Morgunblaðið - 26.03.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.03.2018, Blaðsíða 2
Sjá mátti fjölmenna leitarflokka fara um ná- grenni Morgunblaðshússins í Hádegismóum í gær og grandskoða hvert strá og stein í þeirri von að finna þar litla páskaunga sem búið var að fela. Ungana mátti síðan nota sem skiptimynt fyrir páskaegg eða aðra vinninga í páskaeggjaleit útvarpsstöðvar- innar K100. Einstaklega blítt veður gær- dagsins, á pálmasunnudag, átti þátt í að skapa eftirminnilega stund en áætlað er að um tvö þúsund manns hafi tekið þátt í páska- eggjaleitinni. Alls var sjö hundruð páska- ungum komið fyrir í nágrenni Morgunblaðs- hússins og var gestum boðið upp á léttar veitingar, Andrésblöð og skemmtiatriði, þar sem enginn annar en íþróttaálfurinn tróð upp. Heiðar Austmann, útvarpsmaður á K100, var á svæðinu og segir að þrefalt fleiri hafi tekið þátt í leitinni í ár en í fyrra. Kátir leitarflokkar leituðu að páskaungum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2018 Alvöru bókabúð og miklu meira www.boksala.is 50-70% afsláttur af erlendum bókum og völdum vörum. 15. mars til 20. apríl Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Töluvert um sameiginlega lista í ár  Viðreisn víða í samstarfi við aðra flokka um framboðslista til sveitarstjórna  Varaformaður flokks- ins segir engar efasemdir um samstarf við Bjarta framtíð  Sameiginlegur listi í mótun í Fjallabyggð? Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is Nokkuð er um að stjórnmálaflokkar bjóði fram í sameiningu til sveitar- stjórnarkosninga í vor eða styðji við lista sem kenna sig ekki við tilteknar stjórnmálahreyfingar. Viðreisn hef- ur víða tekið höndum saman með öðrum flokkum um framboð til sveit- arstjórna og býður einungis fram undir eigin merkjum í Reykjavík. Viðreisn á aðild að Garðabæjar- listanum sem kynntur hefur verið til höfuðs Sjálfstæðisflokknum í Garða- bæ og mun bjóða fram sameiginleg- an lista með Bjartri framtíð í bæði Kópavogi og Hafnarfirði og sameig- inlegan lista með Pírötum í Árborg. Þá mun flokkurinn vinna með Neslistanum á Seltjarnarnesi og styðja framboð L-listans á Akureyri, en viðreisnarfólk þar í bæ mun vænt- anlega taka sæti á þeim lista, að sögn Þorsteins Víglundssonar, varafor- manns Viðreisnar. „Við ákváðum strax í upphafi þeg- ar farið var að ræða mögulegt fram- boð í sveitarstjórnum að við mynd- um ganga opin til samstarfs ef það yrði í boði, að því gefnu að áherslu- mál yrðu svipuð,“ segir Þorsteinn og bætir því við að sveitarstjórnir snú- ist oft um aðrar málefnaáherslur en landsmálapólitíkin. Hann segir Við- reisn ekki hafa efasemdir um sam- starf við Bjarta framtíð í Kópavogi og Hafnarfirði í ljósi þess litla fylgis sem Björt framtíð nýtur á landsvísu. „Það er alveg ljóst að Björt fram- tíð fékk mikið högg í landsmálunum sér í lagi en flokkurinn hefur haft nokkuð sterka stöðu og verið þátt- takandi í meirihlutasamstarfi bæði í Kópavogi og Hafnarfirði, þannig að okkur finnst þetta mjög fínt. Mál- efnaáherslur flokkanna í báðum sveitarfélögunum eru mjög svipaðar og við teljum að það sé mikill styrkur fyrir báða flokka að þessu sam- starfi,“ segir Þorsteinn. Sprettur upp hjá fólkinu Birkir Jón Jónsson, formaður sveitarstjórnarráðs Framsóknar- flokksins, segir að sér sýnist sem framboðsmálin hjá flokknum verði með svipuðum hætti og þau voru fyr- ir fjórum árum, en þau mál skýrist betur eftir páska. „Þetta er náttúrlega ekki eitthvað sem er miðstýrt hjá flokknum, held- ur eitthvað sem sprettur upp hjá fólkinu í hverju og einu byggðarlagi. Sú vinna er bara í gangi vítt og breitt um landið,“ segir Birkir Jón, en í gær kom fram á vefsíðunni Héðins- fjörður.is að háværar raddir væru uppi um sameiginlegt framboð Framsóknar og jafnaðarmanna í Fjallabyggð. Þar hefur einungis Sjálfstæðisflokkurinn tilkynnt fram- boðslista enn sem komið er. Þorsteinn Víglundsson Birkir Jón Jónsson Hjúkrunarnemar sem útskrifast sumarið 2018 frá Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri eru ósáttir við þau laun sem Landspítali býður nýútskrifuðum hjúkrunarfræðing- um. Þeir ætla ekki að ráða sig á spít- alann nema þeim bjóðist grunnlaun upp á 450.000 krónur. Þetta kemur fram í yfirlýsingu 96 hjúkrunar- fræðinema sem útskrifast í vor. Allt að 60.000 króna munur Í tilkynningunni segir að mikill munur sé á þeim launum sem bjóð- ist nýútskrifuðum hjúkrunarfræði- nemum. Dæmi séu um að munurinn sé yfir 60.000 krónur. Dagvinnulaun í heimahjúkrun hjá Reykjavíkur- borg séu 450.731 og þau séu 458.409 krónur hjá Heilbrigðis- stofnun Austur- lands. Landspítali greiði hins vegar 395.991 krónu í laun. Hildur Hol- geirsdóttir, út- skriftarnemi í hjúkrunarfræði, segir að þau hafi viljað halda áfram þeirri baráttu sem hjúkrunarnemar hófu í fyrra. Yfirlýsingin var send á stjórnendur Landspítalans og voru nemarnir í kjölfarið boðaðir á fund með Páli Matthíassyni, forstjóra Landspítala, og framkvæmdastjóra mannauðs- sviðs spítalans á morgun. Hún segir að þau hafi ákveðið að miða við grunnlaun upp á 450.000 krónur vegna þess að það séu þau laun sem þau geti fengið nánast alls staðar annars staðar fyrir vinnu sína, meira að segja hjá ríkisstofnunum. Um 84% þeirra sem munu útskrif- ast frá HÍ og HA skrifuðu undir yfirlýsinguna. Hildur segir alla nemana styðja aðgerðirnar þó svo þeir hafi ekki tök á að taka þátt í þeim. „Það er bara ekki gaman að íhuga starf sitt hver mánaðamót; hvort það sé þess virði,“ segir hún. olofr@mbl.is Hjúkrunarnemar ætla ekki að vinna á Landspítalanum  Vilja 450.000 í lágmarkslaun  Segja launamun mikinn Kjör Nemar eru ósáttir við laun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.