Morgunblaðið - 21.03.2018, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 21.03.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018 ICQC 2018-20 PÖNTUN AUGLÝSINGA: fyrir mánudaginn 16. apríl. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ Fatnaður fyrir brúðhjónin, förðun, hárgreiðsla, brúðkaupsferðin, veislumatur, veislusalir og brúðargjafir eru meðal efnis í blaðinu. Brúðkaups- blað fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 20. apríl Alþjóðlega ljóðahátíðin í Gdansk í Póllandi, sem kennd er við ljóða- gerð um frelsi, verður haldin í fimmta sinn um næstu helgi. Hátíð- in og samkeppnin „Evrópska frels- isljóðskáldið“, sem er hluti af henni, eru haldin af Gdansk-borg. Mark- miðið er að heiðra og kynna þann þátt ljóðlistar sem, eins og segir í stefnuskrá hátíðarinnar, fæst við eitt mikilvægasta viðfangsefnið fyr- ir lesendur í dag – frelsi – og það á afgerandi listrænan hátt. Verðlaun- in eru veitt lifandi evrópsku ljóð- skáldi og hafa átta skáld verið til- nefnd fyrir bækur sem allar hafa verið þýddar á pólsku af því tilefni. Linda Vilhjálmsdóttir er ein hinna tilnefndu, fyrir bók sína Frelsi, sem Jacek Godek hefur þýtt. Fjölmörg skáld og annað bók- menntafólk mun safnast saman í Gdansk og taka þátt í viðamikilli dagskrá. Auk upplestra verður ljóðaslamm og rökræður, málþing og fyrirlestrar um ljóðlist. Munu tilnefndu skáldin taka þátt í upplestrum ásamt þýðendum bók- anna. Auk Lindu eru tilnefnd skáld- in Selim Babullaoglu, Tatev Chakhian, Dumitru Crudu, Plamen Doinov, Erkka Filande, Alice Os- wald og Menno Wigman, öll til- nefnd fyrir ljóðabækur sem fjalla um frelsi á einn eða annan hátt. Frelsi Lindu kom út haustið 2015 og fékk mikið lof, meðal annars í gagnrýni hér í blaðinu. Þar segir að efist einhver um að „skáld samtím- ans geti ort af þrótti um samtíma- málefni og pólitík, og hafið sig með erindið og óvægna mynd af heim- inum upp yfir ómarkvisst og suð- andi orðagjálfur dægurumræð- unnar, með tilkomumiklu ljóðmáli, þá ættu viðkomandi að lesa Frelsi Lindu Vilhjálmsdóttur“. Auk tilnefndu skáldanna kemur fjöldi annarra skálda fram á ljóðahátíðinni í Gdansk, þar á með- al Sigurbjörg Þrastardóttir. Hún kemur víðar fram á meginlandinu þessa dagana. Hún les upp í ljóða- miðstöðinni í Berlín, Haus für Poe- sie, í kvöld, á heimsljóðadeginum. Þar kemur hún fram ásamt skáld- um frá ólíkum svæðum jarðar, frá Sýrlandi, Bandaríkjunum, Alsír og Þýskalandi, sem lesa upp ásamt þýðendum ljóða þeirra. Frelsi Lindu keppir um verðlaun Morgunblaðið/Árni Sæberg Skáldið Linda Vilhjálmsdóttir kemur fram á ljóðahátíðinni um frelsi í Gdansk. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Áhorfendur mega búast við að þeim sé skemmt, þeim ögrað með forminu og þeir vaktir til umhugs- unar um netnotkun og sjálfsmyndir okkar í nútímanum,“ segir Bergdís Júlía Jóhannsdóttir, ein sjö leik- kvenna sem taka þátt í leikhús- gjörningnum 35 x Me and Some Actresses eða 35 x ég og nokkrar leikkonur sem sýndur verður í Rósenborg á Akureyri í kvöld kl. 18 og 20 og í Tjarnarbíói 24. og 25. mars kl. 19 og 21 báða daga, en sýn- ingin tekur nákvæmlega tvo klukku- tíma í flutningi. Gestaleikkonan fyr- ir norðan er Saga Geirdal Jónsdóttir en Kristbjörg Kjeld fyrir sunnan. Gagnrýna staðlaðar hugmyndir Spurð um tilurð sýningarinnar rifjar Bergdís upp að haustið 2016 hafi finnska leikdúóið Blaue Frau kallað eftir samstarfi við listamenn frá Norðurlöndunum vegna sýning- arinnar. „Finnsk vinkona mín, Anna Korolainen sem rekur með mér leik- hópinn Spindrift Theatre, hafði bent mér á þennan hóp og ég séð nokkrar sýningar. Mér fannst þetta verkefni hljóma svo spennandi að ég sendi inn mína frásögn,“ segir Bergdís og bendir á að umsækjendur hafi átt að lýsa því hvernig hið persónulega og faglega skarast og sameinast á net- inu í starfi þeirra sem leikkona. „Blaue Frau hlaut alls 139 um- sóknir frá norrænum leikkonum sem allar virtust eiga í svipuðum vanda. Í kjölfarið á áheyrnarpruf- unum voru fimm leikkonur valdar til þess að taka þátt í, og skapa þessa gagnvirku þátttökuleiksýningu,“ segir Bergdís, en auk hennar eru í leikhópnum Lidia Bäck, Sepideh Khodarahmi, Nina Matthis, Klara Wenner Tångring, Sonja Ahlfors og Joanna Wingren. Tvær síðastnefndu leikkonurnar stofnuðu Blaue Frau árið 2005 eftir að hafa verið hluti af dragleik- hópnum Sub Frau, sem íslenska leikkonan María Pálsdóttir stofnaði ásamt sjö norrænum leikkonum í magisternámi þeirra við Leiklistar- háskólann í Helsinki um aldamótin. „Blaue Frau hefur verið öflugt í að gagnrýna staðlaðar hugmyndir um samfélagið en ávallt á uppbyggi- legan hátt og með það að markmiði að breytingar leiði til hins betra,“ segir Bergdís. Netið eins og leikhúsið „Ég kýs að lýsa sýningunni sem gagnvirku þátttökuleikhúsi. Í upp- hafi sýningar fylla áhorfendur út spurningalista sem ákvarðar hvaða leið þeir fara í gegnum sýningar- rýmið. Við leiðum áhorfendur að ákveðnum gagnvirkum stöðvum þar sem fram fer ákveðin kennsla. Við leiðbeinum áhorfendum í að þróa og setja fram persónu sína á netinu,“ segir Bergdís og bendir á að sjálfs- myndin sé meðal þess sem sé til skoðunar í sýningunni. „Í nútíma samfélagi er það ekki einungis leikarinn sem stendur frammi fyrir stöðugum vangaveltum um eigin sjálfsmynd, heldur eru flestallir einstaklingar í stöðugri endurskoðun um hverjir þeir eru og hvernig þeir birtast öðrum. Þetta er bein afleiðing af daglegri notkun mismunandi samfélagsmiðla,“ segir Bergdís og bendir á að netið líkist leikhúsinu að því leyti að notendur/ þátttakendur eru sífellt að leika og fylgjast hver með öðrum. Samkennd og samstaða Að sögn Bergdísar er markmið sýningarinnar að leiðbeina áhorf- endum hvernig þeir geta tekið meira rými í hinum stafræna heimi. „Netið hefur enn ekki verið al- gjörlega undirlagt feðraveldinu. Ein kenning vinnuhópsins er að við get- um smeygt okkur inn í netið, mótað það og skapað femíníska útópíu,“ segir Bergdís og heldur áfram til út- skýringar að útópían felist í rými þar sem konur geti fundið sam- kennd og samstöðu. „Við sjáum það nú þegar gerast á samfélagsmiðlum þar sem konur standa saman og hvetja hver aðra til dáða. Hér er því um að ræða listræna tilraun þar sem leitast er við að skapa annan valmöguleika á móti kynbundinni menningu sem hefur orðið meira áberandi í kjölfar byltinga á borð við #metoo.“ Titillinn 35 x Me and Some Act- resses vísar til þess að aðeins kom- ast 35 áhorfendur á hverja sýningu. Verkið var frumsýnt í Lilla Teatern í Helsinki í febrúar og verður sýnt í Svíþjóð í haust og í Danmörku vorið 2019. „Einnig hefur sýningunni ver- ið boðið til Brussel og fleira er á prjónunum. Við munum sýna hana út næsta ár,“ segir Bergdís, en þess má geta að sýningin er leikin á ensku. Dramatúrg sýningarinnar er Stefan Åkesson, leikmynd hannar Kristina Sedlerova búningar, förðun og hárgreiðsla var í höndum Malin Nyqvist, lýsingu hannar Meri Ekola og hljóð Stefan Johansson. Skapa femíníska útópíu  Blaue Frau sýnir gagnvirku þátt- tökuleiksýninguna 35 x ég og nokkrar leikkonur í Rósenborg og Tjarnarbíói Sjálfsmynd Bergdís Júlía Jóhannsdóttir (fremst fyrir miðju) ásamt hinum leikkonum sýningarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.