Morgunblaðið - 21.03.2018, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018
Fuglabað Þeir voru heldur betur kátir þessir fiðruðu félagar sem skelltu sér saman í bað með tilheyrandi skvettugangi. Það er vorhugur í fuglunum og eins gott að þrífa sig fyrir pörun.
Kristinn Magnússon
Sá sem ekki hefur
setið landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins á erf-
itt með að skilja og
skynja þann ótrúlega
kraft sem sjálfstæðis-
menn um allt land búa
yfir. Sá sem ekki hefur
reynt áttar sig illa á
því hvernig hægt er að
móta stefnu stjórn-
málaflokks með þátt-
töku á annað þúsund manns.
Landsfundur Sjálfstæðisflokks-
ins er eins konar suðupottur hug-
mynda og hugsjóna, þar sem
kraumar vel undir. Tekist er á um
einstök mál af festu, stundum hörku
en með hreinskiptnum hætti.
Stjórnmálaflokkur sem forðast
átök, nýjar hugmyndir og skoðana-
skipti, fær aldrei byr í seglin. Í
lognmollu felst dauði og þá dugar
ekki að reyna að rugga bara bátn-
um.
Líkt og oft áður létu ungir sjálf-
stæðismenn til sín taka á landsfund-
inum um liðna helgi, með skýrum
málflutningi og beittum tillögum
sem náðu flestar fram að ganga. Á
landsfundi er dagskrárvaldið í
höndum landsfundarfulltrúa sem
koma alls staðar að af landinu – sjó-
menn og útgerðarmenn, bændur og
iðnaðarmenn, kennarar og for-
stjórar, læknar og eldri borgarar,
framhaldsskólanemendur og há-
skólastúdentar, forritarar og versl-
unarmenn, fiskeldismenn og nátt-
úruverndarsinnar. Þverskurður
þjóðarinnar sem sameinast undir
gömlu kjörorði; stétt með stétt.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins,
sló tóninn í setningar-
ræðu síðastliðinn
föstudag:
„Ég stend hér og
segi ykkur að stefna
Sjálfstæðisflokksins
hefur gert lífið betra
fyrir Íslendinga í
gegnum tíðina. Við
höfum byggt allt okkar
starf á trúnni á frelsi
einstaklingins.
Að hlutverk stjórn-
valda væri að hvetja og
styðja við framtakssemi fólks. Við
það myndi kakan stækka og allir
njóta góðs af því.
Síðustu ár eru sönnun þess að sú
kenning er rétt. Við getum verið
stolt af árangrinum.“
Báknið burt
Í stjórnmálaályktun fundarins er
undirstrikað að skattkerfi og reglu-
verk atvinnulífsins eigi að vera ein-
falt og sanngjarnt og að lækka þurfi
skatta. Bent er á það sem öllum
ætti að vera augljóst en virðist vefj-
ast fyrir mörgum: „Atvinnufrelsi,
virk samkeppni og hagkvæm nýting
auðlinda eru forsendur efnahags-
legra framfara og undirstaða vel-
ferðarkerfisins.“
„Ríki sem reynir að sinna verk-
efnum sem aðrir geta séð um og
gerir það í þokkabót illa, er bákn,“
sagði Bjarni Benediktsson í setn-
ingarræðunni og bætti við:
„Þegar hið opinbera kæfir fram-
takssamt fólk í skriffinnsku, lætur
það þvælast milli stofnana með
eyðublöðin, er það bákn. Sama gild-
ir ef innheimtir skattar og gjöld
fara í of miklum mæli í óþarfa út-
gjöld.
Losum okkur við slíkt bákn, en
verum á móti stolt af því þegar okk-
ur vex styrkur til að gera betur í
mikilvægri opinberri þjónustu.“
Ég fullyrði að enginn annar for-
maður stjórnmálaflokks á Íslandi
talar með þeim hætti sem Bjarni
gerir eða sýnir meiri skilning á því
hve mikilvæg það er að opinberir
aðilar séu ekki að leggja steina í
götur frumkvöðla og sjálfstæðra at-
vinnurekenda en um leið sé staðið
myndarlega að velferðar- og
menntamálum. Hann vill einfalda
samskiptin við hið opinbera og inn-
leiða rafræna stjórnsýslu. Taka op-
inberar leyfisveitingar til gagn-
gerrar endurskoðunar – snúa
kerfinu á rönguna og ganga „út frá
því að fólk í atvinnurekstri vilji al-
mennt standa sína plikt“.
Pólitískur kraftur
Styrkur Sjálfstæðisflokksins felst
ekki síst í því dagskrárvaldi sem al-
mennir flokksmenn hafa á lands-
fundum. Fulltrúar á landsfundi eru
bakbein flokksins um allt land. Þeir
eru tilbúnir að taka þátt í pólitísku
starfi til að hafa áhrif á samfélagið –
gera lífið betra fyrir alla. Skoðanir
eru skiptar í mörgum málum en
undir gunnfána frelsis eru allir þess
fullvissir að Íslendingum vegni best
þegar einstaklingurinn fær að njóta
sín, fær svigrúm til athafna. Á
landsfund kemur saman fólk sem
vill koma böndum á ríkisvaldið – fólk
sem hafnar sérréttindum en berst
fyrir því að hver og einn fái að vera
hann sjálfur, að allir séu jafnir fyrir
lögum og njóti jafnra tækifæra í líf-
inu. Það er engin tilviljun að sjálf-
stæðismenn leggja áherslu á öflugt
menntakerfi eða eins og Bjarni
Benediktsson sagði í ræðu sinni:
„Menntakerfið er besta tækið sem
við eigum til að tryggja að börnin
okkar búi við jöfn tækifæri þegar
þau halda af stað út í lífið. Með góð-
um skólum getum við hjálpað öllum,
lyft öllum þannig að öll börn séu í
færum að nýta það sem í þeim býr.“
Mér hefur alltaf fundist magnað
að upplifa hvernig samkeppni hug-
mynda og skoðanaskipti á lands-
fundi leysa úr læðingi pólitískan
kraft. Landsfundurinn um liðna
helgi var þar engin undantekning.
Bjarni Benediktsson hefur aldrei
staðið sterkar sem formaður en
hann var endurkjörinn með yfir 96%
atkvæða. Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir hlaut glæsilega kosn-
ingu í embætti varaformanns eða
tæp 96%. Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir sem var endurkjörin ritari
með tæp 94% atkvæða. Umboð
þeirra þriggja er skýrt og þau fara
vel nestuð af landsfundi.
Fyrir þann sem hér skrifar var
það sérstaklega ánægjulegt að
hlusta á framboðsræðu Þórdísar
Kolbrúnar síðastliðinn laugardag
þar sem hún undirstrikaði að Sjálf-
stæðisflokkurinn væri flokkur tæki-
færanna – tækifæra hins venjulega
manns:
„Við sjálfstæðismenn eigum er-
indi við framtíðina, af því að við
skiljum hvers hún krefst af okkur.
Hún krefst þess að einstaklings-
frelsi og athafnafrelsi blómstri sem
aldrei fyrr, í allra þágu. Því að
þannig nær venjulegt fólk óvenju-
legum árangri.“
„Að nenna að leggja á sig “
Konur voru áberandi í öllu starfi
á landsfundinum og hafa aldrei ver-
ið í sterkari stöðu til að móta og
skerpa stefnu flokksins á komandi
árum. Í átta málefnanefndum sem
kosið var í eru konur í meirihluta
sjö nefnda og formenn í fimm. Af
þeim sem náðu kjöri í stjórnir mál-
efnanefndanna voru 26 konur og 14
karlar. Konur leika því lykilhlut-
verk þegar kemur að því að efna lof-
orð Sjálfstæðisflokksins um að gera
lífið betra fyrir alla.
En auðvitað skiptir það litlu
hvort það er karl eða kona sem tek-
ur að sér að móta stefnu stjórn-
málaflokks, ef hugsjónin og dugn-
aðurinn til að berjast fyrir fram-
gangi hennar er ekki til staðar.
Bjarni Benediktsson, eldri, orðaði
þetta með sínum hætti þegar hann
brýndi landsmenn til virkrar þátt-
töku í þjóðlífinu á 25 ára afmæli lýð-
veldisins:
„Menn koma engu góðu til vegar,
nema þeir séu sjálfir virkir þjóð-
félagsþegnar, geri upp eigin hug,
þori að hugsa sjálfstætt, fylgja
hugsun sinni eftir og átti sig á því,
að fátt næst fyrirhafnarlaust. Menn
verða í senn að nenna að leggja á
sig hugsun og vinnu, ef þeir í raun
og veru vilja knýja fram þær um-
bætur, er löngun þeirra stendur
til.“
Eftir Óla Björn
Kárason » Styrkur Sjálfstæðis-
flokksins felst í því
dagskrárvaldi sem al-
mennir flokksmenn hafa
á landsfundum. Fulltrú-
ar á landsfundi eru bak-
bein flokksins.
Óli Björn Kárason
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Gerum lífið betra