Morgunblaðið - 26.03.2018, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú verður ekki lengur undan því vik-
ist að taka ákvörðun varðandi starfsvett-
vang. Framtíð þín er bjartari en þú þorir að
vona.
20. apríl - 20. maí
Naut Vertu ekki með stöðugar áhyggjur af
því hvað öðrum kann að finnast um þig.
Taktu því rólega og komdu jafnvægi á sjálfan
þig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ef þú heldur rétt á spöðunum ætti
þér að takast flest það sem þú vilt leggja
áherslu á. Kynntu þér menn og málefni áður
en þú myndar þér skoðanir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er viturlegra að biðja um hlutina
kurteislega en krefjast þeirra með ein-
hverjum þjósti. Sýndu öðrum nærgætni.
Byggðu þig upp fyrir framtíðina.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Reyndu að laga þig að þeim hraða sem
er í lífi þínu. Til þess að sambönd þín gangi
upp þarft þú að sýna jafn mikla fórnfýsi og
aðrir sýna þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hlutirnir ganga oft betur og hraðar
fyrir sig ef þú reynir að verja þig fyrir um-
hverfinu. Gefðu þér tíma til að velta málum
fyrir þér, það breytist ekkert þótt dagur líði.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það kann eitt og annað að koma þér á
óvart í dag. Reyndu að gera þér grein fyrir
því til hvers er ætlast af þér í stað þess að
láta þínar eigin væntingar ráða ferðinni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú gætir þurft að standa fyrir
máli þínu gagnvart mikilvægum hópi í dag.
Gættu þess að rugla ekki augljósum aft-
urkipp saman við falinn gimstein.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Lánið leikur við þig og þér er
ekkert of gott að njóta þess á meðan þú get-
ur. Einhver ber upp óvænta bón sem kemur
þér verulega á óvart.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Öðrum finnst þú þurfa lítið að
hafa fyrir hlutunum af því að þú berð ekki ut-
an á þér hvað vandlega þú vinnur þín störf.
Þú ættir að slaka svolítið á og hvíla þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er gott að eiga fund með
góðum vinum. Hugsaðu þig tvisvar um áður
en þú eyðir peningum, deilir þeim eða gefur
öðrum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vinur þinn trúir þér fyrir ráðagerðum
sínum og þú mátt ekki láta í ljós vanþóknun
þína. Þú þarft að vera tilbúinn til að hlusta á
vininn, þegar hann þarfnast þín.
Sigmundur Benediktsson segir áLeir að skógarþrösturinn sé
honum einstakur vorboði og gleði-
gjafi, veri hann velkominn! –
„Skógarþrestinum fagnað“:
Vors með óði byrjar brag
Bragafróður semur lag.
Þröstur ljóðar langan dag
ljúft í glóðum sólar.
Lagasjóðinn löngum á hann stólar.
Fagurt syngur fuglinn minn,
frelsis klingir rómurinn,
æ um þingar andi þinn
ást með slynga hljóma.
Kveddu hingað kliðinn vors og blóma.
Giftu færir gleði þín,
gjöfum nærist sála mín,
ljúfu bæra lögin þín
líf, sem hrærir rætur.
Syngdu kæra söngva dags og nætur.
Ingólfur Ómar Ármannsson segir
á Boðnarmiði „Vor á næstu grös-
um“:
Blístrar fugl á birkigrein
blíðan söng mér færir.
Syngur burtu sorg og mein
sinnið endurnærir.
Gleði borið getur art
greikkar spor til muna.
Eykur vorið yndisbjart
orku þor og funa.
Við sama tón kveður hjá Guð-
mundi Arnfinnssyni:
Vorið færist nær og nær.
nú er blærinn þýður,
hopar snær og grundin grær,
glampar særinn víður.
Lóa syngur senn á mel
svarta bringu meður,
óði slyngum afar vel
Íslendinginn gleður.
Andrés H. Valberg orti um „vor í
Skagafirði“:
Sést hér falleg sólar rún,
svignar allur snærinn.
Yfir hjalla, engi og tún
andar fjallablærinn.
Bjarni á Siglunesi orti:
Sjóinn þó ég sjái á
og sóist ró til neta
mjó er fró því fá ei má
úr flóanum nóg að éta.
Ósk Skarphéðinsdóttir orti:
Oft þó hafi illu kynnst
á það hiklaust treysti
að búi í hvers manns eðli innst
einhver góður neisti.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vorboðinn ljúfi er
fugl á birkigrein
„ÉG GÆTI HÆKKAÐ VASAPENINGINN ÞINN
– EÐA FLUTT HANN Á AFLANDSREIKNING
ÞAR SEM SKATTPRÓSENTAN ER LÆGRI.“
„KANNSKI ÆTTUM VIÐ AÐ LEGGJA
EINHVERS STAÐAR ANNARS STAÐAR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að setja hann í
dagbókina fyrir kúr kl.
19.30 í kvöld.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞAÐ ER EKKERT ÁHUGA-
VERT TIL AÐ HORFA Á
ÞANNIG AÐ ÉG HORFI
BARA HRAÐAR Á
KONA REYNDI VIÐ MIG MEÐAN ÉG VAR ÚTI
AÐ VERSLA! GERIR ÞAÐ ÞIG AFBRÝÐISAMA?
JÁ!
ÉG VILDI AÐ
ÉG HEFÐI
VERIÐ ÚTI AÐ
VERSLA!
Nichole Leigh Mosty, fyrrverandiþingmaður Bjartrar framtíðar,
sagði í viðtali á morgunvakt RÚV í
síðustu viku að eitt það versta sem
henti í núverandi starfi hennar sem
leikskólastjóri væri þegar foreldrar
kvörtuðu yfir því að starfsmenn skól-
ans töluðu með erlendum hreim og
hefðu þar af leiðandi íslenskuna ekki
vel á valdi sínu. Setti skólastjórinn
þetta í samhengi við kynþátta-
fordóma en Sameinuðu þjóðirnar til-
einka 21. mars ár hvert baráttunni
gegn þeim vondu viðhorfum. Í orðs-
ins hljóðan liggur að fordómar merki
að dæmt sé fyrirfram án þekkingar
og ber því að nota orðið samkvæmt
því. Að mati Víkverja er því fráleitt að
telja það vera fordóma þótt foreldrar
geri þá sjálfsögðu kröfu að fólkið sem
gætir og kennir börnunum þeirra tali
hljómmikla íslensku með góðum
orðaforða. Fólk af erlendu bergi brot-
ið sem margt vinnur á leikskólum
hefur það sjaldnast. Það læra börnin
sem fyrir þeim er haft, segir mál-
tækið og minna má á margvíslegar
ráðstafanir til eflingar íslenskri
tungu. Þar er mikilvægt að fólk sé í
sama takti og góður grunnur sé lagð-
ur strax í leikskóla.
x x x
Ein af áhugaverðari fréttum síðustuviku var sú að Landlæknir hefði
samið við tölvufyrirtækið Advania um
vörslu þess á gagnabanka þar sem
eru allar helstu upplýsingar um sam-
skipti einstaklinga við heilbrigðis-
kerfið. Eiga upplýsingar þessar að
vera persónugreinanlegar og í því
liggur rót meints vanda. Nú vitum við
auðvitað að læknar, hjúkrunarfræð-
ingar og aðrar heilbrigðisstéttir þurfa
að gæta þagmælsku í sínu starfi. En
er almenningi í mun að ekkert fréttist
um veikindi hans eða samskipti við
heilbrigðisstarfsfólk? Mörgum er það
vissulega en munum samt líka að
sjúklingaviðtöl í fjölmiðlum vekja
jafnan áhuga, veikir segja frá sínu á
félagsmiðlum, efnt er til fjársafnana
þeim til handa og fleira. Það er líka
næsta víst að í fermingarveislum um
helgina voru sjúkrahússögur og
heilsufar oft til umræðu þar sem heil-
brigt fólk hesthúsaði feitt rjómasull
og kransæðakítti og lagði drög að eig-
in hjartaáfalli. vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég hef augu mín til fjallanna, hvaðan
kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur
frá Drottni, skapara himins og jarðar.
(Sálm: 121.1-2)
Nýlöguð
humarsúpa
Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00
Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Glæný lúða
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði
fyrir þig til að taka með heim
Ný línuýsa
Klaustur-
bleikja