Morgunblaðið - 21.03.2018, Side 14

Morgunblaðið - 21.03.2018, Side 14
Félagsmönnum í stéttarfélaginu VR fjölgar ört og var metfjölgun félagsmanna á seinasta ári að sögn Ragnars Þórs Ingólfs- sonar, formanns VR. Þessar upplýsingar komu fram á aðal- fundi félagsins í fyrrakvöld sem var vel sóttur. Heildarfjöldi félagsmanna taldi rúmlega 35 þúsund í lok seinasta árs. 35 þúsund félagsmenn METFJÖLGUN Í VR Í FYRRA 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Dæmi eru um að fasteignagjöld á at- vinnuhúsnæði í Reykjavík hafi hækk- að um 35% á árunum 2016-18. Atvinnurekandi í Reykjavík sem óskaði nafnleyndar sýndi Morgun- blaðinu álögð fasteignagjöld á atvinnu- húsnæði í hans eigu. Hann óskaði þess jafnframt að nákvæmar tölur um gjöldin yrðu ekki birtar. Gjöldin hækkuðu um 13% milli ára 2016 og 2017 og svo aftur um 20% milli ára 2017 og 2018. Hækkun milli ára 2016-18 var því alls 35%. Gagnrýndi maðurinn þessar hækkanir. Samkvæmt Árbók sveitarfélaga skiluðu fasteignagjöld á atvinnu- húsnæði í Reykjavík 8,42 milljörðum króna 2015 en 10,67 milljörðum árið 2017. Það er 27% hækkun. Tölur fyrir árið 2018 liggja ekki fyrir. Fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði í Reykjavík eru nú í löglegu hámarki sem er 1,65% af markaðsvirði eigna. Hækkuðu um 27% í borginni Samanburður milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu leiðir í ljós að fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði hækkuðu hlutfallslega mest í Reykja- vík árin 2015-17, eða um 26,6%. Garða- bær var í öðru sæti en þar var hækk- unin 23,8%. Hækkun í hinum sveitar- félögunum var undir 20% á tímabilinu. Alls innheimti Reykjavík 10,7 millj- arða í fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði í fyrra. Það voru margföld samanlögð gjöld hinna sveitarfélaganna. Vægi Reykjavíkur er því mikið í gjöldunum og hífir aukningin í borginni upp með- altal höfuðborgarsvæðisins. Ólafur Stephensen, framkvæmda- stjóri Félags atvinnurekenda, segir fulltrúa borgarinnar ekki hafa svarað efnislega spurningum félagsins um hækkun fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði. „Það er deginum ljósara að borgin hefur mokað inn mörgum milljörðum í aukna skattbyrði á fyrirtæki án þess að það sé neitt að gerast í rekstri langflestra þess- ara fyrirtækja sem endurspeglar það. Hækkun á markaðsvirði fast- eignar, sem álagn- ing fasteigna- gjaldsins byggist á, endurspeglar ekki endilega aukinn hagnað eða tekjur, sem gerir fyrirtækinu kleift að standa undir þessari auknu skatt- byrði. Borgin hefur einfaldlega ekki verið til viðtals um að gera eins og nokkur af nágrannasveitarfélögunum hafa gert, sem er að lækka álagning- arprósentuna og sýna þannig fyr- irtækjum sömu sanngirni og eig- endum íbúðarhúsnæðis. Álagningin er í löglegum toppi.“ Ólafur segir Félag atvinnurekenda hafa óskað skýringa á afstöðu Reykja- víkurborgar en án árangurs. „Þegar við höfum skrifað borginni og farið fram á rökstuðning fyrir að beita 25% álagi á fasteignagjöldin, sem heimild er fyrir í lögum, hefur enginn rökstuðningur komið. Þegar við höf- um beðið um sundurliðun á kostnaði við að þjónusta fyrirtæki fáum við engin svör. Það segir í greinargerð með lögum um tekjustofna sveitarfé- laga að fasteignagjaldið eigi ekki að vera eignaskattur heldur endurgjald fyrir veitta þjónustu,“ segir Ólafur. Tíðindi af málsókn á næstunni Fyrirtæki innan raða Félags at- vinnurekenda hafa undirbúið málsókn gegn Reykjavíkurborg þar sem látið verður reyna á beitingu álagsins og ýmsa þætti útreiknings og álagningar fasteignagjalda. Ólafur segir frétta af þeim þætti málsins að vænta á næstu vikum. Gjöldin hækkuðu um 35% árin 2016- 2018  Atvinnurekandi gagnrýnir fasteignagjöld í Reykjavík Fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði 2015-2017 15 10 5 0 milljarðar kr. 2015 2016 2017 Heimild: Árbækur sveitarfélaganna 30% 20% 10% 0% Reykjavík Kópa- vogur Seltjarn- arnes Hafnar- fjörður Garða- bær Mosfells- bær Breyting 2015 2016 2017 2015-16 2016-17 2015-17 Reykjavík 8.423 9.487 10.666 12,6% 12,4% 26,6% Kópavogur 1.465 1.603 1.733 9,4% 8,1% 18,3% Seltjarnarnes 45 46 49 2,9% 6,9% 10,0% Hafnarfjörður 1.379 1.472 1.573 6,8% 6,9% 14,1% Garðabær 497 560 615 12,8% 9,8% 23,8% Mosfellsbær 212 231 248 8,8% 7,1% 16,5% Alls 12.020 13.400 14.884 11,5% 11,1% 23,8% Höfuðborgarsvæðið, milljónir kr. Höfuðborgarsvæðið alls Höfuðborgarsvæðið, breyting 2015 til 2017 14,9 13,4 12,0 17% 24% 14% 10% 18% 27% Ólafur Stephensen Tillaga um að lengja kjörtímabil stjórnarmanna og formanns VR úr tveimur árum í fjögur ár náði ekki fram að ganga á aðalfundi félagsins í fyrrakvöld. Samkvæmt reglum fé- lagsins er formaður kosinn til tveggja ára í senn og kjörtímabil stjórnar- manna er einnig tvö ár en helmingur stjórnarmanna er kosinn árlega. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að þetta mál hafi upphaf- lega verið lagt fram á árinu 2014 í for- mannstíð Ólafíu B. Rafnsdóttur, fyrr- verandi formanns VR, en verið fellt þá á aðalfundi vegna þess að það hafði ekki fengið næga kynningu. Þeirri vinnu var síðan haldið áfram og eftir frekari kynningu var það lagt fram á nýjan leik á fundinum í fyrrakvöld. Fékk tillagan 60% atkvæða en þurfti 66% til að ná fram að ganga. Ragnar Þór segir þetta snúast um að sumum finnist of mikið að kjósa til stjórnar á hverju ári. ,,Ég hef alltaf verið annarrar skoðunar sjálfur en þetta var tillaga stjórnar þannig að ég setti mig ekki upp á mótið því,“ segir hann. Tekjur félagsins jukust um 13,3% í fyrra og voru samtals 3,9 milljarðar kr. Gjöldin jukust um 20,6% og eru samtals 3,6 milljarðar króna. omfr@mbl.is Tillaga stjórnar felld  Tillaga um að lengja kjörtímabil í VR í 4 ár felld Árvakur/Golli Verslun Félagsmenn VR eru nú orðnir 35.231 og fjölgaði í fyrra. Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Í rúman áratug hefur verið vaxandi áhersla á sjálfbærni í skipulagi á Norðurlöndum. Dr. Sigríður Krist- jánsdóttir, lektor í skipulags- fræðum við Landbúnaðarhá- skólann á Hólum, ritstýrði og skrif- aði í nýja bók um skipulagsfræði á Norðurlöndum, Nordic Experien- ces of Sustain- able Planning, Policy and Prac- tice. Bókin er ritrýnd og gefin út af Routledge og útgáfuhóf verður haldið í Þjóðminjasafni Íslands á milli kl. 16 og 18 í dag þar sem Sig- ríður kynnir bókina. Sjálf skrifaði hún fimm kafla af átján, en aðrir kaflar eru skrifaðir af skipulags- sérfræðingum víða að af Norður- löndunum. Í bókinni er m.a. leitast við að svara spurningum um hvort sé að verða stefnubreyting í skipu- lagi og rannsóknum í skipulags- málum er varðar sjálfbærni og hvort sjálfbærniumræðan sé að leiða til pattstöðu í skipulagi. „Í sjálfbærri þróun erum við að tala um efnahagskerfið, náttúruna, samfélagið og félagslegan jöfnuð. Að skipulagið eigi að finna jafnvægi á milli þessara þátta er mikil áskor- un. Í bókinni set ég fram skipulags- pýramída og byggi bókina upp á honum. Þá er ég að horfa á horn- steinana sem eru náttúran, hag- kerfið, stjórnsýslan og lagaramm- inn. Þessir þrír þættir ákvarða rammann sem skipulagið passar inn í. Svo verður skipulagið að byggðu umhverfi, við búum til leik- svið til að lifa í. En í skipulagi verða stundum árekstrar á milli hagsmuna, t.d. náttúran og efna- hagskerfið, eigum við að virkja eða ekki og svo hvernig. Líka hvernig náttúrufarslegum og hagrænum gæðum er deilt svo að allir geti haft jafnan aðgang að þeim,“ segir Sig- ríður..Í bókinni er yfirlit skipulags- kerfa á Norðurlöndum þar sem vaxandi áhersla á sjálfbærni er dregin fram, en að sögn Sigríðar er skipulag þar norrænni velferðar- hugsun. Í bókinni rýna valinkunnir fræði- menn á sviði skipulagsfræða, borg- arhönnunar, arkitektúrs, landslags- hönnunar, hagfræði, fasteignamála og ferðamennsku hvernig hug- myndin um sjálfbærni hefur mótað rannsóknir í skipulagsmálum á Norðurlöndum. Teikning/Sigríður Kristjánsdóttir Skipulagspýramídinn Sigríður byggir bókina á grunnstoðum í skipulags- fræðum sem hún stillir upp sjónrænt sem þrívíðum pýramída. Sjálfbærni og patt- staða í skipulagi  Ný fræðibók um skipulagsmál Sigríður Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.