Morgunblaðið - 21.03.2018, Síða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018
Sæbjúgu innihalda mikið kollagen og yfir 50
tegundir af næringarefnum sem hafa öll mjög
jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi
mannslíkamans
ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLA: Framleiðandi sæbjúgna er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fást á arcticstar.is
.
Arctic Star sæbjúgnahylki fást í flestum apótekum og heilsubúðum og í Hagkaupum.
Arctic Star Sæbjúgnahylki
Sæbjúgu
eru þekkt fyrir:
• Hátt prótíninnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið og mótstöðu
líkamans gegn ýmsum sjúkdómum
• Að auka blóðflæði sem minnkar líkur á blóðtappa
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla
að myndun húðpróteins
og insúlíns
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Samstarfsfólkið er bæði sam-
vinnuþýtt og hvetjandi þessa dagana. Gerðu
þér grein fyrir því hvað þú hefur það gott og
sýndu þakklæti þitt með því að láta gott af
þér leiða.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur í mörgu að snúast og skalt fá
fólk í lið með þér til að leggja hönd á plóg því
þá gengur allt eins og í sögu. Reyndu að fara
á stað sem þú hefur ekki komið á áður.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú leggur þig yfirleitt fram um að
halda friðinn en í dag er ómögulegt að gera
öllum til hæfis. Ef þú þarft að láta í minni
pokann skaltu gera það með reisn.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur haft yfrið nóg að starfa að
undanförnu en sérð nú fram á að eiga tíma
aflögu fyrir sjálfan þig. Þú leggur grunninn að
vinskap núna og hann reynist traustur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Fólk er tilbúið til að veita þér allan þann
stuðning sem þú þarft því það trúir á það
sem þú ert að gera. Láttu ekkert freista þín
svo að fjármálin fari úr böndunum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Því fylgir alltaf nokkur spenna, þegar
takast þarf á við nýja og óvænta hluti.
Ánægjulegir atburðir hafa gerst í lífi þínu og
þú vilt deila þeim með öðrum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert bjartsýnni á framtíðina en þú
varst á síðasta ári. Allt þitt erfiði hefur nú
borgað sig og þú ættir að vera í góðu formi
líkamlega og andlega.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki leggja of hart að þér í dag.
Velgengnin virðist hreinlega leita þig uppi.
Taktu því sem merki um að þitt álit og þinn
stuðningur skipti máli.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Oft getur reynst nauðsynlegt að
hafa þolinmæði í samskiptum við fólk. Þú
munt nú uppskera laun þess erfiðis þíns að
hafa rétt samstarfsmanni hjálparhönd.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Forðastu að taka ákvarðanir að
óyfirveguðu ráði. Kynntu þér þá kosti sem í
boði eru og mundu að ekki er allt gull sem
glóir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú ertu kominn á lokasprettinn
með verkefni sem þú hefur lengi unnið. Þér
er óhætt að láta eitthvað eftir þér í tilefni far-
sælla verkloka.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er engin ástæða til að láta hug-
fallast, þótt það verkefni, sem þú fæst við,
reynist eitthvað snúnara en þú áttir von á.
Vertu óhræddur við að þiggja aðstoð annarra.
Hér er skemmtileg og vel ort rím-
æfing eftir Ólaf Stefánsson, – ensk
sonnetta hygg ég sé:
Tími og veröld tölta sína leið,
það tekur varla að erfa það við neinn.
Enginn sagði: gatan sú er greið,
og gönguslóðinn hann var aldrei beinn.
Nú fámennt er það fylgdarlið sem beið,
er fyrstu sporin tókst, og varst ei seinn.
Þá vonargleðin var sem laufgur teinn
og vinaskarinn magna gerði seið.
Að lokum ertu látinn eftir einn,
ljósið hörfar, opnast djúpin breið.
Tónninn, áður tær og klára hreinn,
er táður því að skáldgyðjan er reið.
Samt er gott þó sitji í hjarta fleinn,
að semja ennþá versin morgunheið.
Hallmundur Kristinsson yrkir á
Boðnarmiði:
Fallega brokkar merin mín,
mætir sól með kumri.
Vorið yfir vetri gín
virðist hóta sumri.
Og tekur síðan fram innan sviga
að hann eigi að vísu enga meri og
hafi aldrei átt.
Dagbjartur Dagbjartsson svar-
aði:
Samt við fögnum sumrinu
svona í einni hendingu.
Hitt er aukaatriði
með eignarhald á merinni.
Hallmundi þótti rétt að útskýra
mál sitt frekar:
Stunda vísnagerðargrín.
Gróf eru mörkin skoruð,
enda virðist merin mín
mjög sem tittur horuð.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir
lét í sér heyra: Hallmundur minn!
Ó, minn fákur flest allt getur, fagnar
sumri
fallega hann fetar grundir
flestum veitir unaðsstundir.
Og bætti við: „En ég á engan fák-
inn!“
Hér er staka eftir Jón Þor-
steinsson á Arnarvatni:
Töltir hún um tún og engi til að bíta:
liggi tað á leiði grónu
lengist flipi á Árna-Skjónu.
Þessi vísa Jóns er flestum
gleymd, – nema þriðja hendingin!
Tryggvi var Þórhallsson og for-
maður Framsóknarflokksins:
Fellur regn með fossanið
fúlt og ljótt í bragði.
En allt er betra en íhaldið
eins og Tryggvi sagði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Rímæfing og síðan
hestavísur
„LÁTTU RANNSÓKNASTOFUNA FARA AFTUR
YFIR NIÐURSTÖÐURNAR. HVERNIG Á ÉG AÐ
AUKA VIÐ STARFSEMINA EF ÉG TAPA
Á ÖLLUM SJÚKLINGUNUM?“
„VIÐ HÖFUM EKKI SÉÐ NEINA ÖND Í TVO
KLUKKUTÍMA!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... Að óska þess að þú
gætir stoppað allar
klukkur í veröldinni.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞÚ VEIST, ÉG HEF ALLTAF TALIÐ AÐ
ÉG ÆTTI EFTIR AÐ GERA EITTHVAÐ
MIKIÐ Í FRAMTÍÐINNI…
HVAÐ VAR
ÞETTA? MJÖG
SÁR BÆLDUR
HLÁTUR
AFI, HVERNIG VAR
FAÐIR MINN SEM
BARN?
HANN VAR
ERFIÐUR! PABBI
ÞINN SLÓST VIÐ
ÖNNUR BÖRN UM
NESTISPENINGANA
ÞEIRRA!
VISSIR ÞÚ ÞÁ AÐ HANN
YRÐI VÍKINGUR?
NEI, ÉG VISSI ÞÁ AÐ
HANN YRÐI FEITUR!
Á Íslandi er allra veðra von, enlandið er þó ekki þekkt fyrir
miklar hitasveiflur. Á veturna silast
meðalhitinn niður að núlli í Reykja-
vík og á sumrin upp fyrir tíu gráður.
Aðrir búa við meiri sveiflur og getur
hæglega munað sextíu gráðum á
kaldasta og heitast degi ársins í
löndum í næsta nágrenni við Ísland.
Þó telst fyrir einhverra hluta sakir
til tíðinda þegar veður er betra á Ís-
landi en í nágrannalöndunum.
x x x
Í fyrradag mátti til dæmis lesa fréttá mbl.is með fyrirsögninni
„Hlýrra í Reykjavík en víða í Evr-
ópu“ og var hún með mest lesnu
fréttum vefsins þann daginn. Þessa
dagana koma sem sagt ferðalangar
til Íslands til að flýja kuldann í
heimalandinu. Víkverji verður að
játa að hann gleypti þessa frétt í sig,
en getur ekki fullyrt að honum hafi
orðið hlýrra við lesturinn.
x x x
Það hefur þó sennilega ekki veriðætlunin þegar ferðin var bókuð
því að sú trúa er algeng að á Íslandi
séu vetur kaldir. Þegar kuldakastið
reið yfir Evrópu á dögunum og tug-
þúsundir bíla sátu fastar á hrað-
brautum í suðurhluta álfunnar
vegna snjókomu fékk blaðamaður
fjölmiðils á Bretlandi þá snjöllu hug-
mynd að hringja til Íslands. Ætlunin
var að spyrjast fyrir um hvernig
væri að búa í landi þar sem veðrið
væri alltaf svona. Sá sem varð fyrir
svörum á ritstjórn Morgunblaðsins
svaraði því til að veðrið væri sjaldan
svona í Reykjavík. Hér væru veður
öll mild og meðalhiti í höfuðborginni
yfir frostmarki í janúar. Þetta svar
kunni hinn breski fréttahaukur ekki
að meta, enda þvert á hans fyrir-
framgefnu hugmyndir og fréttin
dauð. Samtalið varð því ekki lengra.
x x x
Janúar var reyndar óvenju kaldur íár. Meðalhitinn í Reykjavík var
-0,2°, heilum 1,5° undir meðaltali ár-
anna 2008 til 2017. Víkverji er ekki
kominn með meðalhitann í Reykja-
vík í júlí á þessu ári, en í júlí í fyrra
var hann 11,7°, 0,6° kaldari en að
meðaltali árin tíu á undan.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Á því munu allir þekkja að þér eruð
mínir lærisveinar ef þér berið elsku
hver til annars.
(Jóh: 13.35)