Morgunblaðið - 26.03.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2018
MADEIRA
5. apríl í 14 nætur
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
á flugsæti
m/gistingu
FY
RI
R2 1
ÁÐUR KR.
85.600
NÚ KR.
42.800FL
UG
SÆ
TI
Frá kr.
89.995
2FYRIR1
Ólöf Ragnarsdóttir
olofr@mbl.is
Framboðslisti Höfðuðborgarlistans
var kynntur fyrir framan Ráðhús
Reykjavíkur í gær. Björg Kristín
Sigþórsdóttir, formaður og oddviti
flokksins, segir framboðið þverpóli-
tískt afl sem einblíni á málefni. „Við
ætlum að leggja ofuráherslu á
íbúðamál. Við ætlum að byggja
10.000 íbúðir núna fyrir ungt fólk í
borginni og munum gera það á
fyrsta kjörtímabilinu. Til dæmis í
Grafarholti og Norðlingaholti,“
sagði Björg.
Hún sagði framboðið ætla að for-
gangsraða verkefnum fyrir íbúa.
Efst á lista væru mengunarmál og
íbúðamál. Þá væru samgöngumál
ofarlega á baugi.
Samgöngumál þyrfti að horfa á til
framtíðar. „Við verðum líka að fara
varlega. Við erum lítið land, ég sé
ekki að það sé gott að eyða 70-100
milljörðum í eitthvert verkefni sem
enginn veit hvað muni skila fólki,“
sagði hún og vísaði þar til borgar-
línu. „Okkur finnst óábyrgt að setja
svo mikið af skattfé almennings í
svona aðgerð þegar ekki er vitað
hverju hún muni skila,“ sagði Björg.
Frekar eigi að gera umbætur á
strætókerfinu.
Þá vilji þau byggja Sundabraut
tafarlaust. „Við þurfum að dreifa að-
eins bílunum. Það er talað um að
það sé svo mikið af bílum en það er
náttúrlega ekkert skrýtið þegar þeir
eru allir á sama blettinum.“ Meng-
unarmál eru einnig ofarlega á lista
framboðsins. „Við munum taka sex
til átta mánuði í að ná tökum á
hreinsun gatna og hreinsa hér stofn-
vegi og ná tökum á því.“
Efstu þrjú sæti Höfuðborgarlist-
ans skipa, auk Bjargar, Sif Jóns-
dóttir og Snorri Marteinsson.
Höfuðborgarlistinn kynntur
fyrir framan Ráðhúsið í gær
Þverpólitískt framboð Telja borgarlínu óábyrgt verkefni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nýtt framboð Höfuðborgarlistinn
var kynntur fyrir utan Ráðhúsið.
Hafa ekki
afhent
gögnin
„Það er ekkert
nýtt að frétta,“
segir Páll Krist-
jánsson, lögmað-
ur Sunnu Elviru
Þorkelsdóttur
sem liggur lömuð
á sjúkrahúsi í Se-
villa á Spáni eftir
slys.
Síðustu vend-
ingar í málinu
voru þegar Páll greindi fjölmiðlum
frá því að íslensk lögregla neitaði að
afhenda tiltekin gögn sem eru nauð-
synleg svo Sunna gæti snúið til Ís-
lands. „Þetta eru ákveðin samskipti
milli aðila,“ segir Páll spurður út í
hvers lags gögn um ræði. „Þetta er
sérstaklega athugavert í því ljósi að
það er enginn í einangrun vegna
málsins, einn er í lausagæslu, svo ég
sé ekki hvaða rannsóknarhagsmunir
gætu legið þarna að baki,“ segir
Páll.Hann segir lítið annað hægt að
gera núna en að bíða og sjá hvernig
málið þróist, íslensk lögregla hafi
óskað eftir því að taka yfir rannsókn
málsins fyrir nokkru en án árangurs.
„Fjölskyldan er hjá henni núna.
Sunna er í sinni endurhæfingu að
safna styrk,“ segir Páll.
Sunna Elvira
Þorkelsdóttir
Sunna er enn á
spænsku sjúkrahúsi
Ólöf Ragnarsdóttir
olofr@mbl.is
Undanfarið hefur gengið verr en áður
að útskrifa nýbakaðar mæður og börn
þeirra af sængurkvennadeildum sök-
um þess að erfitt er að fá ljósmæður í
heimaþjónustu. Bergrún Svava Jóns-
dóttir, ljósmóðir sem situr í samn-
inganefnd ljósmæðra í heimaþjón-
ustu, segir að þjónusta við
sængurkonur sé byggð upp út frá
heimaþjónustunni.
Kjarabarátta ljósmæðra skiptist í
tvennt. Deila Ljósmæðrafélags Ís-
lands og samninganefndar ríkisins er
nú hjá ríkissáttasemjara og er næsti
fundur 3. apríl. Ljósmæður í heima-
þjónustu eru sjálfstætt starfandi og
semja við Sjúkratryggingar Íslands.
Á fundi í síðustu viku náðust samn-
ingar ljósmæðra í heimaþjónustu við
Sjúkratryggingar en sá samningur
bíður nú samþykkis ráðherra. Berg-
rún segir að ekki sé um verkfall að
ræða hjá heimaþjónustu-ljósmæðr-
um, um verktakavinnu sé að ræða og
þær séu einfaldlega að kjósa að taka
ekki verkefnin að sér. „Það eru bara
alltaf fleiri og fleiri ljósmæður búnar
að fá sig fullsaddar af þessum ótrú-
lega lágu launum,“ segir hún.
Frá 2008 hafa langflestar konur
farið heim í heimaþjónustu eftir fæð-
ingu. Frá árinu 2015 hefur hlutfall
þeirra sem útskrifast í heimaþjónustu
verið um 87%. „Það er gert ráð fyrir
að konur fari heim. Landspítali hefur
enga burði til þess að taka við þeim,“
segir Bergrún.
Þreyttar á ástandinu
Áslaug Valsdóttir, formaður Ljós-
mæðrafélags Íslands, hefur heyrt af
vandanum. „Ég heyrt það að það sé
orðið frekar erfitt að útskrifa konur í
heimaþjónustu,“ segir Áslaug en bæt-
ir við að í því séu alltaf sveiflur. Ef
komi upp margar fæðingar á sama
tíma geti reynst erfitt að finna ljós-
mæður í heimaþjónustu. „En launin
hafa náttúrulega líka verið alveg
hrottalega lág þannig að ég finn að
það eru mjög margar ljósmæður
orðnar þreyttar á að slíta sér út á
þessu. Fyrir svona lág laun, það bara
borgar sig ekki, hreinlega,“ segir hún.
Illa gengur að útskrifa sængurkonur
Margar ljósmæður hættar að sinna heimaþjónustu vegna lélegra launa Þjónusta við sængurkonur
byggð upp í kringum heimaþjónustu Ljósmæður í heimaþjónustu sjálfstætt starfandi í verktakavinnu
Morgunblaðið/Ásdís
Nýfætt barn Erfitt er að fá ljósmæður til að sinna heimaþjónustu.
Hafin er í Sveitarfélaginu Árborg
undirskriftasöfnun sem miðar að
því að tillaga til breytinga á aðal-
skipulagi miðbæjarins á Selfossi,
sem gerir ráð fyrir því að þar verði
reistar byggingar í gömlum stíl,
sbr. áform Sigtúns þróunarfélags,
fari í atkvæðagreiðslu meðal íbúa.
Bæjarstjórn samþykkti tillöguna í
síðasta mánuði og bíður hún nú
staðfestingar Skipulagsstofnunar.
Að undirskriftasöfnuninni standa
Davíð Kristjánsson, Gísli Ragnar
Kristjánsson og Aldís Sigfúsdóttir.
Þurfa þau að hafa safnað 1.900 und-
irskriftum 29% atkvæðisbærra íbúa
fyrir 20. apríl eigi efni tillögunnar
að öðlast líf, það er kosningar sem
sveitarfélagið þarf þá að efna til
innan eins árs. sbs@mbl.is
Vilja kosningar
um miðbæjarmál
á Selfossi
Fjölmargir lögðu leið sína í Smáralind í gær til að sjá
þar bikarinn sem verður veittur því liði sem verður
heimsmeistari í knattspyrnu karla á heimsmeistara-
mótinu í Rússlandi í sumar.
Bikarinn hefur verið á faraldsfæti um heiminn í
einkaþotu merktri Coca Cola. Í fyrradag var hann í
Þórshöfn í Færeyjum og í dag liggur leið hans til Arg-
entínu. Með í för er franski knattspyrnumaðurinn
Christian Karembeu, sem lék með franska landsliðinu
sem vann HM 1998.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kom með einkaþotu til landsins
Magir vildu sjá HM-bikarinn sem er á ferðalagi um heiminn
Engar nýjar vísbendingar hafa kom-
ið fram í tengslum við hvarf Hauks
Hilmarssonar sem talinn er hafa fall-
ið í átökum við tyrkneska herinn í
Afrin-héraði seint í síðasta mánuði.
Þetta sagði Sveinn H. Guðmars-
son, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðu-
neytisins, í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Guðlaugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra sagði í síðustu viku
mál Hauks vera í algjörum forgangi
hjá ráðuneytinu.
Engar vísbend-
ingar í máli Hauks