fengið vegna skólagráðu. Öllum þyki til dæmis af- skaplega mikið til um ef einhver úr fjölskyldunni fær mynd af sér með glímukappa. Lilly stjarna, fíngerð 28 ára kona, sem sinnir móðurhlutverki sínu þegar hún er ekki að glíma, tek- ur í sama streng. „Maður verður hamingjusamur þegar fólk fagnar og dáist að manni,“ segir hún. Stuðlað að ofbeldi? Eiginmaður Mánaskins segir að glíma hjálpi konum að horfast í augu við óttann og eiginmenn sína, sem oft kúgi þær. Konurnar sem hann þjálfi mæti oft á æfingar með skurði og marbletti eftir heimilisofbeldi. Hann segir glímu auka þeim sjálfs- virðingu og kenni þeim að verjast. Tania stríðsmaður, rúmlega fertug, hvíthærð og gamalreynd í faginu lít- ur öðrum augum á málið. Henni finnst glímukeppni milli kynjanna hættuleg. „Við erum að reyna að stemma stigu við ofbeldi gegn kon- um. Hvaða skilaboð sendum við til áhorfenda þegar við stillum konum upp gegn körlum, sem eru svo miklu stærri en þær? spyr hún. Slíkt virtist blaðamanni AFP- fréttaveitunnar þó ekki þvælast fyr- ir Mánaskini og vinkonum hennar í keppninni Stríði kynjanna. Eftir að hafa þolað olnbogaskot, barsmíðar og hártog tókst þeim að tryggja sér sigur þegar Nasista stríðsmaðurinn fékk bylmingshögg í magann. Áhorf- endur fögnuðu eða púuðu og hróp- uðu hver í kapp við annan, al- gjörlega frávita af æsingi. Legna prinsessa. Kristal. Lilly stjarna. AFP Hvergi smeyk Mánaskin og hinar glímudrottningarnar glíma oft við karla sem miðað við þær að minnsta kosti eru miklir rumar og óárennilegir. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018 Hildur Björnsdóttir, myndlistarkona, verður gestur Gunnars Hersveins, rithöfundar og heimspekings, á heimspekikaffi kl. 19.30 í kvöld, miðvikudaginn 21. mars, í Borgar- bókasafninu í Gerðubergi. Þar stendur yfir ljósmyndasýning Hild- ar, Fjölþing og byrjar hún kvöldið með leiðsögn um sýninguna. Yfirskrift heimspekikaffisins er Hamingja og frelsi annarra og munu þau Gunnar og Hildur m.a. velta fyrir sér hvernig við getum stuðlað að gagnkvæmri virðingu og skilningi á milli ólíkra menningar- heima og hvernig hamingja og frelsi birtast þar sem fátækt ein- kennir mannlífið? Þau munu ræða ferðalög um framandi heima og spá í spurningar um frelsi, tjáningu, samfélög manna og trúarbrögð í til- efni af ljósmyndasýningunni, en Hildur tók myndirnar á ferðalögum sínum um Asíu þar sem hún kynnt- ist fjölbreyttri menningu, trúar- brögðum og lífsháttum. Heimspekikaffið í Gerðubergi hefur verið vinsælt undanfarin misseri, en þar er fjallað á manna- máli um hvers konar líferni er eft- irsóknarvert. Gestir taka virkan þátt í umræðum og hafa margir fengið gott veganesti eftir kvöldin og hugðarefni til ræða frekar. Heimspekikaffi í Borgarbókasafninu Gerðubergi í kvöld Hamingja og frelsi annarra Líf og list Hildur Björnsdóttir og Gunnar Hersveinn ræða stóru málin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.