Morgunblaðið - 26.03.2018, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2018
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
Nígerísku skólastúlkurnar sem
hryðjuverkasamtökin Boko Haram
rændu í Dapchi, í norðausturhluta
Nígeríu, komust aftur til fjöl-
skyldna sinna í gær eftir að hafa
verið tæplega fimm vikur í haldi
hryðjuverkamanna. 111 stúlkum
var rænt af hryðjuverkasamtök-
unum þann 19. febrúar sl. Fimm
létu lífið og einni er enn haldið hjá
Boko Haram. Hún er kristin og
neitaði múslimatrú. Stúlkunum var
sleppt í síðustu viku eftir samninga-
viðræður yfirvalda og hryðjuverka-
samtakanna.
Skólastúlkurnar komnar til síns heima
AFP
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Carles Puigdemont, fyrrverandi for-
seti heimastjórnarinnar í Katalóníu,
var handtekinn á landamærum Dan-
merkur og Þýskalands í gær þegar
hann fór yfir landamærin á leið til
Þýskalands á bíl.
Evrópsk handtökuskipun var gef-
in út á hendur Puigdemont á föstu-
dag eftir að hann hélt til Finnlands
til að ræða þar við þingmenn. Ekki
liggur fyrir hvar Puigdemont er
haldi en þýsk lögregla hefur staðfest
fregnir af handtökunni.
Puigdemont flúði Finnland eftir
að þarlend stjórnvöld staðfestu að
þeim hefði borist framsalsbeiðni frá
spænskum stjórnvöldum en hann er
eftirlýstur á Spáni fyrir uppreisnar-
áróður og byltingu eftir að hafa leitt
sjálfstæðisbaráttu Katalóna í lok síð-
asta árs. Puigdemont komst frá
Finnlandi án afskipta lögreglu en
hann var á leiðinni til Belgíu þegar
hann var handsamaður.
Þúsundir manna komu saman í
Barselóna í gær, margir með fána
Katalóníu, og mótmæltu handtök-
unni. AFP segir fólk hafa hrópað:
„Puigdemont er forsetinn okkar“ og
„Frelsið pólitíska fanga“. Til átaka
kom milli mótmælenda og lögreglu,
en mótmælendur köstuðu ruslatunn-
um í lögreglusveitir sem svöruðu
með því að berja mótmælendur með
kylfum og skutu viðvörunarskotum
upp í loftið.
Puigdemont verður færður fyrir
dómara í dag til að „staðfesta hver
hinn handtekni sé,“ sögðu þýskir
saksóknarar í gær. Dómstóllinn tek-
ur þá afstöðu til þess hvort honum
verði haldið áfram í varðhaldi vegna
framsalsbeiðninnar.
Hæstiréttur Spánar gaf á föstu-
dag út alþjóðlegar handtökuskipanir
á hendur 13 katalónskum sjálfstæð-
issinnum, þar á meðal Puigdemont.
Sagði hæstiréttur að hópurinn yrði
ákærður fyrir byltingu. Verði Pu-
igdemont og samherjar hans sak-
felld eiga þau yfir höfði sér allt að 30
ára fangelsi.
Níu þeirra þrettán sem um ræðir
hafa jafnframt verið ákærð fyrir só-
un á almannafé. Þá hafa tólf til við-
bótar verið ákærð fyrir minniháttar
brot.
AFP
Handtaka Lögregla og katalónskir mótmælendur tókust á í Barselóna.
Puigdemont handtekinn
Fyrrverandi forseti heimastjórnarinnar í Katalóníu handtekinn í Þýskalandi
Eftirlýstur vegna sjálfstæðisbaráttunnar Óeirðir vegna frétta af handtökunni
Skipuleggjendur mótmæla gegn nú-
verandi skotvopnalöggjöf í Banda-
ríkjunum heita því að láta ekki deig-
an síga í baráttunni fyrir breyting-
um. Mörg hundruð þúsund nem-
endur tóku þátt í mótmælunum um
öll Bandaríkin á laugardag og eru
mótmælin þau fjölmennustu í land-
inu í tæplega tvo áratugi.
Kveikjan að mótmælahreyfing-
unni er skotárásin sem var gerð í
skóla í Flórída í síðasta mánuði.
„Þetta eru ekki endalokin, þetta
er bara byrjunin,“ sagði Emma
Gonzalez, forsprakki hreyfingar-
innar. Hin 17 ára Gonzales er nemi
við Marjory Stoneman Douglas
High School þar sem 14 nemendur
og þrír starfsmenn voru skotnir til
bana í skotárás í síðasta mánuði.
„Nýtið kosningaréttinn ykkar,“
sagði hún í ræðu sinni í Washington,
í þeirri næst fjölmennustu af öllum
mótmælagöngunum í landinu.
„Við látum í okkur heyra fyrir
komandi kosningar,“ hélt hún áfram
en þingkosningar fara fram í Banda-
ríkjunum í nóvember á þessu ári.
„Við ætlum að nýta sumarið til er-
indreksturs, við ætlum að heim-
sækja menntaskóla og ná beint til
ungmenna um land allt.“
Cameron Kasky, samnemandi
Gonzalez úr Stoneman Douglas-
skólanum, sagði mótmælin á laug-
ardag hafa vakið marga til umhugs-
unar fyrir þingkosningarnar og ýtt
við mörgum sem skráðu sig til að
kjósa í haust. „Fjöldinn á bak við
hreyfinguna er það sem stendur upp
úr. Fólk áttar sig á mikilvægi þess
að nýta kosningaréttinn.“
Mótmæltu
byssulög-
gjöfinni
AFP
Mótmæli Hafsjór mótmælenda á
mótmælunum í Washington.
Ein fjölmennustu
mótmæli aldarinnar
Að minnsta kosti
37 létu lífið og 30
voru fluttir á
sjúkrahús eftir
að gríðarmikill
eldsvoði varð í
verslunarmið-
stöð í síberísku
iðnaðarborginni
Kemerovo í
Rússlandi í gær-
dag. Á meðal
hinna látnu voru börn.
Neyðarástandi var lýst yfir á
Kemerovo-svæðinu og unnu tæp-
lega 300 manns að björgunar-
störfum. Á sjöunda tug manna var
enn saknað nokkrum klukkustund-
um eftir að eldurinn kviknaði.
Russia Today greindi frá því að
allt benti til þess að eldsupptökin
hefðu verið í trampólíngarði á
barnasvæði í verslunarmiðstöðinni.
Óttast er að 200 dýr af 25 teg-
undum sem voru í dýragarði versl-
unarmiðstöðvarinnar séu dauð.
Viðmælandi Russia Today sagði
fólk hafa forðað sér út um stiga í
geðshræringu og ekki hefði verið
hægt að bjarga dýrunum.
Mannskæður elds-
voði í Rússlandi
RÚSSLAND
Eldsvoði Frá
brunanum í gær.
Klámmyndaleikkonan Stormy
Daniels birtist á sjónvarpsskjám
vestanhafs í fréttaskýringaþætt-
inum 60 Minutes í gærkvöldi þar
sem hún opnaði sig um framhjáhald
sitt og Donalds Trumps árið 2006.
Beðið hafði verið eftir viðtalinu
með mikilli eftirvæntingu en Dani-
els fékk greidda 130 þúsund Banda-
ríkjadali rétt fyrir forsetakosning-
arnar 2016 fyrir að gæta þag-
mælsku um kynni sín af forset-
anum. Hún sagði m.a. í viðtalinu að
maður nokkur hefði komið til henn-
ar í Las Vegas árið 2011 og hótað
henni undir rós. „Þú átt fallega
dóttur, það væri synd ef eitthvað
kæmi fyrir móður hennar.“
Daniels segir sér
hafa verið hótað
BANDARÍKIN
Saga Stormy Daniels og Donald Trump.
AFP