Morgunblaðið - 21.03.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 21.03.2018, Blaðsíða 27
ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018 Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is Sími: 535 9000 | bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð Vottaðir hágæða VARAHLUTIR í flestar gerðir bifreiða Siðan 1962 Bílanaust er einnig í Kópavogi – Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum stefnir nú að næstu gráðu með sama árabili. Hún hefur auk þess farið námsferðir, nokkrum sinnum, í leyfi frá störfum og í fríum, t.d. í Kanada, Bandaríkjunum og Frakklandi. Dalla hefur sungið í kórum, er í kvenfélaginu, hefur setið í skóla- nefnd, barnaverndarnefnd og hefur sótt heimsþing Lúterska heims- sambandsins, Alkirkjuráðsins og Kirknasambands Evrópu. Á meðal áhugamála Döllu má telja matreiðslu, lestur góðra bóka og ferðalög: „Ég hef ferðast dálítið til fjarlægra staða, t.d. Argentínu og Brasilíu, Taílands og Simbabve og þá gjarnan verið að sinna kirkju- legum störfum. Eins og fyrr greinir kynntist ég ung Frakklandi og finnst nú orðið nauðsyn að koma á gamalkunnar slóðir einu sinni á ári. Þá má ekki gleyma því sem við ger- um alltof sjaldan, ég hef mikla unun af og tel mikla heilsubót. En það er að gera ekki neitt: Leggja áherslu á að vera, án þess að vera nauðsynlega alltaf að gera eitthvað.“ Fjölskylda Eiginmaður Döllu er Agnar Hall- dór Gunnarsson, f. í Bolungavík. 23.1. 1953, bóndi og oddviti í Akra- hreppi. Foreldrar hans: Hjónin Helga Guðmundsdóttir, f .17.5. 1917, hús- freyja og fyrrv. starfsstúlka á elli- heimili, og Gunnar Hjörtur Hall- dórsson, f. 30.5. 1924, d. 28.5. 2007, verkamaður. Þau bjuggu lengst af í Bolungarvík. Synir Döllu og Agnars eru Trost- an Agnarsson, f. 21.11. 1981, fyrr- verandi andahirðir, BA í íslensku og kennari í Varmahlíðarskóla, og Vil- hjálmur Agnarsson, f. 15.5. 1985, rafvirki og flugvirki í Reykjavík, kvæntur Sirrý Sif Sigurlaugardóttur félagsráðgjafa og eru börn þeirra Freyja, f. 2012, og Frosti, f. 2015. Systur Döllu eru Yrsa Þórðar- dóttir, f. 7.4. 1962, sóknarprestur í Waldstatt í Appenzell í Sviss; Elín Þöll Þórðardóttir, f. 14.1. 1964, pró- fessor í talmeinafræði við McGill- háskóla í Montréal í Kanada og stundakennari við HÍ, og Þjóðhildur Þórðardóttir, f. 14.5. 1969, skrif- stofustjóri hjá Ríkisskattstjóra í Vestmannaeyjum. Foreldrar Döllu eru Auður Eir Vilhjálmsdóttir, f. 21.4. 1937, prest- ur, og Þórður Örn Sigurðsson, f. 14.8. 1935, latínu- og spænskukenn- ari við MR, starfsmaður Evrópu- ráðsins og framkvæmdastjóri hjá Flugmálastjórn. Dalla Þórðardóttir Ágústa Gunnlaugsdóttir húsfreyja í Reykjavík Sigurður Þórðarson skipstj. í Rvík Vilborg Ólafsdóttir húsfr. í Rvík Þórður Örn Sigurðsson kennari við MR og framkvstj. hjá Flugmálastjórn Ólafur Ísleifsson togaraskipstj. i Rvík Gylfi Þ. Gíslason prófessor, alþm. og ráðhr. Þorsteinn Gylfason heimspekiprófessor, skáld og rithöfundur Vilmundur Gylfason alþm. og ráðherra Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor Auðólfur Árnason yfirlæknir í Rvík Gunnar Árnason pr. í Kópavogi Þorbjörg Dýrleif Árnadóttir hjúkrunark., kennari og rith. í Rvík Jón Sigurðsson, skipstj. og einn stofnenda togarafélagsinsAlliance Markús ÖrnAntonsson fyrrv. borgarstj., útvarpsstj., sendiherra og forstöðum. Þjóð- menningarhúss Anna Páls- dóttir húsfr. í Ána- naustum Anton Björn Björnsson bakari og íþróttakennari í Keflavík og í Rvík Sigríður Björnsdóttir húsfr. í Rvík Björn Bjarnason fyrrv. ritstj., alþm. og ráðherra Valgerður Bjarnadóttir fyrrv. alþm. Yrsa Ingibjörg Vilhjálmsdóttir aðalgjaldkeri Þór Vilhjálmsson hæstaréttardómari og dómari við Mannréttindadómstólinn í Strassborg Ísleifur Ólafsson stýrim. og verkam. í Rvík Dr. Vilborg Bickel Ísleifs- dóttir kirkjusagnfr. í Þýskulandi Þórður Sigurðsson sjóm. og netagerðarmeistari í Rvík Óskar Þ. Þórðarson yfirlæknir í RvíkHögni Óskarsson læknir Ólafur Stefán Sigurðsson fyrrv. sýslum. í Búðardal Brynhildur Ósk Sigurðardóttir hjúkrunarfr. og djákni Ólöf D. Árnadóttir íþróttak. og rith. í Rvík Hjördís B. Hákonardóttir fyrrv. hæstaréttardómari Inga Huld Hákonardóttir rithöfundur Gunnlaugur Scheving listmálari Björn Gíslason kaupm. í Rvík Þorsteinn Gíslason skáld og ritstj. í Rvík Þórunn Pálsdóttir húsfr. í Rvík, af Presta-Högnaætt Vilhjálmur Þ. Gíslason skólastj. VÍ og útvarpsstj. í Rvík Inga Árnadóttir húsfr. í Rvík Sr. Árni Jónsson prófastur og alþm. á Skútustöðum Auður Gísladóttir húsfr. á Skútustöðum Úr frændgarði Döllu Þórðardóttur Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir prestur Kvennakirkjunnar Stefanía Pálsdóttir húsfr. í Rvík 90 ára Jóhanna G. Kristjónsdóttir 85 ára Davíð Davíðsson Þorvaldur S. Þorvaldsson 80 ára Ólafur Þórðarson 75 ára Björn Ágústsson Finnur Örn Marinósson Herdís Ósk Herjólfsdóttir Ingvar Baldursson Lillian B. Nielsen Sigurborg Sigurbjörnsdóttir Vigfús Jóhannesson Þórunn S. H. Ingólfsdóttir 70 ára Arnfríður Ásdís Guðnadóttir Bergljót Kjartansdóttir Birgir Jakobsson Fríður Eggertsdóttir Magnús Rúnar Agnarsson Steinunn Margrét Guðjónsdóttir 60 ára Aðalheiður Harðardóttir Dalla Þórðardóttir Jozef Antoni Ambroz Kristín Sigríður Guðnadóttir Laufey Skúladóttir Lára Margrét Lárusdóttir María Friðgerður Rúriksdóttir Sigríður H. Þorsteinsdóttir Sigurbjörg Níelsdóttir Sigurlaug Sigurðardóttir Steinþór Steinþórsson Sölvi Ellert Sigurðsson 50 ára Abdelhamid Ibrahim Dagný Baldvinsdóttir Garðar Smárason Guðný Jóna Guðnadóttir Halldóra Vala Jónsdóttir Íris Bjargmundsdóttir Kristinn Karl Garðarsson Kristín Björg Knútsdóttir Laufey Helga Geirsdóttir Susana Patotoy Palajos Tómas Þröstur Rögnvaldsson Valgerður H. Valgeirsdóttir Þorbjörn Pétursson 40 ára Anna M. Herczynska-Wejt Evelyn Bruce Asane Hannes Marinó Ellertsson Harpa Guðbrandsdóttir Harpa Ragnarsdóttir Ivan Furdek María Katrín Jónsdóttir Nadja Sophie Teresa Widell Njáll Fannar Reynisson Ragnheiður Bl. Benediktsdóttir Rajesh Paul Robert Mieczyslaw Suchy Robert Przybysz Viktor Guðbrandsson Örn Hróbjartsson 30 ára Birna Þórisdóttir Bubpha Ingvason Helga Höeg Sigurðardóttir Hlífar Þór Gíslason Hrönn Björgvinsdóttir Linda Rós Jónsdóttir Marcin Andrzej Janowski Marius Sakalauskas Pétur Orri Ragnarsson Svanhvít Sigurðardóttir Valgeir Tómasson Vladislava Falonova Til hamingju með daginn 30 ára Pétur Orri ólst upp á Seltjarnarnesi, býr í Reykjavík, lauk MSc-prófi í tölvunarfræði frá HR og er forritari hjá Marel. Bræður: Tryggvi Ragnarsson, f. 1991, stuðningsfulltrúi, og Hjalti Ragnarsson, f. 1994, þjónn. Foreldrar: Ragnar Hauks- son, f. 1957, leiðsögu- maður, og Lóa Wilberg, f. 1957, launafulltrúi hjá Háskóla Íslands Pétur Orri Ragnarsson 30 ára Hrönn býr á Akur- eyri, lauk BA-prófi í mál- fræði og diplómu í upp- lýsingafræði frá HÍ og er bókavörður við Amts- bókasafnið. Maki: Sveinn Thoraren- sen, f. 1980, matreiðslu- maður. Börn: Snorri Valdimar, f. 2014, og Hrafna Eybjörg, f. 2016. Foreldrar: Björgvin Guð- mundsson, f. 1959, og Soffía Axelsdóttir, f. 1955. Hrönn Björgvinsdóttir 30 ára Hlífar ólst upp í Reykjavík, býr í Hafnar- firði og starfar við vatns- skurðarvélar hjá Stál- nausti í Hafnarfirði. Maki: Svanhildur Hjalta- dóttir, f. 1989, í fæðing- arorlofi. Sonur: Hjalti Þór, f. 2017. Foreldrar: Gísli Birgir Gíslason, f. 1961, bifreiða- stjóri, og Halldóra Guð- laugsdóttir, f. 1965, fyrrv. starfsmaður hjá Sjálfs- björg. Hlífar Þór Gíslason Elsa E. Guðjónsson fæddist21.3. 1924. Foreldrar henn-ar voru Halldór G. Marías Eiríksson, forstjóri Mjólkursamsöl- unnar, og Elly Margrethe Eiríks- son, f. Schepler, í Kaupmannahöfn. Halldór var sonur Eiríks Sig- mundssonar, bónda á Hrauni á Ingjaldssandi, og Sigríðar Jóhönnu Jónsdóttur húsfreyju. Langamma Elsu í móðurætt var Karen Marie Schepler sem stofnaði Mælke- forsyningen Ravnsborg í Nørrebro í Kaupmannahöfn,1886. Synir hennar tveir ráku síðan fyrirtækið og var annar þeirra Carl Schepler, móður- afi Elsu. Það fyrirtæki varð seinna að Irma, keðju matvöruverslana. Systkini Elsu: Inger E. Johnsen, lengst af búsett vestanhafs, og Carl J. Eiríksson verkfræðingur. Eiginmaður Elsu var Þórir Guð- jónsson, fiskifræðingur og veiði- málastjóri, en börn þeirra: Stefán Þór, Elsa Margrét, og Kári Hall- dór. Elsa lauk stúdentsprófi frá MR, BA og síðan MA-prófi í textíl - og búningafræðum, list og listasögu frá Háskólanum í Seattle, stundaði nám í Íslandssögu við HÍ 1953-56 og lauk prófi í miðaldasögu 1961. Elsa var sérfræðingur og safn- vörður í Þjóðminjasafni Íslands frá 1963 og deildarstjóri textíl- og bún- ingadeildar safnsins frá 1985 til starfsloka 1994. Hún átti sæti í fjöl- mörgum nefndum og ráðum um textíl- og búningasögu, var höf- undur bóka og fjölmargra greina, ritgerða og bókarkafla um textíl- og búningasögu í íslenskum sem og er- lendum tímaritum, fræði- og al- fræðiritum, höfundur útvarps- og sjónvarpsþátta, fyrirlesari á ráð- stefnum og þingum og útgefandi. Elsa hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 1981, var kjörin félagi í Vísindafélagi Íslend- inga 1985, hlaut verðlaun frá Kung- liga Gustav Adolfs Akademien í Uppsölum í Svíþjóð 1987 og heið- ursdoktorsnafnbót við HÍ 2000. Elsa lést 28.11. 2010. Merkir Íslendingar Elsa E. Guðjónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.