Morgunblaðið - 21.03.2018, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 80. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Síðasti nashyrningurinn allur
2. Hversu oft áttu að skipta á … ?
3. Alvarlegt umferðarslys í …
4. Börnin laus úr prísund og glaðari
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónskáldið J.S. Bach fæddist þenn-
an dag, 21. mars, árið 1685 og af því
tilefni blæs tónlistardeild Listahá-
skóla Íslands, í samstarfi við Hörpu,
til opinnar og óformlegrar æfingar á
tónlist Bachs á göngum og í opnum
rýmum Hörpu í dag frá kl. 11.30 til 13.
Öllum er velkomið að mæta með
hljóðfæri sín eða söngrödd og spila
og syngja brot úr verkum Bachs. Allt
höfundarverkið er undir og ætlunin
að úr brotunum myndist voldugur og
glundroðakenndur hljóðveggur, sann-
kölluð Bachófónía. Stjórnandi verk-
efnisins er Berglind M. Tómasdóttir.
Bachófónía í Hörpu
Hljómsveit
söngkonunnar
Unu Stefáns kem-
ur fram á tón-
leikum Jazz-
klúbbsins Múlans
á Björtuloftum í
Hörpu í kvöld kl.
21. Á efnisskránni
verður tónlist eft-
ir Unu og verða ný lög m.a. frumflutt
og nokkur tökulög fá að fljóta með.
Hljómsveit Unu
Stefáns á Múlanum
Tríó Túnfífill, skipað Maríu Kon-
ráðsdóttur sópran, Erlu Dóru Vogl-
er messósópran og Svani Vilbergs-
syni gítarleikara, leikur tónlist eftir
John Dowland, Franz Schubert, Fer-
enc Farkas, Anatoly Malukoff,
Federico Carcia Lorca og Manuel
de Falla, auk þjóðlaga-
útsetninga Atla
Heimis Sveinssonar,
á tónleikum í röð-
inni Klassík í
Vatnsmýrinni í
kvöld kl. 20 í
Norræna húsinu.
Túnfífill í Vatnsmýri
Á fimmtudag Norðaustan 8-13 m/s á Vestfjörðum, en annars
suðlæg eða breytileg átt, 3-10. Rigning eða slydda með köflum.
Á föstudag Norðan 10-18 m/s og snjókoma norðvestantil, en ann-
ars mun hægari og lítilsháttar rigning eða slydda. Hiti 0 til 5 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 8-15 m/s og fer að rigna, fyrst
suðvestantil en suðlægari þegar líður á daginn. Hiti víða 3 til 8 stig.
VEÐUR
„Ég hef verið mjög tvístíg-
andi með þessa ákvörðun
síðustu vikur og mánuði og
hugsað daglega um þetta.
Niðurstaðan er þessi og
núna er bara kominn tími til
að hugsa um aðra hluti og
horfa á íslenska fótboltann
frá öðru sjónarhorni,“ segir
knattspyrnumaðurinn Grét-
ar Sigfinnur Sigurðarson
sem hefur sett fótbolta-
skóna upp á hillu eftir átján
ára feril í meistaraflokki. »4
Tími til að hugsa
um aðra hluti
„Þessi ákveðni varnarleikur kallar
fram villimanninn í manni. Það eru
talsverð læti og hann krefst mikillar
vinnu og að allir leikmenn séu á fullri
ferð. Þetta er skemmtileg vörn sem á
vafalaust eftir að reynast okkur vel
þótt erfitt hafi verið að venjast henni
í upphafi,“ segir
Arna Sif Pálsdóttir,
reyndasti leik-
maður kvenna-
landsliðsins í
handbolta sem tekur á
móti Slóvenum í undan-
keppni EM í Laugardals-
höll í kvöld. »1
Varnarleikur sem kallar
fram villimanninn
Ótrúleg sigurkarfa Kára Jónssonar
yfir nánast allan völlinn tryggði
Haukum sigur á Keflavík, 85:82, í
öðrum leik liðanna í úrslitakeppni
karla í körfuknattleik í Keflavík í gær-
kvöld. Haukar eru þar með komnir í
2:0 í einvíginu. Sama er að segja um
Tindastól sem burstaði Grindavík á
útivelli með rúmlega 30 stiga mun og
stendur líka mjög vel að vígi. »2-3
Ótrúleg sigurkarfa Kára
gegn Keflvíkingum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Aldurinn þvælist ekki fyrir fólki, sem mætir í Fíf-
una, íþróttahöll Breiðabliks í Kópavogi, og gengur
sér til heilsubótar á morgnana, sumir alla virka
daga. Bjartmar kemur upp í hugann og sér-
staklega laglínan „og pabbi yngist upp um átján
ár, á nóinu,“ í laginu Týnda kynslóðin, því hress-
leikinn er svo sannarlega í fyrirrúmi, þó að skír-
skotunin hjá söngvaranum hafi verið önnur. Yfir-
skriftin „Fífuganga til heilsubótar“ stendur vel
undir nafni.
Hjónin Sigurborg Þórarinsdóttir og Þorbergur
Þórhallsson eru á fleygiferð í salnum, þegar
Morgunblaðsmenn ber að garði. Þau segjast vera
í endurhæfingu og hreyfingin geri þeim gott. „Ég
byrjaði að ganga hérna eftir aðgerð á mjöðm fyrir
sex árum og hef notað aðstöðuna síðan með góð-
um árangri,“ segir Þorbergur. Sigurborg tekur í
sama streng. Hún er nýbyrjuð að ganga sér til
heilsubótar en er auk þess í skipulagðri þjálfun
eftir aðgerð á hné. „Ég gat ekki gengið svona fyrir
einu og hálfu ári,“ segir hún kát og þar með eru
þau rokin af stað á ný.
Tjaldurinn og lífið lifandi
Nokkrir hressir Eyjamenn og vinir þeirra sitja
við borð í anddyrinu og fara yfir sviðið eftir göngu
úti í góða veðrinu. „Við höldum að það sé komið
vor því við sáum tjald í morgun,“ segir Sigurður
Guðmundsson, tæplega 87 ára og aldursforseti
dagsins, en Ragnar Hafliðason, sem verður 90 ára
í nóvember, var fjarverandi. „Hjá okkur er nefni-
lega málið að lifa lífinu lifandi.“
Félagarnir byrjuðu að ganga saman sér til
heilsubótar fyrir um 15 árum. Þeir búa allir í
Kópavogi og hittust fyrst hjá Hilmi Þorvarðarsyni
í Lakkhúsinu við Smiðjuveg – segja að hann hafi
kennt Torfa Bryngeirssyni frjálsíþróttamanni –
en hafa gengið í Fífunni síðan íþróttahöllin var
opnuð fyrir almenningi. „Svo göngum við úti þeg-
ar vel viðrar,“ segja þeir í kór og leggja áherslu á
að þeir endi samverustundina með því að fá sér
kleinur og kaffi í Reynisbakaríi.
Heilsubót er útgangspunkturinn, en þeir nefna
líka félagsskapinn og ekki síst fjörugar og harðar
umræður. „Við tölum um allt, fiskveiðar, stjórn-
mál, íþróttir, nefndu það bara,“ segir Friðrik
Jónsson. „Það var til dæmis gott að heyra að eftir-
litið með kosningunum í Rússlandi um helgina var
í góðum höndum hjá Öryggis- og samvinnu-
stofnun Evrópu, það náði til 3.000 af 96.000 kjör-
stöðum.“
Friðrik og Haukur Sigurðsson segjast aldrei
hafa komið nálægt skipulögðum íþróttum. „Ég er
fæddur 1934 og alinn upp í Stakagerði,“ rifjar
Haukur upp. „Þegar ég var pínulítill man ég eftir
að hafa séð þýskar flugvélar fljúga í gegnum eiðið.
Fólk var hrætt og sendi krakkana í sveit og ég var
sendur austur í Öræfin, var þar meira og minna til
1950. Á næsta bæ við hann,“ segir Haukur og
bendir á Guðjón Bergsson. „Við höfum haldið
kunningsskap síðan,“ bætir sá síðarnefndi við.
„Ég var aldrei mikið í íþróttum áður en við fórum
að ganga okkur til heilsubótar,“ heldur Haukur
áfram. „Það var helst stangarstökk þegar ég var
að hoppa yfir læki og reka beljurnar í Öræf-
unum.“
Ganga í Fífunni í kjölfar
stangarstökks í Öræfum
Morgunblaðið/Hari
Göngugarpar Frá vinstri: Hilmir Þorvarðarson, Guðjón Bergsson, Friðrik Jónsson, Haukur Sigurðs-
son og Sigurður Guðmundsson bera sig vel eftir göngu á æfingasvæði Breiðabliks, jafnt úti sem inni.
Aðstaðan í íþróttahöllinni í
Kópavogi vel nýtt á morgnana
Fífan Hjónin Sigurborg Þórarinsdóttir og
Þorbergur Þórhallsson við göngubrautina.