Morgunblaðið - 21.03.2018, Síða 35
Menning
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018
Leikhópurinn, hljómsveitin og að-
standendur hinnar vinsælu sýn-
ingar Elly, sem leikin hefur verið í
Borgarleikhúsinu fyrir fullu húsi,
fengu afhenta gullplötu að lokinni
sýningu á Stóra sviðinu síðastliðinn
laugardag. Platan sem var gefin út
með lögum úr sýningunni hefur
selst í yfir 3.000 eintökum, en selja
þarf 2.500 eintök til þess að fá gull-
plötu.
Á laugardaginn var ár liðið frá
því að sýningin var frumsýnd. Síð-
an hefur hún verið sýnd 138 sinn-
um, alltaf fyrir fullu húsi, og yfir 60
þúsund gestir komið á sýninguna.
Þetta var síðasta sýningin á þessu
leikári þar sem leikarar í verkinu
taka nú þátt í öðrum sýningum í
Borgarleikhúsinu.
Ljósmynd/Sigurjón
Syngja Ragnar Bjarnason og Katrín Hall-
dóra Sigurðardóttir með gullplötuna.
Lögin úr sýning-
unni Elly í gullsölu
Ringo Starr trymbill Bítlanna hlaut í
gær formlega riddaratign við athöfn
í Buckingham-höll í London sem Vil-
hjálmur Bretaprins stýrði. Var hann
gerður að riddara breska heims-
veldisins, fyrir tónlistarstörf.
„Þetta er mér mikils virði,“ sagði
Ringo, eða Richard Starkey eins og
hann heitir réttu nafni, við útsend-
ara BBC. „Þetta er viðurkenning
fyrir það sem við höfum gert. Það
gladdi mig verulega að fá að veita
þessu viðtöku.“
Ringo var gerður að riddara nú 53
árum eftir að Bítlarnir hlutu á sínum
tíma MBA-orðuna bresku og hann
sagðist sakna þess að hafa ekki hina
þrjá Bítlana með sér núna. „Ég var
frekar stressaður að standa þarna
aleinn,“ sagði hann og bætti við að
hann myndi bera heiðursorðuna
þegar hann borðaði morgunmat.
AFP
Riddarinn Sir Ringo með orðuna sem
staðfestir nýfengna riddaratignina.
Ringo orðinn ridd-
ari drottningar
i8 galleríið tekur
nú í vikulokin og
um helgina þátt í
hinni árlegu list-
kaupstefnu Art
Dubai í Dubai.
Galleríið sýnir
þar verk eftir sjö
þeirra lista-
manna sem það
vinnur með, þau
Ólafu Elíasson,
Hrein Friðfinnsson, Kristján Guð-
mundsson, Alicja Kwade, Örnu Ótt-
arsdóttur, Eggert Pétursson og
Ignacio Uriarte.
Alls sýna 105 gallerí frá 48 lönd-
um á listkaupstefnunni í Dubai að
þessu sinni. Þetta er viðamesta list-
kaupstefna arabalandanna og þótt
mörg þekkt gallerí Vesturlanda
taki þátt er markmið skipuleggj-
enda að kynna einnig sérstaklega
samtímamyndlist frá Miðaustur-
löndum, Norður-Afríku og Suð-
austur-Asíu.
Hreinn
Friðfinnsson
i8 tekur þátt í list-
kaupstefnu í Dubai
Nánari upplýsingar má finna á reykjavik.is/lettum-umferdinni
Léttum á umferðinni
Málþing um samgöngur
Fróðlegar kynningar um það sem framundan er í samgöngum í Reykjavík.
Boðið verður upp á léttan morgunverð fyrir fundinn frá kl. 8:30.
Dagskrá málþingsins
Opnunarávarp
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
Samgöngufjárfestingar á höfuðborgarsvæðinu til 2030 | Tillögur stýrihóps SSH,
Vegagerðarinnar og samgönguráðuneytisins vegna samgönguáætlunar ríkisins 2018-2030
Hrafnkell Proppé, Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Umferðaröryggisáætlun Reykjavíkur | Vinna við umferðaröryggisáætlun fyrir Reykjavík
Berglind Hallgrímsdóttir, Verkís
Rafmagnsvæðing samgangna | Næstu skref hjá Orkuveitu Reykjavíkur
Bjarni Bjarnason, Orkuveitu Reykjavíkur
Strætó í Reykjavík | Hvað er títt í leiðakerfis- og orkuskiptamálum?
Valgerður Benediktsdóttir, Strætó
Borgarrýmin – götur og torg | Torg að breytast, torg í biðstöðu og göngugötur
Edda Ívarsdóttir, Reykjavíkurborg
Zipcar í Reykjavík | Hvernig virka deilibílar í Reykjavík?
Árni Sigurjónsson, Zipcar.
Bílastæðin í miðborginni | Tækninýjungar í undirbúningi
Kolbrún Jónatansdóttir, Bílastæðastjóður/Reykjavíkurborg
Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar | Helstu áherslur og verkefnin framundan.
Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Reykjavíkurborg
Miklabraut í stokk | Frummat á þróunarmöguleikum
Þorsteinn R. Hermannsson, Reykjavíkurborg
Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs tekur saman helstu
niðurstöður í lok fundar.
Opið málþing um samgöngur í Reykjavík í Tjarnarsal
ráðhússins föstudaginn 23. mars kl. 9-12